Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2012, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.11. 2012 Í umræðum um síðustu atburði fyrir botni Miðjarðarhafsins, átökin á milli Ísraels og Hamas, hafa sérfræðingar bent mjög á, að þótt hernaður af þessu tagi sé ekki nýr, þá hafi eðli hans breyst mikið. Og í þeim breytingum halli á Ísrael. Nefnt er þessu mati til stuðnings að Egyptaland Morsis forseta sé allt annað en Mubaraks, sem hafi lagt mikið upp úr því að tryggja að samskipti við Ísrael, sem eiga rót í svo kölluðum Camp David samningi, héldust í meginatriðum. Morsi lætur muna um sig Sérfræðingarnir benda á að Morsi forseti standi mun nær Hamas en Mubarak, enda tengi sameig- inlegt Bræðralag múslima þessa aðila sterkum böndum. Og þótt Morsi hafi gætt sín á að styggja ekki Bandaríkin um of í þessari lotu, af fjárhags- legum ástæðum, þá hafi honum þó tekist að færa Hamas-samtökin upp um eitt þrep á stiga póli- tískrar viðurkenningar. Þannig hafi Hamas í raun verið meira en óbeinn samningsaðili í aðdraganda þess vopnahlés, sem heldur enn, þegar þetta er skrifað. Umræður í ýmsum fjölmiðlum í Ísrael ýta undir þessa niðurstöðu og ganga þeir sumir svo langt að segja að þess vegna megi líta á Hamas sem eiginlegan sigurvegara átakanna, þótt mjög hafi hallað á þá hernaðarlega, í manntjóni og fjár- hagslegum skaða. En jafnvel í hernaðarlegum efn- um hafi komið í ljós þættir sem ástæða sé fyrir Ísrael að hafa áhyggjur af. Heimatilbúin vopn eða bara heimatilbúin rök Sú mynd hefur verið dregin upp sums staðar á Vesturlöndum (eins og var gert fyrir fáeinum dög- um af Össuri Skarphéðinssyni) að Hamas sé að slást við Ísrael með heimatilbúnum vopnum gegn herveldinu. Árásir á óbreytta borgara í Ísrael eru dregnar upp sem hluti af þessari samúðarfullu mynd. Þær séu aldrei meining Hamasliða, en vopn þeirra, sem búin séu til af vanefnum í þvottahúsinu heima fyrir, geti bara ekki verið nákvæmari en þetta. Þessi áróðurskenning hefur lengi gölluð ver- ið, þótt í henni hafi verið hálfsannleikur eða a.m.k. sannleikskorn. En í þeirri atlögu sem Hamas hóf nú beittu samtökin miklu öflugri vopnum en áður, ekki síst flaugum. Þær koma flestar frá Kína og Íran. Flaugarnar eru langdrægari en þær sem Hamas hefur áður notað og þeim var beint að almenningi í Ísrael, og ekkert reynt að fela það. (Og eru þá orð íslenska utanríkisráðherrans ekki talin með.) Ný og aukin hætta Hinar nýju flaugar og fjöldi þeirra sýna að til- raunir Ísraels til að koma í veg fyrir að slík vopn berist til Gaza takast ekki nema að litlu leyti. Þessar staðreyndir hljóta að valda miklum áhyggj- um í Ísrael. Og það getur verið rétt hjá sérfræð- ingunum að „arabískar veðurbreytingar“ hafi hér mikla þýðingu. Vorið í Egyptalandi og þau valda- skipti sem því fylgdu, þýði að slaknað hafi á því eftirliti með vopnasmygli, sem ríkið hafði skuld- bundið sig til að tryggja. Morsi forseti Egyptalands hefur smám saman verið að sýna merki um að hann haldi um sífellt fleiri spotta í valdakerfi landsins og hann gerist sífellt djarftækari. Hann rak á sínum tíma æðstu herforingjana úr embætti og nú hefur hann rekið ríkissaksóknarann fyrir að taka ekki við fyrir- mælum um að beita sér harðar gegn Mubarak, fjölskyldu hans og aðilum tengdum gömlu vald- höfunum. Og Morsi virðist ætla að ganga enn lengra. Nýr faraó? Á ritstjórnarvettvangi þessa blaðs var bent á við kjör Morsis að fjarri væri að leikið hefði verið til enda í valdataflinu í Egyptalandi. Egypski herinn hefði að vísu horfið um sinn til búða sinna og hefðist ekki að. Herinn lék biðleik, en gaf ekki skákina. Bent var á að ótímabært væri að álykta að hann hefði þar með selt sig undir forsetann og viðurkennt óskorað vald hans. Réttara væri að segja að herinn biði átekta. Herinn er brenndur eftir að hann náði ekki að hemja aðförina að stjórn Mubaraks. Herinn átti óhægt um vik því Bandaríkjastjórn hótaði að svipta landið hernaðarlegri og efnahagslegri aðstoð ef her- inn „stöðvaði hina lýðræðislegu þróun“. Gamli forsetinn var heilsutæpur orðinn, lúinn og óvinsæll. En þó að hið persónulega fall væri hans fólust stórtíðindin fremur í vanmætti hersins, sem Verður það örugglega til bóta? * Þegar mótmæli almenningsaukast í Egyptalandi allt þar tilað svo er komið að lögreglan ein ræð- ur ekki lengur við þau, og þegar ein- ræðistilburðir Morsis verða komnir upp í kok á valdamönnum vestra, er ekki ólíklegt að egypski herinn haldi aftur út úr búðum sínum. Reykjavíkurbréf 23.11.12

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.