Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 6
HEIMURINN EL SALVADOR SAN SALVADOR Rúmlega 29 þúsund morð hafa verið framin í El Salvador á undanförnum sjö árum. Morðaldan á landinu virðist þó í rénun því að á fyrstu átta mánuðum þessa árs hafa tvö þúsund morð verið framin. Morðum á dag fækkaði úr 14 í 5,5 eftir að öflugustu glæpa- gengin í landinu gerðu með sér vopnahlé í mars. Sérfræðingar óttast að vopnahléð geti verið brothætt. ÍRAN TEHERAN Mótmæli brutust út í miðborg Teheran í Íran vegna hruns íranska gjaldmiðilsins, ríalsins, sem undanfarna viku hefur fallið um 40% gagnvart Bandaríkjadollar. Hundruð lögreglumanna voru í viðbragðsstöðu. Vesturlönd beita nú Írana refsiaðgerðum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, kallaði gjaldmiðilskreppuna „sálrænt stríð“ af hálfu vestursins gegn gjaldeyrismarkaðnum. FILIPPSEYJAR MANILA Gloira Arroyo, sem var forseti Filippseyja frá 2001 til 2010, var handtekin á fimmtudag fyrir fjársvik. Henni er gefið að sök að hafa dregið sér 8,8 milljónir dollara úr ríkislottói landsins. Ágóði þess rennur til góð- gerðarmála. Arroyo, sem situr á þingi, á einnig yfir höfði sér kærur vegna kosningasvika í kosningunum 2007 og spillingu vegna breiðbandssamnings við Kínverja sem fór út um þúfur. GEORGÍA TÍFLIS Framboðið Georgíski draumurinn með auðkýfinginn Bidzina Ivanishvili í fararbroddi sigraði óvænt í þingkosningum í Georgíu í vikunni. Mikheil Saakashvili forseti játaði sig sigraðan og hefur hlotið hrós fyrir að taka ósigrinum með reisn. Þetta yrðu fyrstu friðsamlegu valdaskiptin í sögu Georgíu. Mitt Romney þótti ná sér á strik í fyrstu kappræðum for- setaframbjóðendanna á mið- vikudag og standa sig mun betur en Barack Obama. „Romney náði að slá Obama út af laginu með því að seilast inn á miðjuna og tala um hlutverk ríkisins í samfélaginu,“ sagði Michael Corgan, dósent í stjórn- málafræði. Nú væri spurn- ingin hvaða áhrif þetta hefði á hægri væng Repúblikanaflokksins, hvort hann myndi kyngja gallinu og mæta á kjörstað eða sitja heima. H versu lýðræð- islegar eru kosn- ingar í Bandaríkj- unum? Eru áhrif peninga komin út fyrir öll mörk? Er reynt að hafa áhrif á úrslit kosninga með því að letja menn til að kjósa? Þessar spurningar voru meðal efnis fyr- irlestrar, sem Michael Corgan, dós- ent í alþjóðasamskiptum við Boston University í Bandaríkjunum, setti fram í fyrirlestri í Háskóla Íslands á föstudag. Corgan sagði að kostnaður við framboð yxi stöðugt. Til marks um mikilvægi peninganna rifjaði hann upp að Ronald Reagan hefði fyrstu þrjú árin í embætti aðeins haldið þrjá fjáröflunarfundi. Obama hefði á fyrstu þremur árunum í embætti haldið 194 slíka fundi. Romney hefði meira að segja haldið fjáröfl- unarfund í Ísrael. Corgan sagði að allar flóðgáttir hefðu opnast eftir að hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði 31. jan- úar 2010 að fyrirtæki, stéttarfélög og hugmyndafræðileg samtök mættu eyða að vild í auglýsingar fyrir kosningar í máli sem höfðað var eftir að samtökunum Citizens United var meinað að sýna áróð- ursmynd gegn Hillary Clinton í kapalsjónvarpi. Í raun hefði meiri- hluti dómsins sagt að fyrirtæki væru fólk sem gæti eytt peningum til að koma skoðunum sínum á framfæri. „Fyrirtæki eru hinir nýju kjósendur,“ sagði Corgan. Peningarnir koma í gegnum svo- kallaðar pólitískar aðgerðanefndir, skammstafaðar PAC, og er talað um áhrif slíkra ofurnefnda, Super PAC. Corgan sagði að fyrir þing- kosningarnar árið 2010 hefðu 84 hópar eytt 65 milljónum dollara. Það sem af væri þessu ári hefðu 797 hópar eytt 349 milljónum dollara. 