Morgunblaðið - 13.02.2013, Side 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
Ertu að taka til …
… á vinnustaðnum
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is… í bíls umkúrn
Ísland hefur í gegn-
um aldirnar tekið
reglulegum breyt-
ingum í fullkomnu
samræmi við lögmál
náttúrunnar, öflum
sem okkur er ekki ætl-
að að ráða við heldur
aðlagast. Þessi öfl hafa
ekki bara mótað land-
ið, heldur einnig við-
horf Íslendinga til
náttúrunnar og hvernig gæði náttúr-
unnar skulu nýtt á hverjum tíma.
Aukin vakning fyrir náttúru og um-
hverfi hefur leitt til þess að almenn-
ingur hefur stofnað fjölmörg frjáls
félagasamtök sem hafa ýmist það að
markmiði að fræðast um náttúru Ís-
lands, nýta gæði hennar með skyn-
samlegum hætti eða láta hana meira
og minna ósnerta.
Sameiginleg markmið
Öll sjónarmið í þessu eru góð og
gild, þróunin heldur áfram og okkar
helsta verkefni er að ná sátt um
nauðsynlegar aðgerðir þar sem þær
koma að gagni, t.d. með lagasetn-
ingu, skilvirkari hlutverkaskiptingu
og skipulagi stofnana, skilgreiningu
tekjustofna og aðkomu almennings.
Málefni Vatnajökulsþjóðgarðs
voru vendipunktur í samskiptum yf-
irvalda og almennings og prófsteinn
á getu stjórnmálamanna og embætt-
ismanna til að aðlagast breyttum að-
stæðum, þ.e. auknu aðhaldi almenn-
ings. Almenningur lítur á aðgengi að
náttúru Íslands sem jafn sjálfsagðan
hlut og að geta gengið óáreittur inn-
an veggja síns eigin heimilis, þar
sem almennar siðareglur gilda um
sambýli (tillitssemi, umburðarlyndi
og virðing). Nú stöndum við hins
vegar frammi fyrir ofurtrú stjórn-
valda á að leysa sameiginlegan
vanda með boðum og bönnum, enda
er það eina lausnin sem er í boði,
stundi menn ekki samráð.
Markmið allra útivistarfélaga er
að koma í veg fyrir að
spjöll eigi sér stað á
verðmætum sem hafa
ekki kostað almenning
neina fjármuni að
njóta, þó svo að kostn-
aður vegna ferðamáta,
búnaðar og þjónustu
sem útivistinni tengist
sé mjög breytilegur og
hafi oft numið háum
fjárhæðum. Aðalatriðið
er að aðgengi sé tryggt
án þess að spjöll hljót-
ist af, óháð ferðamáta.
Ný náttúruverndarlög
og aðkoma almennings
Drög að nýjum náttúruvernd-
arlögum eru nú til umfjöllunar á Al-
þingi og sagan virðist vera að end-
urtaka sig. Stjórnvöld hafa ekkert
lært af reynslunni þrátt fyrir alla
gagnrýnina um skort á samráði og
að ekki sé leitað í þekkingarbrunn
almennings í gegnum frjáls fé-
lagasamtök á sviði útivistar, þ.e.
þeirra sem eru að nýta sér þau lífs-
gæði sem felast í útivist og ferðalög-
um um landið. Þessi félög hafa staðið
fyrir öflugri fræðslu og fyrirbyggj-
andi aðgerðum í tugi ára, allt í sjálf-
boðavinnu, til að ná sömu mark-
miðum, þ.e. að vernda náttúru
Íslands og það löngu áður en stjórn-
völd tóku að ranka við sér og ætluðu
að redda hlutum með sínum aðferð-
um, þ.e. að innleiða boð og bönn,
auka réttaróvissu meðal almennings
og útbúa löggjöf sem gengur út á
refsingar en ekki hvatningu og
fræðslu þar sem almenningur í
gegnum frjáls félagasamtök ætti að
vera hluti af lausninni.
Árósasamningurinn og samráð
Tilgangur laga er að veita frelsi og
vernd. Hlutverk þingheims er að út-
búa góð lög sem byggjast á þessum
grunngildum. Nú er það hinsvegar
svo að flest verkefni þingmanna
snúa að því að ákveða hvernig sam-
eiginlegum fjármunum er varið,
nokkuð sem hefur mjög skýrt gildi
og skýra mælikvarða. Þegar kemur
að umhverfismálum erum við hins-
vegar að ræða verðmæti sem eru
ekki metin í krónum og aurum.
Náttúra Íslands er griðastaður sem
gefur almenningi kost á að kúpla sig
frá hversdagsleikanum og allri um-
ræðu um veraldleg gæði og tengjast
uppruna sínum, stórkostlegur stað-
ur til að vera á. Það er því ekki að
ástæðulausu sem við höfum innleitt
Árósasamninginn sem ítrekar ein-
mitt aðkomu almennings þegar
kemur að þessum málum. En hvað
hefur breyst eftir innleiðingu Ár-
ósasamningsins, nákvæmlega ekk-
ert! Stjórnvöld halda uppteknum
hætti og túlka samráð sem leyfi al-
mennings til að hafa opinbera skoð-
un á því sem stjórnvöld eru að gera,
en lítið er gert með þessar at-
hugasemdir. Það er staðreynd.
