Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Blaðsíða 38
Ein klassísk - hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Ég er mjög óheppin þegar kemur að fötum og fata- kaupum. Mér finnst allir alltaf í flottari fötum en ég og ef ég reyni að kaupa mér eitthvað þá gerast slys- in. Oftast kaupi ég eitthvað fáránlegt því ég stressast inni í búðum og svo svimar mig líka í mannmergð og yfirleitt enda ég því á að fá mér bara „eitthvað“. En ég er mjög ánægð með kápu frá Diane Von Fur- stenberg sem ég keypti mér árið 2006 enda var ég ekki ein þá heldur með vinnufélögum úr utanrík- isráðuneytinu. Hún var líka fáránlega dýr. Eins og allir góðir hlutir. Ég hef áður montað mig af þess- ari kápu í viðtali því hún er það eina sem ég hef. Ég píndi pabba líka einu sinni til að gefa mér pels þegar ég bjó í Brussel og hann var í heimsókn hjá mér. Ég fór að gráta og hann endaði á því að kaupa hann. En þau verstu? Ég get ekki varla gert upp á milli þeirra. Einu sinni keypti ég kjól sem var of lítill en ég þorði ekki að við- urkenna það inni í klefanum þegar gólað var á mig hvort ég væri ekki „bara að fíla mig“. Svo ég keypti kjólinn og reyndi að megra mig í hann. Það hefði síðan auðvitað ekki gengið nema ég hefði tekið úr mér rifbein og látið fjarlægja aðra öxlina. Hvar kaupir þú helst föt? Þar sem mér er hleypt inn. Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í? Allar búðir með dýrum fötum. Manstu eftir einhverjum tískuslysu sem þú tókst þátt í? Ja, bara flest árin síðan ég var fimm ára. Ég var með í þessu öllu. Hár- og fataslysum. Ég fékk mér broddaklippingu ellefu ára og var hress á myndum með systur sem fermdist á því tímabili. Vegna mín var ekki hægt að ramma inn fjölskyldumyndir af fermingardeginum. Á stúdentsdaginn minn var ég með grænar fjaðrir um háls- inn. Af einhverjum ástæðum er engin mynd til af mér í albúmi af þeim degi. Ég held að mér hafi tekist að eyðileggja hverja einustu hátíð, jól, fermingar, brúðkaup, „what have you“, í sögu fjölskyldu minnar síðan ég fór að klæða mig sjálf. Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Að þau hylji mig vel og feli. Og hvort systir mín eigi nokkuð eftir að æla yfir mig. Litadýrð eða svarthvítt? Svart. Hefurðu augastað á einhverju fallegu fyrir jólin? Mig hefur alltaf langað til að vera í einhverju sem allir elska en það hefur aldrei tekist. Alltaf þegar ég mæti í jólaboð langar mig að skipta um kjól við hverja einustu konu sem ég sé. Alltaf. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Núna langar mig til að nefna sjálfa mig en það er víst ekki þannig sem heimurinn virkar. Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Ég vil ekki eyðileggja feril einhvers með því að nefna hann en ég elska E-label. Og síðan elska ég líka Diane Von Fur- stenberg og Donnu Karan og Marc Jacobs (ég kann ekki fleiri nöfn í fljótu bragði). Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgihlut myndirðu kaupa? Eitthvað úr skinni, helst hælasíðan pels af einhverju dýri í útrýmingarhættu. Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs að eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða ár myndirðu velja og hvert fær- irðu? Ég færi til ársins þar sem einhver skilur mig. Ég myndi velja mér tryllingslega þrönga kápu og ég færi til borgar þar sem er starfandi McDonalds. Og Burger King. Það má alveg líka vera bar á hverju horni og allskonar lið sem er í ljótari fötum en ég. GRÉT Í BÚÐ Í BRUSSEL Elskar E-label og Diane Von Furstenberg LÁRA BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, SAGNFRÆÐINGUR OG RITHÖFUNDUR, SEGIST ALMENNT AFAR ÓHEPPIN ÞEGAR KEMUR AÐ FÖTUM OG FATAKAUPUM. HÚN HUGSAR ÞÓ HLÝTT TIL KÁPU FRÁ DIANE VON FURSTENBERG. Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Íslensk hönnun frá E-label Ljósmynd/María Guðrún Rúnarsdóttir Diane Von Furstenberg og „wrap“- kjóllinn klassíski. Fatahönnuðurinn Donna Karan Lára er heimavön í New York Jerry Hall í veglegum feldi á níunda ára- tugnum. *Föt og fylgihlutir Þegar veturinn skellur á og næðir um leggina koma girnilegar og hlýjar bomsur í góðar þarfir »40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.