Morgunblaðið - 13.02.2013, Side 12
Að sögn Björgvins G. Sigurðssonar,
formanns allsherjar- og mennta-
málanefndar Alþingis, sem stjórnaði
sameiginlegum fundi með stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd um FBI-
málið í gær, var fundurinn gagn-
legur og varpaði frekara ljósi á
málið. Réttarbeiðnin sem FBI hafi
lagt fram í byrjun júlí hafi snúið að
tveimur málum, annars vegar fyrir-
hugaðri tölvuárás á tölvukerfi
Stjórnarráðsins og hins vegar saka-
málarannsókn á hendur Wikileaks.
Björgvin segir að hann hafi skilið ríkissaksóknara
þannig að rannsókn beggja málanna rúmaðist innan
réttarbeiðninnar þar sem þau væru samstofna.
„Mér finnst hins vegar blasa við eftir þessa yfirferð
að svo var ekki. Þetta eru tvö ólík mál og ráðuneyt-
inu bar að grípa inn í til að þetta rúmaðist innan rétt-
arbeiðninnar. Ráðuneytið brást hárrétt við og sinnti
sínu lögbundna hlutverki með sóma. Mestu máli skipt-
ir að ekki var um að ræða pólitísk afskipti af rann-
sókn á máli,“ segir Björgvin.
Að sögn Haraldar Johannessen
ríkislögreglustjóra, sem sat fyrir
svörum um málið á fundi þing-
nefndanna í gær, var hlutverk
embættisins, eftir að ríkis-
saksóknari sendi ríkislögreglu-
stjóra réttarbeiðnina til með-
ferðar, að veita bandarískum
lögregluyfirvöldum aðstoð við
rannsókn þeirra á samtökum al-
þjóðlegra tölvuhakkara. Á sama
tíma fór fram rannsókn íslensku
lögreglunnar undir stjórn ríkissaksóknara vegna ætl-
aðra tölvubrota sem beindust meðal annars að
Stjórnarráði Íslands.
Rannsóknin á fyrirhuguðu tölvuárásinni á Stjórn-
arráðið sem hófst í júní 2011 er enn í gangi en Har-
aldur vill ekki upplýsa hver staða hennar sé núna.
Hann geti hins vegar upplýst að lögreglan sé enn að
afla gagna í málinu og muni að því búnu fara yfir
málið með ríkissaksóknara. Hins vegar liggi fyrir að
komið var í veg fyrir tölvuárásina í samvinnu við
FBI.
Telur viðbrögðin rétt
Ekki pólitísk afskipti, segir Björgvin G. Sigurðsson
Rannsóknin enn í gangi, segir ríkislögreglustjóri
Björgvin G.
Sigurðsson
Haraldur
Johannessen
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Innanríkisráðuneytið og embætti
ríkissaksóknara lögðu ekki sama
skilning í það hvort réttarbeiðni
sem bandaríska alríkislögreglan
FBI lagði fram í byrjun júlí 2011
næði yfir komu fulltrúa hennar í lok
ágúst sama sumar til að ræða við ís-
lenskan mann sem hafði gefið sig
fram við bandaríska sendiráðið og
sagst vera með upplýsingar sem
vörðuðu tölvuárás á Stjórnarráðið.
Þetta kemur fram í minnisblaði
sem Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra lagði fyrir á ríkisstjórn-
arfundi og á sameiginlegum fundi
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
og allsherjar- og menntamála-
nefndar Alþingis í gær.
Öfugt við ríkissaksóknara taldi
ráðuneytið fulltrúana ekki hafa
heimild til þess að koma hingað til
lands í þeim erindagjörðum.
Misminnti um brottförina
Ögmundur telur ekki að af-
skipti hans og utanríkisráðherra af
málinu, sem fólust meðal annars í
því að krefjast þess að íslenska lög-
reglan ynni ekki með fulltrúum FBI
og að þeir hyrfu af landi brott, hafi
verið óeðlileg.
„Það er ráðuneytisins og ráð-
herra að meðhöndla réttarbeiðnir
sem koma frá útlöndum, samkvæmt
lögum er það í okkar höndum. Þeg-
ar við teljum að hingað séu komnir
fulltrúar til starfa frá erlendu ríki
án þess að það liggi fyrir rétt-
arbeiðni í samræmi við komu þeirra
er eðlilegt að ráðuneytið hafi af-
skipti af því. Við bentum á að rétt-
arbeiðnin sem lægi fyrir frá því í
júní rúmaði ekki þessa heimsókn.
Það var eðlilegt að á það væri bent
og afskipti höfð af því.“
Þá segir ráðherrann að það hafi
verið misminni hjá sér að FBI-
mennirnir hefðu yfirgefið landið
strax daginn eftir að hann var upp-
lýstur um veru þeirra hér þann 25.
ágúst 2011, eins og hann hefur áður
látið hafa eftir sér í fjölmiðlum.
Komið hefur fram að Bandaríkja-
mennirnir voru hér á landi í tæpa
viku eftir að innanríkisráðherra fyr-
irskipaði lögreglu að draga sig úr
rannsókninni.
„Ég taldi að þeir hefðu farið
fyrr af landi brott en við nánari
skoðun á gögnum þá var stað-
reyndin sú að þeir voru nokkra daga
til viðbótar og mér átti að vera
kunnugt um það. Það var mitt mis-
minni og ekki við neinn annan að
sakast,“ segir Ögmundur.
Í kjölfar málsins hefur ráðu-
neytið tekið verklagsreglur og lög-
gjöf um gagnkvæma réttaraðstoð í
sakarmálum til endurskoðunar og
væntanlegrar uppfærslu.
Breytt afstaða ráðuneytisins
Auk innan- og utanríkis-
ráðherra komu Sigríður J. Friðjóns-
dóttir ríkissaksóknari, Haraldur Jo-
hannessen ríkislögreglustjóri, og
Kristinn Hrafnsson, talsmaður
Wikileaks, fyrir nefndirnar.
Sigríður segir að innanríkis-
ráðuneytið hafi endanlegt ákvörð-
unarvald um að afgreiða réttar-
beiðnir. Hennar embætti hafi talið
að réttarbeiðnin frá í byrjun júlí
næði yfir komu FBI-mannanna í lok
ágúst. Ráðuneytið hafi hins vegar
verið á öðru máli.
„Það var fulltrúi frá innanríkis-
ráðuneytinu á fundinum deginum
áður [en FBI-mennirnir komu til
landsins í lok ágúst] en eftir að það
var skoðað frekar í ráðuneytinu þá
var það þeirra túlkun að þessi að-
gerð sem átti að fara í hérna félli
ekki undir þessa réttarbeiðni. Við
töldum okkur vera með sameig-
inlegan skilning á þessu. Við höfðum
þessa sýn [á beiðnina] en síðan
breyttist afstaða ráðuneytisins hvað
þetta varðar,“ segir Sigríður.
Tekist á um heimild
fyrir komu FBI-manna
Morgunblaðið/Ómar
Þingnefnd Sameiginlegur fundur var hjá tveimur þingnefndum í gær til þess að ræða FBI-málið.
Ólíkur skilningur innanríkisráðherra og ríkissaksóknara
Ögmundur
Jónasson
Sigríður J.
Friðjónsdóttir
Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir
bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði
3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef
meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs
við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7
sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum
bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða
nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að
nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri.
Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu.
Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja
notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða
astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir
notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf
eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í
fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis
Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Fæst án lyfseðils
Verkir í
hálsi og
öxlum?
V
O
L1
30
10
2
01
02
Verkjastillandi og
bólgueyðandi við
verkjum í hálsi
og öxlum!