Morgunblaðið - 20.12.2012, Side 48

Morgunblaðið - 20.12.2012, Side 48
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 355. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Húfa Matthíasar fundin 2. Ökumaður í stolnum bı́l myndaður 3. Fylgdist með þegar fangi fór yfir 4. Kostar neytendur 27 kr. á lítra »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hljómsveitin Júpíters rís úr dvala nú um áramótin og leikur á áramóta- balli með söngvaranum Engilbert Jensen og hljómsveitinni Varsjár- bandalaginu. Ballið fer fram í Iðnó 29. desember og hefst kl. 22. Júpí- ters verður óvenjufjölmenn að þessu sinni, 16 hljóðfæraleikarar saman á sviði þegar mest verður. Morgunblaðið/Arnaldur Júpíters, Engilbert og Varsjárbandalagið  Tónlistar- myndband sem myndlistarmað- urinn Ragnar Kjartansson leik- stýrði fyrir hljóm- sveitina Sigur Rós, við lag henn- ar „Ég anda“, er meðal þeirra bestu sem gerð voru á árinu, að mati tónlistarvefjarins Pitchfork. Lagið er af nýjustu breiðskífu Sigur Rósar, Valtari. Myndband Ragnars meðal þeirra bestu  Kosningu í jólalagakeppni styrkt- arverkefnisins Geðveik jól lauk í gær og varð fyrirtækið Samskip hlut- skarpast en starfsmenn þess fluttu lagið „Frá ljósanna há- sal“ eftir J.F. Wade. Í öðru sæti varð Ar- ion banki og í því þriðja Bláa lónið. Þeir sem kusu sitt uppáhaldslag í keppninni styrktu um leið Geð- hjálp. Jólalag Samskipa það „geðveikasta“ Á föstudag Austlæg átt 8-13 m/s. Rigning og sums staðar slydda S- og A-lands, en annars úrkomulítið. Hiti víða 1 til 6 stig. Á laugardag Áframhaldandi austlæg átt, víða 8-13 með rigningu en slyddu til fjalla, en úrkomulítið N-til. Milt veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG A og SA 8-13 m/s og væta S- og A-til en annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 8 stig síðdegis, mildast syðst. VEÐUR Kristinn Friðriksson, körfu- boltaspekingur Morgun- blaðsins, fjallar ítarlega um Dominos-deild karla í körfu- knattleik. Deildin hefur sjaldan eða aldrei verið jafnspennandi og í ár og spáir Kristinn í spilin og metur frammistöðu liðanna til þessa en hann spáir því að baráttan um titilinn muni standa á milli fjögurra liða. »2-3 Fjögur lið munu berjast um titilinn Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, er ekki bjartsýnn á að Alexander Petersson geti verið með íslenska landsliðinu á HM á Spáni í næsta mánuði en Alexander glímir við meiðsli í öxlinni. Aron er búinn að velja 28 manna landsliðshóp. »1 Aron reiknar ekki með því að Alexander spili Tito Vilanova, þjálfari Barcelona, hef- ur greinst með krabbamein í annað sinn á rúmu ári. Það var staðfest í gær og fer hann í aðgerð í dag, eftir því sem forráðamenn félagsins greindu frá í gær. Eftir aðgerðina tek- ur síðan við nokkurra vikna meðferð með geislum og lyfjum. Ekki liggur fyrir hver tekur við þjálfun liðsins í fjarveru Vilanova. »1 Vilanova fer í aðgerð í dag vegna krabbameins ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þetta er helvítis ritræpa, en ég byrj- aði ekki á þessu fyrr en ég varð lög- gilt gamalmenni,“ segir Vilhjálmur Hjálmarsson, rithöfundur og fyrr- verandi alþingismaður og ráðherra, um bókaskrifin undanfarna þrjá ára- tugi, en á dögunum sendi hann frá sér bókina Glettur og gamanmál. „Ég kann ekkert handverk svo ég verð að hafa einhvern fjárann að gera og hef verið að nudda við þetta.