Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 42

Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013 Veturinn er notalegur tími í sveitinni. Ég fer til gegninga á tí-unda tímanum en svo kemur róleg stund. Þá finnst mér ein-mitt gott að líta í bækur; hef gaman af ævisögum og nú um jólin var ég að lesa um Natan Ketilsson og Herra rokk, sögu Rúnars heitins Júlíussonar sem Ásgeir Tómasson skráði,“ segir Örn Þórar- insson, bóndi á Ökrum í Fljótum, sem er 62 ára í dag. Örn hefur búið í Fljótunum alla sína tíð og er bóndi með um 280 fjár. „Maður er farinn að eldast og ég hef því aðeins minnnkað við mig,“ segir Örn sem jafnhliða búskap er með fornbókasölu á netinu á vefslóðinni www.bokmenntir.netserv.is. Segir Örn að í þessu efni skipti staðsetningin lita máli; á vefsetrinu finni fólk bókina sem það leitar eftir, panti og fái fáum nokkrum dögum síðar. „Ég sjálfur hef mest gaman af fróðleik og svo alls konar gamansögum. Gríp oft í slíkar bækur,“ segir Örn sem lengi hefur verið fréttaritari og pistla- höfundur fyrir ýmis blöð og tímarit. Veðurspáin fyrir daginn í dag er góð og segir Örn því sennilegt að hann bregði sér eitthvað af bæ. „En kannski held ég mig heima. Í dag er fyrsti leikur okkar á HM í handbolta, þar sem okkar menn etja kappi við Rússa. Mér finnst gaman að fylgjast með landsliðinu og læt spennandi leik ganga fyrir öðru hafi ég tök á,“ segir Örn á Ökrum að síðustu. sbs@mbl.is Örn Þórarinsson er 62 ára í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Bóndinn „En kannski held ég mig heima. Í dag er fyrsti leikur okkar á HM í handbolta,“ segir Örn Þórarinsson sem er 62 ára í dag. Fornbókabóndi norður í Fljótum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Kristján Bene- diktsson fyrrver- andi kennari og borgarfulltrúi er níræður í dag, 12. janúar. Hann dvelur nú á ,,hjúkrunar- gangi“ Landa- kotsspítala. Árnað heilla 90 ára Hafnarfjörður Ívar Bragi fæddist 29. apríl 2011. Hann vó 1.240 g og var 38 cm langur. Foreldrar hans eru Anna Dögg Gylfadóttir og Einar Þór Birg- isson. Nýr borgari Þ órir fæddist á Siglufirði og ólst þar upp til sjö ára aldurs. Þá missti hann föður sinn, var á Dala- tanga í Mjóafirði í eitt og hálft ár og síðan hjá móður sinni að Ystafelli I í Kinn, og Sigurði Mar- teinssyni, er síðar varð sjúpfaðir hans. Þórir lauk stúdentsprófum frá MA 1983, Cand.odont.-prófi frá HÍ 1990 og stundaði sérnám í tannréttingum við Universität Bern í Sviss 2002- 2005. Þórir fór 15 ára í vegavinnu, var háseti á togurum og Akureynni, ein- um fyrsta frystitogara landsins, frá 1981 og vann síðan við jarðvegsbor- inn Jötunn á sumrin er boranir hófust við Nesjavelli. Þórir var tannsmiður 1988 og aðstoðartannlæknir sumarið 1989. Hann festi kaup á tannlækna- stól og fór, ásamt Bjarna Elvari Pét- urssyni, beint úr síðasta prófinu í tannlæknadeildinni austur á Egils- staði þar sem þeir opnuðu tann- læknastofu 1990. Þeir störfuðu sam- an til 1996 en Þórir starfrækti tannlæknastofur og tannsmíðaverk- Þórir Schiöth tannlæknir – 50 ára Fjölskyldan Frá vinstri: Teitur, Helga, Elísabet Véný, afmælisbarnið og Tjörvi. Ökuþór og veiðimaður Ein á báti Þórir og eiginkona hans, Helga Sæunn Sveinbjörnsdóttir, virða fyrir sér aftanskin við Eyjafjörð. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is - með morgunkaffinu GJÖRIÐ SVO VEL! Hafðu það hollt í hádeginu HAFÐU SAMBAN D OG FÁÐU TILBO Ð! HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og næringaríkan mat í hádegi. Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta matreiðslukeppni heims.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.