Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Steinunn eignuðust sitt fyrsta barn, Margréti, árið eftir og síð- an þau Jóhannes, Helgu og Kol- bein sem öll eru mikið mann- kostafólk. Börnin á Heiðarbæ og börnin okkar hinna voru á líkum aldri. Strax mynduðust sterk tengsl við Heiðarbæ og mörg af börnum okkar voru þar í lengri eða skemmri tíma sem sumarvinnu- fólk. Margar voru ferðirnar aust- ur þar sem heimili þeirra hjóna var miðstöð fjölda fólks sem gerði sér ferð þangað í ýmsum erindum. Hlýtt viðmót þeirra hjóna var einstakt og gestrisni að sama skapi. Við eldhúsborðið varð til sú sérstaka menning þar sem heimagerðar og góðar veit- ingar og umræða um fólk og mál- efni var í hávegum höfð. Bangsi lagði alltaf gott til málanna því hann var orðvar maður. Tryggvi hefur átt sitt annað heimili hjá þeim hjónum. Honum finnst að Bangsi og Steinunn hafi verið haldreipi sitt í lífinu og er hann innilega þakklátur fyrir það. Bangsa var mjög umhugað um að fólk lærði til verka og allir sem umgengust hann lærðu iðjusemi sem þau búa að alla ævi. Fyrir allt þetta þökkum við honum. Á Heiðarbæ hefur alltaf verið stórt fjárbú. Veiðiskapur hefur verið stundaður í vatninu. Bangsi var bæði góður fjármaður og mikill veiðimaður. Hann þekkti ærnar sínar og oft heyrðust skemmtileg nöfn á þeim svo sem Nesjavallahvít, Dala-Grána og Kolrassa. Nú síðustu árin eftir að Jói og Björg tóku við búinu hafði hann sinn fjárhúskofa í brekkunni fyr- ir ofan bæinn. Þar stundaði hann sinn fjárbúskap á þann hátt sem hann hafði alltaf gert. Í Bangsa varð manneskjan og náttúran að einu, það skynjaði maður best þegar maður tók í höndina á honum. Vegna sinna mannkosta laðaðist fólk að hon- um. Bak við þennan mann stóð Steinunn. Ótrúleg samvinna þeirra í öllum störfum var ein- stök, hvort heldur var að fara út á vatn eldsnemma á morgnana eða vinna fiskinn heima á eftir. En þetta var hlutskipti þeirra seinni árin. Bangsi var afskaplega söng- elskur maður og hafði fallega rödd, stundaði kórstarf um lang- an tíma og ef haldnar voru af- mælisveislur var söngur þar í fyrirrúmi. Við söknum samverustunda með öðlingnum Bangsa og þökk- um honum samfylgdina. Hann verður okkur alltaf minnisstæð- ur. Steinunni og allri fjölskyld- unni vottum við okkar dýpstu samúð. Guðrún og Þórir, Tryggvi, Kristín og Gísli, Kolbeinn og Árný. Stóri, tryggi, ljúfi, góði, ró- lyndi og bangsalegi frændinn minn er farinn, horfinn okkur, svo ótrúlega óvænt. Alltaf hefur hann verið þarna, verið sem klettur í mínu lífi. Bangsi og Himmi bróðir bröll- uðu margt og Bangsi sagði mér fyrir örfáum vikum af hættuför þeirra frændanna á vatninu, á bíl á ísnum; engu munaði að þeir færu niður en upp komu þeir í það skiptið. Ég svitnaði og margt flaug um hugann. Ungt fólk, það brallar, tekur áhættu og sleppur sem betur fer oftast. Þeir sluppu þá. Bangsi var svo ljúfur, hann var á einhvern yndislegan hátt sam- einingartákn fjölskyldunnar allr- ar og kannski sveitarinnar. Fjölskyldur okkar, á litlu bæj- unum í Þingvallasveitinni, voru alltaf að hittast, fara á milli bæj- anna þriggja, Skálabrekku og Heiðarbæjanna; keyra, ganga, ríða eða róa á milli, fara á skaut- um jafnvel; á morgnana, á dag- inn, á kvöldin og oft á nóttunni, allt í rólegheitunum. Sveitin var tímalaus. Alltaf var hægt að eiga góða stund; til að spjalla, spila, deila skoðunum, hlæja, vinna verkin, lána og skila, hjálpast að, halda hátíð og umfram allt var oft sungið, öllum stundum var sung- ið. Og það var gaman. Endalaus- ar hátíðir. Fyrir það má þakka, og það geri