Morgunblaðið - 31.12.2012, Side 40

Morgunblaðið - 31.12.2012, Side 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012 ✝ Ragnar FreyrOlsen fæddist í Reykjavík 9. júní 1991. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 27. nóvember 2012. Foreldrar hans eru Halldóra Stef- ánsdóttir, f. 15. júní 1972, og Karl Hin- rik Olsen, f. 11. ágúst 1971. Fóstur- og uppeldisfaðir Ragnars Freys er Freyr Jónsson, f. 19. sept- ember 1971. Systir Ragnars Freys er Tanja Rún Freysdóttir, f. 4. maí 2000. Foreldrar Hall- dóru eru Ágústa Jónasdóttir, f. 4. október 1953, og Stefán Hjaltason, f. 11. apríl 1953. For- eldrar Freys eru Guðný Alfreðs- dóttir, f. 17. janúar 1948, og Jón Krist- inn Haraldsson, f. 10. júní 1947. Unnusta Ragn- ars Freys er Martha Sif Jóns- dóttir, f. 27. maí 1991. Foreldrar Mörthu Sifjar eru Margrét Ósk Arnarsdóttir, f. 4. september 1972, og Tryggvi Eiríksson, f. 9. október 1971. Útför Ragnars Freys fór fram í Fossvogskapellu 7. desember 2012. Elsku Ragnar. Þegar okkur afa barst sú fregn að þú værir dáinn urðum við agndofa og sorgmædd. Bráðkvaddur aðeins 21 árs. Þú áttir allt lífið framundan, ástfanginn, trúlofaður og farinn að búa. Þetta sýnir okkur hvað lífið getur verið hverfult. Þú varst alltaf svo kátur, ljúfur og vildir allt fyrir alla gera. Það var sama við hvað þú vannst, varst hörkuduglegur og allir báru þér söguna vel. Systir þín og frændsystkini litu upp til þín enda varstu alltaf góður við þau. Þau eiga erfitt með að skilja að þú sért dáinn. Það ríkir mikil sorg hjá for- eldrum þínum, systur og hjá okkur öllum. Þín er sárt saknað. Þú varst flottur strákur. Við eig- um fullt af minningum um þig sem við yljum okkur við. Við elskum þig. Hvíl í friði. Amma Ágústa og afi Stefán. Það var rétt fyrir árslok árið 1990 að mamma kallaði á okkur bræður, þá 13 og 14 ára, inn í eldhús og sagðist hafa fréttir að færa okkur. Mikil alvara var í röddinni og vissum við ekki hvað við ættum von á því alvaran var svo mikil. Mamma sagði okkur loksins að Halldóra systir ætti von á barni. Mikil gleði og til- hlökkun vaknaði hjá okkur bræðrum við þessar óvæntu fréttir því Halldóra systir var aðeins 18 ára. Ragnar Freyr kom í heiminn í júní árið eftir og man ég hvað ég var ánægður með þennan litla frænda minn. Ekki leið á löngu þar til hann fluttist ásamt Hall- dóru systur heim til okkar og bjuggum við saman í þónokkurn tíma. Minningarnar eru margar frá þeim tíma enda mjög skemmtilegt að fá einn lítinn grallara á heimilið og vorum við Jonni bróðir duglegir að passa hann. Eitt skipti er mér mjög eftirminnilegt þegar við bræður vorum að reyna að fá Ragnar til að borða en áhuginn fyrir því að borða var ekki mikill hjá litla manninum. Við ákváðum því að skella spagettí í skál með slatta af tómatsósu og leyfa Ragnari að mata sig sjálfan. Úr þessu varð hið skemmtilegasta sýning enda Rangar glaður með að fá að borða sjálfur með höndunum þó svo að matur hafi farið á mun fleiri staði en bara upp í munn enda varð allt andlitið á Ragnari og nánasta umhverfi í tómat- sósu. Ragnar var skemmtilegur, hress og uppátækjasamur. Hann hafði mikinn áhuga á dýrum og vann á tímabili sem ungur ung- lingur í dýrabúð þar sem mikill áhugi var á að safna sér eðlum. Eðlusafnið varð nokkurt og fannst Valdimari syni mínum ansi gaman að koma og skoða eðlurnar hjá stóra frænda. Ófáar myndir eru til af þeim frændum saman og var Ragnar mjög góð- ur við litla frænda sinn enda mátti sjá aðdáunina í augunum á þeim litla. Ragnar vildi allt fyrir alla gera enda ljúfur og góður drengur. Komið er að leiðarlokum og finnst manni bæði óréttlátt og óskiljanlegt að ungur maður sé tekinn burt í blóma lífsins en eitthvað stærra og meira hlut- verk hefur beðið hans á öðrum stað. Ragnars er sárt saknað og yljum við okkur við minningarn- ar sem við eigum í hjartanu. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Sigurður Stefánsson. Elsku yndislegi Raggi minn, ég trúi ekki að þú sért farinn frá okkur. Þú varst svo ungur og áttir allt lífið framundan, þú og Martha með þessi frábæru plön um framtíð ykkar. Það er mikill missir að hafa misst þig frá okkur, og ég þakka fyrir alla þá tíma sem við áttum saman. Við vorum saman á erf- iðum og góðum tímum, en það sem skipti máli er að við vorum saman ég, þú, Þorkell og Martha. Gleymi aldrei þegar við ætluðum í sund ég og þú og fleiri. Þann daginn hugsa ég oft til í dag, og ég gleymi ekki þegar þið krakkarnir komuð að sækja mig í vinnuna og vinkona okkar var í svínabuning. Allt sem okk- ur datt í hug að gera var bara fáranlegt, en samt svo ótrúlega skemmtilegt. Það er alveg öm- urlegt að hafa misst þig Raggi, og ég veit að þín er sárt saknað af öllum. Ég man hláturinn þinn sem ég elskaði og röddin þín, þetta verður allt í minningum mínum að eilífu. Ég veit að þú ert stór missir fyrir Mörthu mína, sem elskar þig meira en allt. En við erum samt heppin af hafa fengið að eiga allan þann tíma með þér sem við höfðum, sem hefði getað verið lengur. Við vorum með svo mörg plön alltaf, skemmtileg plön. Þú varst alltaf til staðar fyrir mann og maður gat alltaf leitað til þín ef það var eitthvað. Ég talaði við þig jafn mikið og ég talaði við Mörthu, þegar ég hringdi þá hringdi ég ekkert bara í Mörthu, ég hringdi í Ragga og Mörthu, ég talaði við þig eins og vinkonu mína, þú varst náttúrulega besta vinkona mín líka eins og ég sagði við þig, þú varst alltaf einn af stelpunum líka. Það var alltaf hægt að segja þér allt, og þú varst nú ekki hræddur við að segja þínar skoðanir á hlutunum, það er það sem ég dýrkaði svo mikið við þig, líka var það að þú varst svo hreinskilinn, og góður. Reyndir að segja hlutina á fal- legan hátt, í staðinn fyrir að slá mann utan undir með orðum. Stundum þurftirðu nú að hrista mann til að láta mann fatta hvað maður var vitlaus, ég skil ekki að ég sé að skrifa minn- ingargrein um þig Raggi. Ég tal- aði við þig fyrir ekkert það löngu síðan í símann, og við spjölluðum um allt og ekkert í svona klukkutíma, og ég er svo fegin að ég talaði við þig í símann. Það var svo fyndið að tala við þig, þú sagðir alltaf svo skemmtilega frá hlutunum. Þú lifir í minningum mínum elsku Ragnar Freyr minn. Ég elska þig og sakna þín. Votta fallegu vinkonu minni Mörthu og fjölskyldu þinni sam- úð mína. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín vinkona, Guðrún María. Ragnar Freyr Olsen ✝ Elskuleg eiginkona mín, dóttir mín, móðir okkar og amma, BRYNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR, Kögurseli 4, Reykjavík, lést á líknardeild LSH þriðjudaginn 18. desember. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 4. janúar kl. 15:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarfélagið Göngum saman (www.gongumsaman.is eða sími Krabbameinsfélagsins: 540 1990). Þór Ottesen Pétursson, Ólafur Ingvarsson, Áslaug Þórsdóttir, Viktor Örn Guðlaugsson, Brynja Þórsdóttir, Bjarki Þórsson, Hallbjörn Eðvald Þórsson, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Hera Karín og Eydís Agla. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANN SVAVAR HELGASON, Blöndubakka 7, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar sunnudaginn 23. desember á hjúkrunarheimilinu Skjóli, Reykjavík. Jarðarförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 4. janúar kl. 13.00. Ellen Marie Sveins, Þorbjörg Rósa, Guðrún Ásta, Guðmundur Pálsson, Sveindís Anna, Arnar Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURVIN JÓNSSON matsveinn, er látinn. Útför hans verður gerð frá Áskirkju 3. janúar kl. 15.00. Oddný Lína Sigurvinsdóttir, Guðbjörn Magnús Sigurvinsson, Þórunn Einarsdóttir, Viktor Jón Sigurvinsson, Ólína Sverrisdóttir, Sigurvin Heiðar Sigurvinsson, Auður Auðunsdóttir, Jón Ásgeir Sigurvinsson, Elínborg Sturludóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, HANNES KRISTMUNDSSON, Borgarheiði 13h, Hveragerði, lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði þriðjudaginn 25. desember. Hann verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 5. janúar kl. 14.00. Sigurbjörg Gísladóttir, Kristmundur Stefán Hannesson, Sigurður Elí Hannesson, Helena Sif Ericson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KAREN GUÐLAUGSDÓTTIR frá Húsavík, lést á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, hinn 27. desember. Jarðarförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 5. janúar klukkan 14. Sigurlaug N. Þráinsdóttir, Guðbjörn B. Bjarnason, Jónína Sigurðardóttir, Ásgerður B. Sigurðardóttir, Páll G. Sigurðsson, Hanna Maídís Sigurðardóttir, Ólafur Jensson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÞÓR SIGURBJÖRNSSON, Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi, áður Suðurgötu 64, lést á Sjúkrahúsi Akraness 26. desember. Útförin auglýst síðar. Sigurður Villi Guðmundsson, Dagbjört Friðriksdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir, Bjarni Ásmunds, Vilhjálmur Þór Guðmundsson, Guðrún Jónsdóttir, Salvör Guðmundsdóttir, Stefán H. Stefánsson, Sigurbjörn Guðmundsson, Svandís Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BRYNJA GUNNARSDÓTTIR, Högsäter, Svíþjóð, lést á líknardeild Uddevalla Sjukhus 19. desember 2012. Bragi Antonsson, Kristjana Ingibjörg, Ólafur Guðjón, Thelma Björk, Hanna Hansson, Mathilda, Adele og Ellen. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, GUÐRÚN SAMÚELSDÓTTIR, Borgarbraut 52, Borgarnesi, sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 29. desember, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 5. janúar kl. 15.00. Halldór Sigurðsson, Guðmundur Skúli Halldórsson, Samúel Halldórsson, Guðbjörg Halldórsdóttir. Alltof seint frétti ég, að vinur minn og fyrrverandi félagi, Adólf Adólfsson, væri allur. Ekki er nema mánuður síðan við hittumst á förnum vegi og þá lék allt í lyndi að mér virtist. Nú þegar líður á ævikvöldið gerist það æ oftar að jafnaldrar manns hverfa óvænt yfir móð- una miklu. Sérstaka ástæðu sé ég til að minnast Adólfs, því að hann var einstakur öðlingur, hvers manns hugljúfi, einn þeirra sem alla tíð unnu starf sitt af hæversku og í kyrrþey en af samvizkusemi og vandvirkni. Við áttum samleið í starfi um 11 ára skeið, þegar hann var fulltrúi við sýslumannsembætti Þingeyinga og bæjarfógeta- embætti Húsavíkinga á árunum 1974 til 1985. Samstarf okkar var slíkt að þar bar aldrei fölskva á. Marga ferðina fórum við saman um stórbrotið landslag Þingeyjarsýslna í embættiser- Adólf Adólfsson ✝ Adólf Adólfs-son fæddist í Ólafsvík 4. janúar 1942. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 10. desember 2012. Útför Adólfs fór fram frá Neskirkju 20. desember 2012. indum, hvort held- ur var á sumardegi eða í ófærð á vetr- um, svo sem til Svalbarðseyrar, Grenivíkur, í Mý- vatnssveit, á Grímsstaði á Fjöll- um, á Kópasker, Raufarhöfn og Þórshöfn. Umdæmi sýslumannsemb- ættisins er frá yztu nesjum og inn til jökla jafnstórt Ísraelsríki. Adólf var ávallt reiðubúinn til að leysa hvers manns vanda og því einstaklega vel látinn af Húsvíkingum og öðrum Þing- eyingum. Má segja um hann eins og um annan góðan mann, að hann var bæði staðarbót og hýbýlaprýði. Í kaffistofunni var hann sólargeislinn sem létti fé- lögum sínum lundina. Á árinu 1985 skildi leiðir okkar, þegar ég fluttist til Akraness en hann til Bolung- arvíkur. En um okkur eins og svo marga aðra sem á yngri ár- um héldu til starfa úti á landi lágu leiðir að lokum aftur sam- an í suðvesturhorninu. Ég votta eftirlifandi eigin- konu, Moniku Magnúsdóttur og fjölskyldu þeirra, mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning hans. Sigurður Gizurarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.