Morgunblaðið - 26.10.2012, Page 25

Morgunblaðið - 26.10.2012, Page 25
flokkana, en Samfylkingin skipar háan sess innan stofnunarinnar. Allt er þetta greitt með skattfé landsmanna. Þessu verður að linna strax. Vogunarsjóðirnir verða að taka þátt í endurreisninni Eitt af fyrstu afrekum Stein- gríms Sigfússonar, fyrrverandi fjármálaráðherra, var að færa Ar- ion- og Íslandsbanka á silfurfati til erlendra vogunarsjóða. Þegar vel er að gáð var þessi aðgerð í meira lagi misráðin. Þar fengu vogunar- sjóðirnir mikið fyrir lítið í þeim fjármunum sem erlendir lánveit- endur lánuðu bönkunum ábyrgð- arlaust og töpuðu. Þeir fjármunir hefðu átt að renna til fólksins í land- inu. Það gengur greinilega vel hjá þessum bönkum að innheimta eignasafnið. Hagnaður er mikill og Seðlabankinn þarf að eiga digra gjaldeyrissjóði, þegar eigendur bankanna flytja peningana utan. Í ljósi þeirrar stöðu sem er uppi í þjóðfélaginu og afleitra samninga í upphafi tel ég að þessa fjármuni megi nýta að hluta til að lækka skuldir heimilanna. Eftirlitsstofnanir til atvinnulífsins Eftirlitsiðnaðurinn á Íslandi blómstrar sem aldrei fyrr. Allt er bannað nema það sé sérstaklega leyft. Sífellt er verið að raða inn starfsfólki í þessar stofnanir sem virðast leggja fæð á fyrirtækin í landinu. Atvinnulífið borgar svo brúsann. Það er mín skoðun að flestar þessara eftirlitsstofnana eigi að vera reknar af atvinnulífinu sam- kvæmt lögum og reglum. Með því fyrirkomulagi myndi kostnaður vegna þessa lækka verulega. Hér hefur aðeins verið tæpt á fáum atriðum sem ég tel að eigi að vera áherslur okkar sjálfstæð- ismanna fyrir kosningarnar næsta vor. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að standa með fólkinu í landinu eins og hann hefur gert í gegnum áratug- ina. Það verður að breyta þessu þjóðfélagi sem nú er skattpínt, reglugerðarvætt og án framtíð- arsýnar til batnaðar. Við sjálfstæð- ismenn verðum tilbúnir í slaginn. Höfundur er bæjarfulltrúi og fyrrver- andi bæjarstjóri Kópavogs. UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu not- anda og lykilorð til að opna svæðið. Arna Verslun Grímsbæ Efstalandi 27 108. Reykjavík, sími 5271999 Kastanía Höfðatorgi 2, 105 Reykjavík, sími 5775570 Júnik Smáralind Hagasmára 1, 201 Reykjavík, sími 5717700 Cleopatra Austurvegi 4, 800 Selfoss, sími 4822144 Gallery Hafnarbraut 32, 230 Reykjanesbæ, sími 4217300 Sirka Skipagötu 6, 600 Akureyri,sími 4613606 Ozon Kirkjubraut 12, 300. Akranesi,sími 4311301 Paloma Grindavík Víkurbraut 62, 240 Grindavík, sími 4268711 Hárstofa Sigríðar Austurvegi 20a, 730 Reyðarfirði, sími 4741417 Heildsöludreifing: Óm Snyrtivörur ehf, Tunguvegi 19, 108 Rvík. sími 568 0829, om@om.is Útsölustaðir Stöndum saman gegn einelti og sýnum stuðning með GOOD WORK(s) leðurarmböndunum Falleg áminning um trú, ást og kærleika

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.