Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 17
07. 10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Úrval-Útsýn kynnir nýjan bækling: Vetrarfrí 2012-13.
Nýævintýri, hreinar strendur og fyrsta flokks hótel
bíða þín á úrvals áfangastöðum. Þú getur nálgast
ferðabæklinginn á söluskrifstofum Úrvals-Útsýnar eða
fengið hann sendan frítt heim! Þú pantar frítt eintak
á heimasíðu okkar urvalutsyn.is og við sendum hann
heim til þín, þér að kostnaðarlausu. Tryggðu þér eintak
því við erum byrjuð að bóka.
Þú getur einnig sótt stafrænt eintak af bæklingnum með því að
smella mynd af þessum QR kóða með snjallsímanum þínum.
Nýr ferðabæklingur
- Fáðu frítt eintak sent heim
til þín þér að kostnaðarlausu!
Ljósmynd/Nökkvi Fjalar Orrason
Fjöldi gosbrunna er í Róm, þeirra frægastur Trevi í mið-
borginni. Brunnurinn er í barokkstíl, 26 metra hár og
22 metra breiður. Byggingarsaga hans er löng en það
var Giuseppe Pannini sem lauk við hann árið 1762.
Brunnurinn var vettvangur ódauðlegs atriðis í kvikmynd
Federicos Fellinis, La Dolce Vita, árið 1960, þar sem
einn ástsælasti leikari Ítala fyrr og síðar, Marcello
Mastroianni, og sænska þokkadísin Anita Ekberg
bregða á leik. Hermt er að allir þeir sem fleygja smá-
mynt í Trevi-gosbrunninn muni á einhverjum tímapunkti
í sínu lífi snúa aftur til Rómar.
TREVI-GOSBRUNNURINN
Kólosseum er stórfenglegur minnisvarði um róm-
verska heimsveldið. Hringleikahúsið fræga var byggt á
árunum 72-80 og tekið í notkun í tíð Títusar keisara.
Það rúmaði 50 þúsund áhorfendur og þar barðist
margur skylmingaþrællinn fyrir lífi sínu frammi fyrir
höfðingjum og gestum þeirra. Það er mögnuð tilfinn-
ing að standa inni í Kólosseum og anda að sér þessari
löngu sögu. Leikhúsið hefur að vonum veðrast nokk-
uð gegnum aldirnar en ber eigi að síður rómverskum
arkitektúr og verkfræðiviti enn fagurt vitni.
KÓLOSSEUM
Eins og í öðrum stórborgum er hvert
torgið öðru merkilegra í Róm. Eitt
þeirra er Popolo-torg en við það
stendur ein merkasta kirkja Róma-
borgar, Santa Maria del Popolo, þar
sem getur að líta listaverk eftir menn á
borð við Rafael og Caravaggio. Róm-
antíkin svífur yfir vötnum á Popolo-
torgi enda (ágengir) blómasalar á
hverju strái. Þeir eru þeirrar náttúru
að skilja ekki merkingu orðsins nei.
Og sé þeim hafnað er eins og hjartað
hafi verið skorið úr þeim (með skeið).
POPOLO-TORG
Ljósmynd/Aþena Valý Orradóttir
Forum Romanum var mið-
bæjarsvæðið sem Róm til
forna óx út frá. Í Forum
Romanum var miðpunktur
viðskipta, menningar,
stjórnsýslu og vændis í
Rómaveldi. Á Forum Rom-
anum má enn sjá rústir
nokkurra þeirra mannvirkja
sem stóðu þar áður. Sum
eru enn uppistandandi. Við
innganginn að Forum Rom-
anum má einnig kaupa miða
í Kólosseum en röðin er
margfalt styttri.
FORUM
ROMANUM
Enda þótt Róm sé ekki jafn-
hátt skrifuð í heimi tískunnar
og Mílanó er öll helstu tísku-
hús heims þar að finna. Ýmis
nöfn hafa haslað sér völl,
meðal annarra þessir ágætu
kumpánar, Raggi og Boggi.
VERSLANIR
Péturskirkjan í Róm er ekki aðeins eitt stærsta
guðshús í heimi heldur líka einhver helgasti stað-
ur á jörðu í huga kaþólikka. Þangað streyma
gestir allt árið um kring en hafa skal í huga að
hvorki má sjást í ber læri né herðar þegar gengið
er inn í dýrðina. Péturstorgið er fyrir framan
kirkjuna en það var endurhannað af Gian Lo-
renzo Bernini á árunum 1656-67 með það fyrir
augum að sem allra flestir gætu fylgst með páf-
anum fara með blessunarorð sín á tyllidögum.
PÉTURSKIRKJAN