Morgunblaðið - 20.12.2012, Side 43
frásögnum er því söguleg skáld-
saga, en það er bara einn af mörg-
um þráðum.“
Talandi um uppbyggingu bók-
arinnar, þá vekur athygli hvað þú
brýtur textann mikið upp með
stuttum innskotum uppfullum af
upplýsingum úr sögunni. Ertu með-
vitað að láta reyna á þanþol skáld-
sögunnar?
„Uppbygging skáldsögunnar var
miklu flóknari í fyrstu drögum en í
útgefnu bókinni. Í fyrsta uppkast-
inu var ég að segja sex sögur í einu.
Mér fannst það mjög fasínerandi en
það var fullkomlega ólæsilegt,
þannig að nú er ég búinn að skipta
bókinni upp í þrjá hluta. Mig lang-
aði til að geta blandað saman skáld-
skap og veruleika og geri það með
þessum mikla fjölda af litlum anek-
dótum. Þegar maður er með svona
stórt söguefni vill maður geta farið
út um víðan völl og þá þarf maður
strúktúr sem leyfir manni það. Ég
var einnig innblásin af frásagn-
araðferðum kvikmynda og sjón-
varps, en þar er iðulega verið að
segja margar sögur í einu og skipta
eldsnöggt á milli sjónarhorna. Það
heillaði mig að vinna skáldsögu þar
sem þú gætir klippt saman frásagn-
irnar á þennan máta.“
Hversu mikilvægt finnst þér að
afstaða höfundar komi skýrt fram í
bókinni?
„Ég lít svo á að höfundur bók-
arinnar sé í einhverjum skilningi
líka skáldsagnapersóna. Skoðanir
hans eru ekki endilega skoðanir
mínar, heldur tilraun til þess að
búa til ákveðið sjónarhorn. Þar
sem frásagan hefur greiðan að-
ganga að tilfinningalífi lesenda og
getur hrært upp í huga hans og
hugsanlega breytt afstöðu hans, þá
felst í raun mikil ábyrgð í því
hvernig er skrifað. Auðvitað er
þessi bók í einhverjum skilningi
hluti af mér og mér er það mjög
mikilvægt að eiga í heiðarlegum
samskiptum við lesendur. Mín ósk
er að fólk komi aðeins víðsýnna út
úr bókinni minni, en það fór inn í
hana. Því upplýsingin er besta
vopnið.“
Morgunblaðið/Golli
Sjónarhorn „Illska er tilraun til að miðla ólíkum sjónarhornum og reyna að skilja hvers vegna vondir atburðir ger-
ast. En vissulega er titillinn Illska stór munnbiti,“ segir Eiríkur Örn Norðdahl um samnefnda skáldsögu sína.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2012
Út er komin ljósmyndabókin Vest-
firðir // Westfjords með 109 ljós-
myndum eftir fimmtíu Vestfirð-
inga. Ljósmyndararnir eru jafnt
byrjendur sem lengra komnir, ung-
ir sem aldnir, og eru myndirnar
teknar víðsvegar á Vestfjörðum.
Ritstjóri bókarinnar er Eyþór Jó-
vinsson og segir hann lesendum
boðið í „óvissuferð um Vestfirði“.
Bók með myndum
50 Vestfirðinga
Tófa Kápumynd tók Haukur Sigurðsson.
Hið íslenska bók-
menntafélag hef-
ur sent frá sér
bókina Söguþjóð-
in, eftir dr. Jónas
Kristjánsson,
fyrrverandi for-
stöðumann
Stofnunar Árna
Magnússonar.
Í bókinni er
sögð saga ís-
lensku þjóðarinnar frá landnámi og
allt til loka þjóðveldisins laust eftir
miðja 13. öld og endursegir Jónas
hinar fornu sögur á einfaldan hátt.
Söguþjóð Jónasar
Kristjánssonar
Jónas
Kristjánsson