60% þeirrar upphæðar hefðu komið frá 100 gefendum. Búast mætti við því að aðgerðanefndirnar hefðu eytt allt að milljarði dollara áður en yfir lyki. Einu höftin á áróð- ur þeirra væri að þær mættu ekki lýsa yfir beinum stuðningi við frambjóðendur og yrðu að vera aðskildar frá framboðinu. „Er þetta lýðræði?“ spurði Corgan. Hann sagði að til marks um peningana í pólitík væri að sjónvarpsstöðin CBS gerði ráð fyrir að tekjur hennar myndu aukast um 180 milljónir dollara vegna pólitískra auglýsinga í kring- um kosningarnar. Gert erfitt fyrir að kjósa Corgan rakti einnig hvernig hreyf- ingin True the Vote hefði sett svip sinn á aðdraganda kosninganna með kröfunni um að enginn fengi að kjósa nema hann gæti sannað hver hann væri með opinberum gögnum. „Þeir hafa áhyggjur af kosninga- svikum, en þó hafa engin alvarleg tilfelli verið skráð,“ sagði hann. Hingað til hafa þær reglur gilt að kjósendur verði að skrá sig nokkru fyrir kjördag til að geta kosið á kjördag. Í Bandaríkjunum eru engin opinber nafnskírteini og ekki eru allir með ökuskírteini, sérstaklega ekki í kjörnum stórborganna þar sem íbúarnir hafa minnst á milli handanna. Samtökin hafa verið sök- uð um að hrella kjósendur í hverf- um blökkumanna og íbúa af suður- og mið-amerískum uppruna. „Hverjum er verið að halda frá kjörklefanum?“ spurði Corgan. „Þessi herferð er líklegust til að koma í veg fyrir að fátækir kjós- endur fari á kjörstað og þeir eru líklegri til að kjósa demókrata.“ Í flestum ríkjum Bandaríkjanna eru úrslit kosninganna í raun ráðin og þar verða kjósendur vart varir við kosningabaráttuna. „Aðeins 13 ríki skipta máli og þar fer öll kosn- ingabaráttan fram,“ sagði Corgan. „Af þeim beinist mest athygli að Ohio. Enginn repúblikani hefur unn- ið í forsetakosningum án þess að sigra í Ohio. Í raun er verið að kjósa forseta Ohio.“ Peningar í bandarískri pólitík DÓMUR HÆSTARÉTTAR BANDARÍKJANNA OPNAÐI FLÓÐ- GÁTTIR FYRIR FYRIRTÆKI OG SAMTÖK TIL AÐ BEITA ÁHRIF- UM SÍNUM Í BANDARÍSKUM STJÓRNMÁLUM. „ER ÞETTA LÝÐRÆÐI?“ SPURÐI MICHAEL CORGAN DÓSENT Í FYR- IRLESTRI UM KOSNINGARNAR. Michael Corgan ROMNEY Á MIÐJUNA Mitt Romney og Barack Obama heilsast í upphafi kappræðna þeirra í Denver í Colorado á miðvikudag. Þetta var fyrsta viðureign þeirra af þremur og þótti Romney hvass og beittur, en Obama annars hugar og óundirbúinn. AFP * „Ofuraðgerðanefndir kunna að vera slæmar fyrirBandaríkin, en þær eru góðar fyrir CBS.“ Les Moonves, framkvæmdastjóri bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CBS, sem gerir ráð fyrir 180 milljóna dollara tekjuauka vegna pólitískra auglýsinga. Alþjóðamál KARL BLÖNDAL kbl@mbl.is 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 07. 10. 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.