Morgunblaðið - 12.01.2013, Page 37

Morgunblaðið - 12.01.2013, Page 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013 ✝ Sæunn Sigríð-ur Guðjóns- dóttir fæddist 3. júlí 1936 að Kambi í Árneshreppi. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja í Keflavík 31. desember síð- astliðinn. Foreldrar henn- ar voru Vilhelmína Pálína Sæmunds- dóttir f. 18. júní 1913 að Kambi, d. 30. maí 2003 og Guðjón Guð- mundsson f. 18. mars 1916 að Bæ á Selströnd, d. 21. nóv. 2010. Foreldrar Vilhelmínu voru hjónin Kristín Jónsdóttir og Sæmundur Guðbrandsson að Kambi. Foreldrar Guðjóns voru hjónin Ragnheiður Halldórs- dóttir og Guðmundur Guð- mundsson að Bæ á Selströnd. Bræður Sæunnar: Sævar f. 1. des. 1937, d. 27. jan. 1992, Birg- ir f. 27. júlí 1940, Guðmundur Heiðar f. 29. maí 1945, d. 26. des. 2009, Björn Guðni f. 20. móður sinni við hússtörfin og umönnun yngri systkina. 17 ára fluttist hún til Reykjavíkur eins og svo margir aðrir í atvinnu- leit. Þar kynntist hún Reyni, eiginmanni sínum. Fyrstu árin bjuggu þau að Laugavegi 74 en eftir að fyrsta barn þeirra fæddist fluttu þau að Knarr- arnesi, æskuheimili Reynis. Ár- ið 1958 byggðu þau sitt reisu- lega hús að Hafnargötu 28 í Vogum og bjuggu þar til ársins 2003 þegar þau festu kaup á nýju húsi að Hvammsgötu 4 í Vogum. Sæunn stundaði ýmis störf um ævina meðfram hús- móðurstarfinu, lengst af þó í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en síðustu starfsárin við Grunn- skólann í Vogum. Í frítíma var hún sívinnandi, afbragðs hand- verkskona, og þær eru ófáar lopapeysurnar sem hún hefur hannað og prjónað og prýða jafnt Íslendinga og erlenda ferðamenn. Þess utan var hún mjög virk í félagsstarfi, sér- staklega í Kvenfélaginu Fjólum í Vogum. Ekki ber síst að nefna alla umhyggju hennar fyrir börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum. Sæunn Sigríður verður jarð- sungin frá Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd í dag, 12. jan- úar 2013, kl. 14. okt. 1950. Þann 1. júlí 1956 giftist Sæ- unn Reyni Brynj- ólfssyni frá Knarr- arnesi á Vatnsleysuströnd. Foreldrar hans voru hjónin Mar- grét Þórarinsdóttir frá Höfða og Brynjólfur Brynj- ólfsson frá Reykja- vík. Sæunn og Reynir eignuðust 4 börn. Vigdís Elísabet f. 29. sept. 1954, Guðjón Vilhjálmur f. 9. jan. 1960, Ragnheiður f. 4. okt. 1962 og Ríkharður Vignir f. 16. feb. 1966. Barnabörn þeirra eru 12 talsins og barnabarnabörn 13. Þriggja ára fluttist Sæunn með foreldrum sínum og Sæv- ari bróður sínum að Bæ á Sel- strönd en árið 1943 flutti fjöl- skyldan í nýja húsið í Bakkagerði. Þar ólst hún upp og sinnti sem barn og ungling- ur öllum venjulegum sveita- störfum ásamt því að hjálpa Við systkinin kveðjum þig, elsku mamma, eftir erfið veik- indi. Við erum óendanlega þakklát að hafa átt þig fyrir mömmu. Við viljum þakka þér allan þann kærleik, stuðning og gæsku, sem þú hefur sýnt okk- ur og fjölskyldum okkar alla tíð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Hvíl í friði, elskuleg. Vigdís Elísabet, Guðjón, Ragnheiður og Ríkharður. Ég minnist tengdamóður minnar með sorg í hjarta og þakklæti í huga. Þakklæti fyrir það að fá að kynnast henni. Ég minnist hennar fyrir fallegt heimili, hjálpsemi, myndarskap og dugnað. Minnist hennar fyr- ir það að gefa börnunum okkar, Einari og Tinnu, svo margt sem þau munu búa að alla ævi. Það er svo margs að minnast. Guð blessi minningu Sæunnar S. Guðjónsdóttur. Elsku Reyn- ir tengdafaðir minn, Elísabet, Ragnheiður, Guðjón, Ríkharð- ur og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu sam- úð. Hallgrímur Einarsson. Elsku amma