Morgunblaðið - 12.01.2013, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það stefnir í átakalítinn dag hjá þér
en það þýðir ekki að þú getir slegið slöku
við. Vandaðu vinnubrögð þín.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér dugar lítt að sitja með hendur í
skauti því þannig kemurðu engu í verk. Fólk
er voða mikið að gagnrýna þig þessa dag-
ana og krefst of mikils af þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er allt fullt af tækifærum í
kringum þig og segja má að þú hafir ekki
við að notfæra þér þau sem þér hentar.
Sterk nærvera þín segir allt sem segja
þarf.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekki hafa svo miklar áhyggjur af
öllum sköpuðum hlutum að þú komir engu
í verk. Viðtökur annarra eiga eftir að koma
þér skemmtilega á óvart.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft ekki að sitja með hendur í
skauti og bíða þess að komi betri tíð með
blóm í haga. Líttu vandlega í eigin barm og
láttu ekki setja þig út af laginu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þeir eru margir sem vilja veðja á
sköpunarkraft þinn og líða þér eitt og ann-
að þess vegna. Slepptu fram af þér beisl-
inu, hlæðu og skemmtu þér vel með vinum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Heildarsýn er það sem þú þarft að ná
svo enginn misskilningur komi upp milli þín
og þinna. Ef þú býrð yfir tilfinningagáfum
ertu mjög heppinn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur einbeitt þér um of að
andlegri líðan þinni og um leið vanrækt lík-
ama þinn. Augnabliks aðgæsluleysi getur
dregið dilk á eftir sér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur öðlast margt sem þú
hefur látið þig dreyma um árum saman.
Fólk gefur þér ekki stórkostleg tækifæri
bara af því að því líkar við þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að skapa þér betri yf-
irsýn yfir verkefni þitt. Hver og einn þarf að
gera það sem hann telur rétt hverju sinni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Leggðu þig fram um að leyfa
öðrum að njóta þíns góða skapferlis. Taktu
þér tíma til þess að sjá hvernig landið ligg-
ur og taktu svo til þinna ráða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér kann að berast óvænt tilboð
upp í hendurnar og ef þú heldur rétt á spil-
unum, getur það orðið þér til gagns. Búðu
þig undir öfund og afbrýðisemi en hvorugt
mun á þér hrína.
Karlinn á Laugaveginum hafðiengar vöflur á því þegar ég sá
hann en sagði umsvifalaust: Þið er-
uð með gátur í Vísnahorninu. Getur
þú ráðið hana þessa?
Aldrei bregður út af því
ef ekki er steik á pönnunni
í koti sínu hjartahlý
heitt er með á könnunni.
Svo fór hann að velta vöngum yf-
ir nýársheitunum – það er svo sem
gott og blessað að yrkja eina vísu á
dag eins og Davíð Hjálmar, sagði
hann. Það er bara spurning um út-
hald – og bætti við eins og við sjálf-
an sig:
„Ein er nóg,“ sagði Sólveig frá Niku og
náði í plastreglustiku
„því að endar ná saman
að ofan og framan
ef yrkirðu limru á viku“.
Fuglavísur Sólveigar frá Niku
eru fallegar og bjart yfir þeim:
Úti flýgur fuglinn minn,
á fönninni sé ég sporið.
En bráðum hækkar himininn
og hillir undir vorið.
Ég hef gaman af því, að Sólveig
skuli skrifa „himininn“ eftir fram-
burðinum. N-reglurnar fóru mjög í
taugarnar á föður mínum, hann
vildi skrifa eitt n í nefnifalli karl-
kynsorða sem enduðu á -inn og
spurði: Hver segir himinninn?
Ég var að blaða í Persíus-rímum
eftir Guðmund Andrésson málfræð-
ing, sem dó úr landfarssótt um fer-
tugt árið 1654. Þar rakst ég á þessa
vísu í mansöng að sjöttu rímu:
Forlög koma ofan að,
örlög kringum sveima,
álögin úr ugga stað,
ólög vakna heima.
„Ugga staður“ merkir hafið sem
skýrir og dýpkar þá mynd sem
skáldið sér fyrir sér.
Nokkur orðamunur er í hinum
ýmsu handritum og sums staðar er
vísan talin eftir Pál Vídalín, en í
Vísnakveri hans útg. í Kaupmanna-
höfn 1897 er botninn svona:
álögin úr ýmsum stað,
en ólög fæðast heima.
