Morgunblaðið - 13.02.2013, Side 36

Morgunblaðið - 13.02.2013, Side 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það getur verið gaman að fara ótroðnar slóðir en til þess þarf bæði kjark og þrautseigju. Sá sem biður þig ráða sækist eftir viðurkenningu. Veldu vel þá sem þú vilt umgangast áfram. 20. apríl - 20. maí  Naut Reyndu að temja þér ráðkænsku og háttvísi í samtölum við maka og nána vini í dag. Hefur þér sést yfir eitthvað? Veltu sparnaðarleiðum fyrir þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gættu þess að láta ekki hugann hvarfla um of. Gönguferð í morgunsárið hreinsar blóðið og slær ánægjulegan tón fyrir daginn í heild. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er gott og blessað að leggja fjölskyldu sinni lið, en varast skaltu aum- ingjagæsku. Ekkert jafnast á við rökræður og þú gætir lært af þeim. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú veist eiginlega ekkert hvernig þú átt að vera og það veldur þér nokkrum áhyggjum. Að vera sannur í orði og gerð- um frelsar sálina og nærir anda þeirra sem við erum samvistum við. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú nýtur þess að eiga stund með sjálfum þér um þessar mundir. Hafðu hægt um þig um sinn. Sem betur fer get- urðu lært af mistökunum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þegar einhver stendur með þér hag- ar viðkomandi sér í samræmi við það. All- ir virðast hafa skoðun á einkalífi þínu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér tekst að hafa talsverð áhrif á náungann í dag, ekki síst vegna glaðværðar þinnar. Varastu að valda glundroða og leita að átökum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert heltekin/n af ferðaþrá þessa dagana. Vertu ekkert að velta þér upp úr vandamálum heldur njóttu þess að lifa í núinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er farsælla að velta hlut- unum stundum fyrir sér en að bregðast strax við. Félagsþroski þinn er í blóma. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Mundu að sú/sá sem þú elsk- ar er mennsk/ur eins og við hin. Þú gæt- ir þurft að borga einhverja viðgerð fljót- lega. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hjátrú getur verið jákvæð ef hún hjálpar þér að finnast þú hafa stjórn á ástandinu. Láttu af þeim leiða vana að efast um eigið ágæti. Kötturinn Jósefína Dietrich ýmistmalar eða hvæsir í bundnu máli á fésbók. Hún heyrði af því að forsetahundurinn Barney Bush, sem var í fjölskyldu George W. Bush, hefði hrokkið upp af. Jósefína lét sér fátt um finnast: „Hvað er verið að hlaupa með það í blöðin þó að hund- ur geispi golunni? Drepast hundar, frændur, fé og fjandakornið allt sem lifir en alveg fráleitt að það sé eitthvað til að fárast yfir.“ Skúli Pálsson svaraði að bragði: Jósefína Dietrich dýr og dáindis fín læða stundum upp á snjáldrið snýr, snjöll er hennar ræða. Þá Kristján Björn Snorrason: Ljótt er að heyra um Barney Bush blés hann lífi í glæðurnar. Oftast var hann innan húss að yfirfara ræðurnar. Loks Helgi Zimsen: Þó að detti hér af hjörum hundur frægur lífs við kíf. Það er enn á allra vörum að þú hafir níu líf. Hagyrðingurinn Óttar Einarsson er fallinn frá og verður saknað á vísna- þingum. Björn Ingólfsson orti fallegar afhendingar er hann heyrði tíðindin: Tímans megnar enginn á að ósi stemma, Óttar genginn allt of snemma. Þótt næsta hrygg við norpum hérna niðurdregin mun húmor magnast hinum megin. Ármann Þorgrímsson orti: Fullkomið er frelsi hans fjarri lífsins þrasi stígur nú við dísir dans og dreypir öls á glasi. Óttar sá spaugilegu hliðina á til- verunni sem endranær er hann skrifaði á Leirinn í haust: „Maður gerist nú gamlaður og má segja að allt manns vit fari í að telja töflur og vigta skammta ofan í sig í þeirri veiku von að tóra a.m.k. daginn í dag – nú og hugsanlega daginn á morgun líka ef guð lofar.