Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 44
44 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Jólin nálgast
Sívinsælu smákökurnar og
smákökudeigin komin í hillurnar.
Njótum aðventunnar
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Sími: 564 4700
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Sigurður Páll Sigurðsson er sannarlega fjölhæfur hagleiks-maður. Hann er kennari að mennt, smiður, myndlistarmaður,kvikmyndagerðarmaður og húðflúrari. „Ég er svona skorpu-
kall; ég ræðst í ákveðin verkefni í ákveðinn tíma og svo fæ ég pínu-
lítinn leiða á þeim og þá sný ég mér að öðru á milli,“ segir Sigurður,
eða Siggi Palli, eins og hann er kallaður. Siggi Palli er önnum kaf-
inn þessa dagana og því verður ekkert af afmæliskaffi fyrir fjöl-
skylduna þetta árið. Það er listagyðjan sem kallar um þessar mund-
ir en einnig á að hamra saman skjólvegg og innréttingar fyrir
hátíðirnar og taka svo gott jólafrí að því loknu.
Innblásturinn í myndlistinni er popplist og graffítí. „Mér finnst
graffítí-listamenn oft vera einu alvörulistamennirnir,“ segir Siggi
Palli. „Þeir eru í myndlistinni ekki vegna eigin hégóma og ekki
vegna peninganna, heldur vegna þessarar þarfar, að fá að tjá sig á
opinberum vettvangi með myndlist.“
Svo er hoppað í eitt og eitt húðflúr þegar tími gefst. „Það er allt
leyfilegt núna. Menn eru að fá sér allar tegundir af húðflúri,“ segir
Siggi Palli aðspurður um tattútískuna í dag. „Fólk fær sér mára-
tattú, gömlu tribal-tattúin og svo klassísk málverk og portrett-
myndir og gömlu sjóaratattúin. Það er allt inni í dag.“ Sjálfur hefur
Siggi Palli mest gaman af því að flúra á fólk amerísk sjóaratattú;
erni, hjörtu, rósir, demanta, akkeri. Tattú af gamla skólanum, eins
og hann orðar það, með sterkum útlínum og grófum skyggingum.
holmfridur@mbl.is
Sigurður Páll Sigurðsson er 44 ára í dag
Myndlist Popplist og graffítí veita Sigga Palla helst innblástur.
Frjáls til að fara úr
einu verkefni í annað
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Katrín Embla Frið-
riksdóttir og Embla
Ingibjörg Hjaltalín
héldu tombólu við
Glæsibæ í Reykjavík.
Þær söfnuðu 4.541
krónu sem þær gáfu
Rauða krossinum.
Hlutavelta
Hafnarfjörður Eyþór Ingi fæddist 16.
mars kl. 10.19. Hann vó 3.245 g og var
51 cm langur. Foreldrar hans eru Guð-
rún Eyþórsdóttir og Sigurður William
Brynjarsson.
Nýir borgarar
Akranes Alexander Steinn Kaad
fæddist 17. mars kl. 20.41. Hann var
2.780 g og 49 cm langur. Foreldrar
hans eru Rebecca Cathrine Kaad Os-
tenfeld og Hjalti Freyr Kristjánsson.
G
ylfi fæddist á Selfossi en
ólst upp í Kjarnholtum.
Hann var í grunnskól-
anum í Reykholti og í
Skálholti, lauk stúd-
entsprófi frá ML 1983 og sinnti síð-
an verktakastörfum næstu árin.
Gylfi lauk BSc.-prófi í viðskipta-
fræði frá Viðskiptaháskólanum á
Bifröst og MBA-prófi frá Edinborg-
arháskóla 1998.
Á námsárunum var Gylfi í bygg-
ingarvinnu og starfaði sjálfstætt,
m.a. við hellulagnir.
Gylfi var lektor í fjármálum og
stefnumótun við Viðskiptaháskólann
á Bifröst 1998-99 og sinnti ráðgjöf
hjá Iðntæknistofnun 1999-2000, var
fjármálastjóri Eyktar – bygging-
arverktaka 2001-2004.
Gylfi og Guðmundur B. Gunn-
arsson húsasmíðameistari festu
kaup á fyrirtækinu JÁ Verktakar
árið 2004 og hafa starfrækt það síð-
Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks – 50 ára
Í sveitasælunni Gylfi, Oddný Mjöll og synirnir, Gísli og Arnar, austur í Kjarnholtum í Biskupstungum.
Laugarvatnsstúdent
Í hestaferð Gylfi, ásamt meðreiðarsveinum: Auðunni Hermannssyni, mjólk-
urbússtjóri MS í Reykjavík, Sigurði Inga Jóhanssyni alþingismanni og Elsu
Ingjaldsdóttur framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.