Morgunblaðið - 13.02.2013, Síða 44

Morgunblaðið - 13.02.2013, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 44. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Lést í nótt við JL-húsið 2. Halldóra Geirharðs selur húsið 3. Drakk tíu lítra af kóki á dag 4. Blaðberi bjargaði ... »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Breiðskífa hinnar gríðarvinsælu ís- lensku hljómsveitar Of Monsters and Men, My Head is an Animal, er í fyrsta sæti á ástralska plötulist- anum. Engin íslensk hljómsveit eða tónlistarmaður hefur náð þeim árangri í sögu listans, að því er fram kemur í frétt á vefnum The Music Network. Er tónleikaferð þeirra um Ástralíu og mikilli útvarpsspilun m.a. þakkaður þessi frábæri árangur. Morgunblaðið/Eva Björk Breiðskífa OMAM í fyrsta sæti í Ástralíu  Hið víðlesna málmrokkstímarit Metal Hammer fjallar um íslensku svartmálmssveit- ina Dynfara í nýj- asta tölublaði sínu. Hljómsveitin kemur fram á þremur dögum í þessari viku, annað kvöld á Bar 11, föstudaginn 15. febrúar á Dillon og 16. febrúar á smáhátíðinni Dautt and- rúmsloft á Íslenska rokkbarnum í Hafnarfirði. Verða það síðustu tón- leikar Dynfara áður en upptökur hefj- ast á þriðju plötu hljómsveitarinnar. Fjallað um Dynfara í Metal Hammer  Útgáfutónleikum hljómsveitarinnar Nick Cave & The Bad Seeds, sem haldnir verða í kvöld í Berlín vegna breiðskífunnar Push the sky away, verður útvarpað í beinni útsendingu á Rás 2 í þættinum Hlustið og þér munið heyra. Útsending hefst kl. 19.30. Nick Cave og hljóm- sveit í beinni á Rás 2 Á fimmtudag Norðan 5-13 m/s. Bjartviðri S-til á landinu, en dálítil snjókoma N- og A-lands og slydda eða rigning við ströndina. Á föstudag Norðlæg átt, víða 5-10 m/s. Bjartviðri S- og V-lands, en minnkandi él fyrir norðan. Kólnandi í bili. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-18, hvassast um landið SA- vert. Rigning eða slydda á SA-landi og Austfjörðum. Hlýnandi. VEÐUR Sverre Jakobsson, lands- liðsmaður í handknattleik, leikur áfram með Gross- wallstadt í Þýskalandi að minnsta kosti í eitt keppn- istímabil í viðbót, jafnvel tvö, eftir að hafa gert þar nýjan samning. Hann er ennfremur hættur við að hætta með íslenska landsliðinu og hefur nú sett stefnuna á Evr- ópumótið í Danmörku í janúar 2014. »1 Sverre er hættur við að hætta Ásbjörn Friðriksson var í gær út- nefndur besti leikmaðurinn í umferð- um 8-14 í N1-deild karla í handbolta. Atli Hilmarsson, þjálfari og fyrrver- andi landsliðsmaður, segir að endur- koma Ásbjörns hafi verið FH-ingum geysilega mikilvæg og hann hafi jafnt og þétt unnið sér það inn að vera orð- inn einn sá besti í deildinni. »2-3 Endurkoma Ásbjörns er FH geysilega mikilvæg Ekki er enn ljóst eftir leik gærkvölds- ins í íshokkíi karla hvort Björninn eða SA Víkingar fá heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. Annar leikur lið- anna á fjórum dögum fór fram á Akureyri og ekki vantaði spennuna frekar en fyrri daginn. Heimamenn fögnuðu sigri í framlengingu, 3:2, eft- ir að hafa lent undir, 0:2, í fyrsta leik- hlutanum. »3 Framlengdur topp- slagur á Akureyri ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Um síðastliðna helgi flutti Kvenna- athvarfið í nýtt húsnæði sem bæði er stærra en gamla húsnæðið á Hverfisgötu og hentar betur undir starfsemina. Með flutningunum fjölgar