Morgunblaðið - 12.01.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Það er heldur betur líf ogfjör þar sem 20 mæðurkoma saman með börninsín sem flest eru fædd í
apríl og maí 2012. Kristjana Páls-
dóttir, gestgjafi dagsins hjá
mömmuklúbbnum Vormömmum, er
enn með nokkra gesti hjá sér þegar
blaðamaður slær á þráðinn til henn-
ar seinnipart dags. En hópurinn
hittist á hverjum þriðjudagsmorgni
klukkan 11.
Vorbörn og mæður
„Það er sérstaklega mikið fjör
hjá okkur núna þegar þau eru farin
að hreyfa sig svona mikið og eru
þar með út um allt. Ég bý í tveggja
hæða húsi og nú verður ein orðið að
sitja í stiganum svo þau komist ekki
upp. Það hefur ekki þurft hingað til.
Fyrstu börnin eru fædd um miðjan
mars í fyrra og síðasta 10. júlí en
við köllum okkur vormömmur því
flest börnin eru fædd í apríl og
maí,“ segir Kristjana. Í hópnum eru
alls 30 mömmur og 31 barn þar sem
einir tvíburar eru í hópnum. Sjálf á
Kristjana tvö börn og eiga flestar
mæðurnar í hópnum tvö börn eða
þrjú þó aðeins sé hist með þau
yngstu.
Stuðningur hver af annarri
Hugmyndin að hópnum var
fyrst borin fram á Barnalandi og
var hann formlega stofnaður í nóv-
ember 2011. Mæðurnar hafa hist
síðan í janúar 2012 og hafa þær
samband hver við aðra í gegnum
lokaðan Facebook-hóp. Konunum
þótti þægilegra að vera á svipuðum
aldri og því var inntökuskilyrðið það
að mæðurnar væru komnar yfir þrí-
tugt. Þær þekktust ekki áður en
hópurinn var stofnaður þó ein-
hverjar hafi kannast hver við aðra.
„Það er náttúrlega frábært ef
vinkonur manns eru að eignast börn
á sama tíma en það er auðvitað ekki
Vormömmur með
stóran barnahóp
Mömmuhópurinn Vormömmur hittist á hverjum þriðjudagsmorgni. Það er sann-
arlega líf og fjör þar sem allt að 30 mömmur koma saman með börn sín en í hópn-
um eru einir tvíburar. Börnin eru flest fædd síðastliðið vor og eru nú að verða
komin á fulla fart sem eykur nokkuð umfang hópsins en mömmurnar leggja allar
til veitingar á borð og sitja svo og spjalla saman og leika við ungviðið.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mæðgur Kristjana Pálsdóttir og dóttirin Hanna Rún Einardóttir.
Vinir Börnunum kemur vel saman að leika sér en flest eru fædd vorið 2012.
Á vefsíðunni www.taste.com.au má
finna ýmiskonar uppskriftir að góðum
heimilismat og þessa dagana má þar
finna rétti sem henta vel þessum árs-
tíma. Við viljum helst liggja í híði og þar
af leiðandi borða eitthvað sem lætur
okkur líða vel. Á síðunni er meðal ann-
ars gefin uppskrift að svokölluðu „cot-
tage pie“ sem kalla má smalaböku á ís-
lensku. En bakan sú er hakkréttur
gerður í fati og kartöflumús sett ofan á.
Saman við nautahakk er blandað lauk,
gulrót, selleríi, niðursoðnum tómötum
og ýmsum kryddum en ofan á er sett
kartöflumús og ostur. Góður réttur til
að eiga í ísskápnum og hita upp á leti-
legu kvöldi.
Vefsíðan www.taste.com.au
Smalabaka Letilega útgáfan þarf ekki að vera svona sparileg þó hún sé falleg.
Smalabaka fyrir letingja
Þegar svo vel viðrar sem nú í höfuð-
borginni og engan snjó er að sjá er
um að gera að taka fram hjólfákinn.
Hann þarf jú ekki endilega að rykfalla
í geymslunni þangað til í vor. Kannski
er þetta ekki akkúrat árstíminn til að
láta sér detta í hug að fara í hjólatúr
en það er ekkert sem mælir gegn því
þó það blási dálítið. Klæddu þig eftir
veðri og vindum og prófaðu að hjóla í
það minnsta út í búð eða kannski í
sund. Það er mjög gott að fríska sig
dálítið í skammdeginu og sérstaklega
eftir jólin þegar líkamshreyfingin hjá
mörgum hefur einskorðast við að
lyfta skeið eða glasi að vörum sér.
Endilega…
…skelltu þér í hjólatúr
Morgunblaðið/RAX
Frískandi Vel er hægt að hjóla þessa dagana.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
SUMT MÁ
HELST EKKI
VANTA!
Íslensk getspá er öflugur ba
khjarl
íþrótta- og ungmennafélags
hreyfingarinnar
og öryrkja á Íslandi.
Allir vinna þegar þú tekur
þátt.
Leyfðu þér smá Lottó.
LOTTÓRÖÐIN HÆKKA
R
Vegna verðlagsþróunar und
anfarinna ára
hefur Lottóröðin hækkað og
kostar nú 130 kr.
Sú hækkun skilar sér að sjá
lfsögðu í hækkun
vinninga í öllum vinningsflo
kkum.
WWW.LOTTO.IS
Íslensk getspá er í eigu Íþrótta- og Ólympíusamba
nds Íslands,
Öryrkjabandalags Íslands og Ungmennafélags Ísla
nds.
Rétt er að minna þá sem búa í ná-
grenninu eða verða í bústað á svæð-
inu yfir helgina að HM handbolta-
stemmning verður í Réttinni í Úthlíð í
dag. En kl. 16.55 mætast Íslendingar
og Rússar í handboltaleik sem án efa
verður hörkuspennandi
Einnig verður enski boltinn á dag-
skrá á laugardag og verður Réttin
opnuð klukkan 12 en þar er hægt að fá
sér gott í gogginn og fylgjast með
„Strákunum okkar“.
Strákarnir
okkar í beinni
Handbolti Fylgist með HM í beinni.
HM í Réttinni