Morgunblaðið - 20.12.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2012
Lætur allt glitra
og ljóma.
Fimm kerfi.
Orkuflokkur A.
Hljóð: 48 dB (re 1 pW).
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Jólaverð:
Uppþvottavél
Fullt verð: 149.900 kr.
109.900 kr. stgr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristján Jónsson
Jón Pétur Jónsson
Enn hefur ekkert spurst til Matt-
híasar Mána Erlingssonar sem
strauk frá fangelsinu á Litla-Hrauni
á mánudag.
Umfangsmikil leit stóð yfir í gær
og hátt í 80 manns leituðu að honum
í nágrenni fangelsisins. Lögreglan
telur þó líklegt að hann sé í felum
einhvers staðar á Suðvesturlandi.
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segir að óvenjulegt sé að svo langur
tími líði þar til fangi náist á ný, fyrir
nokkrum árum hafi fangi með dags-
leyfi þó ekki skilað sér fyrr en eftir
nokkra daga.
Strok fanga séu sjaldgæf og oft
geti lögreglan nánast gengið að
strokumönnum vísum á ákveðnum
stöðum, þeir náist oftast samdæg-
urs.
En er hægt að auka öryggið á
Litla-Hrauni og draga úr hættunni á
stroki þangað til nýja fangelsið rís á
Hólmsheiði?
„Já, það er hægt og það er í raun
það sem við höfum verið að gera á
þessu ári,“ segir Páll. „Við fengum
til þess 50 milljónir króna og að auki
fimm milljónir til að bæta öryggis-
mál í Hegningarhúsinu og Kópa-
vogsfangelsinu. Það kostar miklu
meira að uppfæra öryggiskerfi sem
ekki hafa verið uppfærð í áratugi.
En þetta er gott, menn hafa þó skilið
að það þarf að gera þetta en við ger-
um þetta í áföngum eftir því sem
fjármagn berst.
Það er þegar búið að vinna undir-
búningsvinnu fyrir móttökuhús á
Litla-Hrauni, allt sem fer inn verður
skannað og leitað á öllum. Næsta
skref er svo frekari öryggisbúnaður.
Í fjárlögum er gert ráð fyrir öðrum
50 milljónum á næsta ári og veitir
ekkert af því.“
Jafnframt verði síðar reist raun-
veruleg fangelsisgirðing sem sé
hönnuð með allt öðrum hætti, úti-
lokað sé að klifra yfir hana. Páll seg-
ir að stjórnvöldum hafi árum saman
verið gerð grein fyrir vandanum
vegna öryggis í fangelsum en á síð-
ustu misserum hafi fjárveitingar-
valdið loks farið að sýna þessum
málum skilning.
Þrátt fyrir niðurskurð síðustu ár-
in standi þetta allt til bóta. Fyrir að-
eins hálfu öðru ári hafi Fangelsis-
málastjórn þurft að berjast gegn
þeirri lausn að reist yrði fjörutíu
gáma byggð inni á lóð Litla-Hrauns
án þess að tekið yrði nokkurt tillit til
öryggisatriða.
Morgunblaðið/Júlíus
Litla-Hraun Fangavörður, lögreglumenn og björgunarsveitarmaður við þann stað á girðingunni þar sem húfan
fannst og talið er að Matthías hafi farið yfir þegar hann flúði fangelsið mánudaginn 17. desember.
Efla öryggisbúnað
fangelsa í áföngum
Fyrirhugað að reisa girðingu sem útilokað sé að klifra yfir
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Mér finnst það athyglisvert í þess-
ari breytingu að það skuli einhliða
af hendi ríkisins sagt um sveitar-
félög sem hafa tekjur af öðru en út-
svarstekjum, að það skuli mælast í
framlögum Jöfnunarsjóðsins vegna
grunnskólans sem er náttúrlega
ekki getið í þessu samkomulagi í
upphafi,“ segir Gunnar Þorgeirs-
son, oddviti Grímsnes- og Grafn-
ingshrepps, um frumvarp til laga
um tekjustofna sveitarfélaga (hlut-
verk Jöfnunarsjóðs) sem nú liggur
fyrir Alþingi. Vísar hann með orð-
um sínum til samkomulags sem
gert var á sínum tíma á milli ríkis
og sveitarfélaga um flutning
grunnskólastigsins til sveitarfélag-
anna.
Markmið frumvarpsins er það að
skilgreina markmið og hlutverk
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í lögum
og að lögbinda heimildir til skerð-
ingar á fjárframlögum. Grímsnes-
og Grafningshreppur skilaði nýlega
inn umsögn um frumvarpið til um-
hverfis- og samgöngunefndar Al-
þingis ásamt fjórum öðrum sveit-
arfélögum, Hvalfjarðarsveit,
Ásahreppi, Fljótsdalshreppi og
Skorradalshreppi. Í umsögninni
kemur meðal annars fram að fimm
daga umsagnarfrestur um frum-
varp sem felur í sér grundvallar-
breytingar á tekjustofnum sveitar-
félaga sé óviðunandi.
