Morgunblaðið - 13.02.2013, Qupperneq 26
26 UMRÆÐANBréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
Golfklúbbur Kópavogs og Garða-
bæjar var stofnaður 24. mars 1994
og verður því 20 ára á næsta ári.
Klúbburinn er
nú næst-
fjölmennasti
golfklúbbur
landsins með
tæplega 2.000 fé-
laga. Golfvöll-
urinn hefur verið
í mikilli upp-
byggingu síðustu
ár og er í dag
einn besti völlur
á landinu. Mikil
áhersla hefur ávallt verið lögð á
barna- og unglingastarf og síðasta
sumar voru um 1.000 börn og ung-
lingar sem æfðu á vegum klúbbs-
ins, þar af um 600 börn innan við
10 ára aldur sem sóttu sumar-
námskeið sem GKG stendur fyrir.
Það er því óhætt að segja að mikil
gróska sé í starfseminni og mikill
hugur í félögum GKG að efla og
styrkja starfið enn frekar á næstu
árum. Það er því bjart framundan
hjá GKG, eða hvað?
Vellir og samningar
GKG rekur tvo golfvelli, þ.e. Leir-
dalsvöll og Mýrina, sem eru í lönd-
um Kópavogs og Garðabæjar. Um
þann hluta Leirdalsvallar, 15,15 ha
að stærð, sem er í landi Kópavogs,
var gerður samningur árið 2007 til
20 ára, sem framlengist um sama
tíma verði honum ekki sagt upp
með árs fyrirvara. Árið 1999 var
gerður leigusamningur við Rík-
isspítalana, sem höfðu umsjón með
landinu af hálfu ríkisins, um 46,5
ha. lands, en ríkið er eigandi
landsins. Þessi samningur er einn-
ig til 20 ára og framlengist sjálf-
krafa um sama tíma ef honum hef-
ur ekki verið sagt upp fyrir lok
leigutímans. Í 2. gr. þessa samn-
ings stendur m.a.: „Hið leigða land
er leigt til að byggja og starfrækja
á því golfvöll og er leigutaka
(GKG) heimilt í því skyni að gera
nauðsynlegar breytingar á landinu
svo sem byggja félagsskála, verk-
færageymslu, gera bílastæði og
annað sem nauðsynlegt er vegna
starfsemi klúbbsins, allt að fengnu
samþykki skipulags- og bygginga-
yfirvalda Garðabæjar. Uppdrættir
af félagsskála skulu þó lagðir fyrir
leigusala til samþykktar svo og af
öllum meiriháttar mannvirkjum.“
Fyrir þennan leigusamning greiðir
GKG 4.100.000 kr. á árinu 2013, en
þetta er trúlega eina íþróttafélagið
á landinu sem greiðir leigu fyrir
land, en leigan rennur til starfs-
mannaráðs LSH.
Fáum enga lóð
Félagsaðstaða GKG er löngu
sprungin og hefur verið leitað eftir
lóð fyrir nýja félagsaðstöðu til
Garðabæjar svo árum skiptir.
Skiptar skoðanir voru meðal fé-
laga GKG um staðsetningu bygg-
ingarinnar, þótt mikill meirihluti
vildi byggja á bæjarmörkum
Kópavogs og Garðabæjar. Meiri-
hluti bæjarráðs Garðabæjar hafn-
aði þeirri staðsetningu á fundi 20.
mars 2012, en kvaðst reiðubúinn
að heimila byggingu á svipuðum
slóðum og núverandi skáli stend-
ur. Félagar í GKG féllust á þá
staðsetningu, því það er svo mik-
ilvægt fyrir alla starfsemi GKG að
hefja byggingu sem allra fyrst að
ekki var talið forsvaranlegt að láta
deilur um staðsetningu tefja málið
frekar. Okkur var að sjálfsögðu
ljóst, að breyta þyrfti deiliskipu-
lagi áður en við fengjum formlega
úthlutaða lóð. Ekki er talið að það
þyrfti að taka langan tíma. Nú
rúmum 10 mánuðum eftir fundinn
í bæjarráði Garðabæjar virðist
sem málið sé sofnað. Þrátt fyrir að
stjórn GKG hafi reynt að fá nið-
urstöðu í þetta mál virðist sem allt
strandi á að fulltrúi í fjár-
málaráðuneytinu skrifi upp á
heimild til að breyta deiliskipulag-
inu. Í leigusamningnum er hvergi
vikið að því að ríkið þurfi að skrifa
upp á breytingu á deiliskipulagi,
heldur er skýrt kveðið á um heim-
ild GKG til að byggja félagsað-
stöðu að fengnu samþykki skipu-
lags- og byggingayfirvalda í
Garðabæ. Mér virðist því að þetta
mál sé alfarið í höndum bæjaryf-
irvalda í Garðabæ.
