Morgunblaðið - 31.12.2012, Side 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
3.7. | Árni Steinar Jóhannsson
Takk fyrir þitt framlag, Ari Trausti
Tveggja turna tal fjöl-
miðlanna frá fyrsta degi
kosningabaráttunnar gaf
auðvitað þann tón að nú
skyldi tekist á um blokkir í
stjórnmálum en ekki um hæfileika ein-
stakra frambjóðenda.
4.7. | Holberg Másson
Andefni finnast
náttúrulega á jörðinni
Gert er ráð fyrir að á næstu
árum muni næstu kynslóðir
lækningatækja hagnýta sér
andefni …
5.7. | Katrín Jakobsdóttir
Efling vinnustaðanáms
Með þessu var tekið stórt
skref til að efla starfsnám í
landinu en samtök á vinnu-
markaði hafa lengi kallað eft-
ir slíkum styrkjum.
6.7. | Anna Bjarnadóttir
Fýla út af
Fimmvörðuhálsi
Ég gerði þau mistök að vera
með göngu um Fimmvörðu-
háls í ferðaplani sem ég dró
upp fyrir svissneska göngu-
garpa í vetur.
7.7. | Lýður Þór Þorgeirsson
Viðskipti, fjárfestingar
og farsæld þjóðar
Mikilvægum þjóðþrifamálum
er ávallt mótmælt harðlega
af íhaldssömu afturhaldi,
andstæðingum frjálsra við-
skipta og hagsmunagæslu-
aðilum eldra skipulags.
9.7. | Sigurbjörn Þorkelsson
Verum vinir
Fegraðu umhverfi þitt með
gjöfum. Stráðu fræjum kær-
leika og umhyggju. Og þín
verður minnst sem þess sem
elskaði.
12.7. | Valgarð Runólfsson
Hvar er gullnáma
Bakkavararbræðra?
Hvaðan koma peningarnir
sem bræðurnir eru núna til-
búnir að leggja fram til kaup-
anna? Er þetta fé sem þeir
komu í skjól og hafa getað
geymt til „mögru áranna“?
14.7. | Heiðar Guðjónsson
Peningaglýja Seðlabankans
Ég skora á hagfræðinga
Seðlabankans að fram-
kvæma þessa útreikninga og
skýra mál sitt betur ellegar
að draga orð sín til baka.
18.7. | Bjarni Geir Einarsson og
Jósef Sigurðsson
Lokasvar við skrifum
Heiðars Más Guðjóns-
sonar
Allir þeir sem þekkja innihald
hugtaksins um peningaglýju
sjá að hér fer því fjarri að hún
villi okkur sýn. Við stöndum
því fast við fyrri útreikninga
okkar.
19.7. | Sigurður Ingólfsson
1 milljarður á ári, í eigu hús-
byggjenda, út um gluggann
Gleymdist að reikna dæmið
til enda? Er verið að taka upp
erlenda staðla án skoðunar á
áhrifum þeirra hér? Er of
seint að leiðrétta reglugerð-
ina?
20.7. | Jón Hákon Magnússon
Á öðrum ársfjórðungi sögðu
0,1436% sig úr þjóðkirkjunni
Hvar er fréttamatið? Myndi
frétt um að fleiri hefðu geng-
ið til liðs við þjóðkirkjuna á
einum ársfjórðungi en sagt
sig úr henni hafa birst í miðl-
unum? Það tel ég ólíklegt.
21.7. | Orri Hauksson
Hagrænt sjálfshól
Stjórnvöld hafa í orði kveðnu
sagst vilja afnema gjaldeyr-
ishöft hið fyrsta. Hefur hugur
fylgt máli?
21.7. | Guðmundur Kristjánsson
Makríllinn á sig sjálfur
Engar sannanir eru fyrir því
að makríllinn sem veiðist t.d.
vestan Íslands og í græn-
lenskri lögsögu sé eign ESB
og Noregs.
24.7. | Heiðar Guðjónsson
Útúrsnúningar um laun á Íslandi
Þetta er þekkt villa í hagfræði
og kölluð peningaglýja. Ég skor-
aði því á hagfræðingana að
sýna fram á villur mínar, ellegar
draga fullyrðingar sínar til baka.
26.7. | Elín Hirst
Hættuleg ráðagerð
Að mínum dómi er rétt fyrir
okkur Íslendinga að staldra
við og hugsa út í hvílíkt glap-
ræði það væri að gera 30
þúsund hektara Íslands að
kínversku yfirráðasvæði.