okkar. Fyrsta minning okkar um ömmu er að vera í pössun á Hafnargötu 28 að horfa á Tomma og Jenna. Á Hafnargötunni lærðum við ým- islegt, meðal annars allt um kleinubakstur. Við vildum ólm fá að hjálpa til. Við vorum ekki stærri en það að við þurftum að standa uppi á stól til þess að ná upp á borðið. Við erum alveg viss um að þú hafir haft gaman af að fá hjálp okkar, vegna þess að áhuginn var ósvikinn. Mikið rosalega var þetta gaman og uppskeran ennþá skemmtilegri, glænýjar Sæunnarkleinur. Það var alltaf gaman að fara á Strandirnar. Við erum afar þakklát fyrir það að hafa verið í Bakkagerði sem börn og hitt langömmu og langafa, og í seinni tíð hjá ykkur í Sæunn- arseli. Ógleymanleg var sú ferð- in á Strandirnar, sem við fórum sumarið 2004 þegar við fórum í berjamó og það rigndi eins og hellt væri úr fötu, ekki stoppaði það ömmu í berjatínslunni. Við systkinin erum afar þakklát fyrir það sem þú kenndir okkur og gerðir fyrir okkur. Við von- um að þú hafir fundið Sævar, Heiðar og foreldra þína. Við munum ávallt minnast ömmu og passa upp á afa Reyni. Elsku afi, mamma, Ragnheiður, Rík- harður, Guðjón og aðrir að- standendur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Einar Örn og Tinna Sigurbjörg. Það blóm sem vex úr frjórri móðurmold er mildur sumarblærinn lífið glæðir, á björtum sólskinsdögum fegrar fold en fölnar þegar haustsins vindur næðir. (Björn Guðni Guðjónsson) Mikill er söknuður okkar allra þegar við í dag kveðjum þig hinstu kveðju elsku systir. Þú varst ljósið sem lýsti öll- um veginn og víst er að það ljós mun lifa ókomna tíð. Við bræður þínir litum alltaf upp til þín, þú varst akkeri í lífi okkar allra fullyrði ég. Í sveitum landsins eru börn látin vinna svo fljótt sem þau hafa getu til en ætli það teljist ekki alveg einstakt þegar þú, sex ára kríli, hjálpaðir föður okkar að halda í sundur pok- unum og aðstoðaðir hann við að flytja efni í bæinn okkar í Bakkagerði. Þar með var eflaust lagður grunnurinn að allri þinni elju og vinnusemi. Unglingsstúlka barstu mig reyfabarn á höndum þínum. Alla tíð síðan hef ég fundið hlýjuna frá þér eins og svo margir aðrir og verndarhönd þína umvefja mig. Missir allra er mikill, fjöl- skyldunnar, ættingja og vina. Litli bærinn, æskuheimilið okk- ar í Bakkagerði, hefur líka misst mikið. Það verður líklega ekki mikið um tertur og kökur á hátíðar- og afmælisdögum sem og hversdags og minna um ferð- ir í berjamó. Þar varst þú svo sannarlega á heimavelli, fljót að tína og búa til kræsingar. Fyrir 37 árum varðveittuð þið hjónin litla drenginn okkar, Sigurbjörn Ottó. Eftir mánaðarlangt ferðalag okkar var alveg ótrúlegt að heyra þann stutta segja heilar setningar, áður hafði hann að- eins kunnað stök orð. Það sýnir vel hvílíkrar um- hyggju og fræðslu hann hafði notið í ykkar umsjá. Fyrir það og allar aðrar vel- gjörðir þínar erum við alveg óendanlega þakklát. Árið 2002 urðu mikil þátta- skil þegar þið hjónin reistuð sumarbústaðinn á melnum ofan við gamla bæinn. Ég var svo lánsamur að fara það sama ár að dvelja langdvölum á æsku- slóðunum. Oft var kátt á hjalla í litla bænum í Bakkagerði, sér- staklega meðan Heiðar bróðir var þar en við og sveitin misst- um mikið þegar hann féll frá. Ekki er missirinn minni nú, en við sem eftir lifum verðum að gera okkar besta til að viðhalda þeirri virðingu og gleði sem þið systkinin færðuð okkur. Þótt söknuður sé mikill er gott að hafa í huga að þín bíða hlýjar móttökur í ríki Guðs al- máttugs. Þeir sem farnir eru, foreldrar, bræður, tengdafólk og vinir, munu sjá til þess. Í fullvissu um það kveðjum við þig, elsku systir, og