Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012
Föt og fylgihlutir
E
flaust hafa margir leitt hugann að því undanfarið
hvernig þeir séu búnir í veturinn sem í hönd fer,
enda enn nóvember og nóg eftir af þessari köld-
ustu árstíð.
Svo virðist sem fjölbreytnin ráði ríkjum í vetrarskótísk-
unni í ár, svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Mikið er um grófa ökklaskó, bæði fyrir konur og karla,
sem koma í hinum ýmsu útfærslum. Dömurnar hafa þar
úr að velja flatbotna skó eða skó með fylltum hælum og
ekki.
Mikilvægt er að skórnir séu með góðum sóla og grófum
svo betur gangi að fóta sig í hálkunni og snjónum. Þá er
ekki verra ef skórnir eru fóðraðir svo að þeir haldi hlýju á
fótunum.
Vert er að minnast á að mikilvægt er að hugsa vel um
skótau á slabbtímum þ.e. muna að vatnsverja það fyrir
notkun með tilheyrandi úða eða leðurfeiti. Síðan borgar
sig að fara aðra umferð með efnin, af og til yfir veturinn,
allt eftir notkun og veðrun.
Að sögn eins skókaupmanns sem Sunnudagsblaðið
ræddi við hefur sýnt sig að þróunin undanfarin ár hefur
verið á þá leið að fólk er í auknum mæli farið að leggja
upp úr að klæða sig eftir veðri. Þykir þar gott að eiga
góða vetrarskó til að fara í til vinnu og vera þá jafnvel
með aðra fínni með sér í poka, til að skipta yfir í þegar
þangað er komið.
Mætti því bæta við að skótískuna í ár einkenni einnig
skynsamleg nálgun, sem er viðeigandi.
VETUR KONUNGUR HEFUR MINNT ALLHRESSI-
LEGA Á SIG UM LAND ALLT UNDANFARIÐ.
HVORT SEM JÓL VERÐA RAUÐ EÐA HVÍT BORG-
AR SIG AÐ VERA VIÐ ÖLLU BÚIN HVAÐ
SKÓTAU VARÐAR ÞEGAR KULDINN SÆKIR AÐ.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
BULLBOXER
Dökkbrúnir, ökklaháir herra-
leðurskór. Fást í Gallerý 17.
Verð 18.995 kr.
GABOR
Fallegir loðfóðraðir dömu-
ökklaskór með grófum
sóla. Fást hjá Skór.is.
Verð 19.995 kr.
YELLOW BOOTS
Klassísk herrahönnun.
Fást í Timberland-
verslununum.
Verð 34.990 kr.
SOREL
Fóðraðir og vatns-
heldir Sorel-skór fyrir
dömur. Fást í GS Skóm.
Verð 24.995 kr.
BILLI BI
Fóðruð dömustíg-
vél m/lágum hæl.
Fást í GS Skóm.
Verð 32.995 kr.
MANAS
Ítalskir, fóðraðir dömuskór.
Fást í Bossanova.
Verð 23.600 kr.
BOBBIE BURNS
Bláir „Brogue“ rúskinnsherraskór .
Fást í Gallerý 17. Verð 20.995 kr.
RIME TIDE
Vatnsheldir herra-
kuldaskór. Fást í
Timberland-
verslununum.
Verð 26.990 kr.
COQUETERRA
Spænskir, fóðraðir dömu-
skór. Fást í Bossanova.
Verð 25.400 kr.
SKÓTÍSKAN SKYNSAMLEG
Vel búin
til fótanna
SOREL – UNISEX
vetrarstígvél frá Sorel
– fyrir bæði börn og
fullorðna. Rúskinn að
ofan og hægt að taka
innri skósokk úr. Fást
hjá Skór.is
Verð 26.995 kr.
BULLBOXER
Loðfóðraðir herraökkla-
skór með grófum sóla. Fást
hjá Skór.is
Verð 19.995 kr.
DR. MARTENS
Ökklaháir, leð-
urdömuskór. Fást í
GS Skóm
Verð 24.995 kr.
SIX MIX
Loðfóðraðir dömuleð-
urskór. Fást hjá Skór.is
Verð 20.995 kr.