Morgunblaðið - 12.01.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég hef velt því mikið fyrir mér hvað
vaki fyrir þeim. Annaðhvort mis-
skilja þeir einfaldlega hvað er sagt í
skýrslunni, sem er ekki gott þegar
prófessorar eru á ferð, þá sérstak-
lega í stjórnmálafræði. Hin skýring-
in er að þeir eru blása þetta upp í
pólitískum tilgangi til að keyra til-
löguna í gegn, segir Indriði H. Ind-
riðason, dósent í stjórnmálafræði við
Kaliforníuháskóla, Riverside.
Tilefnið er þau ummæli fræði-
mannanna Svans Kristjánssonar,
prófessors í stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands, og Þorvaldar Gylfa-
sonar, prófessors í hagfræði við
sama skóla, að úttekt þriggja virtra
erlendra fræðimanna á frumvarpi
stjórnlagaráðs sé á jákvæðum nótum
og þar með gæðastimpill á það.
Hefur Eiríkur Bergmann Einars-
son, prófessor við Háskólann á Bif-
röst, tekið í svipaðan streng.
Halda að fólk lesi ekki skjalið
Indriði gagnrýnir þessa túlkun.
„Íslensku fræðimennirnir eru í
raun og veru að kasta ryki í augu
fólks með því að halda því fram að
hér séu heimsfrægir erlendir fræði-
menn að viðra tiltekin sjónarmið.
Þeir virðast gera ráð fyrir því að ís-
lenskur almenningur lesi ekki
skýrsluna nákvæmlega heldur taki
orð þeirra um hana gild. Þetta er
ekki sérlega heiðarlegt. Það er leitt
að þurfa að segja það.“
Erlendu fræðimennirnir sem
Indriði vísar til heita Zachary Elk-
ins, dósent við Texas-háskóla, James
Melton, lektor í sömu grein við Uni-
versity College London, og Tom
Ginsburg, lagaprófessor við Chi-
cago-háskóla.
Eftir því sem komist verður næst
gerðu þremenningarnir úttekt á ís-
lenska stjórnarskrárfrumvarpinu að
eigin frumkvæði en þeir bera saman
stjórnarskrár í fræðum sínum.
Indriði telur stjórnarskrárfrum-
varpið fela í sér forsetaþingræði sem
fari miðja vegu milli Frakklands og
Írlands og tekur aðspurður undir
með Ólafi Ragnari Grímssyni, for-
seta Íslands, að það feli í sér stjórn-
skipan sem sé líklega einsdæmi á
Vesturlöndum. Indriði lýsir greinar-
gerð erlendu fræðimannanna svo:
„Rannsóknir þeirra á stjórnar-
skrám taka einkum á tveim hlutum.
Í fyrsta lagi fara þeir yfir stjórnar-
skrár víða um heim og telja upp þau
atriði sem getið er um í þeim. Þeir
horfa til þeirra réttinda sem eru til
staðar, hvaða formlegu reglur lúta
að þingum og þar fram eftir götun-
um. Í öðru lagi tengja þeir greiningu
sína við spurninguna hversu lengi
stjórnarskrár endast. Fræðimenn-
irnir horfa þannig á afmarkaðan hlut
og taka til dæmis ekki á réttinum til
þjóðaratkvæðagreiðslna, hvernig
kosningakerfið verður eða hvert vald
forsetans mun verða. Þeir taka enga
afstöðu til þess hvort fyrirkomulag á
þessum þáttum er gott eða slæmt.
Í raun og veru útskýra þeir ekki
hvaða áhrif nýja stjórnarskráin hefði
á stjórnskipan,“ segir Indriði og tek-
ur dæmi af tillögu um persónukjör.
Fyrirgreiðslan vandamál
„Ég held að kosningakerfið breyt-
ist ekki sérlega mikið taki nýja
stjórnarskráin gildi. Það hefur enda
verið formlegt persónukjör á Íslandi
í gegnum forvöl flokkanna. Að því
leyti er verið að færa prófkjörin inn í
kosningarnar sjálfar.
Ég tel hins vegar að hugmyndin
um persónukjör sé ekki mjög góð
vegna þess að fyrirgreiðsla hefur
alltaf verið mikilvæg á Íslandi og
spilling verið töluverð í gegnum tíð-
ina. Það hefur að hluta til verið til-
komið af því að þingmenn hafa þurft
að taka sérhagsmuni til greina til að
vinna prófkjör.
Sé litið svo á að vandamálið í ís-
lenskum stjórnmálum sé spilling og
fyrirgreiðsla hefði verið athyglisvert
eða umhugsunarvert að skoða kosn-
ingakerfi sem draga úr þessum þátt-
um. Ég hefði því viljað sjá nánari
umfjöllun um aðra hugsanlega
möguleika og hverjir kostir og gallar
þeirra eru. Það sama gildir um
þjóðaratkvæðagreiðslur.
Ég hygg að hugmyndin um
þjóðaratkvæðagreiðslu, eða réttinn
til að kalla til þeirra, sé við fyrstu sýn
mjög jákvæð. Það er jafnan góð hug-
mynd að leita til þjóðarinnar og
spyrja hvað fólkið vill. Það kerfi hef-
ur hins vegar annmarka. Það eru
ákveðnar kröfur um hvenær kalla
megi eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Kröfur um undirskriftir skapa það
misræmi að samtök sem hafa mikið
fjármagn að baki sér eiga auðveldara
með að koma þjóðaratkvæða-
greiðslum af stað og afla málum sín-
um stuðnings, nokkuð sem er þekkt
vandamál hér í Kaliforníu.
