Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 64
Colin Morgan er 26 ára gamall Norður-Íri sem gleður
íslenska sjónvarpsáhorfendur á laugardagskvöldum
með leiftrandi leik sem galdrakarlinn Merlín.
Morgan hóf að leika í leikritum á borð við Pétur
Pan og Öskubusku í heimabæ sínum Armagh aðeins
fimm ára gamall. Svo ákveðinn var hann í að leggja
leiklistina fyrir sig að strax við 16 ára aldur skráði
hann sig í leiklistarskóla í Belfast og ferðaðist
þangað með lest fram og til baka, einn og
hálfan tíma hvora leið, í tvö ár meðan
jafnaldrar hans og félagar sóttu skóla í
heimabænum. Þar var hins vegar ekki
kennd leiklist og Morgan kaus því lest-
arferðirnar.
COLIN MORGAN ER GALDRAKARLINN MERLÍN
Lestarferðir fyrir
leiklist
Colin Morgan ætlaði
sér alltaf að verða
leikari.
SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2012
Ástríðufullir, blíðir,
mjúkir og krassandi
kossar í Leigunni
Þín ánægja er okkar markmið
Fjöldi mynda með eftirminnilegustu
kossum kvikmyndasögunnar. Skannaðu
QR kóðann og dettu í sleik.
Skannaðu kóðann, leggðu símann
niður og auglýsingin lifnar við
Heimurinn heldur sig á Twitter og þar deilir fólk þvísem það dáir og dýrkar, nú eða fyrirlítur, með þvíað skrifa stuttar athugasemdir. Útlenskar stór-
stjörnur eru á Twitter þar sem almenningur getur lesið allt
sem að þeim snýr en almúginn heldur sig þar líka. Og eitt er
ljóst af twitter-færslum; heimurinn elskar Of Monsters and
Men.
Lausleg könnun Sunnudags Morgunblaðsins sýnir að á
hverri mínútu kemur inn færsla sem tengist Of Monsters
and Men og langflestar eru þær erlendar. Oftar en ekki er
aðdáun á bandinu lýst og ósjaldan í þessum anda í færslu
sem kemur frá Sydney: „Ef þú fílar Of Monsters and Men –
getum við gengið upp að altarinu.“
ENN AF AFREKUM OF MONSTERS AND MEN
Tíst á hverri
mínútu
Twitter getur í það minnsta vottað það að Of Mon-
sters and Men eru dáð um allan heim.
Morgunblaðið/Golli
Tístandi aðdáendur Of Monsters and
Men myndu fylla allmarga Hljóm-
skálagarða væru þeir allir á sama stað.
Harmsaga
RÁS 1 kl. 13
sunnudag Út-
varpsleikritið
Harmsaga eftir
Mikael Torfason
frumflutt. Leikstjórn er í höndum
Símonar Birgissonar og tónlist er
eftir Hallvarð Ásgeirsson.
NÝTT ÚTVARPSLEIKRIT
SkjárEinn kl. 20.20 á sunnu-
dag. Félagarnir í bresku bílaþátt-
unum Top Gear ferðast til Ítalíu og
prófa ítalska eðalbíla og greina
áhorfendum frá upplifuninni á sinn
einstaka hátt.
ÍTALSKIR EÐALBÍLAR
Stöð 2 kl. 21 á sunnudag
Hinir margverðlaunuðu
Homeland þættir hefjast
að nýju. Nicholas Brody
er á leið í framboð
og nú er að sjá
hvernig fer.
HOMELAND HEFST
Í hlutverki Merlíns.
ÆVINTÝRI GALDRAKARLSINS MERLÍNS HALDA ÁFRAM Á
RÚV KL.19.40 LAUGARDAG. AÐALLEIKARINN COLIN
MORGAN HÓF FERILINN AÐEINS FIMM ÁRA GAMALL