Ráðgjafar stjórnvalda
Stjórnvöld styðjast mest við
„Hvítbækur“ sem meginheimildir
fyrir lagasetningu, en stóra spurn-
ingin í þessu samhengi er hverjir eru
stjórnvöldum til ráðgjafar í und-
irbúningsferlinu? Gallinn við núver-
andi nálgun er ekki sá að okkur
vanti upplýsingarnar um þær stað-
reyndir sem blasa við, þær hafa gert
það áratugum saman og þarf enga
„Hvítbók“ til að upplýsa reynda úti-
vistarmenn um það sem er í gangi,
þó svo að „Hvítbækur“ séu ágæt
samantekt og heimild til að stíga
næstu skref innan stjórnsýslunnar.
Gallinn við nálgunina er sá að lög
eiga að vera hluti af lausn, lausn sem
skilar árangri mun ekki nást án
virkrar aðkomu og ráðgjafar frjálsra
félagasamtaka á sviði útivistar, þrátt
fyrir fagurgala stjórnvalda um ann-
að. – Þetta er veruleikinn og því fyrr
sem stjórnmálamenn aðlagast þess-
um veruleika, þeim mun fyrr verður
sameiginlegum markmiðum náð á
sviði sjálfbærrar nýtingar. Tími fag-
urgala er liðinn, stjórnvöld þurfa að
aðlagast nýjum tímum og lifa þau
gildi sem eru boðuð um samráð.
Ferðafrelsi.is
Áhyggjur almennings eru raun-
verulegar, um það vitnar góð þátt-
taka í undirskriftasöfnun Ferða-
frelsishópsins sem nú stendur í
rúmum 14.000 þegar þessi orð eru
skrifuð.
Náttúra Íslands, samráð
og aðlögunarhæfni
Eftir Arne
Sólmundsson » Lausn sem skilar ár-
angri mun ekki nást
án virkrar aðkomu og
ráðgjafar frjálsra fé-
lagasamtaka á sviði úti-
vistar …
Arne Sólmundsson
Höfundur er verkfræðingur, veiði-
maður og varaformaður SKOTVÍS.
Nú hefur það komið
upp úr dúrnum í snot-
urri grein séra Hall-
dórs í Holti í Morg-
unblaðinu í vikunni
sem leið, að hann fór í
tvær spandansreisur
um Suðurland til þess
að eiga við fólkið þar
viðræður um framboð
sitt og ekki síst stöðu
formanns Sjálfstæð-
isflokksins. Minnir þetta dálítið á
ferðir annars boðbera sannleikans
undan Eyjafjöllum, eða þegar Eirík-
ur á Brúnum tók að boða trú mor-
móna fyrir margt löngu. Halldóri
var vel fagnað á bæjunum og gerður
góður rómur að erindi hans, en
þessu var allt öðru vísi farið hjá
bóndanum á Brúnum, því fáir virtu
hann viðlits og presturinn sem þá
sat í Holti sigaði á hann hundum.
Það var ýmist að frumkvæði séra
Halldórs í þessum reisum eða við-
mælenda hans að bollaleggingar um
stöðu formannsins voru til umfjöll-
unar, en það fer þó ekki fram hjá
nokkrum manni hvar áhugi séra
Halldórs liggur. Hann færir stuðn-
ingsleysið við formanninn í bókhald
sitt í sverum prósentum, en ekki er
vitað til þess að Eiríkur á Brúnum
hafi fært vondan stuðning við trúboð
sitt í þess konar reiknikúnstir. Það
væri býsna fróðlegt að vita hverjum
stuðningi Sunnlendingar lofuðu
frambjóðandanum Halldóri Gunn-
arssyni, nema það hafi gleymst, sem
er ekki ólíklegt, þegar í ljós kom
hvern veg atkvæði féllu.
Það er eins og gengur að ekki eru
allar ferðir til fjár og ekki kæmi mér
á óvart að þessar ferðir um Suður-
land muni litlu skila Halldóri í Holti
við það óhappaverk að ætla að kljúfa
Sjálfstæðisflokkinn. Það kæmi
reyndar ekki á óvart að hann hætti
bara við og snéri sér að einhverju
öðru þarfara, sem væri fagnaðar-
efni, því það munar um hann, þegar
hann bregður vana sínum og sýnir
ljósu hliðina.
