Morgunblaðið - 13.02.2013, Síða 18

Morgunblaðið - 13.02.2013, Síða 18
VIÐTAL Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Verktakafyrirtækið MótX vinnur að því að reisa tvö fjölbýlishús í Kópa- vogi. Um er að ræða fjárfestingu fyrir samtals um tvo milljarða króna. Annars vegar er um að ræða 35 íbúða fjölbýlishús í Þorrasölum og hins vegar 28 íbúða fjölbýlishús í Kópavogstúni Verið að ljúka við uppsteypu á húsnæðinu í Þorrasölum og fyrsta skóflustunga í Kópavogstúni verður tekin í sumar. Íbúðirnar verða 100 til 150 fermetrar að stærð. Bygg- ingafélagið Silfurhús stendur að framkvæmdinni, en aðalverktaki framkvæmdanna er MótX sem jafn- framt er hluthafi í Silfurhúsum. „Það hefur skapast rými fyrir unga menn að láta til sín taka í verktakabransanum,“ segir Svanur Karl Grjetarsson, annar eigandi MótX. „Það eru að verða kynslóða- skipti. Margir af gömlu jöxlunum hafa ekki látið til sín taka eftir kreppuna. Það þarf ekki að vera vegna þess að þeir urðu gjaldþrota, heldur hafa þeir ákveðið að láta gott heita,“ segir Vignir Steinþór Hall- dórsson, eigandi í MótX. Þeir segja að þeir sem eldri séu í þessum geira og enn að, hafi oftar en ekki verið með ákveðin verkefni í vinnslu við hrunið sem þeir hafi kos- ið að ljúka við. Hinir yngri kaupi lóðir og byrji á nýjum verkefnum. MótX var stofnað árið 2005. Vignir Steinþór nefnir að árlega þurfi 1.200-1.500 nýjar íbúðir á ári. Á árunum fyrir hrun hafi verið byggðar alltof margar íbúðir eða um 3.500 íbúðir árlega, en eftir hrun, nánast ekki neitt. Engu að síður sé margt ungt fólk að stíga sín fyrstu skref inn á íbúðamarkaðinn. Það sé því klárlega skortur á íbúðarhús- næði. „Það er mikið talað um sex þúsund tómar íbúðir í fjölmiðlum en þær eru utan höfuðborgarsvæðis- ins,“ segir hann. Í ljósi þessa húsnæðisskorts og meiri bjartsýni hjá Íslendingum segjast þeir treysta sér til að ráðast í þessar framkvæmdir. Oft er talað um að byggingar- kostnaður sé of hár miðað við fer- metraverð. Aðspurðir hvernig þau mál horfa við þeim segjast þeir gæta þess að yfirbygging fyrirtæk- isins sé lítil. Þeir vinni báðir á bygg- ingarstöðum, auk þess sem fyrir- tækið sinni verkefnum fyrir aðra, og með þeim hætti megi nýta manna- aflann, sem telur um 20 manns, sem best. MótX hefur meðal annars smíðað tvö einbýlishús nokkru eftir hrun fyrir fólk sem kosið hefur að flytja aftur til Íslands eftir að hafa búið erlendis. Þegar eru 25 áhugsamir um að kaupa íbúðir í Þorrasölum og það styttist í að Kópavogstún fari í sölu. „Þegar um er að ræða svona skemmtilegar staðsetningar og vönduð hús, hafa margir áhuga á að festa sér eign,“ segir Svanur. Reisa fjölbýlishús fyrir um tvo milljarða í Kópavogi  „Það hefur skapast rými fyrir unga menn að láta til sín taka“ Framkvæmdir Vignir Steinþór Halldórsson og Svanur Karl Grjetarsson, eigendur verktakafyrirtækisins MótX. Morgunblaðið/Styrmir Kári Mikil þörf á íbúðum » Mikil þörf hefur myndast fyrir nýjar íbúðir á höfuðborg- arsvæðinu. » Árlega þarf 1.200-1.500 nýj- ar íbúðir. En lítið hefur verið byggt eftir bankahrun. » Verið er að ljúka við upp- steypu á fjölbýlishúsi í Þorra- sölum og fyrsta skóflustunga í Kópavogstúni verður tekin í sumar. 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 STUTTAR FRÉTTIR ● Dr. Kjell Nilsson hefur verið ráðinn forstjóri hjá Nord- regio, rannsókna- stofnun ráðherra- nefndar Norður- landa í Stokkhólmi. Kjell Nilsson tók við sem fram- kvæmdastjóri 1. febrúar 2013. Hann er landslags- arkitekt að mennt, útskrifaðist 1989 með doktorsgráðu frá Landbúnaðar- háskóla Svíþjóðar, en vann síðast hjá skóga- og landslagsstofnun Kaup- mannahafnarháskóla. Þar var hann að- stoðarforstjóri. Forstjóri hjá Nordregio Dr. Kjell Nilsson ● Japanski myndavélaframleiðandinn Olympus lækkaði í gær afkomuspá sína fyrir rekstrarárið vegna minni eftir- spurnar eftir stafrænum myndavélum. Er nú gert ráð fyrir að hagnaðurinn nemi 6 milljörðum jena, 8,3 milljörðum króna, á rekstrarárinu sem lýkur í lok mars. Fyrri spá hljóðaði upp á 8 millj- arða jena hagnað. Er því spáð að salan verði 740 milljarðar jena sem er 2,2% minni sala en fyrri spá hljóðaði upp á. Olympus lækkar afkomu- spá sína í 6 ma jena Breski Barclays-bankinn greindi frá því í gær að hann áformaði að segja upp að minnsta kosti 3.700 starfs- mönnum sínum í ár. Uppsagnirnar eru liður í sparnað- araðgerðum bankans og viðbrögð við þeim fjársektum sem bankinn þarf að greiða eftir að upp komst um aðild hans að Libor-hneykslinu svokall- aða. Hæsta stjórnvaldssekt Þar er talið að nokkrir af stærstu bönkum heims hafi stundað vaxta- svindl á LIBOR-millibankavöxtum frá árinu 2005 með því að senda inn villandi og rangar upplýsingar. Sektin nemur 290 milljónum sterl- ingspunda, sem jafngildir 57 millj- örðum íslenskra króna. Þetta er hæsta sekt sem bresk stjórnvöld hafa lagt á banka hingað til. Í tilkynningu frá Barclays segir að 1.800 verði sagt upp hjá fyrirtækja- og fjárfestingarsviði bankans og 1.900 hjá starfsstöðvum hans í Evr- ópu. Ekki liggur fyrir hvenær ársins verður ráðist í uppsagnirnar. AFP Uppsagnir Nokkurn veginn jöfn skipting verður í uppsögnum Barclays- banka á milli starfsstöðva bankans í Bretlandi og Evrópu. 3.700 verður sagt upp hjá Barclays  Afleiðingar Libor-hneykslisins                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 +11.23 +,4.1, ,,.1-- ,3.,3+ ,/./+, +31 +.32-+ +12.21 +5+.24 +,-.32 ,//./, +,5.,1 ,3./22 ,3.,11 ,/./5+ +31.31 +.34,+ +14.+5 +5,./0 ,33.3++5 +,-.44 ,//.2+ +,5.44 ,3.+,, ,3.345 ,/.+3 +31.5- +.344+ +14.52 +5,.2, Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.