“ Þessi staka hrökk „óvart“ upp úr honum: Tek ég lyf á lista skráð, að lögum guðs og manna og lifi fyrir líkn og náð læknavísindanna.“ Síðasta vísan sem Óttar sendi á Leirinn hljóðaði svo: Er hún horfin þessi þrá, þrá sem hlær og grætur? Manni liggur ekkert á allra síst á fætur! Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahornið Af forsetahundi, frelsi og föllnum hagyrðingi Í klípu „MJÖG ÁHUGAVERT. ERTU MEÐ EINHVERJA MENNTUN EFTIR LEIKSKÓLA?“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞAÐ ER LÍTIL MYNDAVÉL FRAMAN Á HENNI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hjálpa að laga brotið sjálfstraust. TAKK, SMÁFÓLK, FYRIR 50 ÁR AF GÓÐRI SKEMMTUN! AF HVERJU LÍTUR ÆGIR ÆGILEGI SVONA HARÐUR OG ÓTTALAUS ÚT ÞEGAR HANN SITUR MEÐ HENDURNAR SVONA? HANN ER AÐ REYNA AÐ FELA ÞAÐ AÐ HANN... ...NAGAR Á SÉR NEGLURNAR! ÉG GET EKKI SOFIÐ GRETTIR! ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ SKRÍMSLI Í SKÁPNUM MÍNUM ÉG HEYRÐI ÞAÐ ÖSKRA ÞAÐ SÁ EFLAUST INN Í FATASKÁPINN ÞINN! Víkverji lagði malbik undir hjól áSafnanótt og skoðaði bæði Flæði á Kjarvalsstöðum og rólur og kaðla Bjarkar Viggósdóttur í Hafn- arborg. Sýningin Flæði byggist á úr- vali úr safneign Listasafns Reykja- víkur. Verkunum er skipt út reglulega, jafnvel á meðan gestir eru viðstaddir, eins og segir í kynn- ingu. x x x Þessi sýning er ekki síst skemmti-leg vegna þess að þar dúkka upp verk eftir listamenn, sem ekki hafa verið áberandi hin síðari ár. Á sýn- ingunni er greinilega lögð áhersla á að koma sem mestu að. Gerólík verkin eru hvert ofan í öðru á veggj- unum svo úr verður skemmtilegur glundroði. Auðvitað eru verkin mis- jöfn, en þau bera því vitni hvað eign safnsins er fjölbreytileg og vekja auðvitað til umhugsunar um hvort ekki ætti oftar að gefa almenningi kost á að skyggnast í þennan fjár- sjóð Listasafnsins. x x x Í Hafnarborg var Björk Viggósdótt-ir í miðjum samræðum við roskn- ari gesti sína þegar Víkverja bar að garði, en yngri gestir klifruðu í köðl- um og róluðu sér af miklum móð. Inntak glímu listamannsins við að- dráttaraflið er ofar skilningi Vík- verja þannig að hann tók sér börnin til fyrirmyndar, lagði reyndar ekki í kaðlana, en rólaði sér feimnislega örskotsstund og fannst rólan reynd- ar fullnálægt gólfi til að hann gæti notað langa skanka sína til að kom- ast á almennilega ferð en kannski er það öryggisráðstöfun. x x x Liðamótalaus dansari, sem sýndilistir sínar þarna um kvöldið, fór hins vegar létt með að athafna sig þótt rólan væri lág og átti ekki held- ur í neinum vandræðum með að- dráttaraflið, sem virtist einfaldlega ekki virka á dansarann. Víkverji hef- ur fyrir satt að sýningin Aðdráttar- afl í Hafnarborg hafi einmitt mikið aðdráttarafl á yngri kynslóðir Hafn- firðinga, sem athafna sig í hlýju safnsins í stað þess að kúldrast und- ir berum himni á leikvöllum, óvarin fyrir veðri og vindum í hafnfirska vetrinum. víkverji@mbl.is Víkverji Finnið og sjáið að Drottinn er góður, sæll er sá maður sem leitar hælis hjá honum. (Sálmarnir 34:9) Fossaleyni 2, 112 Reykjavík, sími 586 1000 husgogn.is Heill heimur af ævintýrum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.