Morgunblaðið - 29.11.2012, Qupperneq 40
FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 334. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. „Allir Íslendingar fá 20% afslátt“
2. Björgólfur og Kristín selja húsið
3. Kom að manni í rúmi sínu
4. Hús atað eggjum og matarlit
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarkonan Lay Low mun hefja
tónleika bresku hljómsveitarinnar
Daughter í tónleikaferð hennar um
Bretland sem hefst 14. janúar nk.
Tónleikarnir verða átta og þegar orð-
ið uppselt á flesta. Lay Low kynntist
liðsmönnum Daughter í New York fyrr
á árinu, lék með þeim á tónleikum
þar og einnig á Iceland Airwaves--
tónlistarhátíðinni í byrjun vetrar.
Morgunblaðið/Ómar
Lay Low í tónleika-
ferð með Daughter
Glæpakvöld
Hins íslenska
glæpafélags verð-
ur haldið í kvöld á
Bar 46 og hefst
kl. 20.30. Meðal
þeirra sem lesa
munu upp úr bók-
um sínum eru
Stefán Máni og
Yrsa Sigurðardóttir. Þess má einnig
geta að Samtök glæpasagnahöfunda
á Bretlandi stofnuðu í ágúst sl. Ís-
landsdeild að frumkvæði formanns
síns, rithöfundarins Peters James.
Glæpasagnahöfundar
lesa upp á Bar 46
Esther Jökulsdóttir söngkona
mun ásamt hljómsveit halda
tvenna tónleika helgaða þekktustu
jóla- og gospellögum Mahaliu Jack-
son. Fyrstu tónleikarnir
verða í kvöld kl.
20.30 í Egils-
staðakirkju og
þeir næstu í
Fríkirkjunni í
Reykjavík
13. des.
kl. 20.
Esther syngur lög
Mahaliu Jackson
Á föstudag Fremur hæg norðan- og norðaustanátt. Skýjað með
köflum og él á stöku stað, en slydduél syðst. Frost 1 til 10 stig,
mest í innsveitum fyrir norðan, en frostlaust með suðurströndinni.
VEÐUR
Evrópu- og Þýskalands-
meistarar Kiel sýndu mátt
sinn og megin þegar þeir
mættu Rhein-Neckar Löwen
í toppslag þýsku 1. deild-
arinnar í handknattleik í
gærkvöld. Kiel vann stór-
sigur, 28:17, og hefur nú
spilað 51 leik í röð án taps í
deildinni. Löwen, undir
stjórn Guðmundar Guð-
mundssonar, tapaði hins
vegar sínum fyrstu stigum á
tímabilinu. »1
Meistarar Kiel
léku sér að Löwen
Eftir fimm daga leikur Ísland sinn
fyrsta leik í Evrópukeppni kvenna í
handknattleik þegar liðið mætir
Svartfellingum í Serbíu. Konurnar
feta í fótspor karlanna frá því á EM í
janúar og leika í bænum Vrsac eins
og þeir. Morgunblaðið heldur áfram
að kynna leikmenn
íslenska liðsins
og í dag eru það
hornamennirnir
fjórir sem
fjallað er
um. »4
Konurnar leika á sama
stað og karlarnir á EM
Það stefnir í einvígi Manchester
United og Manchester City um
enska meistaratitilinn í knatt-
spyrnu annað árið í röð en bæði
liðin unnu leiki sína í ensku úr-
valsdeildinni í gærkvöld á meðan
liðin í næstu sætum á eftir töpuðu
stigum. Gylfi Þór Sigurðsson lék í
hálftíma með Tottenham sem
hafði betur á móti Liverpool. »3
Manchester-liðin
eru að stinga af
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Við þurfum að þjálfa hugarfarslega
þætti rétt eins og líkamlega þætti en
hingað til höfum við vanrækt hug-
ræna þjálfun,“ segir Sigurður Ragn-
ar Eyjólfsson, M.Sc. í íþróttasálfræði
og þjálfari A-landsliðs kvenna í knatt-
spyrnu.
Sigurður Ragnar flutti erindi um
þjálfun afrekshugarfars á ráðstefnu
Háskóla Íslands og Íþrótta- og Ól-
ympíusambands Íslands um stöðu
íþrótta í íslensku samfélagi, sem var
haldin í hátíðarsal HÍ í gær. Markmið
samstarfsverkefnisins var að efla
tengsl og samstarf fræðasviða HÍ og
íþróttahreyfingarinnar í þeim til-
gangi að vekja athygli á því hvernig
starf HÍ getur styrkt starfsemi og
stöðu íþrótta í samfélaginu.
