Morgunblaðið - 13.02.2013, Side 38

Morgunblaðið - 13.02.2013, Side 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 Við léttum þér lífið F A S TU S _H _0 5. 01 .1 3 Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 | Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 WWW.FASTUS.IS Stuðningshandföng Göngugrindur Griptangir Salernis- og sturtustólar Fastus ehf. býður upp á heildarlausnir innan endurhæfingar, hjúkrunar og hjálpartækja. Í verslun Fastus að Síðumúla 16, 2. hæð er að finna gott úrval af heilbrigðisvörum. Sérhæft fagfólk á sviði endurhæfingar, hjúkrunar og hjálpartækja leggur metnað sinn í að finna lausnir og aðstoða við val á vörum fyrir einstaklinga og stofnanir. Komdu og skoðaðu úrvalið - við tökum vel á móti þér og finnum réttu lausnina fyrir þig. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Í nýjum myndlistarlögum, sem sett voru í fyrrasumar, eru þau nýmæli að komið er á fót myndlistarsjóði og skipað myndlistarráð. Samvæmt lögunum er markmið myndlistar- sjóðs að „efla íslenska myndlist með fjárhagslegum stuðningi og kosta önnur verkefni er falla undir hlut- verk og starfsemi myndlistarráðs“. Fjárveitingar til sjóðsins í ár nema 45 milljónum króna. Sama upphæð rennur til hönnunarsjóðs. Myndlistarsjóður, sem ætlað er að styðja við innlenda myndlist og sýningar innan lands og utan, hefur ekki verið til áður, þótt ráðuneytið hafi lengi veitt styrki til myndlistar- manna vegna sýninga og annarra verkefna erlendis, auk þess að veita fjárstuðning til reksturs á Kynning- armiðstöð íslenskrar myndlistar. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir að eins og styrkjaumhverfi listgrein- anna hafi verið byggt upp, með verkefna- og launasjóðum, hafi vantað sjóði fyrir myndlist og hönn- un. „Myndlistarsjóðurinn fær fjár- magn gegnum fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar,“ segir hún. „Eitt er að sækja um starfslaun fyrir af- mörkuð verkefni einstaklinga en þarna gefst kostur á að sækja um fyrir afmörkuð verkefni, þar sem eru fleiri en einn listamaður, sem er í takt við margt sem er að gerast í myndlistarheiminum.“ Katrín hefur skipað í fyrsta myndlistarráðið. Helstu verkefni þess eru að úthluta styrkjum úr myndlistarsjóði, stuðla að alþjóð- legu samstarfi og kynningu á myndlistarmönnum, auk þess að vera ráðherra til ráðgjafar. For- maður myndlistarráðs er Auður Ava Ólafsdóttir, forstöðumaður Listasafns HÍ og rithöfundur. Vara- formaður er Ólöf K. Sigurðardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, og aðrir stjórnarmenn eru listamenn- irnir Ásmundur Ásmundsson og Ósk Vilhjálmsdóttir og Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands. Katrín segir myndlistarráð gera annars vegar tillögur um úthlutun úr myndlistarsjóði og hins vegar vera ráðherra til ráðgjafar um stefnumótun í myndlistarmálum. „Mikið hefur verið skorið niður í svokölluðum safnliðum og mín sýn er sú að best sé að færa sem mest af styrkveitingum í hendur faglega skipaðra úthlutunarnefnda og tryggja þar samráð við grasrótina, með því að fá tilnefningar um skip- an ráðanna,“ segir hún. Katrín segir að í liðinni viku hafi verið haldinn samráðsfundur í ráðuneytinu um styrkjakerfi listanna og í bígerð sé að skoða það í heild sinni. „Þetta kerfi er orðið miklu stöndugra en það var, launa- sjóðir og verkefnasjóðir hafa eflst og ástæða er til að skoða hvernig fénu er útdeilt og hvernig megi samræma umhverfið,“ segir hún. Morgunblaðið/RAX Sýningarstyrkir Frá sýningu í Kling & Bang á Listahátíð. Hinum nýja mynd- listarsjóði er ætlað að efla íslenska myndlist með fjárhagslegum stuðningi. Myndlistarsjóður fær 45 milljónir  Myndlistarráð skipað fyrsta sinni Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Það hefur lítið heyrst til hljómsveit- arinnar Bloodgroup síðasta árið eða þar um bil en hún hefur verið önnum kafin við tónleikahald og