Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 8
Vettvangur 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 07. 10. 2012 Áður en lýðræði varð almennt trúðu sumir þvíað pólitískt vald þeirra kæmi frá Guði. Síð-ar kom það frekar frá einstaka ættum eða alræðisflokkum. Nú er flestum ljóst að valdið kemur frá fólkinu sjálfu. Augljós staðreynd í lýðræðisríki og ágæt áminning fyrir stjórnmálamenn sem margir virðast telja sig eina njóta slíks umboðs almennings. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa að und- anförnu ítrekað sagt að þeir muni, óháð niðurstöðu kosninga, ekki starfa með Sjálfstæðisflokknum að þeim loknum. Forsætisráðherra bætti nýlega um betur og sagði það „óbærilega“ og „ískyggilega“ til- hugsun ef sá flokkur, sem nú virðist njóta mests stuðnings almennings, kæmist til valda. Ummæli sem gera lítið úr vali og valdi fólsins, enda kemst enginn til valda nema fyrir vilja fólksins og það getur enginn stjórnmálamaður ákveðið fyrirfram hvernig verði unnið með eða jafnvel komið í veg fyrir þann vilja. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, sem reglulega minna á að þeir séu lýðræðislega kjörnir, virðast þannig gleyma því að aðrir eru einnig þannig kjörnir. Ef sú staðreynd er bæði „óbærileg“ og „ískyggileg“ fyrir þá væri nær að viðurkenna eigin virðingarleysi fyrir lýðræðinu en fella slíka dóma um stóran hluta þjóðarinnar. Forsætisráðherra hefur sagt að kostirnir sem kjósendur standi frammi fyrir í komandi kosningum séu skýrir: „Annars vegar eru það sjálfstæðismenn og hins vegar við jafnaðarmenn og vinstri græn sem höfum með verkum okkar sýnt hvað við viljum gera. Sé litið framhjá því hversu lítið er gert úr öðrum flokkum en þeim sem nefndir eru, þá er það vissu- lega rétt að valið í vor snýst um ríkisstjórnina eða breytingar. Það er rétt að forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa sýnt hvað þeir vilja gera og hvert þeir vilja stefna. Einmitt þess vegna ættu „óbærilegar“ og „ískyggilegar“ áhyggjur þeirra ekki að snúast um stöðu annarra flokka, heldur þá augljósu staðreynd að almenningur virðist ekki vilja að sú stefna ráði áfram för. Öðru nær, bendir allt til þess að fólkið vilji breytingar og ríkisstjórnarflokkarnir nái alls ekki sameignlegu markmiði sínu um að njóta meirihluta- stuðnings í komandi kosningum. En áður en ríkisstjórnir eru myndaðar eða felldar skulum við leita leiða til að hefja kosningavetur með málefnalegri hætti. Við skulum ræða hugmyndir um hvernig við getum bætt hag heimila og fyrirtækja. Við skulum ræða það sem mestu skiptir – framtíð fólksins í landinu. Og við skulum treysta því sem við trúum á – lýðræðinu og vali fólksins sjálfs. Það er svo stjórnmálamanna að una niðurstöðunni og vinna sem best úr henni. Þannig eru leikreglur lýðræðisins þótt einhverjir telji þær bæði „óbærilegar“ og „ískyggi- legar“. Óbærilegt og ískyggilegt lýðræði * Áður en ríkisstjórnireru myndaðar eða felld-ar skulum við hefja kosninga- vetur með málefnalegri hætti. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Hanna Birna Kristjánsdóttir hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is Meistaramánuður Svokallaður Meistaramánuður hófst 1. október, en markmiðið með mánuðinum er að hvetja fólk til að temja sér betri lífshætti. Þátttakendur setja sér markmið sem ætlunin er að halda út mánuðinn, svo sem að borða hollt, hreyfa sig og gera góðverk. Einhverjir furða sig á meistaratalinu og hvað þetta allt snýst um. „Ein hress í útlöndum spyr: Eru allir í megrun saman? Lík- amsræktarátaki? Bindindi? All of the above? Hvernig tengist þetta hipsterum?“ spyr Birna Anna Björnsdóttir, rithöfundur í New York, á Facebook-síðu sinni. 50 pör af skóm Sölvi Tryggvason komst í frétt- irnar í vikunni fyrir að eiga 50 pör af skóm. Af því til- efni gróf Guð- finnur Sig- urvinsson, þáttastjórnandi á Rás 2, upp 20 ára gamla frétt um eiginmann sinn, Símon Ormarsson flugþjón, sem birtist í Morg- unblaðinu. Úrklippunni deildi Guðfinnur á Facebook við mikla kátínu vina sinna en Símon segist í viðtalinu eiga 25 pör af skóm. 10 skópör Þá birti Eiríkur Jónsson á frétta- síðu sinni þau tíð- indi að Sveinn Andri Sveinsson ætti 10 skópör. Hjónaband er eins og helvíti Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur sagði frá skemmtilegri ferð í blómabúð í vik- unni. „Þá fannst blómakonunni ástæða til að segja mér það að „hjónaband er eins og helvíti og himnaríki og allt þar á milli“. Ég ætti kannski að fara oftar í blóma- búðina …“ skrifaði Elísabet. AF NETINU Birna Anna Björnsdóttir Guðfinnur Sigurvinsson Sveinn Andri Sveinsson Elísabet Jökulsdóttir Leikkonan Roseanne Barr og forsetaefni Frið- ar- og frelsisflokksins í Bandaríkjunum naut mikilla vinsælda hérlendis á 9. áratugnum í sjónvarpsþáttum sem kenndir voru við hana. Roseanne segist vera með það á hreinu hvern- ig koma eigi bandarískum efnahagsmálum í lag en lausnin sé að horfa til Íslands. Í viðtali við stjörnufréttamanninn Thom Hartmann sagði Barr að ameríska þjóðin ætti að þjóðnýta bankana, líkt og Íslendingar hafi gert. Roseanne Barr segir efnahag Bandaríkjanna þurfa sömu meðferð og sá íslenski fékk. AFP Roseanne horfir til Íslands Tónskáldið Ólafur Arnalds hefur haft í nógu að snúast að undanförnu. Meðal annars hefur hann verið að semja kvikmyndatónlist og í sumar vann hann að tveimur lögum með stór- stirninu og Íslandsvinkonunni Emmu Watson. Þá gekk Ólafur nýverið frá kaupum á stórglæsilegum Bechstein-flygli sem hann lét senda heim til sín. Glænýr flygill kominn í hús

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.