Morgunblaðið - 26.10.2012, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 26.10.2012, Qupperneq 12
Í nýútkominni ársskýrslu Húsa- friðunarnefndar gagnrýnir Nikulás Úlfar Másson, for- stöðumaður nefndarinnar, byggingu Þorláksbúðar harð- lega. Hann segir að halda megi því fram að húsið sé söguföls- un. Nikulás Úlfar segir að undir- búningi þessa máls hafi verið mjög áfátt. Hvorki hafi verið fengið leyfi sveitarstjórnar né stjórnar Skálholtskirkjugarðs fyrir framkvæmdunum auk þess sem álitamál var um það hvort í gildi væri deiliskipulag og hvort samþykki þyrfti frá erfingjum höfundar Skálholts- kirkju. Engin gögn hafi borist sem gáfu til kynna að farið hefði fram rannsókn á gerð eða stærð þess húss sem til stóð að endurbyggja, en sagt frá því að endurbyggingin byggðist á mælingum á skálanum á Keld- um á Rangárvöllum „Hver er tilgangurinn með því að taka áhættuna á því að skaða umhverfið í Skálholti með byggingu húss sem alls ekki telst vera til- gátuhús þar sem ekki hefur verið sýnt fram á það með óyggjandi hætti að hús af þess- ari stærð og gerð hafi staðið áður á þessum stað og má því halda fram að sé sögufölsun?“ segir Nikulás Úlfar í árs- skýrslunni. gert samkvæmt réttum ákvörðun- um réttra yfirvalda; Bláskóga- byggðar, stjórnar Skálholts, kirkju- ráðs og Fornminjastofnunar Íslands. Verkefninu er lokið og menn eru að berja höfð- inu við steininn. Það tók þá fimm ár þessa menn sem eru að narta í Þorláksbúð að kveikja á perunni að það væri verið að gera þetta þarna og þá var það búið.“ Þorláksbúð er enn á vegum Þor- láksbúðarfélags- ins en Árni seg- ir að þegar félagið hafi greitt húsið að fullu verði það af- hent kirkjunni og þjóðinni. Bygging Þorláksbúðar sögufölsun? HÚSAFRIÐUNARNEFND Nikulás Úlfar Másson 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200 ERUM AÐ TAKA UPP NÝJAR VÖRUR FYRIR HERRA! Hafnarfjarðarbær og Landsnet hf. hafa samþykkt viðauka við sam- komulag frá árinu 2009 um fram- kvæmdir og tímaröð framkvæmda við flutningskerfi raforku í Hafn- arfirði. Upphaflega samkomulagið fól í sér byggingu nýrra raflína frá Hellisheiði til Hafnarfjarðar, sam- síða núverandi línum í upplandi Hafnarfjarðar og þaðan áfram til Suðurnesja. Þar er gert ráð fyrir að framkvæmdir við flutnings- kerfið verði í þremur áföngum sem komi að fullu til framkvæmda árið 2017 en ljóst er að breyta verður þeim áætlunum, að því er segir í tilkynningu frá Hafn- arfjarðarbæ. Með viðaukanum hefur Lands- net skuldbundið sig til að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir við niðurrif Hamraneslínu 1 og 2 og að undirbúningur þeirra hefjist eigi síðar en árið 2016 þannig að unnt verði að ljúka verkinu eigi síðar en árið 2020. Hamraneslína verð- ur rifin 2016-2020 Ársþing Tannlæknafélags Íslands verður í Hörpu 26.-27. október. Meðal fyrirlesara er Þorbjörg Jensdóttir sem flytur fyrirlesturinn Hvenær er súrt ekki glerungseyð- andi? Fyrirlesturinn fjallar um HAp+, sykurlausa sælgætismola sem viðhalda heilbrigði tanna og eyða ekki glerungi. Fyrirtæki Þor- bjargar, Ice Medico, hefur hafið framleiðslu á molunum og munu þeir koma á markað í fjórum bragð- tegundum nú í október. Fræðsla um sykurlaust sælgæti STUTT SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Tillaga um það hvort flytja eigi Þor- láksbúð í Skálholti vestur fyrir og niður fyrir Skálholtsdómkirkju verður tekin fyrir á komandi kirkju- þingi í nóvember. Það er Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Þor- lákshöfn, sem leggur þetta til. Í greinargerð með tillögunni segir Baldur að Þorláksbúð sé reist á röngum stað. Hann vill að Þorláks- búðarfélaginu verði falið verkið og leiti fjármögnunar á því, félagið sé öflugt og engin goðgá að fela því flutninginn. „Ég er ekkert óhrifinn af Þor- láksbúð og mér finnst þetta vera mjög flott handverk en mér finnst hún vera á röngum stað,“ segir Baldur. „Ég legg þetta fram því mér finnst að æðsta stofnun kirkj- unnar, kirkjuþing, geti ekki látið hjá líða að taka þetta mál til umræðu og skoðunar. Mér finnst umgjörð þessa máls alla tíð hafa verið furðuleg þó ekki sé meira sagt.