Morgunblaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013 Borgartún • Fákafen • Hæðasmári www.lifandimarkadur.is OKKAR LOFORÐ: Lífrænt og náttúrulegt Engin óæskileg aukefni Persónuleg þjónusta Heilsusprengja Heilsan í fyrirrúmi árið 2013! 20% afsláttur af öllum NOW bætiefnum fimmtudag til sunnudags 20% afsláttur! Yfir 200 tegundir! STUTTAR FRÉTTIR ● Fjöldi erlendra ferðamanna á síðast- liðnu ári fór í fyrsta sinn yfir tvöfaldan fjölda þjóðarinnar. Fór landið þar með yfir í lítinn hóp þjóða sem geta státað af því að ferðamannafjöldinn sé svo mikill miðað við fólksfjölda. Heildarfjöldi er- lendra ferðamanna sem komu til lands- ins á síðastliðnu ári var 670 þúsund samkvæmt áætlun Íslandsbanka, en tölur fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins liggja fyrir. Fólksfjöldinn er nú sam- kvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar ríflega 322 þúsund og hlutfallið milli fjölda erlendra gesta og fólksfjölda í landinu því komið í 2,1, segir í Morg- unkornum Íslandsbanka. Fyrir áratug fór fjöldi erlenda ferðamanna hingað yf- ir fólksfjöldann í landinu. Íslendingar í minnihluta ● Reglugerð Evrópusambandsins um hámarksverð til neytenda á farsíma- notkun innan Evrópu hefur tekið gildi á evrópska efnahagssvæðinu öllu og nær nú einnig til viðskiptavina íslenskra far- símafyrirtækja. Miða á hámarksverðið við opinbert gengi íslensku krónunnar gagnvart evru samkvæmt skráningu Seðlabanka Íslands tveimur, þremur og fjórum mánuðum fyrir daginn sem nýja verðið á að öðlast gildi, segir í tilkynn- ingu. Hámarksverð á símtöl- um tekur gildi Fjárfestingasjóðir undir stjórn Stefnis, dótturfélags Arion, juku við hlut hlut sinn í fasteignafélag- inu Regin fyrir 550 milljónir króna fyrir tveimur dögum. Sjóð- irnir eiga nú 8,54% hlut í félaginu og nemur markaðsvirðið 1,4 millj- örðum króna. Þetta kemur fram í flöggunartilkynningu til Kaup- hallarinnar. Um er að ræða fjárfestingasjóð- ina Stefni ÍS 15, Stefni ÍS 5 og Stefni Samval. Stefnir á ekki beinan hlut í félaginu, heldur er eignarhluturinn í eigu sjóðs- félaga. Tilkynnt var í byrjun ársins að sjóðir á vegum Stefnis hefðu keypt í Marel fyrir um milljarð. Eftir kaupin nam hlutur sjóða rekstrarfélagsins 5,47%. Reginn var skráður á hluta- bréfamarkað síðasta sumar og á m.a. Smáralind og Egilshöll. Landsbankinn er stærsti hluthafi Regins með 25% hlut. Morgunblaðið/Kristinn Bjallan glymur Helgi Gunnarsson, forstjóri Regins, hringir inn viðskiptin þegar fyrirtækið var skráð á hlutabréfamarkað í sumar. Sjóðir Stefnis kaupa í Regin  Ráða yfir 8,5% í fasteignafélaginu FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Aðeins þrjú ríki á evrusvæðinu – Grikkland, Írland og Kýpur – voru með lægra fjárfestingastig en Ísland á árinu 2012. Miðað við áætlaðar hagtölur fyrir síðasta ár þá verður heildarfjármunamyndun í íslenska hagkerfinu 14,9% sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Það er tæp- um fjórum prósentum lægra en að meðaltali hjá þeim 17 ríkjum sem eru í evrópska myntbandalaginu. Orri Hauksson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnarins, segir í sam- tali við Morgunblaðið að það sé um- hugsunarefni hversu hægt hefur miðað í þá átt að ná fjárfestingu í það sem mætti kalla eðlilegt horf eftir hrun bankakerfisins árið 2008. „Við náðum botninum mun fyrr en evru- ríkin og því mætti ætla að fjárfesting væri meiri hérlendis en að meðaltali á evrópska myntsvæðinu.“ Hann bendir einnig á að jafnvel í venjulegu árferði, þegar horft sé framhjá öllum skammtímaáhrifum efnahagshrunsins, þá ætti Ísland hvort eð er að vera með hátt fjárfest- ingastig. „Við erum ung og fámenn þjóð, í hlutfallslega stóru landi, með meiri innflutning og útflutning en flestar aðrar þjóðir miðað við efna- hagsumsvif. Því hefði verið gráupp- lagt að ráðast í fjárfestingar til að auka útflutningsgetu fyrirtækja á meðan raungengið var jafn lágt. Þess í stað misstum við af því tæki- færi og raungengið hefur nú hækkað vegna nafnlaunahækkana og í kjöl- farið verðbólgu.