Morgunblaðið - 13.12.2012, Side 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Það tal sem und-
anfarið hefur verið
um að vogunarsjóðir
séu að eignast Ísland
og greiða þurfi meiri
fúlgur þeim til handa
en þjóðin hefur efni á
er í raun ávísun á vol-
æði til ófyrirséðrar
framtíðar. Einnig at-
gervisflótta með
slæmum afleiðingum,
því það eru alltaf þeir dugmestu
sem fara. Hér er talað um vog-
unarsjóði, eða hrægammasjóði,
sem ekki er fullkomlega rétt skil-
greint. Alþjóðanafn á þessum sjóð-
um er „Hedge funds“, eða skjól-
beltissjóður, (sbr. „hekk“). Þessir
sjóðir urðu snemma til sem klúbb-
ar einstaklinga sem sameiginlega
fjárfestu á markaði, einn fyrir alla,
allir fyrir einn (in solidum).
Þegar græðgi þótti góð
Þegar peningahyggja þróaðist
og græðgi fór að þykja góð komust
stóru bankarnir að því að þeir
gætu nýtt sér slíka sjóði til fjár-
málagerninga sem ekki samrýmd-
ust regluvörslu stórra virðulegra
banka, sem staðsettir eru og skráð-
ir í þjóðríkum sem vilja gæta virð-
ingar sinnar. Þessir sjóðir gátu
staðið í óþrifalegum málaferlum,
sem hinir virðulegu bankar vildu
ekki leggja nafn sitt við. Má þar
nefna það afrek að múta embætt-
ismönnum í Afríkuríki til að kyrr-
setja skólaseglskip frá Argentínu,
sem þeir Íslendingar
sem eru handgengnir
peningahyggjunni hafa
vitnað til og sagt benda
á að við Íslendingar
eigum að greiða þess-
um berserkjasjóðum
uppsett verð.
Heimskur
heimaalinn banki
Eigendur og starfs-
menn þessara banka-
tengdu sjóða voru oft-
ar en ekki
áhættusæknir fyrrverandi starfs-
menn stórra banka, sem gjarnan
sugu í nös, til frekari vígaferla á
markaði. Íslensku hrunbankastjór-
arnir þekktu vel til slíkra sjóða og
voru fljótir til. Fyrsta fórnarlambið
var hinn heimaaldi og því heimski
seðlabanki, SÍ, sem lánaði sig í
þrot. Íslensku berserkirnir litu á
þessi lán frá SÍ sem heimanmund
og þorrinn af þessum upphæðum
gengur nú undir nafninu „snjó-
hengjan“, sem SI greiðir skil-
víslega vexti af, sem ekki ætti að
vera, því SI hefur með orðum sín-
um og athöfnum skilgreint sig sem
fjárfestingabanka, en slíkir bankar
greiða ekki vexti, heldur aðstoða
sína viðskiptavini til að fjárfesta á
eigin ábyrgð til að ávaxta sitt
pund.
Sýndarpeningar
Mest af þeim peningum sem
föllnu íslensku bankarnir höfðu til
umráða voru sýndarpeningar (cy-
ber money). Allur fjármálaheim-
urinn var að framleiða slíka pen-
inga og hvítþvo með millifærslum
og íslensku bankarnir voru viljugir
viðtakendur. Sápukúlur hlutabréfa
voru uppistaðan í þessum gervi-
heimi hagnaðar, en einnig ímynd-
aður hagnaður af afleiðum og öðr-
um fjármálagjörningum.
Sápukúlan var orðinn 10 sinnum
stærri en þjóðarframleiðsla lands-
ins og aðeins lítill hluti hennar inn-
heimtist. Það ætti að koma í veg
fyrir að hinn Basel-sinnaði SÍ verði
einráður um örlög þessa fjár. Ís-
lenska þjóðin, sem hefur orðið fyrir
verulegri eigna- og lífskjaraskerð-
ingu á að krefjast þess, að það sem
innheimtist umfram forgangs-
kröfur verði greitt sem skaðabæt-
ur í sameiginlegan sjóð hennar.
Ríkisstjórinn er of veiklunda og
andlega háð ESB til að gera nokk-
uð í málinu. Því ætti Lögmanna-
félag Íslands að taka að sér að inn-
heimta umtalaðar skaðabætur í
þegnskylduvinnu. Lögmenn eins
og allir aðrir landsmenn töpuðu á
hruninu, en hafa ekki misst vinn-
una eins og margir landsmenn.
Ekki þarf að óttast vandræði frá
útlöndum, því almenningur á Vest-
urlöndum mun standa með okkur,
þvi hann á líka um sárt að binda
vegna óráðsíu bankanna.
Þjóðin á skilið skaðabætur
Eftir Elías
Kristjánsson » Fyrsta fórnarlambiðvar hinn heimaaldi
og því heimski seðla-
banki, SÍ, sem lánaði sig
í þrot.
Elías Kristjánsson
Höfundur er fv. forstjóri.
