Morgunblaðið - 13.02.2013, Page 4

Morgunblaðið - 13.02.2013, Page 4
SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Samþykkt var af meirihluta borgar- stjórnar í gær, auk fulltrúa VG, að leggja til aukið framlag til tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Um er að ræða viðbótarframlag upp á 160 millj- ónir króna í fjögur ár, til loka ársins 2016, eða alls 640 milljónir króna. Hlutur borgarinnar þar af er alls um 295 milljónir króna og hlutur ríkisins 345 milljónir. Að auki samþykkti meirihlutinn að umbreyta eigenda- lánum upp á 794 milljónir króna í hlutafé í Hörpu, sem skiptist eftir eignarhlutunum 54% á ríkið og 46% á borgina. Þá var samþykkt að veita borgarstjóra heimild til að undirrita þríhliða samkomulag Hörpu, ríkisins og borgarinnar um fjármögnun húss- ins. Samhliða aðgerðunum er reiknað með að gengið verði frá samkomulagi við Landsbankann um skuldabréfaút- gáfu fyrir 18,5 milljarða króna heild- arlántöku, þar af langtímalán upp á 17,7 milljarða. Sjálfstæðismenn í minnihluta borg- arstjórnar greiddu atkvæði gegn til- lögunum. Voru m.a. þau sjónarmið viðruð að bjóða rekstur hússins út og fela hann einkaaðilum, í stað þess að rekstur Hörpu félli á herðar skatt- borgara og útsvarsgreiðenda í Reykjavík. Var einnig varað við því fordæmi sem hefði verið gefið fyrir önnur opinber hús með auknum fram- lögum úr borgarsjóði til að mæta fast- eignagjöldum og öðrum álögum. Stefndi í 1,6 milljarða tap Til ársins 2016 eru aukin framlög eigenda Hörpu samanlögð um 1,4 milljarðar króna. Það bætist við nærri milljarðs króna framlag á ári, sem eigendurnir höfðu skuldbundið sig til í 35 ár, til að greiða niður lán til bygg- ingarinnar. Í greinargerð borgar- stjóra segir m.a. að hefði ekki verið farið í þessar aðgerðir hefði Harpa fljótlega orðið gjaldþrota og starf- seminni verið hætt, með tilheyrandi kostnaði fyrir eigendur. Áætlun Hörpu og KPMG til 2016 gerði ráð fyrir óleystri fjárþörf, eða tapi á rekstri, upp á samanlagt 1,6 milljarða króna. Inni í þeirri tölu er tap síðasta árs upp á nærri hálfan milljarð. Á þessu ári var gert ráð fyrir tapi upp á tæpar 350 milljónir, eða tekjum upp á 785 milljónir og gjöldum upp á 1.133 milljónir. Þessi staða sem Harpa er komin í er allt önnur en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Árið 2002 sömdu ríki og borg um byggingu tónlistarhúss og árið 2004 var verkið boðið út. Um einkaframkvæmd var að ræða og eignarhaldsfélagið Portus, sem var í eigu Landsbankans og Nýsis, samdi við ríki og borg um bygginguna og rekstur hússins. Þá gerðu áætlanir ráð fyrir byggingarkostnaði upp á 12,5 milljarða króna. Framkvæmdir hófust í byrjun árs 2007 og stöðvuðust sem kunnugt er í október 2008 vegna bankahrunsins. Ákveðið var í upphafi árs 2009 að hefja framkvæmdir að nýju og gerðu menntamálaráðherra og þáverandi borgarstjóri samning um yfirtöku verkefnisins og samkomulag um greiðslur á nýju sambankaláni upp á 16,7 milljarða. Samþykkt var að ríki og borg greiddu samanlagt tæpan milljarð króna á ári í 35 ár og fram kom í máli ráðherra og borgarstjóra að áætlanir gerðu ekki ráð fyrir frek- ari framlögum eigenda. Annað hefur