ég. Tengslin á milli bæjanna voru einstök, fólkið mitt deildi öllu, hittist oft; ef ekki var hægt að fara á milli gerði síminn sitt gagn, eftir að hann kom, þrjár stuttar og ein löng, tvær stuttar og tvær langar og ein stutt. Há- tíðarstundirnar voru ógleyman- legar, alltaf nógur matur, kökur, pönnukökur, flatkökur, svið, slát- ur, kjötsúpa, lambalæri, kart- öflur, silungur og murta, hangi- kjöt, og ávextir á jólum. Og söngurinn. Hann lifir í minningu allra sem voru á þessum hátíðum. Sönggleðin og hamingjan, ómæld. Ótal minningar koma upp í hugann. Það var gott að vita af Bangsa á næsta bæ, í næsta ná- grenni, í lífinu. Ég er full þakk- lætis fyrir að hafa þekkt Bangsa og átt hann að alla tíð. Guðrún Þóra Guðmannsdóttir. Sveinbjörn Jóhannesson var af öllum kunnugum þekktur sem Bangsi á Heiðarbæ, fæddur þar og uppalinn ásamt þrem systrum af góðum foreldrum og afa sem var marghertur í lífsins skóla allt frá því að hann missti foreldra sína með fárra mánaða millibili, aðeins sex ára að aldri. Hans leið- sögn var ljúft að hlíta og voru þeir nafnar mjög nánir. Ennþá þykist ég vita af honum aftan við hægri öxlina og er það ljúf sam- fylgd. Faðirinn, Jóhannes, hörku dugnaðarmaður, varð snemma heilsulítill eða eftir að hann fékk Akureyrarveikina svokölluðu, sem var í ætt við lömunarveiki. Móðirin, Margrét, var hetja sem haggaðist hvergi, heilsu- hraust framan af ævi en stríddi síðan lengi við sykursýki. Á herðar drengsins lagðist snemma mikið erfiði og búsum- stang, löngu áður en hann hafði aldur til. Engu brást hann af því sem honum var trúað fyrir, hvorki fjölskyldu né samferða- mönnum. Alltaf var Bangsi sami trausti, glaði og ljúfi drengurinn sem tók öllu því sem lífið rétti honum af dugnaði og festu. Hann bókstaflega var Þingvallasveitin og er nú skarð fyrir skildi. Hann var í heimavistarskóla á Ljósafossi og lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri. Bangsi eignaðist samhenta eiginkonu, Steinunni, og með henni fjögur börn sem öll hafa sannað sig að greind og dugnaði, hvert í sinni stöðu. Hann átti gott sauðfjárbú og stundaði jafnframt silungs- og murtuveiði í Þingvallavatni. Mörg sumardvalarbörn og ung- lingar minnast góðra daga hjá þeim hjónum við leik og störf. Eftir að eldri sonurinn Jóhannes og kona hans Björg tóku við búinu snéru þau hjón sér ein- göngu að silungsveiði í Þingvalla- vatni og minnast þeirra margir þar sem þau seldu nýjan og reyktan silung á markaðnum í Mosfellsdal. Bangsi hafði mikið yndi af tónlist og söng með karla- kórnum Stefni í fjöldamörg ár. Seinna söng hann lengi með Kjal- nesingakórnum. Bangsi var veiðimaður af lífi og sál og enginn þekkti betur Þingvallavatn en hann og vinur hans Jói í Mjóanesi eftir að Guð- mann á Skálabrekku féll frá. Á haustdegi eins og þeir ger- ast fegurstir við Þingvallavatn mætti hann örlögum sínum, sitj- andi í bát sínum með fagra veiði í skut. Hann rak hægt í átt að landi. Hann dó inn í fegurðina. Þórdís.  Fleiri minningargreinar um Sveinbjörn Jóhann- esson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Í dag hefði yndis- legur og glaðvær ungur maður fagnað 25 ára af- mælinu sínu en hann lést af slys- förum á sjó í mars sl. svo langt fyr- ir aldur fram. 25 ár eru langt frá því að vera nægur tími til að rúma heila mannsævi. En Jón Haukur hafði þrátt fyrir ungan aldur náð að upplifa heilmargt og gefa okkur hinum svo dýrmætar minningar á þessum stutta tíma sem hann fékk, eins og honum hefði aldrei verið ætlaður lengri tími til að njóta lífsins en þetta. Svo margs er að