Morgunblaðið - 13.12.2012, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Virðing
Réttlæti
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Minnum á
desember-
uppbótina
Desemberuppbót á að greiða
ekki seinna en 15. desember.
Því var fagnað í gær að kennslustofa fyrir verk-
lega kennslu í flugvirkjun var opnuð hjá Flug-
skóla Íslands. Flugvirkjanám hófst hér á landi
haustið 2011 hjá Tækniskólanum og Flugskóla
Íslands. Því var komið á í samvinnu við Luft-
hansa Resource Technical Training (LRTT).
Markmiðið er að vera með íslenskt nám í fram-
tíðinni, á íslenskum leyfum og gera það hluta af
íslenska menntakerfinu.
Flugvirkjanám verði hluti af menntakerfinu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kennslustofa fyrir verklega kennslu tekin í notkun hjá Flugskóla Íslands
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Það sem ég er ósátt við er að Drómi
hefur haft fé af fólki og fer svo í blöð-
in og auglýsir sig sem heiðarlegt fyr-
irtæki. Ég og flestir erum búin að
sætta okkur við að fá peningana okk-
ar ekki aftur en þessar auglýsingar
koma eins og blaut tuska í andlitið á
fólki sem Drómi skuldar pening,“
segir Signý Hafsteinsdóttir um heil-
síðuauglýsingar Dróma síðustu daga
þar sem því er haldið fram að Fjár-
málaeftirlitið (FME) hafi staðfest
faglega og góða viðskiptahætti fé-
lagsins.
Sjálf var Signý með gengistryggt
lán hjá Frjálsa fjárfestingabankan-
um sem hún hugðist greiða upp í
október 2008. Hún segist hins vegar
ekki hafa fengið
að gera það þar
sem starfsmenn
bankans hafi ekki
vitað hvert geng-
ið var á þeim
tíma. Þegar þeir
hafi loks treyst
sér til þess hafi
lánið verið búið að
hækka töluvert.
Hún hefur síð-
an enga leiðréttingu fengið á láninu
eftir að gengislán voru dæmd ólög-
mæt en hún gat ekki sent inn kröfu
til Dróma vegna Árna Páls-laganna
svokölluðu. „Ég var pínd til að of-
greiða. Svo féllu þessir dómar en
Drómi vildi alltaf bíða eftir fleiri
dómum,“ segir Signý.
Það sætti hún sig ekki við og sendi
FME fyrirspurn um hvort viðskipta-
hættir Dróma teldust faglegir og
góðir. Eftir mánuð segist hún hafa
fengið svar á þá leið að lánamál ein-
staklinga kæmu stofnuninni ekki við.
„Maður spyr sig hvað gerðist svo í
millitíðinni. Þegar þetta var allt í
gangi kom þetta FME ekki við. Nú
þegar þetta er búið þá kemur það
þeim allt í einu við og Drómi flaggar
einhvers konar siðferðisvottun frá
FME,“ segir Signý.
Standa ekki við stóru orðin
Sigurður Hr. Sigurðsson, félagi í
samstöðuhópi viðskiptavina Dróma,
segist vísa því til föðurhúsanna að fé-
lagið stundi góða viðskiptahætti.
Í auglýsingunni eru viðskiptavinir
Dróma m.a. hvattir til að hafa sam-
band eða koma á í þjónustuver fé-
lagsins til að fara yfir málin og finna
farsæla lausn. Sigurður segir hins
vegar að þegar á það var reynt í gær
hafi starfsfólk Dróma ekki kannast
við auglýsinguna þrátt fyrir að það
sé skrifað undir hana og gat aðeins
bent á þá leið að senda slitastjórn
skriflegt erindi. „Það er svolítið
kyndugt að kaupa sér heilsíðuaug-
lýsingu í öllum stærstu blöðum
landsins ef það á svo ekki að standa
við stóru orðin.“
Sigurður segist ekki vita til þess
að FME hafi haft samband við nokk-
urn sem hafi gert athugasemdir við
framferði Dróma þegar það gerði út-
tekt sína. „Maður hlýtur að velta fyr-
ir sér af hverju FME vottar faglega
og góða viðskiptahætti því þá hljóta
þeir að þurfa að tala við þá sem
kvarta,“ segir hann.
„Sem blaut tuska í andlitið“
Viðskiptavinir Dróma ósáttir við auglýsingu félagsins í fjölmiðlum um góða við-
skiptahætti Segja FME ekki hafa talað við þá í úttekt sem vísað er til
Sigurður Hreinn
Sigurðsson
„Samningurinn hefur mikla þýðingu fyrir okkur í heilsu-
gæslunni. Hann tryggir að fleiri sérnámslæknar en ella
komast inn á deildir Landspítalans og inn í formlegt sér-
nám til okkar,“ segir Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri
Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í dag undirrita
Landspítalinn og Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu
samning um starfsnám sérnámslækna í heimilislækning-
um. Með samningnum er svokallað blokkakerfi fest í sessi
sem þýðir að starfsnám verður markvissara og skipulagð-
ara en áður, sérnámslæknum og samningsaðilum til hags-
bóta að sögn Ölmu Eirar Svavarsdóttur, kennslustjóra
sérnáms í heimilislækningum.