“ Yrði staðarprýði vestan við Baldur stingur upp á því að Þor- láksbúð verði færð vestur fyrir og niður fyrir Skálholtsdómkirkju. „Jafnmikið lýti og hún er á ásýnd Skálholtsstaðar nú yrði hún stað- arprýði vestan við og neðan við kirkjuna. Vitaskuld kostar flutning- urinn en þetta er betri kostur en að rífa Þorláksbúð. Annaðhvort þarf að gera ella verður Þorláksbúð fyrst og síðast dæmi um skipulagsmistök,“ segir í tillögu Baldurs. Þegar bygging Þorláksbúðar var á frumstigi kom fram hugmynd um að setja hana á þann stað sem Bald- ur stingur upp á. „Þetta er í grennd við þar sem er verið að grafa upp, vinstra megin þegar komið er út úr kirkjunni, fyrir neðan slakka. Þar skyggir hún ekki á neitt en er samt nálægt kirkjunni.“ Baldur segir að það verði aldrei friður um Þorláksbúð eins og hún er núna. „Ég lít ekki á Þorláksbúð- arfélagið sem sökudólg í þessu máli heldur skipulagsyfirvöld. Ef það væri fjárhagslega hægt að gera þetta án þess að það færi út fyrir öll velsæmismörk væri að mínu viti góð lausn þarna á ferðinni. Ég viður- kenni það að ég hef ekki hundsvit á því hvað kostar að flytja hana eða hversu mikið mál það er,“ segir Baldur. Ekki hægt að færa húsið „Ég er ekki hlynntur því að færa Íslandssöguna til og þar að auki er ekki hægt að færa Þorláksbúð því hún er smíðuð stein fyrir stein og spýtu fyrir spýtu. Þetta er allt handunnið, eins og heklaður dúkur. Hinn mæti prestur séra Baldur virðist hvorki hafa reynslu né verks- vit til að fjalla um þetta,“ segir Árni Johnsen, alþingismaður og forsvars- maður Þorláksbúðarfélagsins, spurður um álit sitt á flutningshug- mynd Baldurs. „Það er hægt að byggja nýtt hús en það er ekki hægt að færa þetta hús,“ bætir hann við. Árni segir mál Þorláksbúðar af- greitt, verkefninu sé lokið og búið sé að taka húsið út af viðurkenndum yfirvöldum. „Allt í Þorláksbúð er Þorláksbúð reist á röngum stað  Lagt til að kirkjuþing ræði flutning Þorláksbúðar vestur fyrir og niður fyrir Skálholtsdómkirkju  Árni Johnsen er ekki hlynntur því að færa Íslandssöguna til og segir flutning hússins ógerlegan Morgunblaðið/RAX Ósátt Sr. Baldur Kristjánsson segir að friður muni ekki nást um Þorláksbúð nema hún verði flutt af núverandi stað. Baldur Kristjánsson Árni Johnsen Ellefu hafa boðið sig fram í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi um fjögur efstu sæti á framboðslista flokksins. Flokksval með stuðningsmönnum fer fram rafrænt dagana 16. og 17. nóvember. Í framboði eru: Arna Ír Gunn- arsdóttir, bæjarfulltrúi Árborg, sem gefur kost á sér í 3. sæti, Árni Rúnar Þorvaldsson, bæj- arfulltrúi Höfn, í 2.-4. sæti, Berg- vin Oddsson, háskólanemi Grinda- vík, í 3. sæti, Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður Ár- borg, í 1. sæti, Bryndís Sigurð- ardóttir, framkvæmdastjóri í Hveragerði, í 1.-4. sæti, Guðrún Erlingsdóttir, heilsumeistaranemi Vestmannaeyjum, í 2.-3. sæti, Hannes Friðriksson, vinnueft- irlitsmaður Reykjanesbæ, í 3. sæti, Kristín Erna Arnarsdóttir, háskólanemi Reykjavík, í 3.-4. sæti, Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður í Garði, í 1. sæti, Ólafur Þór Ólafsson, bæj- arfulltrúi Sandgerði, í 2.-3. sæti og Soffía Sigurðardóttir, hús- freyja Árborg, í 3. sæti. Ellefu gefa kost á sér í flokksvali

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.