nú komið á daginn. Hvorki áætlanir um tekjur né gjöld hafa staðist. Hærri fasteignagjöld Tekjurnar hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaðinum og sem fyrr segir varð tap á síðasta ári upp á nærri hálfan milljarð króna. Við yf- irtöku verkefnisins 2009 var kynnt áætlun um greiðslu fasteignagjalda til borgarinnar upp á 147 milljónir á ári, eða um 182 milljónir á núvirði. Álögð fasteignagjöld voru hins vegar 337 milljónir á síðasta ári, eða 155 millj- ónum meiri en áætlunin reiknaði með, og stefna í 353 milljónir á þessu ári. Viðbótarframlag borgarinnar til Hörpu er 73,6 milljónir en fram kem- ur í greinargerð með tilllögum borg- arstjóra að borgin sé í raun að leggja til 80 milljónum minna (m.v. núv. verðlag) en upphaflega var gert ráð fyrir við yfirtökuna 2009. Áætlanir um byggingarkostnað hafa heldur ekki staðist. Við yfirtöku var talað um 14,5 milljarða, m.v. verð- lag í okt. 2008 en á núvirði eru það 16,7 milljarðar. Í greinargerð borgar- stjóra segir að síðustu útkomuspár bendi til 17,5 milljarða byggingar- kostnaðar. Til viðbótar þessu má telja um 10 milljarða sem afskrifaðir voru á sínum tíma vegna gjaldþrots Portus- ar, þannig að heildarkostnaður vegna byggingar Hörpu er talinn nema nærri 30 milljörðum króna. Engar áætlanir gengið eftir Morgunblaðið/Júlíus Harpa Rekstraráætlanir tónlistar- og ráðstefnuhússins hafa ekki gengið eftir og ein ástæða þess er mun hærri fast- eignagjöld en reiknað var með. Bygging hússins kostaði einnig mun meira en áætlanir gerðu ráð fyrir.  Meirihluti borgarstjórnar samþykkti viðbótarframlag til Hörpu í gær  Alls 1.434 milljónir hjá ríki og borg til 2016  Við yfirtökuna 2009 stóð ekki til að auka framlög  Harpa stefndi í þrot að óbreyttu 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 160 milljónir kr. eru viðbótarframlag rík- is og borgar á ári 2013-2016 794 milljóna kr. eigendalánum breytt í stofnframlög til Hörpu 1.434 milljónir kr. eru samanlagt viðbót- arframlag eigenda 2013-2016 1.000 milljónir kr. tæplega eru árlegt fram- lag eigenda Hörpu að auki í 35 ár 1.662 milljóna kr. tap af Hörpu 2012-2016 hefði ekkert verið að gert 18.546 milljóna kr. heildarfjárþörf með skuldabréfaútgáfu í ár 182 milljónir kr. áttu fasteignagjöldin að vera skv. uppreikn. áætlun 2009 353 milljóna króna álögð fasteignagjöld á Hörpu á þessu ári 321 milljón kr. er launakostnaður 2012. ‹ HARPA Í TÖLUM › » Halldór Guðmundsson, forstjóri Hörpu, segir að í áætlunum frá árinu 2009 hafi verið gert ráð fyrir helmingi lægri fasteignagjöldum en raunin varð, og það sé ein meg- inástæða þess að rekstraráætlanir Hörpu hafi ekki gengið eftir. „Við erum að sækja þessa leiðréttingu fyrir dómstólum, það er alveg ljóst að rekstur hússins getur ekki staðið undir þessum álögum. Þjóð- in hefur tekið Hörpu vel, hingað koma um 20 þúsund manns á viku, en á meðan við erum að koma þessum rekstri í gang eru þetta fasteignagjöld upp á milljón á dag. Með auknu framlagi ríkis og borg- ar lít ég svo á að verið sé að koma til móts við þessa aðstöðu,“ segir Halldór og bendir á að tekjur Hörpu í fyrra hafi verið um 640 milljónir en fasteigna- gjöldin eingöngu verið nærri 340 milljónir. „Dýr- asta leið skatt- borgara hefði verið að loka húsinu. Þá hefðu eigendur þurft að borga, að meðtöldum fast- eignagjöldum, um 500 milljónir á ári án þess að hafa tekjur á móti.