svefnherbergjum úr fjórum í átta, sturtum úr einni í fjórar og þá verður sú breyting á að athvarfið og skrifstofur verða aðskilin, svo fátt eitt sé nefnt. „Í fyrra voru hjá okkur að meðal- tali tólf gestir á hverjum degi, sex konur og sex börn, og á þannig degi þurftum við að breyta stofunni okk- ar eða viðtalsherbergi í svefn- herbergi. Núna fengju sex konur hver sitt herbergi,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf. Hún segir að í nýja húsnæðinu gefist kostur á því að efla starfsem- ina. „Það er ýmislegt sem hefur set- ið á hakanum hjá okkur vegna plássleysis, eins og sjálfshjálpar- hópar sem mikil aðsókn er í. Þeir vinna í tíu vikur samfleytt og við höfum þurft að treysta á að eiga herbergi undir þá í þessar tíu vikur, sem hefur ekki gengið sérstaklega vel. En nú verðum við með sérstakt hópaherbergi,“ segir Sigþrúður. Þörf á öflugum forvörnum Rekstur Kvennaathvarfsins er fjármagnaður með framlögum frá ríkinu en húsnæðið var keypt fyrir gjafa- og söfnunarfé. Sigþrúður seg- ir starfsemina standa ágætlega en að sannarlega mætti gera meira til að hlúa að þolendum heimilis- ofbeldis. Vöntun sé á „útibúum“ úti á landi og þá mætti stórefla for- varnir. „Það er endalaust hægt að reka kvennaathvarf og hjálpa konum úr klónum á ofbeldismönnum og fagna sigri þegar þeirri baráttu er lokið en ofbeldismaðurinn er þarna ennþá,“ segir hún. Sigþrúður segir konurnar sem leita til Kvennaathvarfsins eiga það sameiginlegt að vera tilbúnar til að leita sér aðstoðar eftir að hafa ver- ið í ofbeldissambandi en annars séu þær jafn ólíkar og þær eru margar. Hún segir að þjóðfélagið hafi enn ekki vaknað til meðvitundar um það hvernig beri að skilgreina of- beldi. „Fólk veit hvað líkamlegt ofbeldi er og fordæmir það en það vantar kannski aukna meðvitund um and- legt og kynferðislegt ofbeldi í sam- böndum. Sem brotaþolarnir sjálfir skilgreina jafnvel ekki sem of- beldi,“ segir Sigþrúður. Símanúmer Kvennaathvarfsins er 561-1205 en síminn er opinn all- an sólahringinn fyrir þá sem vilja nýta sér þjónustu athvarfsins. Stærra og hentugra húsnæði  Fleiri herbergi og bætt aðstaða í Kvennaathvarfinu Morgunblaðið/Ómar Athvarfið „Það er endalaust hægt að reka kvennaathvarf og hjálpa konum úr klónum á ofbeldismönnum og fagna sigri þegar þeirri baráttu er lokið en ofbeldismaðurinn er þarna ennþá,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir. Staðsetning Kvennaathvarfsins er aldrei gefin upp opinberlega en konum er gjarnan vísað þangað af lögreglu, heilbrigðisstarfsfólki eða öðrum konum sem hafa nýtt sér þjónustu athvarfsins. Öðrum þræði er um öryggisráðstöfun að ræða en Sigþrúður segir fordóma einnig eiga þar þátt. „Ég vildi óska að við gætum með stolti sett upp skilti og merkt húsið „Kvennaathvarfið“ en sum- um konum finnst ennþá óþægi- legt að ganga inn í kvennaathvarf og finnst auðveldara að fara inn í nafnlaust hús,“ segir hún. „Það sem veldur konum oft skömm er þessi spurning: Af hverju fer hún ekki bara? Það er bara litið svo á að hún sé að velja; að hún gæti labbað í burtu. Það vantar skilning á eðli ofbeldis í nánum samböndum. Þetta að sá sem beitir þig ofbeldi er líka þinn nánasti og þú labbar ekki svo auð- veldlega frá því.“ „Af hverju fer hún ekki bara?“ STAÐSETNINGIN EKKI GEFIN UPP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.