Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
KAFFISKOT
Í NESPRESSOVÉLAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Íþróttaálfurinn og Solla stirða vöktu mikla kát-
ínu á Jólahátið fatlaðra sem fram fór á Hilton
Reykjavík Nordica í gærkvöldi. Hátíðin í gær
var sú þrítugasta í röðinni og því var dagskráin
með glæsilegra móti. Gestirnir skiptu hund-
ruðum en hátíðin hefur vaxið ár frá ári síðan hún
var haldin fyrst í Kassagerðinni. Á meðal
skemmtikrafta voru Sveppi, Ingó veðurguð,
Laddi, Heiða Ólafsdóttir og Hermann Gunnars-
son en samtals komu um 30 listamenn fram. Allir
sem koma að hátíðinni gáfu vinnu sína auk þess
sem fyrirtæki gáfu veitingar.
Tugir skemmtikrafta komu fram á þrítugustu Jólahátíð fatlaðra í gær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hundruð skemmtu sér konunglega á jólahátíð
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Breytingartillögur meirihluta fjár-
laganefndar við þriðju umræðu fjár-
laga leiða til tæplega 3,3 milljarða
króna hækkunar á útgjöldum ríkis-
sjóðs, verði þær samþykktar. Meðal
annars er gert ráð fyrir að vaxta-
gjöld af skuldum ríkisins aukist um
585 milljónir vegna skuldabréfa sem
gefin verða út vegna eiginfjárfram-
lags ríkissjóðs í Íbúðalánasjóð. Halli
A-hluta ríkissjóðs verður tæpir 3
milljarðar, samkvæmt þessu, tæpum
200 milljónum kr. meiri en í frum-
varpi.
Meirihlutinn leggur til að lagðir
verði 13 milljarðar inn í Íbúðalána-
sjóð, í samræmi við tillögur ríkis-
stjórnarinnar. Framlagið er ekki
gjaldfært en kallar á hækkun vaxta-
gjalda þegar á næsta ári þar sem
áformað er að gefa út skuldabréf um
mánaðamótin febrúar og mars. Ekki
hefur verið ákveðið í hvaða flokki út-
gáfan verður en miðað er við 5,4%
óverðtryggða vexti sem þýðir að
vaxtakostnaður ríkisins eykst um
585 milljónir á næsta ári.
Lögreglan fær viðbót
Breytingar á fjárfestingaáætlun
ríkisstjórnarinnar vega þyngst í
aukningu útgjalda, samkvæmt tillög-
um fulltrúa stjórnarmeirihlutans.
Þannig eru tillögur um hús íslenskra
fræða og uppsetningu náttúruminja-
sýningar í Perlunni að nýju komnar
fram. Verja á 800 milljónum króna á
næsta ári til að hefja byggingu húss
íslenskra fræða og 400 milljónum kr.
til uppsetningar á sýningu Náttúru-
minjasafns Íslands. Áætlað er að hús
íslenskra fræða kosti í heildina 3,4
milljarða og á hlutur ríkisins að
verða 2,4 milljarðar og Háskólinn
mun leggja til milljarð af eigin ráð-
stöfunarfé. Áætlað er að heildar-
kostnaður við náttúruminjasýn-
inguna verði 500 milljónir kr.
Gerð er tillaga um 200 milljóna
króna framlag til að styrkja þau lög-
regluembætti sem lakast eru sett og
draga með því úr fækkun lögreglu-
manna. Innanríkisráðuneytinu verð-
ur falið að skipta fjárhæðinni.
Sömuleiðis er lagt til að 100 millj-
ónum verði varið til að tryggja
rekstrarforsendur Landhelgisgæsl-
unnar. Áætlað er að sértekjur Gæsl-
unnar dragist saman um 310 millj-
ónir kr. á næsta ári vegna
samdráttar í verkefnum erlendis.
Raunar liggur fyrir að Landhelgis-
gæslan fær ekki ný verkefni hjá
Frontex og EFCA á næsta ári vegna
efnahagssamdráttar í Evrópu. Gæsl-
an mun hagræða í rekstri, meðal
annars með því að fækka um eina
áhöfn varðskipa og segja upp samn-
ingum við þyrlulækna.