Að sögn Gunnars mun þessi
breyting kosta sveitarfélagið um
30-35 milljónir króna. „Það verður
tekið af öðru því að ekki hættum við
að reka grunnskóla þó að menn
breyti leikreglunum,“ segir Gunn-
ar, aðspurður hvernig hægt verði
að fjármagna grunnskólann ef
frumvarpið verður að lögum.
Ósátt við breyt-
ingar á framlög-
um Jöfnunarsjóðs
Lagabreyting gæti kostað Grímsnes-
og Grafningshrepp 30-35 milljónir kr.
Morgunblaðið/Eggert
Skóli Gunnar segir að til að reka
skólann þurfi að skera annað niður.
Spáð er frost-
leysi meira og
minna um allt
land í dag og á
morgun. Þó er
ekki öll nótt úti
varðandi jóla-
snjó en sam-
kvæmt spá
Veðurstofu Ís-
lands má gera
ráð fyrir lítilsháttar snjókomu á
Norðaustur- og Austurlandi sem og
á Steingrímsfjarðarheiði á sjálfan
aðfangadag. Þá er von á slyddu eða
snjókomu á Vestfjörðum og víða
norðanlands og á Austurlandi.
skulih@mbl.is
Veðurstofan spáir
hvítum jólum á
Norðausturlandi
Óvissa er um hvenær og hvort kvóta-
frumvarpið verður lagt fyrir Alþingi
fyrir kosningar. Nokkrir þingmenn
Samfylkingarinnar slá varnagla við
frumvarpinu í núverandi mynd.
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vegaráðherra sagði í Ríkissjónvarps-
fréttum í gær að hann muni ekki
leggja frumvarpið fram, nema hann
fái svar fá nokkrum þingmönnum
Samfylkingarinnar, hvort þeir falli
frá fyrirvörum við frumvarpið.
„Ég hyggst ekki falla frá mínum
fyrirvara ef frumvarpið verður lagt
fram óbreytt. Ef frumvarpið verður
lagt fram breytt, þá væntalega kem-
ur það aftur fyrir þingflokkinn,“ seg-
ir Mörður Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar. Hann segir að
Steingrímur hafi ekki persónulega
rætt við sig um að falla frá fyrirvör-
unum en sagði jafnframt: „Það voru
fundarhöld um daginn sem voru þó
ekki formleg. Ég held að þar hafi
verið spjall um málið en ég sá mér
ekki fært að mæta því ég var á
þingi,“ segir hann. „Staðan er þannig
að málið hefur verið afgreitt úr þing-
flokki Samfylkingarinnar. Það var
samþykkt að leggja þetta fram og
engin andstaða við það,“ segir hann.
„Ég fellst á að frumvarpið verði
lagt fram, að því gefnu að þær breyt-
ingar sem gerðar voru til að mæta
mínu sjónarmiði fái að standa,“ segir
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar.
Hún segist styðja kvótafrumvarp-
ið á grundvelli opins markaðar með
aflaheimildir; að þær séu að minnsta
kosti 20 þúsund tonn í upphafi og
hafi nægilega vaxtarmöguleika til að
geta staðið undir verðmyndun og
jafnræði. thorunn@mbl.is
Óvissa um kvótafrumvarpið
Mörður hvikar ekki frá fyrirvörum sínum Steingrímur krefst svara frá þing-
mönnum Samfylkingarinnar Ólína mun styðja frumvarpið í núverandi mynd
Mörður
Árnason
Ólína
Þorvarðardóttir
Í gærmorgun fannst húfa Matthíasar og staðurinn þar
sem honum tókst að komast út í frelsið, en honum
tókst að fara undir gaddavírsgirðingu við fangelsið.
Arnar Marteinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglu höf-
uðborgarsvæðisins, stýrir aðgerðum, en hann stað-
festi þetta í samtali við blaðamann. „Það var smá
dæld í girðingunni. Hann náði að fara undir gaddavír
og þannig út, og það er búið að rekja spor þarna eitt-
hvað í burtu,“ segir Arnar.
Hann segir að allt landið sé undir í leit að Matthíasi
og bætir við að ábendingar séu að berast úr ýmsum
landshlutum frá fólki sem telur sig hafa séð strokufangann. Aðspurður
segir hann að fleiri flíkur hafi ekki fundist við leitina.
Telji fólk sig hafa séð Matthías er það beðið að hafa samband við 112.
Það er jafnframt beðið um að halda sig fjarri Matthíasi, sem er dæmdur
ofbeldismaður.
Húfan fannst við girðinguna
ALLT LANDIÐ UNDIR Í LEIT AÐ STOKUFANGANUM MATTHÍASI
Matthías Máni
Erlingsson