“ Halldór segir ráðstefnubókanir í sókn. Bókanir fyrir þetta ár eru um 50% meiri en 2102 og farið er að taka við bókunum til ársins 2017. Dýrasta leiðin að loka húsinu HALLDÓR GUÐMUNDSSON, FORSTJÓRI HÖRPU Halldór Guðmundsson Í undirbúningi er stofnun nýs stjórnmálaflokks sem mun leggja sérstaka áherslu á málefni og hagsmuni lands- byggðarinnar. Magnús Háv- arðarson, tölvu- og kerfisfræðingur á Ísafirði, á frumkvæði að stofnun Landsbyggð- arflokksins. Hann hefur komið heimasíðunni landsbyggdin.is á fót og hyggst kanna áhuga fólks á landsbyggðinni á framtakinu. „Þetta er í hendi fólks á landsbyggðinni, ef það sýnir þessu stuðning og áhuga þá bjóðum við fram í öllum lands- byggðarkjördæmunum,“ segir Magnús og hvetur áhugasama til að líta á heimasíðuna. Magnús segir viðtökurnar hafa verið jákvæðar en síðan fór í loftið um helgina. Komið hafi á óvart að margt ungt fólk á landsbyggðinni sé áhugasamt um framtakið. Flokkur sem einbeit- ir sér að málefnum landsbyggðarinnar Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Meiri áhersla verður lögð á land- vinnslu í starf- semi HB Granda í kjölfar breyt- inga sem fyrir- tækið hefur til- kynnt. Ónógar aflaheimildir og meiri möguleikar til verðmæta- sköpunar í land- vinnslu eru m.a. ástæður þess að fyrirtækið ætlar að leggja einum frystitogara og breyta öðrum í ísfisktogara. Síðastliðin þrjú ár hafa bolfisk- heimildir HB Granda minnkað um 3.445 þorskígildistonn en það er mat félagsins að meiri verðmæta- sköpun muni felast í því að vinna aflann í landi frekar en að frysta á sjó. Er það m.a. vegna aukinnar eftirspurnar erlendis eftir ferskum sjávarafurðum. „Við höfum orðið varir við áhuga stórra kaupenda og dreifingaraðila á ferskum fiski, sérstaklega gætum við gert meira í ufsa og karfa. Það sem liggur fyrir hjá okkur er að auka gæði þess afla til að koma honum frekar út með gámum en flugi sem sparar kostnað,“ segir Vilhjálmur Vil- hjálmsson, forstjóri HB Granda. Samfara breytingunum fækkar sjómönnum um 34, úr 320 í 286. Hinsvegar mun störfum í land- vinnslu fjölga um 50 og eftir breytingarnar mun stöðugildum innan fyrirtækisins fjölga um 16. Vilhjálmur segir alltaf erfitt að þurfa að segja upp starfsfólki. Hann segir að í ljósi þess að starfsmönnum í landvinnslu fjölgi sé möguleiki á að sjómenn geti starfað í landvinnslunni og þeim hafi þegar verið bent á þann möguleika. Þá verður frystitogaranum Helgu Maríu breytt í ísfisktogara. Það verður gert í Póllandi þar sem skipið fer einnig í almennt viðhald. Að sögn Vilhjálms mun kostnaður vegna þessa nema samtals um 400 milljónum króna. Fækka á sjó en fjölga í landi  Auka áherslu á landvinnslu í starfsemi HB Granda  Meiri verðmætasköpun í því að vinna afla í landi  Fækka sjómönnum en fjölga starsfmönnum í landvinnslu Morgunblaðið/Ernir Fiskur Meiri verðmætasköpun felst í að vinna afla í landi en sjó í rekstrinum.Vilhjálmur Vilhjálmsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.