Morgunblaðið - 31.12.2012, Page 33
18.2. | Jóhann Ísberg
Guðríður og vondu karlarnir
Það sem fer alveg fram hjá
Guðríði er að ekki snýst allt um
hana heldur er hér undir orðstír
farsæls embættismanns sem
ekkert hefur til saka unnið.
18.2. | Axel Kristjánsson
Ólögleg gengistryggð lán
Hvaða meðferð fá þeir, sem
þegar er búið að ganga að á
grundvelli ólöglegra láns-
samninga, selja eignir þeirra,
taka bú þeirra til gjald-
þrotaskipta o.s.frv.?
22.2. | Einar K. Guðfinnsson
Mistök og endurtekið efni
Það er orðið algjörlega aug-
ljóst mál að veigamikil mis-
tök voru því gerð við stofnun
nýju bankanna.
23.2. | Unnur Brá Konráðsdóttir
Töfralausnin ESB?
Rétt er að stefna að því að
uppfylla Maastrichtskilyrðin.
Ekki til að taka upp evru heldur
vegna þess að þau eru í raun
lýsing á heilbrigðu hagkerfi.
24.2. | Björn Líndal
Stöðvum aðförina
Aðförin að Gunnari Andersen
er ekki til þess fallin að skapa
traust. Þvert á móti er hún til
þess fallin að rýra traust á ís-
lenskum ráðamönnum.
24.2. | Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Hugmyndabaráttan sjaldan
mikilvægari
Hinn síungi Heimdallur hefur
sinnt mikilvægu og vanda-
sömu hlutverki um að vinna
ungt fólk til fylgis við sjálf-
stæðisstefnuna
25.2. | Sigrún Ágústa Bragadóttir
Aðkoma stjórnmálanna að LSK
Tap LSK hefði orðið 914
milljónir ef ekki hefði verið
gripið til neyðarráðstafana.
Ákæran vekur spurningar
um aðkomu stjórnmálanna.
27.2. | Hlynur Jónsson
Um Kastljós, Árna Pál
og Arion banka
Drómi er aðili að öllum
skuldaúrræðum sem sett
hafa verið á vettvangi lána-
fyrirtækja undanfarin ár og
teygir sig langt til að mæta
þörfum lántakenda.
28.2. | Pétur Hafstein
Þjóðkirkja og stjórnarskrá
Það nægir ekki að leggja
fram tillögu að nýrri stjórn-
arskrá þar sem engu er sleg-
ið föstu um þjóðkirkju á Ís-
landi, eins og stjórnlagaráð
leggur til.
28.2. | Kjartan Örn Kjartansson
Gunnar Þ. Andersen –
Hæfur og heiðarlegur
Alla tíð, bæði í leik og í starfi,
hefur Gunnar sýnt að hann
er afar mikilhæfur, aðgætinn
og grandvar, lítillátur og
óvenju siðprúður og þekki ég
engan mann lengur, sem ég treysti betur
en Gunnari til allra hluta.
33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
3.3. | Helgi Magnússon
Páskabrella súkkulaðiforstjóra
Sá grunur læðist að manni að
umhyggja hans beinist eink-
um að eigin rekstri og tekju-
öflun þar sem einskis er svif-
ist til að vekja á sér athygli.
5.3. | Ragnar Önundarson
Neyðarlögin björguðu Íslandi,
ekki Steingrímur J. Sigfússon
Hvernig sem fer verður dóm-
ur sögunnar sá að neyð-
arlögin hafi verið grundvöll-
urinn að endurreisn landsins.
6.3. | Einar Pétursson
Helgi í Góu og Helgi M.
Helgi M. segir að Góufor-
stjórinn hafi með þessari
auglýsingu verið með ótta-
legan dónaskap við fólkið í
landinu. Þvílíkt bull.
7.3. | Gísli Vilhjálmsson
Helgar deila
Ádeila Helga Vilhjálmssonar
er beitt og í stað þess að
fagna ábendingunni fer Helgi
Magnússon að tala um bíla-
mál sem í raun koma þessu
máli ekkert við.
8.3. | Sigurður Kári Kristjánsson
Flýtimeðferð dómsmála
Enn bíða einstaklingar og fyr-
irtæki eftir því að endanleg
niðurstaða fáist um afdrif
lánasamninga þeirra.
8.3. | Illugi Gunnarsson
„Ástæðulaust að halda
viðræðum áfram“
Framkvæmdastjórn ESB hef-
ur bent á í skýrslu sinni, frá
október 2011, um umsókn-
arferli Íslands, að íslensk lög
um fjárfestingar útlendinga í
sjávarútvegi samrýmast ekki lögum ESB
um þetta efni.