Lausum stöðum sérfræðinga innan Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins hefur að hluta til verið breytt í sérnáms-
stöður í heimilislækningum. Að sögn Ölmu verða form-
legar stöður sérnámslækna nú 36 í stað 12 áður. Töluvert
hefur kvarnast úr stétt heimilislækna undanfarin ár,
margir þeirra hafa farið til útlanda þar sem betri kjör eru í
boði. Hinsvegar hefur aðsókn í sérnám í heimilislækning-
um notið vaxandi vinsælda hér á landi undanfarin ár en
gert er ráð fyrir því að hluti námsins sé stundaður erlendis.
Alma segir einnig marga heimilislækna nálgast eftirlaun
og m.a. þess vegna sé þessi nýi samningur glefðiefni.
„Könnun sem var gerð á síðasta ári sýndi að þeir sem taka
hluta námsins hér heima eru líklegri til að koma aftur heim
og að þeir sem læra úti á landi eru líklegri til að setjast þar
að og okkur bráðvantar sérfræðinga í heimilislækningum á
landsbyggðina. Það er gífurlega mikilvægt fyrir heilbrigð-
iskerfið okkar að fá þennan dýrmæta starfskraft, hörku-
duglega sérnámslækna með mikla menntun og oft á tíðum
töluverða reynslu að baki,“ segir Alma.
Skapar mönnunarmöguleika
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, fagnar því að fleiri
sérnámslæknar fái tækifæri til að koma inn á spítalann í
hluta af sínu námi. „Þetta skapar einnig ákveðna mönn-
unarmöguleika, aðstoðar okkur við að manna ákveðnar
stöður. Þegar þeir fara að starfa sem heimilislæknar þá
þekkja þeir vel okkar innviði og hvaða leiðir henta sjúk-
lingum þeirra,“ segir Björn. heimirs@mbl.is
Fjölgar í starfsnámi
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu og Landspítalinn
undirrita nýjan samning um starfsnám sérnámslækna
Framkvæmdir
eru hafnar við
nýja hótelálmu
við Árhús á
Hellu. Þar verða
25 fjögurra
stjörnu lúxusher-
bergi. Stefnt er
að því að hótelið
verði tilbúið til
notkunar í vor.
Drífa Hjart-
ardóttir, sveitarstjóri Rangárþings
ytra, tók fyrstu skóflustunguna að
hótelálmunni.
„Við erum bjartsýn. Það er mikið
að gerast á Suðurlandi og vel hefur
gengið að bóka fyrir sumarið. Það
vantar svona betri gistingu á svæð-
ið,“ segir Sigurður Ragnarsson en
hann keypti rekstur Árhúsa fyrir ári
ásamt Árna S. Guðmundssyni og
fjölskyldum þeirra. Árhús reka þrjá-
tíu sumarhús.
Hótelálman tengist veitingastað
Árhúsa. Hvert herbergi verður 25
fermetrar að stærð og með heitum
potti. „Við teljum að þessi eining
skjóti styrkari stoðum undir rekst-
urinn þannig að þetta verði meiri
heilsársrekstur. Með þessu verða
jaðartímarnir líka sterkari hjá okk-
ur,“ segir Sigurður.
egol@mbl.is
Byggja
lúxushótel
á Hellu
Hella Árhús reka
nú 30 sumarhús.
Framkvæmdum
á að ljúka fyrir vorið
Að sögn Rúnars Guðmunds-
sonar, aðstoðarframkvæmda-
stjóra eftirlits FME, hefur stofn-
unin ekki úrskurðarvald í
einstökum ágreiningsmálum.
Hún taki við kvörtunum, ýmist
skriflega eða munnlega, vegna
eftirlitsskyldra aðila og hefji at-
hugun ef tilefni þyki til. Ef
ástæða þyki til sé óskað eftir
frekari gögnum frá öllum aðilum.
Ekki sé hins vegar haft samband
við neytendur sérstaklega þar
sem þeir eigi ekki beina aðild að
málinu heldur sé niðurstaða
könnunar birt í gagnsæistilkynn-
ingu. Í tilfelli Dróma hafi athug-
unin náð til ákveðins tímabils. Ef
fyllri upplýsingar eða ábendingar
berist verði staðan endurmetin,
afstöðu félagsins leitað og úr-
bóta krafist eftir atvikum.
Eru ekki aðilar
að málum
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