Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012
Óhætt er að segja að viðbrögð stuðn-ingsmanna Chelsea við ráðninguRafa Benítez í starf knatt-
spyrnustjóra séu blendin. Er hann virkilega
Di Matteo-betrungur?
Fyrst reka þurfti Ítalann mátti þá ekki
sækja nýjan mann í efsta lag stjóra-
samfélagsins, svo sem Pep Guardiola? Kata-
lóninn, sem yfirgaf Barcelona fyrr á þessu
ári, er sannarlega ekki á lausu, hlýtur að
ætla að taka sér a.m.k. ársfrí. Er það skýr-
ingin á því að samningur Benítez gildir að-
eins fram á vor? Er hann bara að verma
stólinn fyrir Guardiola?
Á fyrsta blaðamannafundinum í vikunni
gaf Benítez lítið út á þetta. Lengd samnings-
ins væri aukatriði, hann væri mættur til að
vinna titla og vinna mætti þá marga á sjö
mánuðum. Eins og það nægi Roman
Abramovitsj, spyrjið bara José Mourinho,
Carlo Ancelotti og Roberto Di Matteo!
Lengi hefur verið orðrómur um að Guar-
diola sé fyrsti kostur Abramovitsj, eigand-
ann dreymi um „blátt Barcelona“, en hvort
hann hafi yfir höfuð áhuga á að þjálfa í Eng-
landi er önnur saga, hvað þá Chelsea. Þessi
penni leyfir sér alltént að hafa stórkostlegar
efasemdir um það. Guardiola var úrvinda á
líkama og sál eftir skamma dvöl við stjórn-
völinn í Barcelona. Væri það ekki að fara úr
öskunni í eldinn að semja við Abramovitsj?
Benítez hefur á hinn bóginn engar áhyggj-
ur af samstarfinu við eigandann. Það verði
hátíð ein eftir að hafa unnið undir stjórn
Bandaríkjamannanna George Gilletts og
Toms Hicks hjá Liverpool, manna sem töl-
uðu ekki einu sinni saman.
Benítez var um tíma ígildi almættisins á
Anfield, einkum eftir að hann skilaði Evr-
ópubikarnum í hús 2005. Er leið á valdaskeið
hans þar dró jafnt og þétt úr vinsældunum
og að því kom að hann var látinn taka pok-
ann sinn vorið 2010. Benítez hélt beint til
Internazionale í Mílanó, leysti þar Mourinho
af hólmi, en náði aldrei tökum á því verk-
efni. Var látinn víkja fyrir jól. Það var hans
síðasta starf og eftirspurnin ekki verið
óbærileg síðan, hefur manni fundist.
Fyrir hjá Chelsea hittir Benítez landa sinn
Fernando Torres, miðherjann umdeilda, sem
býr að þeim vafasama heiðri að síðustu sex
stjórarnir hans hafa allir verið reknir: Bení-
tez, Roy Hodgson og Kenny Dalglish frá
Liverpool, Carlo Ancelotti, Andre Villas-
Boas og Roberto Di Matteo frá Chelsea.
Álög?Rafa Benítez. Hve lengi endist hann á Brúnni?
AFP
Í VAFA UM RAFA
RAFA BENÍTEZ FÆR NÚ ÞAÐ ERFIÐA VERKEFNI AÐ GERA ROMAN
ABRAMOVITSJ TIL GEÐS. HANN HEFUR LEGIÐ Í HÍÐI Í TVÖ ÁR.
Skiptar skoðanir um nýja karlinn í Brúnni
Sækist þú, lesandi góður eftirstarfsöryggi, þolinmæði ogað vera metinn að verð-
leikum skaltu ekki sækja um starf
knattspyrnustjóra hjá Chelsea í
Lundúnum. Frá því hinn duttlunga-
fulli auðkýfingur Roman Abramo-
vitsj festi kaup á félaginu í júní
2003 hafa tíu menn vermt þetta
funheita sæti, nú síðast settist
Spánverjinn Rafa Benítez í það fyr-
ir helgina. Leysti af hólmi Ítalann
Roberto Di Matteo sem entist ekki
nema tæpa níu mánuði í starfi.
Uppsögn Di Matteos verður að
teljast með nokkrum ólíkindum en
honum tókst á liðnu vori að færa
Abramovitsj bikarinn sem hann
hafði rembst eins og rjúpan við
staurinn að klófesta, sjálfan Evr-
ópubikarinn. Voru ekki allir hinir
reknir vegna þess að þeim mistókst
það, nema kannski José Mourinho?
