Morgunblaðið - 31.12.2012, Qupperneq 29
STJÓRNMÁL 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
V
ið Íslendingar þurfum að leita leiða til að hámarka
möguleika okkar í samskiptum við þau svæði
heimsins sem fyrirsjáanlega verða í mestum vexti
næstu áratugina. Svara þarf spurningum um það
hverju þurfi að breyta í utanríkismálum, fram-
leiðsluháttum, menntamálum, vísindum og nýsköpun til að
verða ekki af fjölbreyttum möguleikum sem breytt heimsmynd
boðar.
Fyrir dyrum er alger umbreyting á efnahagskerfi heimsins.
Á innan við 20 árum er talið að millistéttin vaxi úr tveimur
milljörðum í fimm þegar milljarðar manna brjótast úr fátækt í
Asíu, einkum í Kína og á Indlandi. Þessir milljarðar fólks munu
kalla á hefðbundnar neysluvörur og verða helsta uppspretta
hagvaxtar og aukinnar eftirspurnar í heiminum.
Evrópa geymir nú um þriðjung millistéttar veraldar. Árið
2030 verður hlutfallið einungis 14%. Þungamiðja efnahagsmála
heimsins færist í austurátt með sívaxandi hraða.
Um leið og við mætum nýjum áskorunum þurfum við að vera
sjálfum okkur trú, nýta reynslu og þekkingu kynslóðanna og
gera það sem best hefur reynst okkur þegar áður hefur þurft
að vinna úr efnahagslegum áföllum. Lykillinn hefur verið að
auka framleiðni og verðmæti vinnuaflsins og nýta þær auðlind-
ir sem landið hefur yfir að búa.
Kynslóðirnar
Þegar hugað er að sögunni er núverandi efnahagsvandi okk-
ar um svo margt gamalkunnur. Áður höfum við séð skjótfeng-
inn gróða hverfa fljótt. Krafan um aukin lífsgæði hefur þó aldr-
ei verið sterkari og samanburður við önnur lönd raunhæfari.
Unga kynslóðin veit að hún á raunhæfan valkost um framtíð í
öðru landi. Jafnvel fjarlægu landi. Við megum því engan tíma
missa. Um leið og við horfum til þess vanda sem fylgir því að
sjá á eftir yngra fólki þarf einnig að hyggja að eldri kynslóð-
unum. Íslendingum mun fjölga um 60.000 næstu tvo áratugi. Í
tíma þarf að huga að þeim breytingum sem verða á aldurs-
samsetningu þjóðarinnar, er fólki á lífeyrisaldri fjölgar úr
35.000 í tæp 70.000 á einungis tuttugu árum. Takist ekki að
tryggja með fullnægjandi hætti fjármögnun lífeyrisréttinda
þessa stóra hóps mun það hvíla á herðum sífellt færri vinnandi
manna að sjá fyrir þeim sem eru fyrir utan vinnumarkaðinn.
Það er því fyrir margra hluta sakir afar brýnt að sjá til þess að
Ísland verði áfram ákjósanlegur staður til búsetu og sam-
keppnishæft við þjóðir heims um aðstæður eins og atvinnu,
menntun, heilbrigðisþjónustu og menningu. Ekkert eitt er
jafnmikilvægt til að tryggja það markmið og aukin þjóðarfram-
leiðsla.
Stóru málin strand
Stór orð en litlar efndir hefur verið stef ríkisstjórnarinnar
allt þetta kjörtímabil, stundum sem betur fer, því ekki eru allar
hugmyndir hennar líklegar til árangurs og sóknar. Kostnaður-
inn er mikill. Fjárfesting atvinnulífsins er í lágmarki og opinber
fjárfesting á þessu kjörtímabili sú minnsta í lýðveldissögunni.
Sjávarútvegurinn hefur þurft að búa við stöðuga óvissu síðast-
liðin fjögur ár. Ríkisstjórnin tók ákvörðun um að yfirgefa hug-
myndafræði víðtækrar sáttar og samráðs við greinina vegna
breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Henni hefur nú tekist
að tefla málinu í slíkan ágreining að jafnvel stjórnarflokkarnir
tveir eru ósammála um næstu skref. Aðildarviðræðurnar við
ESB, sem átti að vera lokið nú, eru skammt á veg komnar. Ekki
hefur verið snert á erfiðustu köflunum enda ekki samhljómur
með stjórnarflokkunum. Stjórnarskrármálið er ekki betur á
vegi statt. Skynsamlegast væri fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra að horfast í augu við það að hvað heildarend-
urskoðun varðar er ríkisstjórn hennar runnin út á tíma.
