Morgunblaðið - 13.02.2013, Side 17
Liður 73: Feneyjanefndin gerir ákvæði
frumvarpsins umpersónukjör til
Alþingis að umtalsefnimeð þeirri
umsögn að það geti leitt til ofuráherslu
á einstaklinga í kosningabaráttu.Um leið
geti það leitt til þess aðminni agi verði á
Alþingi sökumþess að þingmenn séu upp-
teknir af eigin hagsmunum. Breytingin
dragi úr vægi stjórnmálaflokka.
Liður 74: Nefndin telur frumvarpið
munu leiða til flókins kosningakerfis.
Er því kallað eftir skýrari ákvæðum.
Liður 75: Tillaga frumvarpsins um
afnám þröskuldar fyrir flokka og
frambjóðendur til að komast á þing er
að mati nefndarinnar líklegt til að leiða
til þess að erfiðara verði að mynda
stöðugan meirihluta á þingi.
Liður 78: Nefndin segir erfitt að skilja
ýmis ákvæði kosningakerfisins sem
lögð eru til í frumvarpinu.
Liður 95: Nefndin telur ákvæði um
að Alþingimuni eitt hafa vald til að
stofna til þjóðaratkvæðagreiðslu um
að leysa beri forseta frá embætti, sé
það samþykkt af 3/4 þingmanna, ganga
gegn hugmyndinni um ábyrgð forseta
gagnvart þjóðinni.
Liður 100: Feneyjanefndin telurhlutverk
forsætisráðherra vera veikt einsogþví er
lýst íV.kaflanum,Ráðherrar og ríkisstjórn.
Liður 112: Nefndin er þeirrar hyggju
að það stjórnmálakerfi sem lagt sé til í
frumvarpinu feli í sér augljósa hættu á
pólitískum óstöðugleika.
Liður 116: Nefndin lýsir því yfir að hún
hyggist að mestu sneiða hjá deilum um
þjóðaratkvæðagreiðslur í áliti sínu.
Liður 120: Lagt er til að Alþingi geti
ekki lagt fram frumvarp aftur á
kjörtímabilinu sem hafnað hefur verið í
þjóðaratkvæði. Er hér átt við frumvarp
semminnst 10% kjósenda hafa kraf-
ist að fá að kjósa um í þjóðaratkvæði
eftir að Alþingi hefur samþykkt það.
Liður 121: Ákvæði 66. greinarinnar um
að tveir af hundraði kjósenda geti lagt
fram þingmál á Alþingi getur að mati
nefndarinnar leitt til þess að almenn-
ingur verði fyrir vonbrigðum, enda sé
Alþingi ekki skylt að fylgja því eftir.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 4.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð 40.000
Höfðagaflar 5.000
Sjónvarpsskápar 25.000
Rúm 153cm 157.000
Púðar 2.900
Vín
Torino
Fjarstýringavasar 2.500
Hægindastólar 99.000
Tungusófar 75.400
Hornsófar 119.450
Sófasett 99.900
Mósel
AquaClean áklæði
kynningarafslátturAquaClean áklæði er sérstaklegaauðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Formaður Sjálfstæðisflokksins seg-
ir tímabært að stjórnarflokkarnir
geri sér grein fyrir því að það sé
óábyrgt og óraunhæft að halda
áfram með stjórnarskrármálið.
Formaður stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar Alþingis segir að þegar
hafi verið tekið tillit til ábendinga
sem fram komi í áliti Feneyja-
nefndarinnar en öðrum hafi verið
hafnað. Hún telur nægan tíma til
að ljúka málinu, ef unnið væri eðli-
lega í þinginu. Formaður Fram-
sóknarflokksins segir óhugsandi að
ljúka afgreiðslu málsins á þeim
dögum sem eftir eru.
„Ef það var einhver alvara á bak
við það að hlusta eftir sjónarmiðum
Feneyjanefndarinnar hljóta menn
nú að sjá ástæðu til að staldra við,“
segir Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins.
„Ég tek eftir því að þeir sem
fara fyrir málinu gera lítið úr at-
hugasemdunum en þær eru miklar
og þær eru alvarlegar og þær eru í
samræmi við það sem innlendir
fræðimenn hafa bent á í margar
vikur. Það er orðið tímabært að
stjórnarflokkarnir geri sér grein
fyrir því að það er óábyrgt og
óraunhæft að halda áfram með
málið á þeim forsendum sem gert
hefur verið. Þetta álit Feneyja-
nefndarinnar er enn ein staðfesting
þess.“
Bjarni telur enga ástæðu til að
túlka álit Feneyjanefndarinnar.