Guðmundur útskrifaðist úr Hóla-
skóla og varð djákni á Reynistað,
en hrökklaðist úr þeirri stöðu
kringum 1640, þar sem hann hafði
verið rægður við biskup fyrir upp-
lognar sakir.
Hvað skal þeim að dilla dátt
sem drifinn er burt frá mengi,
hvörsu sem hann hljóðar hátt
heyrir til hans engi.
Boðskapur þessarar vísu er
klassískur eins og margur hefur
fundið fyrir á sínu eigin skinni á
þessum síðustu og verstu tímum.
En það hillir undir vorið!
Halldór Blöndal
halldor@simnet.is
Vísnahorn
Ólögin úr ugga stað
Í klípu
HVATARÁÐ #731: REYNDU AÐ HÖFÐA TIL
EIGINHAGSMUNA STARFSMANNANA.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MAÐURINN MEÐ ÁTTA FETA SJÓNVARPIÐ
ER KOMINN AÐ HITTA ÞIG.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einhver sem getur
klórað þér á stöðum
sem þú nærð ekki til.
YKKAR
DÓT
ANNARRA
DÓT
LÁTUM EINS
OG ÉG HAFI
GERT ÞAÐ.
HVAÐ ERTU
AÐ GERA?
ÞYKJAST
SVITNA.
ÉG ER OF
ÞREYTTUR TIL
AÐ KLIFRA Í
TRJÁM.
HEIMILIS-
STÖRF ERU SVO
LEIÐINLEG!
HVERNIG
ÆTLI
HÚN ÞOLI
VIÐ?
„AAAAALLA DAGA
EINTÓMT PUUUUÐ ...“
„EN Á LAUGARDAG VERÐUR
VERSLUNARSTUUUUUÐ!“
Víkverji lifir þessa stundina á brún-inni og engist um. Víkverji á það
til að taka einkennilegar ákvarðanir
sem valda því að hann lifir á milli
vonar og ótta. Ástæðan fyrir
hegðunargreiningu Víkverja á sjálf-
um sér er sú að hann þurfti að endur-
nýja vegabréfið sitt. Þegar komið var
í sýslumannsembættið í Kópavogi
tók fýlulegur starfsmaður á móti
honum í afgreiðslunni. Víkverji til-
kynnti honum glaðbeittur erindið og
sú fýlda spurði hvenær áætluð brott-
fær væri. „Vegabréfið verður komið
daginn sem þú ferð út. Pósturinn tek-
ur sér þrjá daga til að koma þessu til
skila. Þetta er of stuttur tími. Ég
mæli með að þú sækir um hrað-
passa,“ segir sú fýlda.
x x x
Á þessum tímapunkti stækkuðusjáöldrin og hjartað sló hraðar í
Víkverja og margar misgáfulegar
hugsanir flugu í gegnum hugann:
„Ekki ætla ég að láta hlunnfara mig
og borga fleiri þúsundkalla en ég
mögulega kemst upp með. Annáluðu
göngugarparnir hjá Póstinum eru
aldrei þrjá heila daga að koma þesssu
til skila, ha? Frekar tek ég sénsinn.
Auk þess er ekki brottför af heimil-
inu fyrr en á hádegi. Þetta reddast.“
Víkverji tók ákvörðun byggða á þess-
um firnagóðu rökum og svaraði fullur
sjálfstrausts þeirri ólundarlegu að
hann kysi almennan passa.
x x x
Þegar heim var komið spratt svit-inn fram á efri vör Víkverja og
nagandi efinn gerði vart við sig:
„Hvað ef vegabréfið kemur ekki í
póstkassann í tæka tíð og ekkert
verður af ferðinni?“
x x x
Þessar hugsanir grófu um sig íhuga Víkverja. Fyrir vikið
hlakkar hann ekki vitund til ferðar-
innar og þaðan af síður hefur hann
skipulagt nokkurn hlut. Þegar heim
er komið rýkur púlsinn upp í hvert
skipti sem tómum póstkassanum er
lokið upp. En þangað til heldur Vík-
verji áfram að keyra á rauðglóandi
bensínljósinu í mælaborðinu – það er
svo spennandi að vita hvort hann
kemst heim.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Nálægið ykkur Guði og þá mun hann
nálgast ykkur. Hreinsið hendur ykkar,
þið syndarar, og gerið hjörtun flekk-
laus, þið tvílyndu. (Jakobsbréfið 4:8)
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
KROM 53x80 cm
• Aluminum / Ál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is