Rammaáætlunin er skiptimynt í pólitískum hrossakaupum sem
stöðugt eiga sér stað á milli stjórnarflokkanna. Það verður enda
æ ljósara að þessi ríkisstjórn var ekki mynduð um málefni. Hún
var mynduð um völd og þeim skal haldið fram á síðasta dag.
Allt til að uppfylla drauminn um fyrstu „hreinu“ vinstristjórn-
ina sem skrimtir heilt kjörtímabil.
Nýr sáttmáli vaxtar og stöðugleika
Við slíkt sundurlyndi og framtaksleysi verður ekki lengur bú-
ið. Hér þarf að koma á sáttmála vaxtar og stöðugleika. Á milli
aðila vinnumarkaðar og ríkisstjórnar, milli atvinnugreina og
milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Til þess að það takist
þarf samstarf um sameiginleg markmið. Sameiginlega sýn um
tiltekin grundvallaratriði. Það þarf nýjan tón og traust milli
manna. Ljóst er að það er uppurið í samskiptum margra af
helstu persónum og leikendum á sviði þjóðlífsins. Nýlegar yf-
irlýsingar forystu ASÍ bera því vitni. Það er víst svo að fólkið
sem boðaði nýja tíma samræðustjórnmála hefur verið lítið til
viðtals síðustu ár. Með nokkurri einföldun má segja að sérhvert
skref síðustu áratugi sem renndi stoðum undir raunverulegar
kjarabætur í landinu hafi falið í sér aðgerðir sem stækkuðu
kökuna um leið og haldið var aftur af verðbólgunni. Hið sama
þarf að gera nú. Ríkisstjórnin hefur verið of upptekin af því að
skipta minnkandi köku upp með nýjum hætti í stað þess að
stækka hana. Fjölmargir hafa setið uppi með tóman disk og
horfið af vinnumarkaði. Margir þeirra fluttu til útlanda til að
geta brauðfætt fjölskylduna. Á forræði stjórnvalda er að bæta
umhverfi einstaklinga og atvinnulífs. Breyta þarf um stefnu og
leggja áherslu á lægri skatta og gjöld, sem og aðgerðir til að
létta skuldabyrði heimila og atvinnureksturs. Fjárfesting sem
styrkir innviði samfélagsins er brýn. Tryggja þarf áframhald-
andi hagkvæmni veiða og vinnslu í sjávarútvegi, skynsamlega
nýtingu sjálfbærra orkuauðlinda, frekari iðnaðaruppbyggingu
og nýsköpun. Treysta verður rekstrarumhverfi ferðaþjónust-
unnar þannig að henni verði kleift að halda áfram uppbyggingu
og bæta rekstrarafkomu sína. Afnám hafta, hallalaus fjárlög,
sala ríkiseigna og uppgreiðsla skulda er lykilatriði í ríkisfjár-
málunum.
Fögnum tækifærinu
Við Íslendingar þurfum að bregðast við fyrirsjáanlegum
breytingum innanlands, sem og breyttri heimsmynd af ábyrgð
og af yfirvegun. Þeirri áskorun eigum við að taka fagnandi og
hefjast handa án tafar.
Sú umbreyting í efnahagsmálum heimsins sem ég hef hér að
framan rakið geymir án nokkurs vafa óendanleg sóknarfæri
fyrir fámenna, vel menntaða þjóð, ríka af auðlindum. Forsenda
þess að úr tækifærunum rætist er trú á frelsi og framtakssemi
einstaklingsins.
Sigurður Nordal skrifaði árið 1927 hve hver einstaklingur lít-
illar þjóðar skipti miklu máli. Hann sagði að með rækt við ein-
staklingana vaxi von smárra menningarþjóða um að láta til sín
taka.
Næsta vor verður kosið um stefnu og forgangsröðun í lands-
málunum. Um hvort haldið skuli áfram á braut skattahækkana
og afturhalds, á braut illa skilgreindra markmiða eða sótt fram
í krafti athafnafrelsis og þeirrar vissu að þjóðinni sé treystandi
til að vinna sig út úr vandanum. Valið er kjósenda. Ég óska
landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs.
Við áramót
Morgunblaðið/Kristinn
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
„Næsta vor verður kosið um stefnu og
forgangsröðun í landsmálunum. Um hvort
haldið skuli áfram á braut skattahækkana og
afturhalds, á braut illa skilgreindra mark-
miða eða sótt fram í krafti athafnafrelsis og
þeirrar vissu að þjóðinni sé treystandi til að
vinna sig út úr vandanum.“