biðjum Guð að geyma þig alla tíð. Björn Guðni og fjölskylda. Sæunn Sigríður Guðjónsdóttir ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is útfararstjóri útfararþjónusta Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson Frímann Andrésson útfararþjónusta Jón Bjarnason útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir uðmundur Baldvinsson útfararþjónusta G Þorsteinn Elíasson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför JÓNS V. GUÐJÓNSSONAR. Elísabet Jónsdóttir, Guðjón Jónsson, Sigrún Ásta Bjarnadóttir, Hafdís Jónsdóttir, Björgúlfur Andrésson, Jörundur Jóhannesson, Sveinfríður Jóhannesdóttir, Hákon Jóhannesson, Helga Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengda- föður, afa og langafa, JÓNS VALGEIRS GUÐMUNDSSONAR, Hjallastræti 32, Bolungarvík. Sérstakar þakkir sendum við öllum þeim sem komu að útförinni með einum eða öðrum hætti við erfiðar aðstæður vegna veðurs sem og starfsfólki Sjúkraskýlisins í Bolungarvík. Rannveig Snorradóttir, Elísabet Jónsdóttir, Þór Sigurjón Ólafsson, Snorri Hildimar Jónsson, Þórhildur Sigurðardóttir, Guðrún Jónína Jónsdóttir, Halldór Jón Hjaltason, Lára Kristín Jónsdóttir, Lúðvík Karlsson, Selma Guðmunda Jónsdóttir,Guðmundur Ólafur Birgisson, Erna Jónsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, HAUKS ÓLAFSSONAR skipstjóra, Norðfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunar- deildar og sjúkradeildar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaup- stað fyrir hlýja og góða umönnun. Valborg Jónsdóttir, Ólafur Hauksson, Svala Guðjónsdóttir, Sigurbergur Hauksson, Álfdís Ingvarsdóttir, Þór Hauksson, María Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, áður til heimilis á Lagarási 12, Egilsstöðum, sem lést laugardaginn 22. desember. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Austurlands á Egilsstöðum fyrir frábæra umönnun á undanförnum árum. Guð blessi ykkur öll! Gyða Vigfúsdóttir, Sigurjón Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför GARÐARS TRYGGVASONAR, Hamrahlíð 17, Reykjavík, áður Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til hjartagáttar og hjarta- deildar Landspítalans fyrir góða umönnun. Fyrir hönd fjölskyldunar, Kolbrún Hulda Sigurjónsdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, ÞÓRIS STURLU KRISTJÁNSSONAR byggingameistara, Erluási 74, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og starfsfólk á deild 11E Landspítalans við Hringbraut. Guðmunda Inga Veturliðadóttir, Hulda Guðborg Þórisdóttir, Davíð Þór Sigurbjartsson, Jón Friðgeir Þórisson, Steinunn Sigurmannsdóttir, Gunnar Þórisson, Nina Kristiansen, Ingi Sturla Þórisson, Sigrún Líndal Pétursdóttir, Daði Freyr, Þórir Már og Lára Sif Davíðsbörn, Lóa María og Viktoría Jónsdætur, Lilja Rán, Sóley Dögg og Jónas Hrafn Gunnarsbörn, Karólína Björk Líndal og Dagur Ingi Líndal Ingabörn. ✝ Þakka öllum þeim sem sýndu mér og fjölskyldu minni samúð vegna andláts eigin- konu minnar, RAGNHILDAR EINARSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Reynihlíð á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri fyrir alla þá góðu umönnun er hún hlaut er hún dvaldi þar. Alfreð Jónsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, systir, amma og langamma, ÞÓRUNN BJÖRGÚLFSDÓTTIR, sem lést á þrettándanum, 6. janúar, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 14. janúar kl. 13.00. Guðrún Hreggviðsdóttir, James Stuart Crosbie Þórunn Hreggviðsdóttir, Finnbogi Rútur Arnarsson, Ása Hreggviðsdóttir, Birgir E. Birgisson, Ólafur Björgúlfsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.