Morgunblaðið - 31.12.2012, Blaðsíða 1
Stofnað 1913 306. tölublað 100. árgangur
TÍMAMÓT
ÁR NÝRRA LEIÐTOGA, HVAR Á TRÚIN HEIMA? ERUM VIÐ AÐ VERÐA
AÐ MANNVÉLUM? FRÉTTALJÓSMYNDIR OG SKOPMYNDIR ÁRSINS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðilegt nýtt ár
Engin systkini eru eins gömul
samanlagt og börn hjónanna Jón-
asar Ólafssonar og Sigríðar Gúst-
afsdóttur frá
Kjóastöðum í
Biskupstungum,
enda eru þau
hvorki meira né
minna en sextán
talsins.
Þriðja elsta
systkinið, Ólafur,
er sjötugur í dag,
og er heildar-
aldur systk-
inanna því nú
heil 974 ár. Endist þeim aldur til
geta þau náð þúsund ára aldri sam-
tals í september árið 2014.
Afkomendur hjónanna á Kjóa-
stöðum eru nú komnir á annað
hundraðið en það 160. fæðist í febr-
úar. Þeirra á meðal eru tvö barna-
barnabarnabörn. »6
Börnin frá Kjóa-
stöðum fagna 974
ára afmæli sínu
Hjónin á
Kjóastöðum.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þrátt fyrir að mikil samtöl hafi átt
sér stað á milli fulltrúa ASÍ og
Samtaka atvinnulífsins að undan-
förnu vegna endurskoðunar kjara-
samninga, hafa þær litlum árangri
skilað enn sem komið er. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur samninganefnd launþegasam-
takanna m.a. lagt fram hugmyndir
um mögulegar leiðir til að styrkja
kaupmátt þeirra hópa sem ekki
hafa notið launaskriðs á árinu,
þannig að þeir fái einhverjar viðbót-
arlaunahækkanir. Samið hefur verið
áður um slíkt fyrirkomulag sem
nefnt hefur verið baksýnisspegill og
felur í sér launatryggingu til að
bæta laun þeirra sem setið hafa eft-
ir.
Þó að meginforsenda gildandi
samninga haldi um að kaupmáttur
hafi aukist á samningstímabilinu er
viðurkennt að fjölmennir hópar hafa
ekki notið þess.
Þrjár vikur til stefnu
Hefur komið til tals sú krafa af
hálfu launþegaforystunnar að verði
samningum ekki sagt upp verði
samningstíminn styttur og kjara-
samningar á almennum vinnumark-
aði gildi aðeins til 1. september
næstkomandi. Að óbreyttu renna
samningarnir út 31. janúar 2014.
Auk þessa hafa komið upp hug-
myndir um mögulega hækkun á lág-
markstekjutryggingu í dagvinnu til
að bæta kjör hinna lægst launuðu.
Boðað hefur verið til formanna-
fundar á vettvangi ASÍ 7. janúar
þar sem fara á yfir stöðuna í við-
ræðunum en skv. heimildum blaðs-
ins eru þó fremur litlar líkur taldar
á að línur verði farnar að skýrast
þá. Aðeins þrjár vikur eru til stefnu
því ef segja á samningunum upp
þarf ákvörðun um það að liggja fyr-
ir 21. janúar.
Rætt um að samningar
renni út 1. september
Hugmyndir um launaviðbót til þeirra sem setið hafa eftir
Búast má við áframhaldandi ófærð
víða um land í dag en spáð er norð-
an- og norðvestanátt og snjókomu
eða éljum norðantil á landinu.
Annríki var hjá björgunarsveitum
í gær og var sjúklingur fluttur sjó-
leiðina frá Flateyri inn í Holt þar
sem tekið var á móti honum með
sjúkrabíl. Þurfti að ryðja í gegnum
nokkur snjóflóð á leið tiĺÍsafjarðar.
Þá dró björgunarsveitin Ernir á sjó
bát sem strandaði í Bolungarvík. »2
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Á Ísafirði Enn kyngir niður snjó.
Þung færð
og óveður
M Á N U D A G U R 3 1. D E S E M B E R 2 0 1 2