Þá skapa þær skrítna hvata fyrir
þingmenn, enda geta þeir nýtt sér
þjóðaratkvæðagreiðslur til að forða
sér frá því að taka erfiðar ákvarð-
anir. Um leið verður erfiðara að gera
þingmenn ábyrga en ein hugmyndin
að baki persónukjöri er einmitt sú að
þá sé auðveldara að halda þingmenn
ábyrgari fyrir gjörðum þeirra.“
Að mörgu leyti aðdáunarvert
„Það er ekkert við rannsókn
þeirra að athuga en markmiðin eru
allt önnur en haldið er fram á Ís-
landi. Það er rétt hjá Þorvaldi, Svani
og fleirum að lokaorð erlendu fræði-
mannanna eru jákvæð að því leyti að
þeim finnst ferlið við gerð stjórnar-
skrárfrumvarpsins á margan hátt
áhugavert og aðdáunarvert. Ég er í
raun og veru alveg sammála því. En
samskipti mín við Zachary Elkins
staðfesta að í skýrslu sinni tóku þeir
á engan hátt heildstæða afstöðu til
innihalds tillagnanna,“ segir Indriði
sem telur stjórnlagaráð hafa átt að
skoða fræði um stjórnskipun betur.
„Kasta ryki í augu fólks“
Ljósmynd/Kaliforníuháskóli
Dósent Um 21.000 nemendur eru við skólann sem Indriði kennir við.
Dósent við Kaliforníuháskóla gagnrýnir túlkun fræðimanna á erlendri umsögn um stjórnlagadrög
Rangt að umsögnin sé gæðastimpill Telur framgöngu íslenskra fræðimanna ekki vera heiðarlega
Þorvaldur Gylfason, prófessor í
hagfræði við Háskóla Íslands, sat í
stjórnlagaráði. Hann segir erlenda
fræðimenn hafa lofað frumvarpið.
„Erlendir fræðimenn hafa lokið
lofsorði á frumvarpið, bæði inntak
þess og aðferðina við að koma því
saman,“ skrifar Þorvaldur í pistl-
inum Bráðum fjögur ár á vef DV.
Í tveim fyrri bloggfærslum vitn-
aði Þorvaldur svo í skýrslu erlendu
fræðimannanna sem Indriði gerir
að umtalsefni. Vísar Þorvaldur til
umsagnar „þriggja heimsfrægra
prófessora“. En aðeins einn þre-
menninganna er prófessor.
Svanur Kristjánsson prófessor
vitnaði í skýrslu þremenninganna í
Sunnudagsspjallinu á Rúv 6. janúar
sl. með þessum orðum: „Niður-
staðan er einfaldlega sú að það sé
til fyrirmyndar hvernig þetta hafi
verið unnið … Þannig að við erum
með gæðastimpil á þessa stjórnar-
skrá frá bestu fræðimönnum í
heiminum,“ sagði Svanur m.a.
Vísa til lofs fræðimanna
PRÓFESSORAR VIÐ HÍ VITNA Í SKÝRSLUNA
Skannaðu kóð-
ann til að lesa
erlendu greinina
Gott fyrir magann – gott fyrir heilsuna
Um 70% af ónæmiskerfinu á upptök sín í meltingarkerfinu og
þvi mikilvægt heilsunni að hugsa vel um magann. Góðir gerlar
gegna þar stóru hlutverki, þeir hindra vöxt skaðlegra baktería
og stuðla að heilbrigðri þarmaflóru. Það hjálpar okkur að
viðhalda góðri heilsu og verjast meltingaróþægindum.
Gæðin skipta máli. Það er nauðsynlegt að góðu gerlarnir séu enn lifandi þegar þeir koma að réttum stað í meltingarveginum þar sem
þeirra er þarfnast – þörmunum. Þess vegna er sérstakri tvöfaldri húðunaraðferð beitt í VITAMIONX PRO sem verndar gerlana gegn
magasýrum og galli. Það hjálpar þeim að lifa af ferðalagið að þörmunum og vera þar virkir og gagnlegir. Til að varðveita innihaldið enn
betur er VITAMINOX PRO töflunum pakkað í þynnupakkningu.
Allt í einni töflu !
12 vítamín + 8 steinefni
+ milljarðar góðra gerla fyrir magann
VITAMINOX PRO
fæst í apótekum
og heilsubúðum
www.brokkoli.is
VITAMINOX PRO
VITAMINOX PRO – öflugt og þægilegt
• Til að styrkja ónæmiskerfið og stuðla að betri heilsu
• Til að bæta meltinguna og auka upptöku næringarefna
• Til að koma jafnvægi á bakteríuflóruna í meltingarveginum
NÝTT!MÖGNUÐSAMSETNING
Fundurinn verður haldinn í Lögbergi stofu 102 í Háskóla
Íslands, mánudaginn 14. janúar nk. frá kl. 12:00-13:00.
Gestir í pallborði verða:
Sema Erla Serdar
verkefnastýra hjá Já - Ísland
Gunnlaugur Snær Ólafsson
upplýsingafulltrúi Heimssýnar
Jens Kihl
formaður stúdenta gegn ESB - aðild í Noregi.
Allir velkomnir
Ísafold
félag ungs fólks gegn ESB-aðild og
Herjan
félag stúdenta gegn ESB-aðild
boða til málfundar