Þar skullu þau saman, hin stóru
egó. Risastóru.
Di Matteo kom raunar bakdyra-
megin inn í starfið. Var ráðinn að-
stoðarmaður næsta stjóra á undan, Portúgalans Andres
Villas-Boas, sumarið 2011. Villas-Boas reyndist ekki það
Mourinho-ígildi sem Abramovitsj hafði vonast eftir og að
níu mánuðum liðnum var hann horfinn á braut. Di Matteo
átti bara að verma stólinn meðan leitað væri að stærra
nafni. Hann kom hins vegar á óvart. Að vísu tókst honum
ekki að snúa gengi liðsins í ensku úrvalsdeildinni við en
beindi athyglinni hressilega frá þeirri sneypuför með því
að vinna fyrst enska bikarinn og síðan Evrópubikarinn.
Enda þótt gleði Abramovitsj væri algjör var honum
vandi á höndum. Di Matteo var í hans huga þrátt fyrir
allt ekki rétti maðurinn í starfið en hvernig gat hann látið
hann fara eftir afrekið í München í maí? Það var útilokað.
Eigandinn beit því í vörina og fleygði tveggja ára samn-
ingi á borðið. Opinberaði þar með hug sinn, flestum öðr-
um þótti fyrsti maðurinn til að færa Chelsea Evrópubik-
arinn verðskulda lengri samning.
Eigi að síður virkaði Di Matteo öruggur þegar liðið
rauk upp úr startblokkunum í haust, vann sjö af fyrstu
átta leikjum sínum, spilandi leiftrandi sóknarleik á
löngum köflum með nýstirni á borð við Eden Hazard og
Oscar í essinu sínu. Að ekki sé talað um Juan Manuel
Mata. Þá hægðist raunar á lestinni, Chelsea hefur aðeins
fengið tvö stig úr síðustu fjórum leikjum.
Er þó aðeins fjórum stigum á eftir toppliðinu, Man-
chester City, og þess sannarlega umkomið að berjast um
meistaratitilinn. Bágt gengi í Meistaradeild Evrópu kom
sér á hinn bóginn illa fyrir Di Matteo, þegar ein umferð
er óleikin er Chelsea í þriðja sæti í sínum riðli. Þarf að
vinna heimaleik sinn gegn Nordsjælland og stóla á hag-
stæð úrslit í leik Shakhtar Donetsk og Juventus í Úkra-
ínu. Það er auðvitað ekki ásættanleg staða enda þótt hún
sé ekki vonlaus. Þá er hermt að tapið slæma gegn Atlet-
ico Madrid í Ofurbikarnum í haust hafi farið verulega í
taugarnar á eigandanum. Allt bar að sama brunni.
Það fór líka eins og mann grunaði, Abramovitsj notaði
fyrstu ágjöfina, eins lítilmótleg og hún er, til að losa sig
við Di Matteo. Ítalinn brást við af aðdáunarverðri reisn,
kvaðst hafa notið hverrar stundar á Brúnni og óskaði fé-
laginu alls hins besta í framtíðinni. Ekkert væl þar.
Við skulum vona, Romans Abramovitsj vegna, að Di
Matteo verði að ósk sinni.
Ítalinn Roberto Di Matteo
var knattspyrnustjóri
Chelsea frá mars
til nóvember 2012.
AFP
Abra-kadabra
ENN FÓR REFSIVÖNDUR ROMANS ABRAMOVITSJ, EIGANDA CHELSEA, Á LOFT Í VIKUNNI,
ÞEGAR ROBERTO DI MATTEO VAR SÓPAÐ ÚT AF SVIÐINU EINS OG HVERJU ÖÐRU KUSKI.
INN STEIG MAÐUR SEM ÝMSIR HAFA EFASEMDIR UM, RAFA BENÍTEZ.
Guus Hiddink,
feb. 2009 – maí 2009.
Avram Grant,
sept. 2007 – maí 2008.
José Mourinho,
júní 2004 – sept. 2007.
Luiz Felipe Scolari,
júlí 2008 – feb. 2009.
Claudio Ranieri,
sept. 2000 – maí 2004.
Carlo Ancelotti,
júní 2009 – maí 2011.
Ray Wilkins,
feb. 2009 – feb. 2009.
Andre Villas-Boas,
júní 2001 – mars 2012.
„Allir finna til með Roberto Di Matteo. Þetta er með ólíkindum
þegar tekið er mið af því að hann vann bæði enska bikarinn og
Meistaradeild Evrópu.“
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United.
Boltinn
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is