Ég vil skora á alla félaga í GKG
að leggjast nú á árarnar með
stjórninni í að fá lausn í þessu
máli sem allra fyrst.
GUÐMUNDUR ODDSSON,
formaður GKG.
Hvers á GKG að gjalda?
Frá Guðmundi Oddssyni
Guðmundur
Oddsson
Enn berast fréttir af miklum síld-
ardauða í Kolgrafafirði, súrefn-
isskortur vegna veðrabrigða segja
þeir vísu menn hjá Hafrannsókna-
stofnun og er það sjálfsagt rétt
greint.
En af hverju kemur þetta fyrir
allt í einu núna og það tvisvar með
skömmu millibili og af hverju hef-
ur þetta ekki komið fyrir á undan-
förnum árum eða einhvern tímann
áður.
Það er athyglisvert að velta því
svolítið fyrir sér hvort þarna séu
kannski einhverjar aðrar ástæður
en vanalegar veðurbreytingar að
verki, eitthvað annað en við eigum
að venjast svona dags daglega?
Eru síldargöngur kannski svona
miklu meiri nú en undanfarin ár
og þess vegna verði ástandið
svona miklum mun alvarlegra fyr-
ir vikið?
Á Snæfellsnesi eru nokkuð
margar og smáar eldstöðvar frá
nútíma og að sjálfsögðu eldstöðin í
sjálfum konungi Snæfellsnessins,
Snæfellsjökli, og
hafa sumar
þeirra komið
upp á ólíkleg-
ustu stöðum eins
og Eldborgin
fagra á Mýrum
og eldstöðin sem
sendi hraunið
niður í Hrauns-
fjörð sem er
næsti fjörður við
Kolgrafafjörð. Svo virðist því sem
virkni sé talsverð í jarðskorpunni
þarna og hugsanlega þarf hún
stundum að losa sig við gasteg-
undir sem kannski sum eld-
stöðvakerfi losa sig við í gegnum
hverasvæði en þarna er ekki mikið
um hverasvæði þó að vísu sé
þarna eitthvað um heitar laugar.
Gæti það verið möguleiki að
móðir jörð sé að losa sig við gas
og gufur upp um sprungur sem
mögulega geta verið á botni fjarð-
arins?
Væri ekki full þörf á að jarð-
fræðingar kæmu að rannsókn
þessara furðulegu atburða og þá
hvort á þessum svæðum væri eitt-
hvað það að gerast í jarðskorp-
unni sem vert væri að veita at-
hygli.
Snæfellsnesið skartar einum
fremsta eldfjallafræðingi verald-
arinnar og ættu því að vera hæg
heimatökin að fá menn með sér-
þekkingu á svona málum.
Ef eitthvað svona lagað væri á
ferðinni þarna þarf ekki að hafa
mörg orð um þá hættu sem skap-
ast gæti við að stefna miklum
mannfjölda á staðinn.
Ég vona að þessar ábendingar
mínar hræði engan og vil benda á
að ég er enginn sérfræðingur,
heldur einungis óbreyttur almúga-
maður sem hefur áhuga á svona
dularfullum atburðum og eru
þetta einungis hugarórar mínir og
hugrenningar um þennan skyndi-
lega og furðulega fiskidauða sem
virkilega er þörf á að okkar
fremstu sérfræðingar rannsaki á
allar hugsanlegar hliðar.
HJÁLMAR MAGNÚSSON,
Kópavogi.
Vangaveltur um síldar-
dauðann í Kolgrafafirði
Frá Hjálmari Magnússyni
Hjálmar
Magnússon
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Dreymir þig nýtt eldhús!
Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús
og allar innréttingar sem hugurinn girnist.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
ER ÞÖRF Á
MARGSKIPTUM
GLERAUGUM?
MARGSKIPT
GLER
-25%
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu.