Morgunblaðið - 31.12.2012, Qupperneq 37
Morgunblaðið/Ómar
27.10. | Elliði Vignisson
Box pandóru
Samþykki alþingi óbreytt
ákvæðið í stjórnarskrá eru
áhöld um hvað það merkir
í raun og veru. Sveit-
arfélögin hljóta að vilja
skýringu á merkingu þess.
30.10. | Halldór Ásgrímsson
Norræni svanurinn þarf
sterka vængi
Í stað þess að umræðan
snúist um sparnað
sparnaðarins vegna
vona ég að hún geti
snúist um forgangsröðun
og aukna skilvirkni, og einnig hverju
við viljum áorka með norrænu sam-
starfi.
31.10. | Hermann Guðmundsson
Að gefnu tilefni um N1
Að undanförnu hefur
málefni N1 og móð-
urfélags þess, BNT, borið
á góma í opinberri um-
ræðu. Fyrst eru gefnar for-
sendur sem enga skoðun standast og
svo dregnar af þeim glórulausar álykt-
anir.
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
2.11. | Þórhildur Hinriksdóttir
Sigurjónsson
Opið bréf til
velferðarráðherra Íslands
Síðan í vor hefur mamma
fengið að prufa a.m.k.
10-15 rúm í boði vel-
ferðarkerfisins.
2.11. | Bragi Björnsson
Ævintýri í 100 ár
Í dag á skátaandinn ekki
síður erindi til æsku lands-
ins en fyrir hundrað árum.
3.11. | Guðlaugur Gylfi Sverrisson
Heilsutjón í norrænni
velferð
Það hlýtur að vera skyn-
samlegt, bæði heilsufars-
lega og ekki síður fjárhags-
lega, fyrir Reykvíkinga og
þjóðina alla að huga vel að
heilsugæslunni.
5.11. | Kjartan Magnússon
Reykjavíkurborg greiðir geipi-
verð fyrir lélegar eignir
Kaupin eru skýrt dæmi um
léleg vinnubrögð meiri-
hluta Besta flokksins og
Samfylkingarinnar í skipu-
lagsmálum og fjármálum
Reykjavíkurborgar.
6.11. | Kristín Heimisdóttir
Gerum öll eitthvað í málunum
Verði tímabundin hækkun
á endurgreiðslu dregin til
baka um áramót, eru það
skýr skilaboð til foreldra
um stefnuleysi og aft-
urhald í málaflokknum.
6.11. | Ingvi Hrafn Jónsson
Brotthvarf ríkisins af auglýs-
ingamarkaði – Heillaskref til
aukinnar fjölmiðlagrósku
Ég vil hafa ríkisútvarp eins
og BBC, en vil fjármagna
það alfarið með notenda-
gjaldi …
9.11. | Margrét Sverrisdóttir
Fjölmenning í Reykjavík
Í mannréttindastefnu
Reykjavíkurborgar segir
að tryggja skuli að inn-
flytjendur og fólk af er-
lendum uppruna eigi
greiðan aðgang að þjónustu borg-
arinnar.
13.11. | Jón Magnússon
Ítrekað lögbrot
umboðsmanns Alþingis
Það er illt í efni þegar eft-
irlitsaðili stjórnsýslunnar
brýtur ítrekað lög.
13.11. | Ingvar Gíslason
Hugleiðingar um
stjórnarskrármál
Stjórnlagaráð hefur lokið
hlutverki sínu og á að
draga sig í hlé. En Alþingi
víkur ekki úr sínum stað.
Það á sér langtímahlutverk
í sögu landsins.
16.11. | Bjarni Randver Sigurvinsson og
Pétur Pétursson
Stjórnlagaráð og
nútímalegur
trúmálaréttur
Hér á landi voru það
leiðtogar evangelísk-
lútersku kirkjunnar sem
beittu sér fyrir upp-
lýsingarstefnunni og mynd-
uðu framvarðasveit hennar.
17.11. | Lúðvík Elíasson
Verðtrygging og skuldavandi
Skuldsetning jókst við
óraunhæfar væntingar á
þensluskeiði en ekki vegna
verðtryggingar. Tal um for-
sendubresti og flóknar af-
leiður er útúrsnúningur.
17.11. | Þór Whitehead
Jakob á þing
Fáir menn eru jafnvel undir
það búnir að bjóða sig fram
til þings og Jakob F. Ás-
geirsson vegna mannkosta
hans, starfa og menntunar.
19.11. | Skúli Halldórsson
Hugleiðingar um framhaldsskóla
Ég hef heyrt reynda kenn-
ara segja að íslenska
skólakerfið sé ónýtt! Svo
mikið vil ég ekki segja en
ljóst er að úrbóta er þörf og
þá þarf að huga að grunnatriðum en
ekki fallega orðuðum námsskrám.
20.11. | Júlíus Vífill Ingvarsson
Þegar á reynir
Hanna Birna býður sig fram
til Alþingis fái hún til þess
brautargengi í prófkjöri og
hefur óskað eftir stuðningi
í fyrsta sæti. Ég hvet sjálf-
stæðisfólk til þess að veita henni
stuðning sinn.
21.11. | Inga Rún Ólafsdóttir, Magnús E.
Kristjánsson, Stefán Magnússon
Þakkir frá kirkjuþingi
Niðurstaða þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar
gladdi okkur sem sitjum á
kirkjuþingi afar mikið. Við
viljum því þakka öllum
þeim, sem sýndu þjóðkirkj-
unni stuðning í verki, með
því að svara því jákvætt að
áfram verði ákvæði um
hana í stjórnarskrá Ís-
lands.
22.11. | Þórhalla Arnardóttir
Leysum vanda heimilanna
Ég tel að með þessum að-
gerðum væri verið að koma
með raunhæfar lausnir fyrir
heimilin og draga úr áhrif-
um verðtryggingar.
23.11. | Guðbrandur Jónsson
Glæpasagan
Þetta er skattaskjóls-
ákvæðið í íslenskum skil-
mála útboðsgagna frá Rík-
iskaupum, um framsal
leigusamnings og flutning
á peningum á milli landa.
24.11. | Guðný Nielsen
Tvö ár liðin en engin breyting –
grísir enn geltir án deyfingar
Eru þetta aðferðir sem við
Íslendingar viljum að við-
gangist í íslenskri svína-
rækt?
28.11. | Hrafn Jökulsson
Skák sem allir vinna
Hauskúpan skreið saman
þarna í rökkrinu og daginn
sem ég útskrifaðist kom
mamma með nýjar buxur á
mig. Ég var heppinn að það
var barnaspítali á Íslandi og oft verður
mér hugsað til Víkings læknis og vík-
ingaskipsins.
29.11. | Bjarni Harðarson
ESB-flokkur í kreppu
Eftir því sem liðið hefur á
kjörtímabilið hefur fækkað í
villikattadeildinni og nú er-
um við aðeins örfáir eftir og
ekki seinna vænna að
skrifa sig út…
29.11. | Sveinn Rúnar Hauksson
Leið Palestínu til
frelsis og friðar
Þetta mun auðvelda Pales-
tínu aðild að Alþjóðastríðs-
glæpadómstólnum, þannig
að hægt verði að draga ísra-
elska ráðamenn til ábyrgðar
fyrir stríðsglæpi.
1.12. | Kate Hoey
Ávarp til Íslendinga – Lýðræði
er of dýrmætt að glata
Bretar vilja endurheimta
lýðræði. Við viljum ráða
málum okkar, slíta tengsl
við útþanið búrókratískt
bákn sem kallar sig Evr-
ópusambandið.
4.12. | Sigríður Ólafsdóttir
Kurteisi
Tveir þingmenn gripu
óbeint fram í fyrir öðrum
þingmanni með því að
ganga fram fyrir ræðustól
með árituð ádeiluspjöld í
hans garð í fanginu, beinandi þeim að
myndavélum sjónvarps.
5.12. | Anna Kristine Magnúsdóttir
Það eiga ekki
allir gleðileg jól
Það að bjarga varnarlausu
dýri gefur manni svo mikið
að þannig finnur maður
hinn sanna jólaanda; því
get ég lofað ykkur.
6.12. | Sigurður Sigurðsson
Ofbeldi, bitlingar og
sjálfshól Starfs
Framkvæmdastjórinn lítur
viljandi framhjá grundvall-
aratriði. „Starf“ býr ekki til
störf, getur það ekki og
mun aldrei geta það.
7.12. | Halldór Jón Theódórsson
Ný náttúruverndarlög
á villigötum
Á mannamáli á sem sagt
að loka öllum vegum og
slóðum öðrum en þeim
sem umhverfisráðherra vill
hafa opna og þessi ólög
eiga að taka gildi 1. júlí á næsta ári.
8.12. | Víglundur Þorsteinsson
„Skuldsett endurreisn“
Í atvinnulífinu mun vera al-
gengt að fyrirtækin hafi ver-
ið „endurreist“ með allt að
8 x EBITDA og jafnvel biðl-
áni að auki ef betur skyldi
ganga en áætlanir gera ráð fyrir.
8.12. | Ásgeir Hvítaskáld
Ég held ég hafi skotið engil
Hægt lokaði hún augunum
eins og hún væri að sofna.
Eldrautt blóðið skar sig úr,
fæturnir voru hvítloðnir.
Mér var brugðið. Þetta var
eins og engill og ég var skítugur jóla-
sveinn.
12.12. | Erla Gerður Sveinsdóttir
Offita – Hvað skal nú til
bragðs taka?
Metnaður okkar ætti að
liggja í því að verða fyr-
irmynd annarra þjóða í að
efla heilbrigða lífshætti.
13.12. | Daisaku Ikeda
Að fræðast um
mannlega reisn
Mannréttindi eru afl sem
breytir veruleikanum þegar
þau eru ekki skilgreind
sem eitthvað utan við okk-
ur sjálf heldur lifum við þau
sem birtingarmynd á okkar innri gild-
um.
14.12. | Ragnar Árnason
Sannleikurinn um
ríkisfjármálin
Sem betur fer þurfa lands-
menn ekki að búa við túlk-
un Steingríms Sigfússonar
á hagtölum um ríkisrekst-
urinn.
15.12. | Masayuki Takashima
Staðreyndir um Senkaku-eyjar
Á undanförnum árum hefur
Kína gripið til ögrandi að-
gerða kringum Senkaku-
eyjarnar.
17.12. | Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
Kjaramálin eru margskonar
Við eldri borgarar höfum
orðið fyrir skerðingum á
kjörum okkar á und-
anförnum árum, um það er
ekki deilt. En leiðréttingar
láta standa á sér.
18.12. | Lýður Árnason
Jólakveðja Steingríms
Í þinginu er heilt lögfræð-
ingastóð í fullri vinnu við að
breyta meiningu auðlinda-
ákvæðisins til samræmis
við þennan gjafagjörning.
19.12. | Jón Elvar Guðmundsson
Hlutverk rannsakenda og
saksóknara
Þarna hafa embætt-
ismennirnir farið svo hast-
arlega út af sporinu að ekki
verður orða bundist. Hvern-
ig má þetta vera?
19.12. | Akeem Cujo Oppong
Þetta sýnir hvernig
fordómarnir birtast í mönnum
og endurspeglast
Við heyrum bara tilgreint
um kynþátt þegar maðurinn
eða konan er upprunnin
annars staðar en á Íslandi
þó svo að einstaklingurinn
hafi búið á Íslandi allt sitt líf.
20.12. | Jón Kristjánsson
Ég ætla að kjósa Framsókn
Ég er einn af þeim sem
telja rétt að halda áfram
viðræðum um aðild að Evr-
ópusambandinu, ljúka
þeim og leggja síðan nið-
urstöðuna fyrir þjóðina.
22.12. | Halldór Guðmundsson
Harpa á tímamótum
Nú þegar hafa lagt leið sín
til landsins stórkostlegir
tónlistarmenn, sem ekki
hefðu komið fram á Íslandi
hefði Hörpu ekki notið við.
22.12. | Guðni Ágústsson
Jón Kristjánsson kýs
Framsókn eins og ég
Ég var ekki að ræða um
„hreinsanir“. Ég sagði hins
vegar að Framsóknarflokk-
urinn væri búinn að
hreinsa sig af ESB-
„draumnum“.
24.12. | Áróra Rós Ingadóttir
Sykur, tómar hitaeiningar?
Það er ekki hægt að segja
að einhver ein tegund syk-
urs sé hollari eða óhollari
en önnur. Best er að neyta
hans í hófi.
27.12. | Þorsteinn Sæmundsson
Lítið bréf til Guðna Ágústssonar
Í mínum eyrum og annarra
sem kynntust vinnubrögð-
um Svavars meðan hann
var ritstjóri Þjóðviljans,
hljóma þetta sem fáránleg-
ustu öfugmæli.
28.12. | Sóley Dröfn Davíðsdóttir
Svefn án lyfja
Alltof fáum er bent á að
nýta sér hugræna atferl-
ismeðferð (HAM) við svefn-
leysi.
29.12. | Indriði Aðalsteinsson
Guðinn sem brást
Aldrei hefur orðið vart við
að brotthvart þingmanna,
áhrifafólks eða þúsunda
okkar grasrótarfólks væri
S.J.S. neitt harmsefni,
frekar hitt að farið hafi nú fé betra.