Nóg sé að lesa það til að sjá hversu
miklar og alvarlegar athugasemdir
eru gerðar við fjölmarga kafla.
Búið að bregðast við mörgu
„Við erum búin að bregðast við
mjög mörgu af því sem þarna kem-
ur fram,“ segir Valgerður Bjarna-
dóttir, formaður stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis, og vísar
þar til breytingartillagna meiri-
hluta nefndarinnar. Hún tekur
fram að nefndin hafi ekki gert
neinar tillögur um breytingar á
ákvæðum upphaflegra tillagna um
æðstu stjórn ríkisins og þjóðar-
atkvæðagreiðslur. Ákveðið hafi ver-
ið að bíða eftir áliti Feneyjanefnd-
arinnar í því efni. „Við munum lesa
þetta saman og væntanlega leggja
til einhverjar breytingar, væntan-
lega á milli annarrar og þriðju um-
ræðu,“ segir Valgerður.
Hún segir að ýmislegt sem þarna
er fjallað um hafi þegar verið at-
hugað og ákveðið að breyta ekki.
„Þetta hjálpar okkur að halda
áfram,“ segir Valgerður um áhrif
álits Feneyjanefndarinnar. Hún
segir að farið verði yfir það lið fyr-
ir lið og sé sú vinna þegar hafin.
Það taki tíma og segist hún ekki
geta sagt til um
hvort niður-
staðan fáist fyrir
eða strax eftir
helgi.
Þingfrestun er
áætluð 15. mars
og aðeins fjórtán
þingfundardagar
eftir. Valgerður
segir vel hægt
að ljúka af-
greiðslu stjórnarskrárfrumvarpsins
á þeim tíma. „Ef fólk vill, þá er
tíminn ekki það sem háir okkur í
þessu, ef þetta er unnið eins og
fólk vinnur venjulega þegar það
gengur að einhverju verki. Hins-
vegar er ljóst að ef menn halda
málinu hér inni í þingsal og það
kemst ekki aftur í nefnd, þá verður
það ekki klárað.“
Þora ekki að viðurkenna
„Miðað við það sem þar kemur
fram [í fréttum af áliti Feneyja-
nefndarinnar] er það staðfest betur
en áður að það er óhugsandi að
hægt sé að ljúka þessu máli á þeim
fjórtán þingfundardögum sem eftir
eru,“ segir Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, og bætir við:
„Reyndar hefur mér nú sýnst að
meirihluti stjórnarliðsins sé löngu
búinn að gera sér grein fyrir því
að ekki sé hægt að klára þetta en
hafi ekki lagt í að viðurkenna það
vegna ótta við að missa stuðning
Hreyfingarinnar. Fyrir vikið hefur
tíminn ekki verið nýttur í það sem
er æskilegast, að vinsa úr nokkur
atriði og ljúka þeim fyrir kosn-
ingar og halda svo áfram að kosn-
ingum loknum.“
Hann rifjar upp að þingflokkur
framsóknarmanna hafi sérstaklega
nefnt ákvæði um þjóðaratkvæða-
greiðslur og auðlindir í því sam-
bandi.
„Ennþá er hægt að breyta um
kúrs, en það þarf þá að gerast
hratt ef möguleiki á að vera að ná
einhverju í gegn. Menn breyta ekki
stjórnarskrá án þess að vera nokk-
uð vissir um hvað verið er að gera.
Feneyjanefndin bendir einmitt á að
það kunni að skapast stjórnmálaleg
óvissa og óvissa um dómstólana.
Það er ekki það sem við þurfum á
að halda núna,“ segir Sigmundur.
Óraunhæft að halda
áfram með málið
Meirihlutinn segist hafa tekið tillit til athugasemda
Umræður á Alþingi
» Hverjum dettur það í hug að
bjóða upp á það að það náist að
afgreiða á þessu þingi stjórnar-
skrárfrumvarpið eins og það er
statt?“ sagði Jón Gunnarsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, í utandagskrárumræðum á
Alþingi í gær. „Við urðum vitni
að því hér í gær, þegar Hreyf-
ingin setti ríkisstjórninni stólinn
fyrir dyrnar og ríkisstjórnin fór
á taugum og ríkisstjórnarflokk-
arnir.“
» Ragnheiður Elín Árnadóttir,
samflokksmaður Jóns, vildi
beina athyglinni að erfiðleikum
vegna kjaradeilu á Landspítal-
anum og vanda heimila og fyrir-
tækja sem væri mikill eins og
áður.
Bjarni
Benediktsson
Valgerður
Bjarnadóttir
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson