Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 39
MESSUR 39á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Reykjavík | Biblíu-
fræðsla kl. 11. Barna- og unglinga-
starf. Umræðuhópur á ensku. Messa
kl. 12. Ræðumaður er Eric Guð-
mundsson.
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum |
Biblíufræðsla kl. 11, í dag, laugardag.
Barnastarf. Messa kl. 12. Ræðumað-
ur er Eric Guðmundsson.
Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum |
Biblíufræðsla kl. 11 í dag, laugardag.
Barna- og unglingastarf. Messa kl. 12.
Ræðumaður er Einar Valgeir Arason.
Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Biblíu-
fræðsla kl. 10 í dag, laugardag.
Barna- og unglingastarf. Guðsþjón-
usta kl. 11. Ræðumaður er Björgvin
Snorrason.
Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði |
Guðsþjónusta kl. 11 í dag, laugardag.
Ræðumaður er Janos Kovaks-Biro.
Biblíufræðsla kl. 11.50, barna- og
unglingastarf. Umræðuhópur á ensku.
Veitingar á eftir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigrún
Óskarsdóttir og Ingunn Björk æsku-
lýðsfulltrúi. Undirleikari er Margrét Sig-
urðardóttir barnakórsstjóri.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Ásdís Pétursdóttir Blöndal djákni
annast samveru sunnudagaskólans.
Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
Viðari Stefánssyni guðfræðinema. Kór
Áskirkju syngur, organisti er Magnús
Ragnarsson. Kaffisopi á eftir. Guðs-
þjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli
kl. 13 í umsjá sóknarprests. Forsöngv-
ari er Tinna Sigurðardóttir, organisti
Magnús Ragnarsson.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Um-
sjón hafa sr. Hans Guðberg, Fjóla,
Finnur, Agnes og Karen Ösp. Sameig-
inleg messa eldri borgara í Garða-
prestakalli og Víðistaðaprestakalli
verður í Víðistaðakirkju kl. 14. Söng-
hópur úr Garðaprestakalli syngur,
stjórnandi og organisti er Bjartur Logi
Guðnason. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Margréti Gunnarsdóttur. Á eftir
verður boðið upp á veitingar í safn-
aðarheimili Víðistaðakirkju.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjón-
usta og sunnudgaskóli kl. 11. Prestur
er sr. Bryndís Malla Elídóttir. Kór
Breiðholtskirkju syngur og organisti er
Bjarni Jónatansson. Sunnudagaskól-
inn er í umsjá Þóreyjar Daggar Jóns-
dóttur. Kaffi og djús á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl.
11 í umsjá Báru Elíasdóttur. Messa kl.
14 Prestur sr. Eiríkur Jóhannsson, or-
gangisti er Jónas Þórir. Félagar úr kór
Bústaðakirkju leiða messusöng.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Dómkórinn syngur, org-
anisti er Kári Þormar. Sunnudagaskól-
inn á kirkjuloftinu.
FELLA- og Hólakirkja | Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Pétur Ragn-
hildarson og Hreinn Pálsson leiða
stundina. Stúlkur úr listasmiðjunni Lit-
róf leiða sönginn undir stjórn Ragn-
hildar Ásgeirsdóttur djákna. Organisti
Guðný Einarsdóttir. Kirkjuvörður og
meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl.
13. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða
sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Bassaleikari er Guðmundur Pálsson
og organisti Skarphéðinn Þór Hjart-
arson.
FRÍKIRKJAN Kefas | Fjölskyldu-
samvera kl. 11. Tónlist, söngur og
fræðsla. Hressing á eftir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Skírn-
arguðsþjónusta kl. 14. Sr. Hjörtur
Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari.
Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og
fyrrverandi landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, fjallar um lífið, tilveruna og
heilbrigt líferni. Fermingarbörn taka
þátt. Sönghópur Fríkirkjunnar leiðir
sönginn undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar organista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Leiðtoga-
messa kl. 11. Sr. Lena Rós Matthías-
dóttir þjónar fyrir altari. Organisti er
Hilmar Örn Agnarsson, kór kirkjunnar
leiðir safnaðarsöng. Messuþjónar
lesa ritningarlestra. Messan verður til-
einkuð leiðtogum úr nærumhverfinu.
Allir leiðtogar við kirkjuna, vígðir og
óvígðir úr öllum þáttum starfsins eru
boðaðir til messunnar. Sunnudaga-
skóli kl. 11. Sr. Guðrún Karls Helgu-
dóttir prédikar og umsjón hefur Þóra
Björg Sigurðardóttir, undirleikari er
Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10 og bænastund kl. 10.15.
Barnastarf kl. 11, umsjón hafa Helga,
Nanda María og Ingunn Huld. Messa
kl. 11. Altarisganga. Samskot í líkn-
arsjóð. Messuhópur þjónar. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur og organisti er
Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólafur
Jóhannsson. Molasopi á eftir. Hvers-
dagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni
á fimmtudag kl. 18.10.
GUÐRÍÐARKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Sig-
ríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn
Helgadóttir. Kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir. Kaffisopi á eftir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
og barnastarf kl. 11. Félagar úr Bar-
börukórnum syngja, organisti er Guð-
mundur Sigurðsson. Umsjónarmaður
barnastarfs Nína Björg Vilhelmsdóttir
djákni. Prestur sr. Þórhildur Ólafs.
Veitingar í Ljósbroti, safnaðarheim-
ilinu Strandbergi. Morgunmessa á
miðvikudg kl. 8.15. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson, prestur er sr. Þór-
hildur Ólafs. Morgunmatur í Odda,
safnaðarheimilinu Strandbergi.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Jóni Ómari Gunnarssyni og
hópi messuþjóna. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Umsjón barnastarfs Inga Harðardóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa
kl. 11. prestur sr. Jón Helgi Þór-
arinsson, organisti Jón Ólafur Sigurðs-
son. Félagar úr kór kirkjunnar leiða
söng og messusvör. Sunnudagaskóli
kl. 13. Batamessa kl. 17. Sjá hjalla-
kirkja.is.
HVALSNESSÓKN | Messa í safn-
aðarheimilinu í Sandgerði kl. 14.
Hljómsveitin Suðurnesjamenn annast
tónlistina og leikur undir söng. Prestur
sr. Sigurður Grétar Sigurðsson. Sól-
risukaffi Félags eldri borgara á Suð-
urnesjum á eftir. Eldri borgarar hvattir
til þátttöku.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma og brauðsbrotning kl. 11.
Vörður Leví Traustason prédikar. Sam-
koma á ensku í Alþjóðakirkjunni kl.
14. Brandon Bergvinsson prédikar.
Kvöldsamkoma kl. 18. Helgi Guðna-
son prédikar.
KAÞÓLSKA kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl.
11 og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa
kl. 11. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði |
Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa
kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30, kl. 13.00 á pólsku og á ensku
kl. 18. Virka daga er messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. |
Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30.
Laugardaga er messa á ensku kl.
18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón-
usta og barnastarf kl. 11. Sr. Erla Guð-
mundsdóttir, Systa, Jón Árni og Esther
stýra barnastarfinu. Arnór Vilbergsson
stýrir kór Keflavíkurkirkju sem syngur
við athöfnina. Messuþjónar taka þátt.
Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Veit-
ingar á eftir.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Sameig-
inlegt upphaf. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son héraðsprestur prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur
undir stjórn Lenku Mátéová, kantors
kirkjunnar. Umsjón með sunnudaga-
skólanum hafa Þóra Marteinsdóttir og
Sólveig Anna Aradóttir.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhann-
esdóttir þjónar fyrir altari. Orgel Ólafur
W. Finnsson. Kvartett úr kór Langholts-
kirkju syngur við athöfnina. Kristín og
Einar taka á móti krökkum. Kaffisopi á
eftir.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Tosikhi
Toma þjónar ásamt kór Laugarnes-
kirkju, Arngerður María Árnadóttir leik-
ur á orgelið, sunnudagaskólakennarar
og messuþjónar halda utan um sín
verkefni. Kaffi og djús í á eftir.
LÁGAFELLSKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 með léttu sniði.
LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli í Boðaþingi og Lindakirkju kl.
11. Messa kl. 20. Kór Lindakirkju syng-
ur undir stjórn Óskars Einarssonar tón-
listarstjóra. Sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir þjónar. Frá og með 13. janúar
verða guðsþjónustur í Lindakirkju á
kvöldin.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Sænski presturinn Elisabeth Gerle
prédikar sem kennir mannréttinda-
siðfræði við Uppsalaháskóla og Arn-
fríður Guðmundsdóttir og Sigurður
Árni Þórðarson þjóna fyrir altari. Há-
skólakórinn syngur undir stjórn Gunn-
steins Ólafssonar. Umsjón með
barnastarfi hafa sr. Sigurvin, Katrín og
Ari. Veitingar á eftir.
ÓHÁÐI söfnuðurinn | Messa kl. 14.
Stoppleikhúsið sýnir leikritið „Ósk-
irnar tíu“. Kór safnaðarins leiðir söng-
inn undir stjórn Árna Heiðars Karls-
sonar. Sr. Pétur Þorsteinsson þjónar
fyrir altari, meðhjálpari er Petra Jóns-
dóttir. Maul eftir messu. Sjá ohadis-
ofnudurinn.is.
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 17 í safnaðaheimili Grensárskirkju.
Ræðumaður er sr. Kjartan Jónsson.
SELJAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jó-
hann Borgþórsson prédikar. Kór Selja-
kirkju leiðir söng, organisti er Tómas
Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar
ásamt organista kirkjunnar. Ferming-
arbörn lesa lestra. Kaffi.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Sameiginleg
messa í safnaðarheimilinu í Sand-
gerði kl. 14. Sjá Hvalsnessókn.
VEGURINN kirkja fyrir þig | Sam-
koma kl. 14. Barnastarf, lofgjörð, pré-
dikun og fyrirbæn. Högni Valsson pré-
dikar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Friðrik
Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari
en leiðtogar sunnudagaskólans ann-
ast börnin á meðan. Bjartur Logi
Guðnason er organisti og félagar úr
Kór Vídalínskirkju leiða sönginn. Mola-
sopi og djús á eftir. Heimsókn eldri
borgara í Garðaprestakalli í Víðistaða-
kirkju kl. 14. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson prédikar og þjónar fyrir altari
en Bjartur Logi Guðnason og Álft-
aneskórinn annast tónlistina. Kaffi í
boði Víðistaðasóknar á eftir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði |
Sunnudagaskólinn kl. 11. Messa kl.
14 fyrir eldri borgara í Víðistaðasókn,
Garðasókn og Bessastaðasókn. Sr.
Hans Guðberg Alfreðsson þjónar fyrir
altari og prédikar. Sönghópur úr
Garðaprestakalli syngur undir stjórn
Bjarts Loga Guðnasonar. Að lokinni
guðsþjónustu syngur Gaflarakórinn
undir stjórn Kristjönu Þ. Ásgeirsdóttur.
Veitingar á eftir í boði Víðistaðakirkju.
ORÐ DAGSINS:
Þegar Jesús var
tólf ára.
(Lúk. 2)
Hjallakirkja í Ölfusi.
komum allir úr ýmsum áttum tón-
listarlega og Bjössi var alltaf
pönkarinn okkar. Hann átti oftast
voða erfitt með að standa kyrr
þegar hann komst í gírinn. Spil-
andi við hliðina á honum á litlum
sviðum er skemmtilegt að minnast
þess að maður þurfti oft að fylgj-
ast með hvort hann væri á leiðinni
að slá mann í hausinn með bass-
anum sínum.
Bjössi átti alltaf auðvelt með að
læra ný lög eða kafla úr lögum.
Eftir að honum höfðu verið sýnd
gripin og nóturnar kryddaði hann
það alltaf með sínum eigin stíl og
þannig eignaði hann sér bassalín-
una. Yfirleitt var það þannig að
strengurinn var plokkaður eða
sleginn fastar svo að hljómurinn
brotnaði aðeins upp og þannig
skinu í gegn áhrifin sem hann
Bjössi lagði fram í hljóm hljóm-
sveitarinnar.