Vaxtagjöldin hækka
Lagt til að útgjöld ríkisins aukist um 3,3 milljarða Eiginfjárframlag ríkissjóðs
til Íbúðalánasjóðs mun leiða til 585 milljóna króna hækkunar á vaxtagjöldum
Fundað Meirihluti fjárlaganefndar
hefur skilað áliti og tillögum.
Sex pör létu pússa sig saman hjá
Sýslumanni Reykjavíkur í gær, þann
12.12.12. Í venjulegri viku eru tvær til
þrjár giftingar að jafnaði hjá honum.
Fleiri velja þá föstudaga en miðviku-
daga sem eru ekki mjög vinsælir.
„Þetta er óvanalegt út af þessum
degi. Við hliðruðum til hjá okkur til
að verða við óskum fólks um þennan
dag,“ segir staðgengill Sýslumanns.
Að sögn Guðgeirs Eyjólfssonar,
sýslumanns í Hafnarfirði gengu að
minnsta kosti sex pör í hjónaband hjá
embættinu í gær. Þá framkvæmdi
sýslumannsembættið í Kópavogi
fimm hjónavígslur í gær. Eitt par
gifti sig hjá sýslumanninum á Akur-
eyri og sýslumaðurinn á Selfossi
framkvæmdi sömuleiðis eina hjóna-
vígslu í gær.
Fæðingardeildin á Landspítal-
anum var full í gærkvöldi, átta börn
höfðu fæðst yfir sólarhringinn og von
var á fleiri börnum í heiminn fyrir
miðnætti. Því er ljóst að allnokkur
börn munu vart eiga í vandræðum
með að muna fyrri hluta kennitölu
sinnar þegar fram í sækir.
Hjónavígslur vinsælar 12.12.12
Um tíu börn
fæddust á LSH
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dagurinn Klukkan á Ráðhústorginu á Akureyri slær 12.12, þann 12.12.12
Borun RARIK eftir heitu vatni í
landi Hoffells í Hornafirði hefur
tafist vegna óhapps. Króna borsins
brotnaði síðastliðinn fimmtudag og
tók nokkra daga að fiska hana upp.
Borinn var þá kominn niður í rétt
rúma 1000 metra. Búið er að koma
hlutunum í lag, samkvæmt upplýs-
ingum Hauks Ásgeirssonar deildar-
stjóra hjá RARIK, og borun hafin
að nýju. Stefnt er að 1200 metra
djúpri holu.
Ef borholan gefur nógu mikið af
heitu vatni er áformað að leggja
hitaveitu um dreifbýlið og til Hafn-
ar og mun hún þá leysa af hólmi
fjarvarmastöð.
helgi@mbl.is
Borun eftir heitu
vatni í Hornafirði
tefst vegna óhapps
Bæjarstjórn Seltjarnarness sam-
þykkti á fundi sínum í gær breyt-
ingar á svæðisskipulagi höfuðborg-
arsvæðisins. Sex bæjarfulltrúar
greiddu atkvæði með breyting-
unum en einn sat hjá.
Breytingarnar tengjast áformum
um byggingu nýs Landspítala en öll
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu þurfa að samþykkja breytingar
á svæðisskipulaginu. Þar með er
Kjósarhreppur eina sveitarfélagið
sem á eftir að gefa sitt samþykki
fyrir breytingunum.
Samþykktu breyt-
ingar á skipulagi
Háskólinn á Bifröst á við veru-
legan fjárhagsvanda að stríða
en einnig vanda vegna verulegr-
ar fækkunar nemenda. Gert er
ráð fyrir 40 milljóna króna
tímabundnu framlagi í tillögum
meirihluta fjárlaganefndar.
Fram kemur að 10 milljónir af
aukaframlaginu eru vegna upp-
safnaðra skammtímaskulda
sem talið er að bregðast þurfi
við og 30 milljónir kr. eru til að
halda úti eðlilegu skólahaldi í
vetur.
Tillagan er ætluð til að leysa
bráðavanda í fjármálum skól-
ans. Það skilyrði er sett að Há-
skólinn á Bifröst leggi fram trú-
verðuga áætlun um fjölgun
nemenda þannig að hann verði
starfhæfur, til dæmis með sam-
einingu við aðra háskóla.
Bráðavandi
á Bifröst
40 MILLJÓNA KR. FRAMLAG