Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Blaðsíða 23
Danskur tölvunarfræðingur sem
setti sig í samband við sambæri-
lega þjónustu í Ásbyrgi, Arctic
Running. „Þau vísuðu honum til
okkar og hann smellpassaði inn í
þetta líkan,“ segir Hávar.
Þar til allir eru þagnaðir
Daninn vildi upphaflega hlaupa
frá Þingvöllum til Hveragerðis,
yfir Hengilssvæðið, en var ráðið
frá því vegna bágra veðurskil-
yrða. „Það hefði ekki verið gott
afspurnar að villast í þoku með
fyrsta kúnnann,“ segir Óskar
glottandi. Þess í stað skiptust
þeir á að hlaupa með honum í
tvo klukkutíma í Heiðmörk og
var sá danski alsæll.
Hann hvatti Hávar og Óskar
til að koma sér upp heimasíðu á
netinu og skrá sig á Snjáldru (e
Facebook) til að gera starfsemina
sýnilegri. Síðan er nú komin upp:
www.runningreykjavik.com.
Spurðir hvort þeir hyggist
spjalla með markvissum hætti við
meðhlaupendur sína, ef til vill
fræða þá um land og þjóð, segja
þeir svo ekki vera. „Auðvitað er-
um við til í spjall,“ segir Hávar,
„en hjá hlaupurum er það nú oft
á nördískum nótum. Menn reifa
sína bestu tíma og þar fram eftir
götunum. Eftir því sem hraðinn
eykst dregur svo úr talinu. Þar
til allir eru þagnaðir!“
Morgunblaðið/Eva Björk
Óskar í Snæfjallajökulshlaupinu á síðasta ári.
* Það hefði ekki verið gott afspurnar að
villast í þoku með
fyrsta kúnnann.
Hávar Sigurjónsson og Óskar Jakobsson
eru engir viðvaningar í víðavangs-
hlaupum, Hávar hefur hlaupið 12 mara-
þon og Óskar 7. Hávar á að auki einn
„Járnkarl“ að baki. Spurður hvort hann
hafi prófað þá keppni líka hlær Óskar við
fót: „Ertu frá þér, ég er varla syndur!“
25.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Hágæða sæn
gurverasett
og sloppar -
Mikið úrval
Jólagjöfin í ár
20%
afslát
tur
Óskaplega sem ég get látið fara í taugarnar á mér þegar enda-laust er hamrað á því við konur að þær þurfi að komast í ein-hvern kjól fyrir jól sem er að því er virðist allt of lítill á þær.
Væri miklu heiðarlegra að segja beint út: Konur: Þið eruð allt of feitar!
Allar!
Þetta hábölvaða megrunarkjaftæði er gjörsamlega óþolandi.
Jólin fá ekki einu sinni að vera í friði fyrir þessum áróðri sem borar
sér inn í höfuð kvenna með slíkum krafti að ótrúlega mjóum konum
finnst þær meira að segja vera of feitar.
Hverjum datt í hug að telja okkur trú um að
það væri eftirsóknarvert að svelta sig á að-
ventunni? Einmitt á þeim árstíma sem ást og
umhyggja er hvað mest tjáð með kræsingum
og hverskonar matarboðum. Lífið er allt of
stutt til að láta á móti sér þá nautn sem fylgir
því að gæða sér á góðmeti.
Ef fólki finnst það vera að gleypa of marg-
ar kaloríur þá er til ævafornt heillaráð við
því: Að njóta ásta.
Heilmörgum hitaeiningum má brenna með
ástarleikjum og til að auka brennsluna má gera sér hlutina líkamlega
erfiðari. Auka má áreynslu við smæstu atriði, til dæmis með því að
nota munninn en ekki hendurnar við það verðuga verkefni að klæða
hvort annað úr undirfötunum. Augljóslega er það nokkuð meiri fyrir-
höfn að ná með tönnunum einum saman að koma konu úr brjóstahaldi
heldur en nærbrókum, en það eykur bara spennuna og skemmtana-
gildið.
Svo er alltaf gaman að takast á við ögrandi stellingar og þá er nú
bráðsnjallt að leita í Kama Sútra eða önnur rit eftir hugmyndum.
Þeir sem ástarleikinn iðka geta til dæmis skipst á að standa á hönd-
um eða haus meðan á hvílubrögðunum stendur, nú eða halda á eða
undir hvort annað. Gera það standandi frekar en liggjandi, standa jafn-
vel til skiptis á öðrum fæti. Svo er hægt að teygja rækilega á útlim-
unum, fótleggina í átt til höfuðs, handleggi út og suður, og fá meðleik-
arann til að hjálpa til með því að ýta aðeins lengra.
Snúa á alla kanta upp á skrokkinn eins og skrúfu.
Skemmta sér við tilraunirnar, taka duglega á og njóta þess í botn að
klístrast saman í hvors annars svita. Ef slík amorsbrögð eru viðhöfð
alla aðventuna, fullyrði ég að fólk smeygir sér geislandi kátt og í fanta
fínu formi í skyrtuna og kjólgopann þegar klukkurnar hringja inn jólin.
Indversk blíðubrögð í uppsiglingu kennd við Kama Sútra.
MÁ ÉG HVOLFA
ÞÉR FYRIR JÓLIN?
Stigið í
vænginn
KRISTÍN HEIÐA