Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 42
*Fjármál heimilannaEf marka má hagkerfi Meniga eyða Íslendingar meiri peningum í útlöndum í ár en í fyrra H elga Vilborg býr í Gerð- unum ásamt eig- inmanni sínum Krist- jáni Þór og fimm börnum þeirra. Segist hún reyna að vera hagsýn og leggja upp úr að forgangsraða við heimilishaldið. „Þar sem ég er heimavinnandi hef ég tíma til að spá í matarinn- kaupin, fylgjast með tilboðum og svona,“ segir hún. Segist hún reyna að gera aðalinnkaup einu sinni í viku. „Við reynum líka að miða við að fara ekki yfir ákveðna fjárhæð vikulega,“ segir hún en þannig er hægara um vik að leyfa sér annað af og til, t.d. um helgar. Segist hún nánast aldrei kaupa skyndibita eða tilbúinn mat og reyna að gera sem mest sjálf. Þá segist Helga vera dugleg að baka brauð og það munar um slíkt . Börnin fá hafragraut á morgnana en af innfluttu morgunkorni fari ef- laust pakki á dag. „Hafragrauturinn er bæði ódýr og hollur auk þess sem hægt er að bragðbæta hann með ýmsum hætti til hátíðabrigða,“ segir Helga Vilborg. Um fimm ára skeið bjó fjöl- skyldan í Eþíópíu þar sem þau bjuggu afar afskekkt. Þurfti þar að kaupa inn til lengri tíma og segist Helga enn búa að þeirri reynslu. „Ég nýti alla afganga og hendi nánast engu,“ segir hún. Notar hún t.d. afgang af hafragraut í vöfflur og bakstur. Þá komst hún upp á lag með að vera útsjónarsöm með hvað mætti nota í staðinn fyrir annað í Afríku og nýtir þá þekkingu enn. „Til dæmis nýti ég ávexti, sem eru að verða leiðinlegir, í bakstur,“ segir hún og segir þá m.a. geta komið í staðinn fyrir mjólk. Með fimm börn 11 ára og yngri þætti ekki óeðlilegt að fatakostn- aður á heimilinu væri umtalsverður. Segist Helga dugleg að láta fötin ganga á milli barnanna og gerir við þau sem koma göt á. Þá kíkir hún á útsölur. Þess má einnig geta að hún sér um allar hárklippingar á heim- ilinu. „Maður er bara alinn upp við að spara og nýta hlutina vel. Ég held að það sé manni bara hollt,“ segir hún. „Að ég tali nú ekki um umhverfissjónarmiðið að endurnýta föt sem enn eru heil,“ bætir hún við, létt í bragði. Helga Vilborg reynir að vera hagsýn við heimilishaldið. Býr hún þar m.a. að því að hafa um skeið búið í Eþíópíu þar sem þurfti oft að vera útsjónarsamur. Hér er hún með tveimur barna sinna, þeim Davíð Ómari og Karítas Kristjánsbörnum. Morgunblaðið/Eggert BÝR AÐ ÞVÍ AÐ HAFA BÚIÐ Í EÞÍÓPÍU Útsjónarsöm á stóru heimili HELGA VILBORG SIGURJÓNSDÓTTIR KAUPIR INN FYRIR SJÖ MANNA FJÖLSKYLDU. HÚN ER ORÐIN LUNKIN VIÐ AÐ GÆTA ÁKVEÐINNAR ÚTSTJÓNARSEMI VIÐ HEIMILISHALDIÐ. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Þeir Íslendingar sem versluðu erlendis fyrstu átta mánuði ársins 2011 versluðu að meðaltali fyrir rúmlega 222þúsund krónur á mann. Í ár er þessi upphæð orðin rúmlega 233 þúsund krónur sem gerir 5,2% aukningu íverslun erlendis. Einnig hefur á þessu tímabili orðið 7,2% fjölgun Íslendinga sem versla erlendis. Þegar þær myntir sem Íslendingar versla með erlendis eru skoðaðar kemur í ljós að mest er verslað fyrir Bandaríkjadollar. Þriðjungur allrar verslunar erlendis er með Bandaríkjadollar, um fimmtungur er með evru, 18% með breska pundið og 9% með danska krónu. Verslun með mismunandi myntir sveiflast talsvert frá fyrra ári. Ef litið er til fyrstu 8 mánaða ársins hefur dregið úr meðalverslun með dollarann um 4,3% en meðalverslun með evru hefur aukist um 6,5%. Á sama tíma hefur gengi dollars styrkst gagnvart krónunni en gengi evru veikst. Því má segja að ódýrara sé fyrir Íslendinga en áður að versla í evrulöndum og dýrara að versla í Bandaríkjunum. Fólk virðist því hafa til- hneigingu til að versla meira með þær myntir sem eru hagstæðar hverju sinni og mætti draga þá ályktun að Íslendingar fylgist vel með gengisþróun. Niðurstöður eru byggðar á upplýsingum úr Meniga-hagkerfinu en þar eru um 30.000 Íslendingar skráðir. Töl- urnar endurspegla kortanotkun Meniga-notenda erlendis, bæði netverslun sem og aðra verslun og kaup á þjón- ustu. BREKI KARLSSON Aurar & krónur MEIRA FÉ EYTT Í ÚTLÖNDUM NÚ EN Í FYRRA Eyðsla Íslendinga í útlöndum meðaleyðsla á mann, samanlagt á fyrstu átta mánuðum ársins 2011 222.242 kr. 2012 233.766 kr. Aukning um 5,25%

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.