Morgunblaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 7
Nánari upplýsingar á rsk.is 442 1000 Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is Vaxtabætur einhleypinga og einstæðra foreldra byrja að skerðast við nettóeign 4.000.000 kr. og falla niður þegar hún nær 6.400.000 kr. Vaxtabætur hjóna og sambúðarfólks byrja að skerðast við nettóeign 6.500.000 kr. og falla niður þegar hún nær 10.400.000 kr. Auðlegðarskattur Á nettóeign einhleypings umfram 75 milljónir kr. og að 150 milljónum kr. og nettóeign hjóna umfram 100 milljónir kr. og að 200 milljónum kr. er lagður 1,5% auðlegðarskattur. Á nettóeign umfram 150 milljónir kr. hjá einhleypingi og 200 milljónir kr. hjá hjónum er lagður 2% auðlegðarskattur. Auðlegðarskattur er ekki lagður á félög. Fjármagnstekjuskattur Skattur á fjármagnstekjur er 20%. Frítekjumark vegna vaxtatekna er 100.000 kr. á mann. Frítekjumark vegna leigutekna manna af íbúðarhúsnæði er 30% af leigutekjum. Frítekjumark gildir ekki um arð, söluhagnað og leigutekjur af öðru en íbúðarhúsnæði. Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra er 9.604 kr. á einstak- linga sem fæddir eru 1943 og síðar og eru með tekjur yfir 1.495.407 kr. á ári. Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs. Útvarpsgjald Útvarpsgjald er 18.800 kr. á einstaklinga sem fæddir eru 1943 og síðar og eru með tekjur yfir 1.495.407 kr. á ári. Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs. Skattlagning lögaðila Tekjuskattur hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnu- félaga er 20% við álagningu 2013. Tekjuskattur annarra lögaðila er 36% og gildir það m.a. um sameignar- og samlagsfélög, þrotabú og dánarbú. Virðisaukaskattur Almennt skattþrep ................................................... 25,5% Sérstakt skattþrep .................................................... 7,0% Nýtt skattþrep á gistingu (frá 1. 9. 2013)........... 14,0% Aðilar með rekstur undir 1.000.000 kr. á hverju 12 mánaða tímabili eru undanþegnir skráningarskyldu á virðisauka- skattsskrá. Endurgreiðsla virðisaukaskatts Á árinu 2013 verður framhaldið 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu við byggingu, endurbætur og viðhald á íbúðar- og frístundahúsnæði til eigin nota. bætur Skilafrestur á launamiðum og öðrum gögnum vegna framtals 2013 er til 30. janúar. Sé skilað á rafrænu formi lengist fresturinn til 10. febrúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.