Sá eiginleiki Bjössa að semja
um frið og hittast á miðri leið er
líka mjög minnisstæður og góð
lýsing á hans persónutöfrum.
Ósjaldan stóðu þessar friðarum-
ræður í marga daga. Bjössi stóð á
sínu og ekki var það alltaf auðvelt
að sannfæra hann um einhverja
aðra lausn en hann hafði fundið
upp á en alltaf náðust sáttir að lok-
um
Ólafur Steinsson úr hljóm-
sveitinni Skátar.
Það sem stendur í Hávamálum
um orðspor gott sem aldrei deyr á
einstaklega vel við um Bjössa.
Erfitt að ímynda sér greiðviknari
einstakling eða betri vin. Hvað
sem hann gerði gerði hann líka af
ákveðni, metnaði og dugnaði svo
af bar. Árangur hans í starfi strax
að loknu námi er gott vitni þar um.
En það var líka bara góð-
mennska, hjálpsemi og óeigingirni
sem gerði það að verkum að það
var gott að eiga hann að, sannkall-
aður haukur í horni þegar á þurfti
að halda. Viðræðugóður, með al-
gjöra andúð á hvers kyns rifrild-
um og illindum svo hann fékkst
aldrei til að rífast. Vildi frekar rök-
ræða um hluti og forðaðist sem
dæmi að rífast um pólitík, m.a.s.
þegar hann kaus Framsóknar-
flokkinn eitt kjörtímabil. Aldrei
aftur eigum við eftir að rökræða
um pólitík.
Þetta voru eiginleikar sem
gerðu það að verkum að hann var í
ábyrgðarhlutverki í flestu því sem
hann kom nálægt. Okkar vinskap-
ur var í gegnum hljómsveitarstúss
og þar var hann sannarlega for-
ystusauður. Bjössi hafði mesta
reynslu af tónleikahaldi og hljóm-
sveitarstússi af okkur í Skátum og
hafði gott minni og yfirsýn yfir
tónsmíðarnar. Vissulega leiddi
þetta stundum til skoðanaskipta
um hvað hentaði best hverju lagi,
en svoleiðis á það líka að vera.
Enda var tónlist mikið hjartans
mál fyrir Bjössa held ég. Þar skein
líka í gegn metnaður hans til að
gera hlutina almennilega. Lögin
áttu ekki að vera neitt hálfkák og
þessi metnaður Bjössa var drif-
kraftur í bandinu.
Það er erfitt að fylla það rúm
sem Bjössi hefur skilið eftir sig.
Erfitt að hugsa til þess að við eig-
um ekki eftir að spila saman aftur,
rökræða um hlutina eða horfa á
fótbolta saman aftur. Fjölskyldu
hans votta ég innilega samúð
mína.
Pétur Már Guðmundsson úr
hljómsveitinni Skátar.
Stundum stendur maður
frammi fyrir fólki sem er svo ótrú-
legt, líf þess er svo ólíkt manns
eigin, að það er lyginni líkast. Ég
var svo heppinn að kynnast
Bjössa þar sem ég upplifði tvö ólík
horn á því sem ég sé núna að var
ótrúlegt lífshlaup hans. Frá því að
njóta lífsins inn í innstu kima yfir í
að njóta lífsins út í hina ystu. Það
gaf mér tækifæri til að verða vitni
að því að allt er mögulegt.
Þvílíkur innblástur að sjá hann
fara sínar eigin leiðir án þess að
láta á því bera. Að langa eitthvað,
fara þangað, og gera það allt á
sinn hógværa og hugulsama hátt.
Bjössi bar umhyggju fyrir öðrum
og var umhugað um samfélagið.
Það var gott að vera í hljómsveit-
inni Skátum með honum, hann var
svo duglegur í öllu umstanginu í
kringum bandið, var lím sem hélt
öllu saman (líka músíklega), mála-
miðlari og sá sem sætti menn.
