Morgunblaðið - 26.10.2012, Page 23

Morgunblaðið - 26.10.2012, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Fyrir þjóðfund 1851 sendi Danakonungur frumvarp að nýrri stjórnarskrá fyrir Ís- lendinga, sem fyrrum stiftamtmaður á Ís- landi, Bardenfleth, þá ráðherra og mikill vin- ur Friðriks VII., hafði samið fyrir Íslendinga. Var frumvarpið flutt með herskipi og herafla til Íslands, því Bardenfleth ótt- aðist að til átaka kynni að koma við sjálfstæðisglaða Íslendinga. „Danir töldu Ísland að réttum lögum hluta af danska ríkinu og því hlyti grundvallarlög danska ríkisins að gilda hér á landi. Samkvæmt því áttu Íslendingar að eiga fulltrúa í danska rík- isþinginu. Landið sjálft átti að vera svo sem amt í Danmörku og alþingi hafa álíka starfssvið sem amtráð.“ (Þorkell Jóhann- esson, Lesbók Mbl. 22. júlí 1951). Frumvarpinu að nýrri stjórnarskrá var haldið leyndu fyrir landsmönnum fram á síð- ustu stundu og ætlaði J.D. Trampe greifi, nýorðinn stift- amtmaður á Íslandi, að keyra frumvarpið í gegnum þjóðfund- inn án verulegrar aðkomu lands- manna, því frumvarp hans tók mið af því „sem hollast var fyrir ríkisheildina án alls tillits til óska landsmanna“. Ýmislegt hafði áður kvisast út um innihald frumvarpsins og áttu menn ekki von á neinu góðu, en þó var það, sem upp kom, öllu verra en menn bjugg- ust við. Eftirmálin þekkja lands- menn, er Trampe vildi slíta þjóðfundi, að Jón Sigurðsson og þingmenn risu upp og sögðu í einum hljómi: „Vér mótmælum allir!“ Frumvarp til laga um stöðu Íslands í fyrirkomulagi ríkisins og um ríksþingskosningar á Ís- landi árið 1851 hefur á ný verið þjóðaratkvæðagreiðslum. Má segja að það mesta, sem þjóð- fundur lagði fram byggist á og styrkir grundvöll núverandi stjórnarskrár með viðbótum, sem tryggja aukið lýðræði landsmanna í stjórnskipun landsins. Að forsætisráðherrann reynir að klína stjórnlagapakka sínum á sjálfstæðisbaráttu Íslendinga hér áður fyrr er mikill misskiln- ingur. Miklu nær væri fyrir hana og Evrópusambandssinna að segja sannleikann og hætta þessum skrípaleik og lygum. Eina opinbera frumvarpið til nýrrar stjórnarskrár, sem lá fyr- ir þjóðfundi 1851, var frumvarp Danakonungs. Það segir Jó- hanna Sigurðardóttir að sé af- leiðing af sjálfstæðisbaráttu Ís- lendinga og vill þakka Jóni Sigurðssyni fyrir. Hún hefur rétt fyrir sér að engu skeikar í innihaldi þess frumvarps og þess frumvarps, sem ríkisstjórnin nú leggur fram fyrir Alþingi Íslend- inga, þótt 161 ár skilji að og sambandsríki ESB komið í stað Danaveldis með landsvæði, sem Friðrik Danakonungur gat aldr- ei látið sig dreyma um. Að framselja fullveldi Íslands í hendur búrókrata í Brussel er engin sjálfstæðisbarátta í anda Jóns Sigurðssonar. Forsætisráð- herrann leikur þess í stað hlut- verk J.D. Trampe, sem reynir að fá landsmenn til að sam- þykkja uppgjöf ríkisins til „rík- isheildarinnar“. endurreist árið 2012 með „frumvarpi“ Stjórnlagaráðs að nýrri stjórn- arskrá. Það er álíka mikill sannleikur að segja, að stjórn- arskrár- frumvarp Bar- denfleths hafi byggst á sjálf- stæðishug- myndum Íslend- inga og að tillögur Stjórnlagaráðs byggist á nið- urstöðum þjóðþings 2010 eins og forsætisráðherra Íslands, Jó- hanna Sigurðardóttir, sagði í ræðu á Alþingi 23. október. Sannleikurinn er, þótt rík- isstjórnin neiti því af hræðslu við skoðun landsmanna um Evr- ópusambandið, að það frumvarp að nýrri stjórnarskrá, sem rík- isstjórnin nú ætlar að keyra í gegnum þingið, er sniðið til að gera Ísland að amti í ESB. Það sem ríkisstjórnin segir ekki frá, er að niðurstöðum þjóðfundar 2010 hefur verið breytt og í staðinn lagðar inn breytingar á núverandi stjórnarskrá, sem gera þá nýju að grundvelli að- ildar Íslands að Evrópusam- bandinu. T.d. felur engin af 3.306 setn- ingum þjóðfundar í sér fyr- irmæli eða ósk um að búa til nýja stjórnarskrá í stað núver- andi. Flestallar setningar um stjórnarskrá fela í sér kröfu um sjálfstæði fullvalda þjóðar, þar sem þjóðinni er tryggð aðkoma að breytingum. Engin setning felur í sér takmörkun þjóð- aratkvæðis eða brottfellingu greinar um lög um eignir út- lendinga á Íslandi. Þvert á móti voru skýrar kröfur um verndun eignarréttar og skilgreiningu hugtaka á borð við einkaeign, al- menningseign, ríkiseign og þjóð- areign. Þá eru kröfur um aukið lýðræði með aðkomu lands- manna að beinum ákvörðunum í Eftir Gústaf Adolf Skúlason » T.d. felur engin af 3.306 setningum þjóðfundar í sér fyr- irmæli eða ósk um að búa til nýja stjórn- arskrá í stað núver- andi. Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er fyrrverandi ritari Smáfyrirtækjabandalags Evrópu. Stjórnarskrá Bardenfleths – hin síðari Alveg þótti mér það yndislegt þegar Róbert Marshall yfirgaf Sam- fylkinguna og gekk til liðs við Bjarta framtíð á dögunum. Þetta minnti á annan atburð þegar Besti flokkurinn varð til í Reykjavík og Dagur B. Eggertsson og Samfylkingin fengu svo kallaða Gnarr- aðstoð. Nú er Dagur B. borgarstjóri á „laun“ í Reykjavík þótt stórleikarinn Jón Gnarr fái laun borgarstjórans og hafi bílinn og bílstjórann. Fyrir einu ári skrifaði ég nokkuð merkilega grein í Morgunblaðið sem sneri að framtíð Guðmundar Steingrímssonar alþm. sem þá hafði yfirgefið flokk feðra sinna Framsóknarflokkinn. Nú ætla ég hér að birta þann kafla úr greininni sem að þessu öllu sneri og spádóms- gáfu minni. Hinn snjalli pólitíski refur Össur Skarphéðinsson þrætti þá og nú reis ljónið upp á framlappirnar og þrætti fyrir sína leikstjórn. „Björt framtíð útibú Samfylkingarinnar“ Nú er ég ekki forvitri eða spámaður því flétturnar eru öllum hugsandi mönnum augljósar, gerðar til að tryggja völd og áhrif. Ég las óvenju hreinskilið viðtal við Sigmund Erni Rúnarsson alþm. í DV en hann við- urkennir alla fléttuna. Orðrétt segir hann um brotthvarf Róberts Marshall úr Samfylkingunni: ,,Maður saknar alltaf góðs vinar en hann er ekki farinn langt. Ég tel að hann sé bara að hugsa um sína framtíð og sína bestu mögu- leika í pólitík. Róbert verður áfram samherji. Ég held að Björt framtíð sé bara útibú úr Samfylkingunni með sömu kennitölu.“ Já, útibú með sömu kennitölu svo mörg voru þau orð; sem sé Guðmundi Steingrímssyni, fóst- bróður Dags B. Eggertssonar, hefur borist Marshall-aðstoð hin síðari eins og Degi B. barst Gnarr-aðstoðin góða. Brot úr ársgamalli grein Spurningin mín fyrir ári hljóðaði svo? „Hverjir sækja Guð- mund út í heiðina?“ Síðan skrifaði ég meðal annars eftirfarandi pistil. Nú gerir Össur Skarphéðinsson sér grein fyrir því að Vinstri grænir eru að verða bein og roð eftir samstarfið og svikin kosningaloforð. Hlutverki Guðmundar Steingrímssonar er lokið í Framsóknarflokknum, nú er hann genginn út í heið- ina og enn ekki áttaður en þykist sjá nýjan flokk í hill- ingum. Þennan flokk hafa Össur og hans kórdrengir hannað. Mjög margir samfylkingarmenn náðu inn í stjórn- lagaráðið, þar liggur einnig grundvöll- ur flokksins nýja. Össur mun hins- vegar senda menn út í heiðina á móti Guðmundi. Þar verða kórdrengir not- aðir sem yfirgefa Samfylkinguna, kannski Björgvin Sigurðsson eða Ró- bert Marshall. Já, hinn trúaði samfylkingarmaður, Róbert Marshall, var sendur út í heið- ina til að syngja Guðmund Stein- grímsson heim. Svo mörg eru þau orð. Nú heitir Miðflokkurinn Björt framtíð og er því laungetið barn Samfylking- arinnar og Besta flokksins enda Heiða Kristín Helgadóttir lánuð yfir. Björg- unarbátur er kominn á flot til að tryggja ríkisstjórn Jóhönnu og Stein- gríms áfram völd þar sem Össur Skarphéðinsson er líklegastur til að verða forsætisráðherra. Alveg sama aðferð og í borginni Gnarr-aðstoð og nú Marshall-aðstoð. Pólitíkin hefur margar hliðar og sumar hlaðnar klækjum. Eftir Guðna Ágústsson » Björgunarbátur er kominn á flot til að tryggja ríkisstjórn Jó- hönnu og Steingríms áfram völd þar sem Öss- ur Skarphéðinsson er líklegastur til að verða forsætisráðherra. Guðni Ágústsson Höfundur er fyrrv. alþm. og landbúnaðarráðherra. Fyrst Gnarr-aðstoð svo Marshall-aðstoð Hátíðahöld Það ríkti mikil gleði á Laufásborg í gær þegar 60 ára afmæli leikskólans var fagnað. Vinum og velunnurum var boðið í opið hús og farið var í skrúðgöngu um Þingholtin. Kristinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.