Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 37
32,3 á breidd og 23,4 á dýpt. Það er og þungt í
henni pundið, hún er hálft annað kíló að þyngd,
en það er kannski ekki svo mikið í ljósi þess að í
skrokkurinn á henni er úr traustvekjandi magn-
esíumblöndu. Lyklaborðið er ekki eins traustvekj-
andi, í það minnsta ekki fyrir þann sem þarf að
skrifa mikið, en „músin“ eða réttara sagt stjórnp-
latan fyrir músarhreyfingar er mjög vel heppnuð.
Það eru engir eiginlegir músarhnappar, maður
smellir á plötuna, sem reynist vel og stuðningur
fyrir multi-touch er vel útfærður.
Eins og kemur fram hér fyrir neðan er skjár-
inn mjög fínn og upplausnin 1366 x 768 dílar.
Hann er nokkuð glansandi, sem gerir erfiðara
að sjá á hann í mikilli birtu, til að
mynda í björtu sólskini, en
fyrir vikið eru litir
mettaðri og skarpari.
Tíðindin við þessa vél
eru annars einna helst þau
að hún er með 4G-stuðning og
því tilbúin til að nýta sér 4G net
Nova sem er nú í tilrauna-
keyrslu. Útbreiðslan er
því miður ekki mikil
sem stendur en
þegar það
verður kom-
ið í gang er
margfaldur hraði á
við það sem menn þekkja á
þráðlausu neti eða 3G neti í dag. Að því sögðu
þá finnst eflaust einhverjum ókostur að ekki sé á
tölvunni tengi fyrir netsnúru, en það þarf að
fórna einhverju fyrir útlitið.
Það er sitthvað fartölva og fartölva. Fyrir ekki
svo löngu fannst manni eins og tölvuframleið-
endur væru helst að keppa í því að gera tölv-
urnar sem þyngstar og
klunnalegastar, en svo sigr-
aði skynsemin og nú stefnir
allt í aðra átt. Það má til
að mynda sjá á þessari Fu-
jitsu-fartölvu, en Fujitsu
sneri aftur á Íslandsmarkað
fyrir stuttu.
Fujitsu Lif- ebook
UH572 er það
sem menn
kalla ultrabook, enda eru þær
nettari en flestar fartölvur.
Skjárinn á slíkum vélum er
minni og þær þynnri, iðu-
lega SS-drif í henni
(SSD) sem gerir að
verkum að þær eru
fljótari í gang og
eyða minni raf-
magni í að keyra
diskinn. Þær eru og
þynnri og nettari en á
móti fórna menn fyr-
irbærum eins og geisladrifi,
VGA-tengi og þess háttar sem
sjaldan er notað hvort eð er.
Fyrirtækið kynnti tvær týpur í
einu, annars vegar Lifebook U772, sem
er fyrirtækjavél með stærri skjá og dýrari bún-
aði, en þessi týpa er ætluð almenningi. Hún er
einkar nett, tæpir tveir sentímetrar að þykkt, en
ÞYNNRI OG NETTARI
FARTÖLVUR VERÐA ÞYNNRI OG MINNI EINS OG SJÁ MÁ TIL AÐ MYNDA Á FUJITSU
LIFEBOOK UH572 ULTRABOOK, SEM ER MEÐ ÞEIM NETTARI.
Græja
vikunnar
* Örgjörvinn er Intel i7-3517U, 1,9 GHz með 4 MB
biðminni, en minni í vélinni er 4
GB, stækkanlegt í 8 GB. Stýri-
kerfið 64 bita Windows 7 Pro-
fessional. Ekki vantar tengi;
hljóð inn og út, eitt USB 2.0
tengi, tvö USB 3.0 og HDMI-
tengi. Það er líka á henni minn-
iskortalesari og rauf fyrir 4G
SIM-kort eins og getið er.
* Með vélinni fylgir 500 GB5400 snúninga diskur sem er
heldur svifaseinn. Í ljósi þess að
flestir eru að flytja á netið er
ljóst að stærð diska skiptir
minna máli en hraðinn, en hægt
er að fá í hana 320 GB 7200
snúninga disk sem er betri
kostur. Nú eða setja i hana 256
GB SSD og græða hraða og
spara rafmagn..
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Skjárinn á henni er mjögfínn, 13,3" baklýstur LED-skjár
með upplausninni 1366 x 768
dílar. Skjáhlutfallið er 16:9. Skjá-
kortið er á móðurborði og
þokkalegt sem slíkt, Intel HD
Graphics 4000. Kappnóg fyrir
alla almenna notkun býst ég
við, en ekki fyrir leiki, ef ein-
hver kaupir þá slika vél sem
leikjavél.
07. 10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Ýmislegt sniðugt er að finna í heimi
smáforritanna.
Eitt þeirra er smáforritið „Appy
hour“ sem tímaritið Reykjavík
Grapewine stendur fyrir. Með því
er hægt að finna hvar tilboð á
drykkjum er að finna á börum og
veitingastöðum höfuðborgarinnar
hverju sinni. Hægt er að fá forritið í
alla Android- og iPhone-síma.
SNIÐUG SMÁFORRIT
Happy hour í
snjallsímann
Íslendingar hafa löngum verið
hrifnir af fótbolta og fylgst vel með.
Ekki allir vita e.t.v. af íslenska smá-
forritinu Lummunni, sem Stokkur
Software ehf. á heiðurinn af.
Lumman safnar saman fréttum
úr boltanum frá öllum helstu
fréttaveitum landsins og gerir
áhugasömum þannig kleift að fylgj-
ast með úrslitum þegar þau gerast.
BOLTINN Í SÍMANN
Fótboltafréttir
frá Lummunni
Hin ýmsu fyrirtæki hafa verið að
koma sér upp smáforritum. Eitt
handhægt slíkt er smáforrit Strætó
BS sem hannað er af Alda Softw-
are. Með forritinu, sem nefnist ein-
faldlega „Strætó“ er hægt að sjá
hvar strætisvagnar eru staddir í
rauntíma. Getur það án vafa orðið
til þess að einhverjir leggi síður of
seint af stað út á stoppistöð.
STRÆTÓ-SMÁFORRIT
Hægt að sjá
vagninn
iPhone 5
Þynnri, léttari og öflugri
Smáralind
Opnunartímar
Virka daga 11-19 | Fimmtudaga 11 - 21
Laugardaga 11 - 18 | Sunnudaga 13 - 18
Laugavegi 182
Opnunartímar
Virka daga 10-18 | Laugardaga 11 - 16
Sími 512 1300
Apple EarPods
Ný og mögnuð heyrnatól
Sitja vel í eyrum
Dýpri bassi
Þola betur svita og raka
Fjarstýring og hljóðnemi
Verð frá: 179.990.-
Vefverslun
www.epli.is
sendum frítt á land allt