9.3. | Oddný G. Harðardóttir
Vaxtabætur – stuðningur
við skuldug heimili
Þær breytingar sem gerðar
voru á úthlutun vaxtabóta voru
tvímælalaust til bóta og beindu
fjármunum að þeim sem voru í
verstri stöðu og í samræmi við
vilja og yfirlýsingar stjórnvalda.
12.3. | Ólína Þorvarðardóttir
Dýrafjarðargöng brýnasta
framkvæmdin
Dýrafjarðargöng eru forsenda allra áætlana
um eflingu sveitarfélaga, upp-
byggingu atvinnulífs, þjónustu
og opinberrar stjórnsýslu á
Vestfjörðum.
13.3. | Helgi Seljan
Öðruvísi mér áður brá
Og ekki batnar það, þegar
greint er frá því að neyzla
áfengis aukist eftir því sem
konur séu menntaðri.
14.3. | Sveinn Valfells
Icesave og traust Alþingis
Greinilegt er af því sem op-
inberlega er vitað um þetta
eina mál, Icesave, að Stein-
grímur J. Sigfússon verð-
skuldar að vera ákærður fyr-
ir Landsdómi.
14.3. | S. Ingibjörg Jósefsdóttir
Góð hvatning getur skipt máli
Sem skólastjóri í unglinga-
skóla hef ég mikla trú á ís-
lenskum ungmennum. Mér
þykja þau skemmtileg, skap-
andi, klár og þau hafa sterka
samfélagsvitund.
17.3. | Gunnar Bragi Sveinsson og
Sigurður Ingi Jóhannsson
Sjávarútvegsstefna
Framsóknarflokksins
Eitt mikilvægasta verkefnið
er að ná sátt um skyn-
samlegt og þjóðhagslega
hagkvæmt fiskveiðistjórn-
unarkerfi sem skili þjóðinni
hagsæld.
19.3. | Birgir Ármannsson
Störfum í landinu
hefur ekki fjölgað
Það er ekki nóg að tala um
að fjölga beri störfum ef
raunveruleg stefna stjórn-
valda og lagasetning á Al-
þingi miðar í aðra átt.
21.3. | Tryggvi Felixson
Þjórsárver eru þjóðargersemi
sem ekki má spilla
Vonandi verður sú ramma-
áætlun sem væntanlega
kemur til umfjöllunar Alþing-
is nú á vorþingi til þess að
stoppa öll virkjunaráform.
22.3. | Elín Pálmadóttir
Bílaferju þörf úr Vesturbæ
Þrátt fyrir hagræðingu og
sparnað verður þó ekki hjá
því komist að gera ráð fyrir
að allur þessi íbúafjöldi á Sel-
tjarnarnesinu og Vesturbæ,
auk þungaumferðar af Grandanum, þurfi
að komast að heiman.
24.3. | Óli Björn Kárason
Stjórnmálaflokkar
á framfæri ríkisins
Kjósandi sem berst gegn
Sjálfstæðisflokknum er
skyldaður til að greiða til
flokksins og fjármagna starf-
semi hans.
24.3. | Jón Bjarnason
Danska ríkisstjórnin milli steins
og sleggju í makríldeilunni
ESB hefur sett skilyrði fyrir
samningum við Íslendinga
um makrílveiðar sem eru
með öllu óaðgengilegar og
myndu kosta þjóðarbúið
milljarða í töpuðum tekjum.
27.3. – Kristján Möller
Alþingi setti Norðfjarðargöng
í forgang
Framkvæmdir við Norðfjarð-
argöng áttu að hefjast fyrr en
við Dýrafjarðargöng, enda er
framkvæmdin talsvert
brýnni.
27.3. | Gísli Páll Pálsson
Gjaldþrota á hjúkrunarheimili
Það er heldur nöturlegt að sá
aðili sem hjúkrar og sinnir
velferð heimilismannsins
skuli einnig vera settur í þá
ömurlegu aðstöðu að þurfa
að gera skjólstæðing sinn gjaldþrota.
29.3. | Ragnheiður Elín Árnadóttir
Af þingstörfum
Nú er orðið ljóst að viðræð-
unum lýkur ekki fyrir kosn-
ingar eftir ár, og því má bú-
ast við að þetta ferðalag allt,
sem hefur verið bæði dýrt og
tímafrekt, verði til einskis farið.
