Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 44
Keppikeflið núna er skref til baka Þ að er haft á móti íslensku stjórn- arskránni að hún sé orðin of gömul, eða að hún sé ekki alíslenskrar gerð- ar og að henni hafi ekki verið breytt nægjanlega oft. Og svo er því haldið fram að árið 2009 hafi orðið einhver þau tímamót sem geri það nauðsynlegt að fá landinu splunkunýja stjórnarskrá! Hvert er tilefnið? Hvert er tilefnið? Að viðskiptabankarnir þrír koll- sigldu sig haustið áður? Þarf að umbylta stjórn- arskránni þess vegna? Er tilefnið virkilega að óvin- sælustu ríkisstjórn þjóðarinnar hafi skolað inn á þing í kjölfar múgárása á þinghúsið og fleiri stofnanir, sem minnstu munaði að næðu að yfirbuga fámennt en ótrúlega hugað lögreglulið í herlausu landi? Þekkt er að einstakir þingmenn reyndu að auðvelda skríl að koma aftan að lögreglunni og þingmenn sem síðar urðu ráðherrar ömuðust við því að lögreglumenn fengju að kasta mæði stundarkorn inni í þing- húsbyggingunum eftir ofurmannlega áraun. Íslenskir fræðimenn hafa enn ekki haft uppburði í sér til að fara í gegnum þennan þátt óeirða sem kallaðar eru hinu dúkkulega nafni „búsáhaldabyltingin“. Enn hef- ur ekki verið upplýst hverjir skipulögðu óeirðirnar eða fjármögnuðu þær. Vísbendingarnar eru þó marg- ar og flest ber þar að sama brunni. Og það segir vissulega sína sögu að aldrei var árásunum beint fá- eina metra frá Austurvelli, upp að Túngötu 6, eins og minnt var á í þjóðkunnri vísu. Og þekkt er að sjálft Ríkisútvarp landsins, sem sjálftökulið þar innanhúss kallar RÚV, hafði sig mjög í frammi þessa dagana og var atbeini þess allur með miklum ólíkindum. Ein- hvern tíma verður allt þetta mál opinbert. En hvað sem því líður eru þessir ógnaratburðir örugglega ekki nokkurt tilefni til að samþykkt verði stjórnarskrá í óðagoti, sundurlaus vandræðatexti, sem sprottinn er úr forskrift sem Hæstiréttur lands- ins ógilti og sem bullandi ágreiningur er um innan þings sem utan og fræðimenn telja óbrúklegan. Stjórnarskráin var samþykkt við stofnun Lýðveldis eftir að 98 prósent þjóðarinnar höfðu samhljóða sagt sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu sem 98 prósent atkvæð- isbærra tóku þátt í. Það er eins afgerandi afgreiðsla og hægt er að hugsa sér. Það var ætlaður endapunkt- ur sjálfstæðisbaráttunnar sjálfrar. Aldrei, hvorki fyrr né síðar, hafa stjórnmálamenn náð annarri eins sátt um nokkurt mál. Sú stjórnarskrá, sem þannig umboð hefur á tilkall til vandaðra vinnubragða sem stuðla að sátt en ekki sundurlyndi, þótt hún sé ekki fullkomin fremur en önnur mannanna verk. Sjálfstæðið eflt með hverjum áfanga Allar stjórnarskrárbreytingar Íslands eru markaðar mikilvægum áföngum í sjálfstæðisbaráttu þjóð- arinnar. Árið 1874 er stjórnarskrá í fyrsta sinn tengd Íslandi sérstaklega, þótt hún hlyti auðvitað að draga dám af því að landið var þá enn hluti af Danmörku. En stóri áfanginn þá var löggjafarvald Alþingis í sér- málum Íslands, bundið neitunarvaldi konungs eins. Þetta atriði gefur stjórnarskránni frá 1874 mikið og jákvætt sögulegt gildi og einnig almennt séð hitt at- riðið, að sett skyldi sérstök stjórnarskrá um málefni Íslands. Það dregur ekki úr þýðingu þessa þótt mörg ákvæði hennar hafi tekið mið af þeirri stöðu sem Ís- land hafði verið í um aldir og var þá enn.Tilvera henn- ar og tenging og aukið vald og sjálfstæði Alþingis er ekki hægt að vanmeta. Þegar rætt er um stjórnarskrá og þörf breytinga stendur eitt upp úr. Þessi stjórnarskrá og allar meg- inbreytingar sem á henni hafa verið gerðar, allt til þess að lýðveldisstjórnarskráin var samþykkt, hafa verið merkir bautasteinar í átt til fullveldis og sjálf- stæðis íslensku þjóðarinnar. Það er hin mikla and- stæða við stjórnarskrárbröltið núna, sem er óhön- duglegur saumaskapur utan um eitt meginatriði: að gefa einföldum og jafnvel svikulum meirihluta Al- þingis, eins og þeim sem nú situr, tækifæri til að farga hluta fullveldis landsins, jafnvel með óaft- urkræfum hætti. Breytingar á stjórnarskránni frá 1874, sem þýðingarmestar voru, byggðu eins og hún sjálf smám saman upp öflugri ramma um sjálfstætt ríki eftir sex alda undirokun þjóðarinnar. Þær voru gerðar 1903, 1915, 1920 og 1942. Í hinni fyrstu voru heimastjórn sköpuð skilyrði og í annarri var m.a. kosningaréttur gerður almennur. Og með breyting- unum 1920 er stjórnarskráin byggð á nýfengnu full- veldi landsins, stærsta áfanga sjálfstæðisbaráttunnar og það síðasta, sem nefnt var er formbreyting til að auðvelda síðasta skrefið, stofnun Lýðveldis árið 1944. Og lýðveldisstjórnarskráin, sem nú er reynt að tala niður, er auðvitað helgur gerningur, sáttargjörð með einstakan stuðning þjóðarinnar. „Krafan“ um heildarendurskoðun Það er rétt, sem bent hefur verið á, að stjórn- málamenn hafa sumir stundum verið áhugasamir um að heildarendurskoðun færi fram á stjórnarskrá landsins. Slíkur áhugi hefur hins vegar aldrei sýnt sig hjá almenningi. Þess vegna hefur enginn flokkur gert þá hugmynd að meiriháttar atriði í kosningabaráttu eða gefið sver loforð tengd henni. En alla tíð var það sameiginlegur skilningur forystumanna allra flokka að breytingar á stjórnarskrá skyldu eingöngu eiga sér stað ef um þær fengist víðtæk samstaða á þjóð- þinginu. (Undantekningin sem sannar þá reglu eru einangraðar breytingar á 31. greininni varðandi al- þingiskosningar. En jafnvel í þeim efnum var ætíð aukinn meirihluti á bak við ákvarðanir og síðustu ára- tugina hefur náðst víðtæk sátt um þær.) Það hefur, Reykjavíkurbréf 05.10.12 Morgunblaðið/Þorkell Styttan fyrir framan Stjórnarráðið sýnir með táknrænum hætti þegar Kristján IX færir Íslendingum stjórnarskrána 1874. 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 07. 10. 2012

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.