“ Árlegur hagvöxtur á síðustu tveimur árum hefur verið um 2,5%, sem er með því mesta sem mælst hefur á meðal ríkustu þjóða heims. Hagfræðingar hafa þó bent á að sá vaxtarkippur, sem hefur einkum verið leiddur áfram af aukinni einka- neyslu, verði ekki langvinnur nema til komi stórauknar fjárfestingar í útflutningsgreinum landsins. Hugmyndafræðilegt reiptog Orri segir að það sé vissulega rétt að íslenska krónan og fjármagnshöft hafi ekki hjálpað til við að efla fjár- festingu í hagkerfinu eftir hrun bankakerfisins. „Veigameiri ástæða er hins vegar stefna stjórnvalda. Í fyrsta lagi með því að leggja áherslu á að standa í hugmyndafræðilegu reiptogi við mikilvægustu útflutn- ingsatvinnuvegi okkar – sjávarútveg og orkuiðnað. Í öðru lagi vegna tíðra og handahófskenndra breytinga á skattkerfinu. Sökum þessa hefur besta ákvörðun fjárfesta ávallt verið að bíða með ákvörðun.“ Sú staðreynd að Ísland er eftirbát- ur nánast allra ríkja á evrusvæðinu, sem mörg hver hafa glímt við djúp- stæða ríkisfjármála- og skulda- kreppu frá árinu 2010, þegar kemur að fjárfestingu í hagkerfinu – fjórum árum eftir fall fjármálakerfisins – er því fyrst og fremst heimatilbúinn vandi, að mati Orra. „Það er mjög grátlegt – og í raun algjör óþarfi – að við skulum ekki hafa nýtt allan þenn- an tíma til að leggja grunn að því að efla útflutningsgetu þjóðarbúsins.“ Vantar 90 milljarða Þjóðhagsspá Seðlabankans frá því í nóvembermánuði síðastliðnum ger- ir ráð fyrir aðeins 5,3% vexti í fjár- festingu á þessu ári og að fjármuna- myndun, sem hlutfall af landsframleiðslu, verði 15,3% í árs- lok. Það er ekki síst lítill vöxtur í at- vinnuvegafjárfestingu – eingöngu 2% – sem er ástæða þessa. Samhliða gerð kjarasamninga í maí 2011 settu stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar- ins sér það markmið að koma fjár- festingum í 20% í árslok 2013, en frá árinu 1980 hefur fjárfesting í ís- lenska hagkerfinu að meðaltali verið um 21% af landsframleiðslu. Ljóst er að fjárfesting þyrfti að vera tæplega fimm prósentum meiri ætti markmið kjarasamninga að nást. Til að setja þá tölu í samhengi nemur hver prósentuaukning í fjár- festingu um 18,5 milljörðum miðað við áætlaða landsframleiðslu á þessu ári. Fjárfesting verður því tæplega 90 milljörðum minni á þessu ári en lagt var upp með í kjarasamningum sumarið 2011. Fjárfesting á Íslandi langt undir meðaltali evruríkja  Aðeins þrjú evruríki með lægra fjárfestingastig en Ísland á síðasta ári Heimild: Hagstofan, Seðlabanki Íslands og Eurostat. Tölur fyrir árið 2012 eru áætlaðar. 40 35 30 25 20 15 10 5 0 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 34,5 36 30,6 27,1 22,6 22,3 21,3 14,9 24,9 19,3 9,7 14 16,1 18,6 Eftirbátar flestra evruríkja Heildarfjárfesting sem hlutfall af landsframleiðslu (%) Ísland Eistland Spánn Írland Grikkland Portúgal Meðaltal Evruríkja Þrjú ríki fjárfestu minna » Miðað við áætlaðar tölur var fjárfesting á Íslandi 14,9% af landsframleiðslu á síðasta ári – en það er um fjórum prósent- um minna en að meðaltali á evrusvæðinu. Aðeins þrjú evru- ríki fjárfestu minna en Ísland. » Orri Hauksson, fram- kvæmdastjóri SI, segir að í ljósi þess að Ísland hafi náð botn- inum mun fyrr en evruríkin þá ætti fjárfesting á Íslandi að öllu eðlilegu að vera meiri í dag en á evrusvæðinu. » Spáð 90 milljörðum minni fjárfestingu 2013 en stefnt var að í kjarasamningum.                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-.,, ,/0.01 +1/.1+ ,,.23+ ,1.+,2 +3.03- +13.-4 +.44+2 +30.-2 +2/./2 +,-.51 ,/2.+1 +1/.03 ,,.-5- ,1.+35 +3.250 +4/.,1 +.4453 +32.40 +2/.55 ,11.+55- +,-.-4 ,/2.01 +1+./2 ,,.3,5 ,1.,01 +3.-+4 +4/.0, +.45/+ +3-./5 +2+./1 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.