Vissulega er það til
þess fallið að ylja
landsmönnum um
hjartarætur fyrir
jólahátíðina, að frétta
að þann stórhættulega
lagalega óskapnað,
sem um þessar mundir
er kallaður stjórn-
arkrárfrumvarp, eigi
að senda Feneyja-
nefndinni til umsagnar.
Varla tekur Feneyjanefndin upp á
því að tefja siglingu okkar inn í Evr-
ópusambandið með ótímabærum
upphrópunum um heimskulegasta
stjórnlagafrumvarp sem siðmenntuð
þjóð hefur sent frá sér.
Við megum því alveg eins vænta
þess að refsilögjöf um nauðganir og
kynferðislegt ofbeldi gegn börnum
verði í framtíðinni send stéttarfélagi
nauðgara og barnaníðinga til um-
sagnar.
Hver getur þá efast um að fagleg
og skynsamleg umræða hafi átt sér
stað um þessi mál og henni sé lokið
innan fyrirhugaðra tímatakmarka?
En hitt veldur mér áhyggjum að
ríkisstjórnum framtíðarinnar gæti
dottið í hug að byggja kjarnorkuver
einhvers staðar á Íslandi.
Ef þeir nota sams konar ferli og
beitt hefur verið við gerð stjórn-
arskrárfrumvarpsins, kjósa kjarn-
orkunefnd í almennum kosningum
(sem helst verða að brjóta allar
kosningareglur), og láta glópa-
skarann, sem þjóðin
velur í slíka nefnd rök-
ræða um hvernig best
sé að hanna kjarn-
orkuver, þá vona ég að-
eins að þetta kjarn-
orkuver
(Samfylkingarinnar)
verði byggt eftir minn
dag.
Umsögn
Geðlæknafélagsins
En til þess eru vítin
að varast þau og því
skora ég á Alþingi að senda þetta
stjórnarkrárfrumvarp Geðlækna-
félagi Íslands til umsagnar. Fleiri
umsagnir verðskuldar þetta stór-
skringilega frumvarp ekki.
Ástæðan fyrir öllum þessum
æðibunugangi og hroðvirkni virðist
þörf samfylkingarmanna fyrir
stjórnarkrárbreytingu sem leyfir
framsal fullveldis til Evrópu. Sam-
bærilegt stjórnarskrárferli átti sér
stað í Suður-Ameríku þegar pynd-
ingarstjórar þurftu að lauma inn
stjórnarskrárákvæði sem vernduðu
þá fyrir saksókn vegna fyrri glæpa.
Því var lætt inn meðal fjölda breyt-
ingartillagna sem földu uppgöf saka
í skógi lagatæknilegra álitamála.
Evrópufullveldisframsalið á nú að
fela í frumskógi lagatæknilegrar
stjórnlagaþvælu.
Út úr umsögn geðlæknafélagsins
gæti alla vega fengist skilgreining á
þeim geðkvilla sem hrjáir þá sem
staðið hafa að málatilbúnaði þessum
öllum. Á þetta fólk við svokallaða
Evrópudillu að glíma? Er kominn
nýr geðsjúkdómur, svokallað Evr-
ópuæði (vonandi ekki veirusmits-
tengdur eins og hundaæði)?
Heldur þetta fólk kannski að það
sé John Adams og Thomas Jefferson
í nýrri endurholdgun og hafi því á að
skipa lagaþekkingu, stjórnvisku og
greind á við þessa bandarísku
ofjarla íslenska meðalmannsins?
Verður næsta verkefni spunameist-
ara Samfylkingarinnar að sannfæra
Bandaríkjamenn um nauðsyn ís-
lenskrar rýnivinnu til að bjarga
þeim frá bandarísku stjórn-
arskránni?
Hvað er hið geðlæknisfræðilega
hugtak um fólk sem þjáist af órum af
þessu tagi? Varla þýðir að benda
svona yfirnáttúrlega greindu fólki á
það, að engin krafa hefur komið frá
kjósendum um þörf á að ljúka vinnu
við hraðsuðustjórnarkrá, sem leggja
myndi bæði stjórnkerfi og lagakerfi
þjóðarinnar í rúst.
Þessi nýja greiningarvinna geð-
læknafélagsins á eftir að nýtast okk-
ur vel ef ástsælum leiðtogum okkar
dettur í hug að byggja kjarnorkuver
eða hefja íslenska stjörnustríðs-
áætlun (ég þori ekki að nefna Land-
spítalaáætlunina, sem á að setja allt
skipulag Reykjavíkur á annan end-
ann). Og við munum varla þurfa um-
sagnir og dýra greiningarvinnu og
innblásna rýni fleiri nefnda eftir að
geðlæknafélagið skilar sinni umsögn
um stjórnarskrárfrumvarpið.
Feneyjanefndin og tortíming
stjórnarskrárinnar
Eftir Árna
Thoroddsen »En hitt veldur mér
áhyggjum að ríkis-
stjórnum framtíðar-
innar gæti dottið í hug
að byggja kjarnorkuver
einhvers staðar á Ís-
landi.
