Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 7
Nánari upplýsingar á rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Vaxtabætur einhleypinga og einstæðra foreldra byrja að
skerðast við nettóeign 4.000.000 kr. og falla niður þegar
hún nær 6.400.000 kr.
Vaxtabætur hjóna og sambúðarfólks byrja að skerðast
við nettóeign 6.500.000 kr. og falla niður þegar hún nær
10.400.000 kr.
Auðlegðarskattur
Á nettóeign einhleypings umfram 75 milljónir kr. og að
150 milljónum kr. og nettóeign hjóna umfram 100 milljónir
kr. og að 200 milljónum kr. er lagður 1,5% auðlegðarskattur.
Á nettóeign umfram 150 milljónir kr. hjá einhleypingi og
200 milljónir kr. hjá hjónum er lagður 2% auðlegðarskattur.
Auðlegðarskattur er ekki lagður á félög.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%.
Frítekjumark vegna vaxtatekna er 100.000 kr. á mann.
Frítekjumark vegna leigutekna manna af íbúðarhúsnæði
er 30% af leigutekjum.
Frítekjumark gildir ekki um arð, söluhagnað og leigutekjur
af öðru en íbúðarhúsnæði.
Gjald í framkvæmdasjóð
aldraðra
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra er 9.604 kr. á einstak-
linga sem fæddir eru 1943 og síðar og eru með tekjur yfir
1.495.407 kr. á ári. Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs.
Útvarpsgjald
Útvarpsgjald er 18.800 kr. á einstaklinga sem fæddir eru
1943 og síðar og eru með tekjur yfir 1.495.407 kr. á ári.
Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs.
Skattlagning lögaðila
Tekjuskattur hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnu-
félaga er 20% við álagningu 2013.
Tekjuskattur annarra lögaðila er 36% og gildir það m.a. um
sameignar- og samlagsfélög, þrotabú og dánarbú.
Virðisaukaskattur
Almennt skattþrep ................................................... 25,5%
Sérstakt skattþrep .................................................... 7,0%
Nýtt skattþrep á gistingu (frá 1. 9. 2013)........... 14,0%
Aðilar með rekstur undir 1.000.000 kr. á hverju 12 mánaða
tímabili eru undanþegnir skráningarskyldu á virðisauka-
skattsskrá.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts
Á árinu 2013 verður framhaldið 100% endurgreiðslu á
virðisaukaskatti vegna vinnu við byggingu, endurbætur og
viðhald á íbúðar- og frístundahúsnæði til eigin nota.
bætur
Skilafrestur á launamiðum og öðrum gögnum vegna framtals 2013 er til 30. janúar.
Sé skilað á rafrænu formi lengist fresturinn til 10. febrúar.