28.7. | Herdís Þorgeirsdóttir
Tröllriðna land – sprungið af
spillingu
Eina von Evrópu í dag er ekki
blóðug bylting, ekki sam-
þjöppun valds í sterkum leið-
toga heldur almenn vitund-
arvakning.
30.7. | Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Hver á að eiga Ísland?
Einstakir landeigendur og
fjárvana sveitarfélög taka
ákvarðanir sem varða heild-
arhagsmuni lands og þjóðar
langt inn í framtíðina. Slíkt
er óboðlegt.
3.8. | Ólafur R. Eggertsson
Spurningar um Grímsstaði á
Fjöllum
Hafa sveitarstjórnir pælt í því að þegar
einhverju af fólkinu fer að leiðast dvölin
þarna uppi í rassgati er því að sjálf-
sögðu leyfilegt að flytja til annarra
sveitafélaga, því það er jú allt orðið Ís-
lendingar eða að minnsta kosti „Ís-
landsvinir“?
7.8. | Helgi Ágústsson
Frá rómantík til raunsæis –
varnarstaða í heilbrigðismálum
Í mínum huga eru hags-
munir barna og ungs fólks
og aðhlynning deyjandi
fólks efst á blaði. And-
streymi lífsins er marg-
víslegt, en við eigum að létta deyjandi
fólki og aðstandendum þess kveðju-
stundirnar.
7.8. | Olga Helgadóttir
Okkar framtíð skiptir máli
Með þessum orðum vil ég
þakka öllum frambjóð-
endum síðustu kosninga
fyrir að hafa gefið kost á
sér. Ég óska þeim öllum
alls hins besta og bjartrar framtíðar.
8.8. | Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
Var Jón Sigurðsson
jafnaðarmaður?
En hvort Jón Sigurðsson
var frjálshyggjumaður eða
eitthvað annað, jafnvel
jafnaðarmaður, skiptir þó
kannski ekki öllu máli.
Merkimiðar eru ekki það mikilvægasta
í sambandi við Jón Sigurðsson.
13.8. | Guðrún María Valgeirsdóttir og
Dagbjört Bjarnadóttir
Valdníðsla?
Um mitt sumar 2011 bár-
ust sveitarstjórn Skútu-
staðahrepps til umsagnar
drög að nefndri reglugerð,
en þá leitaði Umhverf-
isráðuneytið ekki umsagn-
ar hinna sveitarfélaganna,
Norðurþings og Þingeyj-
arsveitar.
15.8. | Leifur Magnússon
Vansagt um Vatnsmýrarskipulag
Væri ekki tilvalið að fylla
upp í Reykjavíkurhöfn og
bjóða einnig þar upp á
nokkrar nýjar íbúðablokkir,
fyrst greiðar, hagkvæmar
og nútímalegar samgöngur við höf-
uðborgina skipta engu máli?
16.8. | Njáll Skarphéðinsson
Skattlagning ríkisstjórnarinnar
Nú þegar ferðamennskan
blómstrar sem aldrei fyrr á
að drepa þessa vonarglóð í
fæðingu.
16.8. | Bjarnheiður Hallsdóttir
Á að rota rísandi stjörnu?
Hótel og aðrir gististaðir munu verða
gjaldþrota, störf í allri ferðaþjónustunni
munu tapast, ekki síst úti á
landsbyggðinni, þar sem
líklegt má telja að dvöl er-
lendra gesta á landinu
muni styttast, þ.e. gisti-
náttum fækka og verða í mestum mæli
á höfuðborgarsvæðinu.
16.8. | Jakob Frímann Magnússon
Torg þarfnast einnig hirðis
Fjölmörg svæði og torg í
Reykjavíkurborg hafa lent í
millibilsástandi eða bið-
stöðu í kjölfar hruns. Góð
dæmi um torg, sem fengið
hafa að blómstra eftir að hafa verið
„tekin í fóstur“, eru Hjartatorg og Ing-
ólfstorg.
18.8. | Rósa Guðbjartsdóttir
Raunverulega skýringin
Landsbankinn setti það
skilyrði fyrir þátttöku að 3
milljarðar af erlenda láninu
fengjust niðurfelldir en
þessu var haldið leyndu fyr-
ir bæjarfulltrúum minnihlutans.