minnast og svo margt hægt að segja börnunum hans tveimur. Þau munu alltaf fá að vita hversu frábær pabbi þeirra var og hversu dýrmæt þau voru honum. Jón Haukur Njálsson ✝ Jón HaukurNjálsson fædd- ist á Akureyri 26. október 1987. Hann lést af slysförum 21. mars 2012. Útför Jóns Hauks fór fram frá Ólafsfjarðarkirkju 30. mars 2012. Jón Haukur var á sínum yngri árum duglegur að heim- sækja ömmu og afa í sveitina og þótti öll- um svo vænt um þessar heimsóknir, enda pilturinn síkát- ur dugnaðarforkur sem gekk í öll störf og allt þurfti að reyna. Hann var enn ungur að árum þeg- ar heimsóknirnar fóru að lengjast og hann var farinn að dvelja þar sumarlangt. Það var virkilega gaman að fylgjast með þessum kappsama og efnilega dreng tak- ast á hendur störf hinna fullorðnu, fullviss um að hann leysti þau jafn vel, ef ekki betur, af hendi þrátt fyrir ungan aldur. Sveitastörfun- um sinnti hann fram undir átján ára aldurinn eða þar til sjó- mennskan tók við. Fóru þau störf þessum dugnaðarpilt ekki síður. Það var mér ómetanlegt sem föður þegar Jón Haukur fór að sýna skotveiðinni áhuga og fékk til þess tilskilin leyfi til að geta stundað hana af alvöru. Í fyrra- haust áttum við feðgar yndislegar samverustundir á kornökrum í Hörgárdalnum í allslags veðri, alltaf var drengurinn minn bros- andi og sýndi ótrúlega þolinmæði við veiðina. Síðasta veiðiferð okk- ar feðga verður mér ávallt mikils virði. Þá bauð sá yngri þeim eldri með á svartfugl frá Ólafsfirði í síð- ustu inniverunni fyrir örlagatúr- inn mikla. Það er dýrmætt að eiga slíkar samverustundir með börn- unum sínum, en aldrei hefði mig grunað að stundirnar okkar yrðu ekki fleiri. Um leið og við fjölskyldan syrgjum góðan dreng, ungan og duglegan sjómann, biðjum við fyr- ir öðrum sjómönnum og aðstand- endum þeirra um að þeir fái að koma heilir heim í faðm fjölskyldu og ástvina. Aðbúnaður og slysa- varnir til sjós hafa sem betur fer eflst mikið á síðustu árum, en oft er langt að sækja hjálpina utan af sjó þegar slys ber að. Það er ekki síst þess vegna sem nauðsynlegt er að sofna ekki á verðinum og fara reglulega í gegnum öll örygg- isatriði, hvort sem er til sjós eða lands. Hætturnar leynast víða, slys gera sjaldan boð á undan sér og því miður verður sennilega aldrei hægt að koma í veg fyrir þau öll. Það er óbærilegt að vera minntur svona illilega á að það komast ekki alltaf allir heilir heim og stundum er kveðjustundin óumflýjanleg. Eftir sitjum við með ótal spurningar um lífið og til- veruna en lítið um svör. Missirinn og söknuðurinn er þungur og oft á tíðum virðist þetta óyfirstíganlegt. Minningin um lífsglaðan og skemmtilegan dreng lifir. Ég trúi því, elsku vinur, að vel fari um þig á nýjum stað. Þinn pabbi, Njáll Haukur. ✝ Sjöfn B. Geir-dal fæddist á prestssetrinu Innra-Hólmi 2. mars 1935. Hún lést á sjúkrahúsi Akra- ness 18. október 2012. Foreldrar henn- ar voru Bragi St. Geirdal, bóndi, f. 19.3. 1904, d. 5.10. 1967, sonur hjónanna Steinólfs Eyjólfssonar Geirdal, bónda, söðlasmiðs, útvegsmanns og skólastjóra, f. 26.11. 1875, d. 15.4. 1950, og Hólmfríðar Petreu Sigurgeirsdóttur, ljósmóður, f. 19.7. 1879, d. 6.2. 1954, og Helga P. Geirdal, fiskverkunarkona, f. 21.10. 1911, d. 22.8. 1988, for- eldrar Helgu voru Páll Guð- mundsson, bóndi og skáld, f. 14.4. 1875, d. 17.2. 1952, og Sig- urlaug Ólafsdóttir, húsfreyja, f. 14.7. 1882, d. 1.3. 1938. Sjöfn var elst sex systra og ólst upp á Kirkjubóli í Innri-Akranes- hreppi. Yngri systur hennar eru: Sigfríður, Ásdís, Sigrún, Stein- unn og Páley. Hún flutti með for- eldrum sínum til Akraness frá Kirkjubóli í Innri-Akranes- f. 3.7. 