Það gat oft verið vanþakklátt
starf og hann vissi það, en tók það
samt.
Hann var svo duglegur. Allan
tímann sem við stóðum í
hljómsveitarstússi saman gerði
hann aldrei mikið úr því hversu
mikið væri að gera í skólanum hjá
honum, sem þó hlýtur að hafa verið
nóg. Vegna þess hversu mikið
hann var á staðnum á æfingum
hugsaði maður aldrei út í að hann
væri að klára lögfræðinámið sitt,
fyrr en allt í einu var komið að því.
Bjössi horfði fram á veginn og
gaf frá sér orku þess sem hefur
upplifað hluti. Spenntur fyrir lífinu
og möguleikum þess. Það var unun
að tala við hann og ég sakna þess
að heyra fallega, óstöðvandi hlát-
urinn hans þegar hann leyfði tár-
unum að streyma fram yfir fárán-
leika mannlífsins.
Kolbeinn Hugi og Benedikt
Reynisson úr hljómsveitinni
Skátar.
Ætíð fylla sorg og söknuður sál-
artetrið þegar sest er niður til þess
að rita minningargrein. En stund-
um er það þó huggun harmi gegn
þegar manneskjan, sem um ræðir,
átti langa og góða ævi, náði að
dreifa hlýju og væntumþykju til
samferðafólks síns og var í alla
staði til ánægju og yndisauka.
Ekki það að þess fólks sé ekki sárt
saknað; en engu að síður er manni
fullkunnugt um að enginn er eilífur
og á auðveldara með að sætta sig
við hlutskiptið.
Nú er málum ekki svo farið.
Manni er barasta lífsins ómögulegt
að sætta sig við fráfall Björns Kol-
beinssonar. Ómögulegt. Og á í
megnustu vandræðum með að
berja saman þennan texta þótt
margar séu góðu minningarnar
sem grassara í huganum. Minning-
arnar sem áttu að verða svo miklu,
miklu fleiri; hlýjunnar, væntum-
þykjunnar, ánægjunnar, yndisauk-
ans, viskunnar og einstaklega
þægilegrar nærveru hans áttum
við að fá að njóta svo miklu, miklu
lengur.
Björn Kolbeinsson var annálað
ljúfmenni og þótt enginn sé full-
kominn er án vafa leitun að mann-
eskju sem gæti látið um hann
styggðarorð falla. Um það erum
við vinir hans úr hljómsveitinni
Skátum sammála og gætum við
viðhaft langt mál um okkar kæra
vin. Hann mun að eilífu vera einn
okkar besti vinur og að eilífu Skáti
í hug okkar og hjarta.
Ólafur Guðsteinn
Kristjánsson og Markús
Bjarnason úr
hljómsveitinni Skátar.
Fréttir af fráfalli Björns Kol-
beinssonar nú um áramótin komu
sem reiðarslag yfir vini og sam-
starfsmenn hans hér í Genf. Menn
áttu bágt með að trúa því að þessi
góði drengur væri fallinn frá í
blóma lífsins.
Sem starfsmaður EFTA hafði
Björn á stuttum tíma áunnið sér
traust og virðingu samstarfs-
manna sinna og ekki síður meðal
aðildarríkjanna. Hann var framúr-
skarandi lögfræðingur sem leitaði
lausna frekar en að einblína á
vandamál. Hann þótti skarpur og
úrræðagóður og var lykilmaður í
samningateymi EFTA. Hann var
og vinsæll meðal kollega sinna sem
sjá nú á eftir hjartahlýjum, lífs-
glöðum, skrafhreifnum og
skemmtilegum félaga.
Allir Íslendingar sem starfa á
erlendum vettvangi eru sendiherr-
ar sinna heimaslóða. Það hlutverk
rækti Björn óaðfinnanlega. Var
sér, sínum og þjóð sinni til mikils
sóma. Glæsilegur fulltrúi – val-
menni.
Fjölskyldu, vinum og ættingjum
vottum við okkar dýpstu samúð.
Fyrir hönd fastanefndar Íslands
hjá EFTA í Genf,
Martin Eyjólfsson.