upptökur á þriðju breiðskífu sinni, Tracing Echo- es, sem kom út 4. febrúar sl. Hljóm- sveitin var stofnuð árið 2006 af Janusi Rasmussen og systkinunum Halli, Ragnari og Lilju Kristínu Jóns- dóttur. Árið 2010 hætti Lilja Kristín í sveitinni og í stað hennar kom söng- konan Sunna Margrét Þórisdóttir. Fyrsta breiðskífan, Sticky Situation, kom út 2007 og sú næsta, Dry Land, undir lok árs 2009. Rúm þrjú ár milli platna er býsna drjúgur tími og má því gera ráð fyrir að einhver breyting hafi orðið á tón- list sveitarinnar milli platna. Eða hvað? „Ég held að við séum bara orð- in ákveðnari í því hvað við viljum gera,“ svarar Janus, söngvari og hljómborðsleikari Bloodgroup, þeirri spurningu. „Á fyrstu plötunni vorum við eiginlega bara að leika okkur, nokkrir rokkarar sem vorum öll í rokkhljómsveitum og komin með leiða á því, vildum gera aðra músík,“ útskýrir hann. Á Dry Land hafi hljómsveitin verið orðin betur með- vituð um hvernig tónlist hún vildi gera. „Þetta er fyrsta platan þar sem við vorum örugg allan tímann, vissum hvað við vorum að gera áður en við fórum af stað,“ segir Janus um Trac- ing Echoes. „Við fórum kannski meira út í „electronics“ en samt með „acoustic“ áhrifum, mikið af lifandi trommuleik.“ Plötuútgáfan Kölski gefur Tracing Echoes út hér á landi en Sugarcane Recordings á erlendri grundu (sem gefur m.a. út skífur Hot Chip, Davids Lynch og Hercules & Love Affair) og AdP sem gaf einnig út síðustu plötu Bloodgroup. Þekkt í Póllandi – Nú hefur lítið spurst til ykkar í dágóðan tíma. Hafið þið verið á stans- lausum tónleikaferðalögum? „Já, við erum búin að vera að spila úti bara, erum búin að túra mikið,“ svarar Janus. Hljómsveitin hafi leikið í hinum ýmsu löndum og þá mest í Evrópu. En er hljómsveitin þá orðin þekkt erlendis? „Við erum frekar þekkt í Póllandi skilst mér en við er- um ennþá „indie“-band og finnst það flott,“ segir Janus. Dry Land hafi verið gefin út víða erlendis en Trac- ing Echoes dreift á heimsvísu. Hið virta dagblað Guardian fjallaði fyrir skömmu með jákvæðum hætti um fyrstu smáskífu nýju plötunnar, „Fall“ og það hlýtur að teljast býsna góð auglýsing fyrir sveitina. Spurður að því hvort erlendir fjölmiðlar séu í auknum mæli farnir að fjalla um Blo- odgroup svarar Janus að það færist í aukana. „Það eru allir rosa jákvæðir,“ segir hann um umfjallanir erlendra fjölmiðla um plötuna nýju. Bloodgroup heldur útgáfutónleika í Iðnó 14. mars og tveimur dögum síðar á Græna hattinum. En næstu tónleikar hennar eru á tónlistarhátíð- inni Sónar Reykjavík í Hörpu, 15. febrúar. Spurður að því hvort hljóm- sveitin sé ekki spennt fyrir hátíðinni svarar Janus því til að hún sé það vissulega. Margir flottir tónlist- armenn komi þar fram og því ekki annað hægt en að hlakka til. „Ákveðin í því hvað við viljum gera“  Tracing Echoes nefnist þriðja breiðskífa Bloodgroup Blóðflokkur Janus, Hallur, Sunna og Ragnar í Bloodgroup. Falleg Ljósmyndin sem prýðir umslag Tracing Echoes. Þrjár ljósmyndir voru teknar hver ofan í aðra með þessari fallegu útkomu. bloodgroup.is sonarreykjavik.com Ljósmynd/Sigríður Ella Frímannsdóttir „Velgengni bók- arinnar skýrist ekki af því að Þjóðverjar séu svona hrifnir af Hitler. Þetta þýð- ir bara að þjóðin getur ekki losnað undan honum. Þjóðverjar eru Hitlerssjúkir,“ segir rithöfund- urinn og samfélagsrýnirinn Henryk M. Broder um bókina Hann er kom- inn aftur (d. Er ist wieder da) eftir Timur Vermes. Um er að ræða fyrstu bók höfundar sem hefur án auglýsingar selst í um 400 þúsund eintökum og náð hátt á þýska met- sölulistanum. Bókin, sem er háðs- ádeila, fjallar um endurkomu Hitl- ers sem samtíminn sér nánast sem skemmtikraft. Í blaðaviðtölum hef- ur Vermes látið hafa eftir sér að hann vilji með bók sinni vara við lýðskrumurum. „Þjóðverjar Hitlerssjúkir“ Adolf Hitler snýr aftur í nýrri bók.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.