“ Það er örugglega ekki margt 98 ára gamalt fólk sem situr við skriftir og sér að minnsta kosti tvö ár fram í tímann hvað bókaútgáfu varðar. Vil- hjálmur á Brekku í Mjóafirði lætur ekki deigan síga þrátt fyrir aldurinn og hefur verið iðinn við kolann, en fyrsta bók hans, Raupað úr ráðu- neyti, kom út 1981. Hann segir að á yngri árum hafi hann ekki haft neina sérstaka löngun til bókaskrifa. „Ég hafði samt alltaf gaman af því að skrifa og skrifaði löng sendibréf þeg- ar ég var um tvítugt, bæði til konu- efnisins og skólafélaga minna. Þetta var einhver árátta enda skrifaði ég auðveldlega 20 síðna bréf.“ Gaman og alvara Vilhjálmur segir að sérstaklega hafi verið gaman að skrifa um bernsku- og æskuárin. „En nauðsyn- legast var að skrifa bókina Þeir breyttu Íslandssögunni sem kom út 1995,“ segir hann. „Á hverri öld hef- ur orðið horfellir á Íslandi þangað til á 20. öldinni. Þegar illviðrin gengu yfir 1951 voru nokkrir bílstjórar með jarðýtur og fleira sem björguðu Fljótsdalshér- aðinu. Það var ægileg snjó- dyngja á Austur- og Norð- austurlandi, sú mesta um mína daga. Símalínan var til dæmis komin á kaf sum- staðar á Fagradal. Bókin er að hálfu leyti um styrjöldina við óveðrið og að hálfu leyti um útgerð Færeyinga á árabátum, en þeir voru mjög margir hérna fyrir austan um áratugaskeið og ekkert annað hefur verið skrifað um þessa útgerð á ís- lensku.“ Bóndinn hefur búið á Egilsstöðum síðan í haust. „Ég var ekki spítala- tækur og varð því að fá mér íbúð því það var ekkert vit í því að vera á Brekku á veturna. Þegar maður er orðinn svona gamall þarf maður ekki annað en reka tærnar í og detta á hausinn til þess að allt fari úr skorð- um. Tengdadóttir mín á Brekku, Jó- hanna Lárusdóttir, gerði allt sem þurfti að gera fyrir mig. Ég var hel- víti slæmur í bakinu í sumar, hryggj- arliðir hrundu og ég er því mjög bog- inn, en þetta gekk yfir og nú snúast 10 til 20 konur í kringum mig.“ Nær 100 ára með ritræpu  Kann ekkert handverk en nuddar við skrif Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Rithöfundur Vilhjálmur Hjálmarsson gerir fátt annað en skrifa þessa dagana og er hress með það. „Það stefnir í 27 bækur,“ segir Vil- hjálmur Hjálmarsson um afköstin á ritvellinum og áréttar að hann geti ekki alfarið eignað sér tvær bókanna en bendir jafnframt á að tvö handrit séu nánast tilbúin til prentunar, annað á næsta ári og hitt, Örnefnaskrá Mjóa- fjarðar, á 100 ára af- mælisári hans. „Ég ætla að gefa út eina bók 2014, sama hvort ég verð lifandi eða dauður,“ segir Vilhjálmur, sem handskrifar allan texta. „Með penna, bara eins og Þórbergur,“ segir hann, en Sigur- borg Jóna Sigmarsdóttir hefur síð- an tölvusett textann og búið hann undir prentun. Vilhjálmur segir að hann hafi eitt sinn farið með gamanmál á árshátíð í Karphúsinu og í kjölfarið hafi Torfi Hjartarson, þáverandi sáttasemjari, hvatt sig til þess að skrifa sögurnar. Bókin Glettur og gamanmál sé afraksturinn. Gefur út bók lifandi eða dauður VILHJÁLMUR HJÁLMARSSON Á BREKKU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.