Árni Thoroddsen
Höfundur er kerfishönnuður/
arthorpendragon@yahoo.com
Reyksíminn – 800-6030 – er ókeypis
þjónusta sem heilbrigðiskerfið veit-
ir þér ef þú vilt fá faglegan stuðn-
ing til að hætta
að reykja eða
nota annað tób-
ak. Þar starfa
sérþjálfaðir
hjúkrunarfræð-
ingar í samstarfi
við lækna og
annað fagfólk.
Árangurinn er
góður og sam-
bærilegur við
bestu reyksíma erlendis. Reyksím-
inn er hluti af heilbrigðiskerfinu og
starfar náið með öðrum aðilum inn-
an heilbrigðiskerfisins sem veita
stuðning til reykfrelsis. Stuðningur
frá vinum og vandamönnum er ekki
síður mikilvægur. Því fleiri sem
styðja þig, því betra fyrir þig.
Nú er þinn tími
Það er eiginlega út í hött fyrir þig
að hugsa um árangur af reykfrels-
isstuðningi í prósentum. Þú hefur í
raun hundrað prósent möguleika á
að verða reyklaus núna ef þú virki-
lega ákveður þig og þiggur þann
stuðning sem í boði er, ef þú átt erf-
itt með að halda út til lengdar. Þinn
tími er núna.
Lyf?
Nikótínlyf geta hjálpað ef þau eru
notuð á réttan hátt. Reyksíminn
getur leiðbeint þér um rétta notkun
þeirra og annarra lyfja sem þróuð
hafa verið til reykfrelsis. Sumir
kvarta yfir að lyfin, t.a.m. nikótín-
tyggjóið, hjálpi ekki nógu vel. Oft
er það einfaldlega vegna þess að
fólk notar lyfin á rangan hátt. Einn-
ig getur verið að önnur efni í tóbaki
en nikótínið séu mikilvæg fyrir
suma. Við vitum ekki ennþá ná-
kvæmlega hvernig það virkar.
Dökkt súkkulaði?
Sumir hafa greint mér frá því að ef
þeir borði einn bita af dökku súkku-
laði rétt áður en þeir japla á nikó-
tíntyggjóinu virki tyggjóið betur.
Hver er ég til að efast um það? All-
ir verða að finna sína leið. Efni í
dökku súkkulaði hemja virkni svo-
kallaðra MAO-hemjara (monoamin
oxidase) í taugakerfinu. Vera kann
að samvirkni MAO-hemjara og
nikótíns sé mikilvæg til þess að
nikótínið í t.d. nikótíntyggjói hafi
tilætluð áhrif til að slá á tóbaks-
löngun. Þetta er þó umdeilt í rann-
sóknum. En ef það virkar fyrir þig,
þá er það gott.
Rétt notkun lyfja
Margir nota nikótíntyggjóið á rang-
an hátt. Ef það á að virka vel er
mikilvægt að nota það rétt. Láta
það hvíla undir vörinni (eins og
munntóbak) í nokkrar mínútur á
milli þess sem tuggið er. Það að
tyggja er bara til að losa nikótínið
úr tyggjóinu en það þarf að komast
inn í taugakerfið til að hafa áhrif.
Nikótínið kemst best inn í tauga-
kerfið í munnholinu. Ef þú ert sí-
tyggjandi hverfur nikótínið fljótt úr
tyggjóinu og eyðileggst í maganum.
Því er því afar mikilvægt að láta
það hvíla í nokkrar nínútur undir
vörinni á milli þess sem tuggið er.
Lyfjalausa leiðin
Þótt lyf geti hjálpað þér að verða
frjáls frá tóbaki er vert að minnast
þess að flestir sem hafa hætt að
reykja hafa gert það án lyfja. Reyk-
síminn – 800-6030 – getur gefið þér
ráð og sent þér stuðningsefni til
reykfrelsis án lyfja. Heilsuhótel Ís-
lands í Reykjanesbæ býður líka
reglulega upp á helgarnámskeið í
reykfrelsi án lyfja. Þangað leitar
líka fólk sem er fast í nikótínfíkn af
ýmsum toga og vill komast út úr
þeirri neyslu.
Gott nýtt ár
Þú getur hætt að reykja núna,
með eða án lyfja, ef þú vilt og það
eru margir reiðubúnir til að styðja
þig til að taka skrefið út úr kófinu.
ÁSGEIR R. HELGASON,
dósent í sálfræði og faglegur ráð-
gjafi Reyksímans.
Út úr kófinu
Frá Ásgeiri R. Helgasyni
Ásgeir R Helgason
Bréf til blaðsins
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
–– Meira fyrir lesendur
Í blaðinu verður fjallað um
þá fjölbreyttu flóru
sem í boði er fyrir þá
sem stefna á frekara nám
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fyrir kl. 12, miðvikudaginn
19. desember
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Skólar & námskeið
Þann 4. janúar
kemur út glæsilegt
sérblað um skóla
og námskeið sem
mun fylgja
Morgunblaðinu
þann dag
SÉRBLAÐ