23.8. | Gísli Marteinn Baldursson
Skipulag Reykjavíkur og
Vatnsmýrin
Ég saknaði úr grein Leifs
heildarsýnar á skipulag
Reykjavíkur. Hvar eiga þeir
25 þúsund Reykvíkingar
sem bætast við borgina
okkar á næstu 20 árum að búa?
24.8. | Þórir N. Kjartansson
Á Ísland bara að
vera grænt á litinn?
Pössum okkur að eyði-
leggja ekki þetta sérkenni
okkar fagra lands, sem er
víðsýnið og allir þeir sem
ferðast um landið kunna
svo vel að meta.
25.8. | Friðrik Pálsson
Þyrmið ferðaþjónustunni
Ferðaþjónustan þolir ekki
stórskaðlegt inngrip í mark-
aðsstarf sitt með þeim
hætti sem 18,5% hækkun
á vsk. á gistingu mun hafa í
för með sér.
25.8. | Gréta Þorbjörg Jónsdóttir
Ertu með erfitt eða
vanvirkt barn?
Barn sem er að kljást við
PTSD kemur til með að
hafa einkennin áfram á full-
orðinsárum og einkenni
geta versnað til muna og
endað í að einstaklingur getur ekki lok-
ið skóla eða unnið.
27.8. | Árni Thoroddsen
Gianazza og leitin að gralinu
Hafa skal í huga að gralið
er það sem flestir menn
síst hyggja, þó falið sé fyrir
allra augum.
30.8. | Ágúst Þór Árnason
Lýðveldið kvatt?
Í hita átaka búsáhaldabylt-
ingarinnar virðast fjölmarg-
ir, bæði leikir og lærðir,
hafa litið fram hjá þeirri
staðreynd að íslenska
stjórnarskráin hlaut nánast einróma
stuðning þjóðarinnar við stofnun lýð-
veldisins vorið 1944.
31.8. | Janne Sigurðsson
Fjarðaál hefur flutt út
ál fyrir um 400 milljarða
róna á fimm árum
Um 40% af heildarútflutn-
ingi Íslands er ál, sem er
hlutfallslega svipað og út-
flutningur sjávarafurða.
31.8. | María Anna Þorsteinsdóttir
Er grjótlín Málfríðar
munnfríðu fundið?
Þá segir frá því að vinkona
Málfríðar kennir henni í
neyðinni að gera olíu af
bergfitu „sem útpressuð er
af steinum og kveikir af
grjótlíni sem aldrei í eldi brennur.“
28.6. | Ólafur Hannibalsson
Leifar liðins tíma
Þóra er rétta manneskjan nú, og sú eina
sem er nærri því að fella þetta merki lið-
ins tíma, sem vonandi gengur aldrei aftur
yfir þessa þjóð.
29.6. | Guðrún Pétursdóttir
Ólíku saman að jafna
Árið 1996 varði Ólafur Ragnar Gríms-
son langhæstri fjárhæð til
síns framboðs eða um 90
milljónum króna að núvirði.
29.6. | Herdís Egilsdóttir
Von í stað ótta
Ég vona að þjóðin beri gæfu til að skilja
nauðsyn þeirrar breytingar sem nú býðst
með framboði Þóru Arnórs-
dóttur.
30.6. | Andrea Jóhanna
Ólafsdóttir
Tryggjum vandaðra stjórnarfar
Nú gengur þjóðin til kosninga
og mig langar til að hvetja
alla til að kjósa með hjartanu
og sannfæringu sinni.
30.6. | Ólafur Ragnar
Grímsson
Lýðræðishátíð
Enn er ólga í efnahags-
málum álfunnar og á mörg-
um sviðum. Því þarf rödd
Íslands að hljóma skýrt.
30.6. | Hannes Bjarnason
Á kosningadegi
Þjóðin á og hefur valkosti í
þessum kosningum. Val-
kosti sem snúast um eitt-
hvað annað en gamlar
átakalínur.
30.6. | Ari Trausti Guðmundsson
Nú er lag
Samhugur er ferli sem
hefst þegar við tökum af-
stöðu til ábyrgðar, heið-
arleika, mannúðar og jafn-
ræðis. Ferlinu lýkur aldrei.
Það sjálft er markmið.
30.6. | Þóra Arnórsdóttir
Kjósum sátt
Endurreisum traust, heið-
arleika og umburðarlyndi,
ræðum um það sem gerir
lífið þess virði að lifa því.
Leyfum okkur að vera glöð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg