Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 49
óþarfa vinnu tökufólks eða efni sem fari í súginn. Sverrir á fleiri hliðar en leikarann og svo- lítið óvæntar. Hann er gítarleikari með mik- inn tónlistaráhuga og þá á hann að baki feril sem skemmtanastjóri í Stokkhólmi. Í borg- inni rak hann skemmtistaði i mörg ár, eitt- hvað sem hann kemur minna nálægt í seinni tíð en þó er orðin hefð fyrir að Sverrir og hans nánustu vinir haldi vel skipulögð klúbbakvöld þar sem dansað er fram á nótt. Fyrsta kvöldið var haldið fyrir 10 árum, þar sem Sverrir og félagar hans voru fáir til að byrja með, en hópurinn sem kemur saman er núna um 1.000 manns. „Ef ég er spurður að því hver ég er og hvað ég geri er ég fljótur að nefna gítarleik- inn og svona almennar staðreyndir en ég held ég viti ekki alveg hver ég er sjálfur. Það er kannski það slæma við að vera leikari að það er erfitt að átta sig á hvert manns eigið sjálf er.“ leikari. Ég fæ hins vegar stundum að heyra það frá leikstjórum að þeir eru ánægðir með að ég er ekki með of mótaða rödd og mót- aðan talanda.“ Síðustu árin hafa verið afar gjöful. Sverrir segist eiga erfitt með að leggja dóm á hvort hans stærsta verkefni er mynd Bille August eða Wallander. Óskars- og Cannes- verðlaunahafinn Bille August er í það minnsta þekktasti leikstjórinn sem hann hef- ur unnið með. Bille August er líka ákveðinn örlagavaldur í lífi Sverris. „Þegar ég undirbjó mig fyrir hlutverkið í Borgarleikhúsinu 11 ára sagði Kjartan mér að fara og sjá mynd Bille, Pelle sigurvegari. Það var á þeirri sýningu sem ég ákvað að ég skyldi verða leikari og auðvitað þegar ég fór svo að vinna með honum sagði ég honum þessa litlu sögu,“ segir Sverrir og lýsir Bille sem leikstjóra sem viti nákvæmlega upp á hár hvað hann er að gera. Allar tökur séu svo þaulskipulagðar að nær ekkert er um Sverrir sem Pontus hefur heillað íslenska áhorfendur í þáttunum um Wallander. Aðeins á þessu ári og næsta eru fimm stórmyndir sýndar sem Sverrir leikur í: Mörkt vatten – spennumynd í leikstjórn Rafael Edholm (frumsýnd í ár) Marie Kröyer í leikstjórn Bille August, dönsk stórmynd (frumsýnd í ár) Call Girl í leikstjórn Micael Marcimain, sigraði á Toronto kvik- myndahátíðinni fyrir stuttu (frumsýnd í ár) Små citroner gula í leikstjórn Teresu Fabik, gerð eftir vinsælli bók Kaja Ingemarsson (frumsýnd 2013) Monica Z í leikstjórn Per Fly, ein stærsta kvikmynd sem gerð er í Sví- þjóð á þessu ári (frumsýnd 2013) Sverrir í hlutverki tón- skáldsins Hugo Alfvén í danskri mynd Bille Aug- ust, Marie Kröyer, sem frumsýnd er í ár. Mörg stórhlutverk Sverrir tekur við verðlaunum fyrir bestan leik í aðalhlutverki á kvik- myndahátíðinni í Shanghai árið 2009. FIMM MYNDIR Á ÞESSU ÁRI OG NÆSTA Sverrir Guðnason við tökur og lengst til vinstri er Bille August. 07. 10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 – FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is Ellingsen býður mikið úrval af vönd- uðum skófatnaði fyrir allan aldur, frá þekktum framleiðendum á borð við Columbia, Sorel og Viking. Hvort sem þig vantar gönguskó, kuldaskó, götuskó, sandala, stígvél, gúmmískó, reiðskó eða inniskó, þá er rökrétt fyrsta skref að skoða úrvalið í Ellingsen. VIKING PLAY GTX KULDASKÓR Stærðir 28–39 Litir: Plómu, svartir og rauðir. 10.990 KR. FULLT VERÐ 13.990 KR. VÍKING POLAR THERMO STÍGVÉL Stærðir 21–41. 6.490 KR. FULLT VERÐ 7.990 KR. COLUMBIA TALUS Stærðir 43–49. Svartir. 29.990 KR. FULLT VERÐ 36.990 KR. COLUMBIA ANIK PEAK Stærðir 41–48. 19.990 KR. FULLT VERÐ 24.990 KR. „Jú, við fjölskyldan fylgjumst vel með Sverri og þar sem maður þekkir ágætlega hvernig þessi leikhúsbransi virkar og hvað hann er harður hefur það vissulega komið á óvart hve ótrúlega vel hefur gengið,“ segir Guðni Albert Jóhannesson orkumálastjóri, faðir Sverris. Hann og eiginkona hans, Bryndís Sverrisdóttir, náðu að fylgjast afar vel með ferli Sverris þar sem þau bjuggu í Svíþjóð þar til fyrir fimm árum. „Þetta eru auðvitað hæfileikar, sem komu mjög snemma í ljós, en hann setti sér það líka mjög snemma sem markmið að verða leikari. Ég held líka að það hjálpi honum hvað mest að hann nálgast öll verkefni af auðmýkt. Hann tekur verkefnin alvarlega, leggur mikla vinnu í þau og styttir sér aldrei leið. Þessi afstaða hans gerir það að verkum að hann hefur ekki of- metnast þó vel hafi gengið,“ segir Guðni. Guðni bætir við að það sé sérstaklega merkilegt að Sverrir hafi náð svo langt í ljósi þess að hann hafi þurft að læra sænskuna upp á nýtt 12 ára gamall. „Við reynum að fara reglulega út og sjá Sverri og það hefur verið skemmtileg upplifun.“ FJÖLSKYLDA SVERRIS GUÐNASONAR Faðir Sverris, Guðni Albert Jóhannesson. Móðir Sverris er Bryndís Sverrisdóttir. Sýnir auðmýkt Afi Sverris er Sverrir Hermannsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.