2007, og Anna Jóna Sig- urjónsdóttir, f. 21.12. 2011. Son- ur Önnu og uppeldissonur Braga er Ámundi Steinar Ámundason viðskiptafræðingur, f. 4.3. 1975, sonur hans og Hrafnhildar Völu Grímsdóttur er Grímur Arnar Ámundason, f. 13.1. 2003. 2) Sig- ríður Skúladóttir, f. 3.11. 1958. d. 13.2. 1959. 3) Hrafnhildur Skúladóttir viðskiptafræðingur, f. 27.6. 1960, maki Ólafur Jón Guðmundsson, sjómaður og bif- reiðastjóri, f. 19.2. 1959, sonur þeirra er Arnar Jón Ólafsson Geirdal, nemi, f. 3.8. 1995. Áður átti Hrafnhildur dótturina Söru Skúlínu Jónsdóttur, lækni, f. 22.4. 1982, faðir hennar var Jón Þór Bjarnason, f. 20.2. 1943, d. 9.7. 2004, sambýlismaður hennar er Arnar Már Símonarson smið- ur, f. 25.6. 1978, þau eiga soninn Aron Frosta Arnarsson, f. 19.12. 2010. 4) Hafdís Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur og háskóla- kennari, f. 6.10. 1962, maki hennar er Magnús Árnason, húsasmiður, f. 7.4. 1950. Synir þeirra eru: Skúli Bragi Magn- ússon, aðstoðarrekstrarstjóri, f. 25.9. 1992, unnusta hans er Ás- dís Elfa Einarsdóttir, f. 3.4. 1994, og Árni Þórður Magnússon, nemi, f. 3.1. 1996. Útför Sjafnar B. Geirdal fer fram frá Akraneskirkju í dag, 26. október 2012, kl. 14. hreppi 1954. Sjöfn giftist Skúla Þórðarsyni, verkalýðsleiðtoga og forstöðumanni Lífeyrissjóðs Vest- urlands, f. 14.9. 1930, d. 22.4. 2007. Hún var húsmóðir á Kirkjubraut 19 1956-1964, Voga- braut 8 frá 1964- 1972, og frá 1972 á Suðurgötu 109. Samhliða vann hún hjá Skagapr- jóni. Þau Sjöfn og Skúli slitu samvistum. Börn þeirra eru: 1) Bragi Skúlason sjúkra- húsprestur, f. 28.8. 1957, maki 1: Björk Jónsdóttir, þau slitu sam- vistum, maki 2: Anna Þuríður Kristbjörnsdóttir leikskólastjóri, f. 28.6. 1945, dóttir þeirra er Hafdís Anna Bragadóttir við- skiptafræðingur með BA-próf í arkitektúr, f. 22.4. 1986, sam- býlismaður hennar er Björn Eyj- ólfsson háskólanemi. Dóttir Önnu og ættleidd dóttir Braga er Sigríður Birna Bragadóttir námsráðgjafi, f. 1.1. 1970, maki hennar er Sigurjón Þor- steinsson, verkstjóri, börn þeirra eru: Steinar Bragi Sigurjónsson, Nú er mamma okkar dáin. Það er margt sem kemur upp í hugann á slíkum tímamótum. Við erum aldrei tilbúin að mæta slíkri kveðjustund þótt aðdrag- andi hafi verið fyrir hendi. Mamma hefur alltaf verið til staðar. Hún var heimavinnandi í uppvexti okkar. Hún tók á móti okkur þegar við komum heim úr skólanum. Hún kenndi okkur að meta ákveðin lífsgildi, þar sem útsjónarsemi, nýtni, dugnaður og metnaður voru í fullu gildi. Líf mömmu var ekki dans á rósum. Hún fékk að reyna sorgina, þegar Sigríður, systir okkar, dó eftir skyndileg veikindi. Hún var alltaf hrædd um okkur eftir það og vildi vita af okkur heilum heima eftir ferðalög. Hún þurfti líka að berjast við veikindi stóran hluta ævinnar. Hún gafst samt aldrei upp og kvartaði afar sjaldan. Þótt hún hafi borið óendanlega umhyggju fyrir okkur systkin- unum skipuðu barnabörnin jafnvel enn stærri sess í lífi hennar. Hún elskaði lítil börn og vildi þeim allt hið besta. Mamma var mjög listræn, bæði afbragðsgóður teiknari og hannyrðakona, hún stundaði orgelnám á unglingsárunum. Hún var afskaplega minnug, mundi nöfn og afmælisdaga bet- ur en nokkur annar. Það gat heldur enginn búið til jafn góð- an mat eða kökur og hún meðan hún var upp á sitt besta. Þegar við kveðjum mömmu okkar er okkur efst í huga þakklæti fyrir blíðlyndi hennar og kærleika, ósérhlífni og dugn- að, sem fleytti henni og okkur yfir svo margar hindranir í gegnum lífið. Hún hvílir nú í friði Guðs. „Þótt ég lyfti mér á vængi morg- unroðans og settist við hið ysta haf, einnig þar mundi hönd þín leiða mig og hægri hönd þín halda mér. Og þótt ég segði: „Myrkrið hylji mig og ljósið í kringum mig verði nótt,“ þá myndi þó myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur, myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér.“ (139. Davíðssálmur.) Bragi og Hrafnhildur. Mamma var af kynslóð kvenna sem fóru í húsmæðra- skóla. Hún ólst upp í sveit og keyrði þar traktor sem mér fannst mjög merkilegt því ímynd kvenna á þeim tíma var að sinna innistörfum, vera snyrtilegar til fara með uppsett hár og í Hagkaupsslopp. Mínar fyrstu minningar tengdar henni voru við tvær í verslunum sem seldu efni og hannyrðavörur. Hún saumaði, heklaði og prjónaði fötin á okk- ur systkinin eins og var venjan á þeim tíma. Ég man sérstak- lega eftir rauðu buxunum sem mig langaði svo mikið í og mamma lét eftir mér að sauma á mig fyrir fyrsta skóladaginn í Barnaskólanum á Akranesi. Líklega hef ég verið orðin svo- lítið þreytt á því að vera stöð- ugt í notuðum fötum af eldri systur minni. Hún lét undan rellinu í mér þá en það voru ófáir kjólar, buxur, peysur og samfestingar sem hún bjó til fyrir og eftir það handa mér og systur minni. Ég man líka eftir því þegar hún tók bílpróf en við eign- uðumst fyrsta bílinn um svipað leyti og Hekla gaus árið 1970. Mamma var mjög góður bíl- stjóri og hafði mjög gaman af því að fara á rúntinn með okkur innanbæjar og keyra fyrir Hvalfjörð til Reykjavíkur. Eftir að við fluttumst á Suð- urgötuna hætti hún alveg að keyra en þá fórum við með Akraborginni til Reykjavíkur. Ekki bara til að fara í heim- sóknir til ættingja, heldur líka til að fara í verslanir eins og t.d. Vogue til að kaupa efni og ann- að tengt saumaskap. Ekki tókst mér að verða eins góð í að sauma föt og hún en það voru ófá hannyrðastykkin, klukkustrengir, dúkar, púðar og myndir sem hún aðstoðaði mig við að velja, ganga frá og stund- um sauma. Þar var vandvirknin í fyrirrúmi. Hún var heiðarleg fram í fingurgóma og þrautseig með afbrigðum. Hún kenndi mér að gefast aldrei upp, ljúka við það sem ég byrjaði á. Ég fékk aldrei að hætta við eitt- hvert hálfklárað saumastykki til að geta byrjað á nýju. Ég varð að klára fyrst. Mamma hafði alveg ótrúlega gott minni sem tengdist því hvenær fólk átti afmæli og hvaða ár það var fætt og það voru ekki bara nánustu ættingj- ar, tengdasynir og tengdadætur þeirra sem henni tengdust sem hún mundi eftir. Ef ég var ein- hvern tímann í vafa um einhver slík ártöl, nöfn og afmælisdaga þá hringdi ég í hana og hún mundi það. Ég vissi að hún skrifaði ekkert niður og veit ekki hvaða aðferð hún notaði til að muna þetta en ég dáðist oft að þessu. Líklega var þetta ein- lægur áhugi hennar á þessu til- tekna atriði sem varð til þess að hún lagði þetta á minnið. Síðustu árin var hún alveg hætt að gera handavinnu, elda og baka en reyndi ætíð að gefa manni eitthvað sem hún vissi að manni þætti gott þegar maður kom í heimsókn, hvort sem það var rjómi út í kaffið, súkkulaði, kökur eða ís. Súkkulaði og kon- fektmolar voru í sérstöku uppá- haldi hjá henni. Alltaf þegar ég baka marmaraköku eftir upp- skriftinni frá henni hugsa ég til hennar með hlýhug og eins þeg- ar pönnukökur eru á boðstólum. Mig langar að þakka öllum þeim sem sinntu henni af alúð og umhyggju í veikindum henn- ar. Blessuð sé minning mömmu minnar Sjafnar Bragadóttur Geirdal. Hafdís. Sjöfn B. Geirdal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.