29.3. | Heiða Guðný Ásgeirsdóttir
Bóndinn og
Búlandsvirkjun
Allt tal um fjölmörg störf á
uppbyggingartíma virkjunar-
innar er að mínu mati hjómið
eitt.
31.3. | Atli Gíslason og Jón Bjarnason
Rangfærslur
forsætisráðherra
Lengst af þeim tíma sem Jón
Bjarnason sat í embætti
ráðherra var heildarend-
urskoðun fiskveiðistjórn-
unar stýrt af forsætisráð-
herra.
2.4. | Sóley S. Bender
Kjarni málsins
Það er mikilvægt að heil-
brigðisstarfsfólk vinni vel
saman að því meginmarkmiði
í þessu máli að stuðla að kyn-
heilbrigði unglingsins.
2.4. | Tómas Ingi Olrich
Summa diplómatískra lasta
Með framferði sínu kemur
sendiherra ESB fram við Ís-
lendinga eins og þjóðin sé
ekki sjálfstæð og fullvalda.
2.4. | Sigurður Árni Þórðarson
Þjóðkirkja til
góðra verka
Verkefnin eru mörg. Þau krefjast sam-
stöðu og einingar. Kirkjan er farvegur
möguleikanna og nú er tími
tækifæranna. Ég býð mig
fram til þjónustu.
5.4. | Hanna Birna Kristjánsdóttir
Stefna ríkisstjórnarinnar
skaðar Reykjavík
Á hverjum stað, í hverju
byggðarlagi, er ákall um aðr-
ar áherslur í atvinnumálum.
7.4. | Birgir Tjörvi Pétursson
Til varnar eignarrétti
í sjávarútvegi
Það að ríkið sé á hinn bóginn
eigandi allra gæða, úthluti
þeim til nýtingar gegn him-
inháu gjaldi, stýri svo tak-
mörkuðum nýtingarrétti að
auki með reglusetningu og eftirliti, er í
anda róttækrar ríkisforsjárstefnu.
11.4. | Sigurður Oddsson
Sá yðar sem syndlaus er kasti
fyrsta steininum
Skyldu þeir vera syndlausir
sem ausa skítnum yfir Gunn-
ar Andersen?
12.4. | Einar S. Hálfdánarson
Lausnin er nýliðun
Nýliðun er, að því er virðist,
orðið yfir að menn sem ekki
hafa fengist við útgerð, en
hafa á því mikinn hug að
stunda útgerð, „komist að“.
12.4. | Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir
Katrín Jakobsdóttir
verði forseti Íslands
Katrín Jakobsdóttir, ég bið
þig að íhuga af alvöru að gefa
kost á þér til embættis for-
seta Íslands.
13.4. | Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Á fyrirtæki þitt 440 milljónir til
að fleygja út um gluggann?
Stjórnendur fyrirtækja eru oft
og tíðum ómeðvitaðir um að
samningar, skilmálar eða hátt-
semi þeirra eru ekki í samræmi
við kröfur samkeppnislaga.
14.4. | Ólöf Nordal
Brjótumst úr fjötrunum
Það er grundvallarverkefni
allra stjórnmálamanna að
auka hagsæld heimilanna. Allt
annað má bíða. Við þurfum að
fjárfesta í ungu kynslóðinni.
14.4. | Agnes M. Sigurðardóttir
Það sem augað sér
Þjóðkirkjan er öllum opin og
innan hennar rúmast allir.
14.4. | Ásmundur Þór Sveinsson
Ofsaakstur í Vesturbæ
Umræddur glæfraakstur
raskar næturró íbúa í stórum
hluta Vesturbæjar og stofnar
lífi vegfarenda í hættu.
17.4. | Jakob Björnsson
Heildstæð orkustefna
fyrir Ísland er löngu tímabær
Það er vissulega vel að von er
á heildstæðri orkustefnu fyrir
Ísland. Hún er löngu orðin
tímabær.
18.4. | Tryggvi Þór Herbertsson
Fall Fjallabyggðar
Óbeit vinstrimanna á útgerð-
armönnum mun leiða til falls
staðanna sem sjóinn sækja.
19.4. | Brynjar Níelsson
Mál að linni
Ólafur Börkur hafði átt lang-
an og farsælan feril sem
dómari auk framhaldsmennt-
unar og því fullkomlega hæf-
ur til að gegna starfi hæsta-
réttardómara.
Morgunblaðið/Kristinn
Í apríl sýknaði Landsdómur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra af öllum helstu ákæruatriðum Alþingis.