Jafnvel mikilvægustu þættirnir
Það er gömul saga og ný að þjálfun
beinist fyrst og fremst að því að efla
líkamlega eiginleika eins og þol,
styrk, hraða og tækni en hugarfars-
þættir vilja verða útundan. Sigurður
Ragnar bendir á að ekki síður sé mik-
ilvægt að þjálfa þætti eins og sjálfs-
traust, keppnisskap, markmiða-
setningu og það að höndla mótlæti
auk annarra þátta. „Það hefur verið
sýnt með rannsóknum að okkar besta
íþróttafólk telur að hugarfarslegir
þættir séu gríðarlega mikilvægir og
jafnvel mikilvægastir til þess að ná
langt í íþróttum, en því miður virðist
það vera þannig að þessir þættir eru
ekki þjálfaðir nægilega mikið.“
Sigurður Ragnar segir að skýring-
ar á þessari vanrækslu séu gjarnan
þær að þjálfarar segist ekki hafa tíma
í þessa þætti vegna þess að þeir þurfi
að sinna líkamlegum þáttum, en það
sé ekki nóg að reyna að leika á mót-
herja eins og Ronaldo geri heldur
þurfi andlega eiginleika eins og
sjálfstraust og einbeitingu til þess að
geta það. Eins segist þjálfarar ekki
hafa þekkinguna, en úr þessu megi
bæta. Þekkinguna megi fá hjá fag-
fólki auk þess sem mikil þekking sé
aðgengileg á netinu.
„Við sem erum í þessum geira
þurfum líka að ná betur til þjálfara og
íþróttafólks, til dæmis með því að
opna heimasíður og nota samskipta-
miðla, því fólk vill sækja sér þekkingu
þar sem það er heima hjá sér á þeim
tíma sem hentar því sjálfu, á auðveld-
an og ódýran hátt. Það er ekki nóg
fyrir okkur að gera rannsóknir og
birta þær í vísindatímaritum því
þjálfarar og íþróttafólk lesa ekki mik-
ið vísindatímarit eða langar rann-
sóknir. Við þurfum að matreiða þekk-
inguna ofan í fólkið sem þarf á henni
að halda. Þannig náum við betri ár-
angri.“
Úr hlekkjum hugarfarsins
Andleg þjálfun
mikilvægari en
margur heldur
Morgunblaðið/Eggert
Sigurvegari Sigurður Ragnar Eyjólfsson leggur mikið upp úr hugrænni þjálfun, uppsker eins og hann sáir og hefur
náð manna lengst með kvennalandsliðið í fótbolta, en hann er á leið með það í úrslitakeppni stórmóts öðru sinni.
Á ráðstefnunni ræddi Daði Már
Kristófersson, dósent við hag-
fræðideild HÍ, um hagkvæmni af-
reksíþrótta út frá hagfræðinni.
Borga afreksíþróttir sig? „Rann-
sóknir sýna að fjárhagslega af-
koman ein og sér er fremur nei-
kvæð,“ segir hann. „Á hinn
bóginn bendir umfang afreks-
íþróttastarfs í heiminum eindreg-
ið til þess að það sé þjóðhagslega
hagkvæmt að styðja afreks-
íþróttastarf.“
Daði Már segir að hagfræðin
komi að gagni við lausn á ýmsum
vandamálum í íþróttum. „Leikja-
fræði er til dæmis mjög mikilvæg
grein innan hagfræðinnar og
íþróttir eru leikir,“ segir hann.
„Það gefur því augaleið að meira
og minna er hægt að beita hag-
fræðigreiningu á alls kyns vanda-
mál í íþróttum, hvernig mönnum
er raðað í boðhlaupi, hvert menn
velja að sparka boltanum í víta-
spyrnu og svo framvegis.“
Þjóðhagslega hagkvæmt
HAGFRÆÐI OG AFREKSÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 2-10 m/s og skúrir eða lítils hátt-
ar rigning sunnan- og vestantil en stöku él norðaustantil. Hiti 1 til 5
stig sunnan- og vestanlands en frost 0 til 7 stig norðaustantil.