En úr því að prósent-
ur eru nefndar þykir
mér rétt að nefna það í
leiðinni að í nýlegri
könnun gefur að líta að
fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins sé afgerandi mest í
kjördæmi formannsins
Bjarna Benediktssonar
eða 42% og 7 þingmenn
kjörna á sama tíma og
það mælist um 32% í
höfuðborginni og jafn
marga kjörna þingmenn. Þetta er
niðurstaðan, þrátt fyrir að í því kjör-
dæmi sé öflugustu frambjóðendum
hinna flokkanna að mæta. Eins og
ég hef litla trú á prósentureikningi
prestsins held ég að útilokað sé,
þrátt fyrir góðan vilja, að skýra
þetta öfluga fylgi flokksins í Krag-
anum með því að formaður hans
njóti ekki trausts.
Við séra Halldór hljótum að fagna
því að Hanna Birna ætlar að styrkja
forystusveitina með því að beita sér
af alefli í komandi kosningum og
kveða þannig niður sundurlynd-
isfjandann.
Ég er sammála séra Halldóri um
það að nauðsynlegt er að Sjálfstæð-
isflokkurinn kveði skýrt að um þau
úrræði, sem hann ætlar að nota til
þess að leysa skuldavanda heim-
ilanna. Sá flokkur sem gerir það
ekki á ekkert gott skilið og mun í
kosningunum í vor „eiga litla von hjá
ljúfum Drottni.“
Læt ég hér með þessum skylm-
ingum við prestinn í Holti lokið á síð-
um Morgunblaðsins en hlakka til að
hitta hann á Landsfundi.
Prósentu-
reikningur í Holti
Eftir Árna
Emilsson
Árni M. Emilsson
» Við séra Halldór
hljótum að fagna því
að Hanna Birna ætlar
að styrkja forystusveit-
ina ...
Höfundur er fyrrverandi bankamaður
og áhugamaður um þjóðmál.
Sveit Vina Reykjanesmeistari
Reykjanesmótið í sveitakeppni fór
fram helgina 9.-10. febrúar. Tíu
sveitir kepptu um sjö sæti í undan-
úrslitum Íslandsmótsins auk þess
sem áttunda sveitin kemst inn sem
fyrsta varasveit í sætið sem Reykja-
vík nýtti ekki. Sveit Garðs Apóteks
vann mótið á endasprettinum eftir
að Sigtryggur vann hafði haft góða
forystu lengst af. Vinir eru hins veg-
ar Reykjanesmeistarar 2013 þar
sem þrjár efstu sveitirnar voru ekki
löglega skipaðar til að keppa um
þann titil. Sveit Vina skipa þeir
Heimir Tryggvason, Árni Már
Björnsson, Gísli Tryggvason, Leifur
Kristjánsson og Þorsteinn Berg.
Sveit Garðs Apóteks skipuðu Björn
Eysteinsson, Guðmundur Sv. Her-
mannsson, Jón Þorvarðarson og
Hermann Friðriksson. Röð efstu
sveita varð annars þessi.
Garðs Apótek 191
Sigtryggur vann 173
Vinir 136
Pétur og Úlfarnir 136
GSE 133
Eldri borgarar Hafnarfirði
Föstudaginn 8. febrúar 2013 var
spilað á 14 borðum hjá FEBH með
eftirfarandi úrslitum í N/S:
Jón Sigvaldason – Katarínus Jónsson 356
Bjarnar Ingimars – Bragi Björnsson 350
Örn Einarss. – Steinmóður Einarss. 346
Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 336
A/V:
Anton Jónsson – Ólafur Ólafsson 388
Sigurður Tómáss. – Guðjón Eyjólfss. 365
Birgir Sigurðss. – Jón Svan Sigurðss. 363
Tómás Sigurjónss. – Björn Svavarss. 359
Eldri borgarar Reykjavík
Fimmtudaginn 7. febrúar var
keppt í tvímenningi hjá Bridsdeild
Félags eldri borgara, Stangarhyl 4,
Reykjavík. Spilað var á 11 borðum.
Meðalskor var 216 stig.
Efstir í N-S:
Jón Lárusson – Ragnar Björnss. 252
Magnús Oddss. – Oliver Kristóferss. 251
Siguróli Jóhannss. – Auðunn Helgas. 243
Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 241
A-V
Bergur Ingimundars. – Axel Láruss. 253
Guðm. Steinbach – Bjarni Guðnas. 250
Jón Þ. Karlss. – Ægir Ferdinandss. 240
Sigurjón Helgas. – Helgi Samúelss. 240
Mánudaginn 11. febrúar var spil-
aður tvímenningur á 14 borðum.
Meðalskor var 312 stig. Efstir í N-S:
Ágúst Helgason - Haukur Harðarson 372
Magnús Oddsson - Oliver Kristófersson 358
Hrafnh. Skúlad. - Guðm. Jóhannsson 357
Valdimar Ásmundss. - Björn Péturss. 338
A-V
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 407
Bergur Ingimundarson - Axel Lárusson 362
Elías Einarss. - Höskuldur Jónsson 353
Bjarni Guðnason - Guðm. K. Steinbach 351
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
norir@mbl.is