Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.02.2013, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2013
HEIMURINN
ARGENTÍNA
BUENOS AIRES Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn vítti argentínsk
stjórnvöld fyrir að birta óboðlegar
upplýsingar um verðbólgu í landinu
og hótaði því að hefðu
þau ekki bætt ráð sitt í
september yrði gripið
til refsiaðgerða, sem
myndu stigmagnast og
gætu endað með því
að landið yrði rekið úr sjóðnum.
Stjórnvöld sögðu í liðnum mánuði
að verðbólgan væri 10,8%, en hópur
óháðra hagfræðinga að hún væri
25,6%. Stjórnvöld hagnast á þessum
útreikningum vegna þess að stór
hluti skulda ríkisins er verðtryggður.
Stjórn Christinar Kirchner, forseta
Argentínu, lofaði að birta nýja og
endurbætta vísitölu um verðbólgu
í október. Um leið var tilkynnt að
verðlag í matvörumörkuðum yrði
fryst næstu tvo mánuði.
SPÁNN
MADRID Mariano Rajoy,
forsætisráðherra Spánar,
þvertók fyrir að hann hefði
gerst sekur um
spillingu eftir
að dagblaðið El
Pais birti myndir
af skjölum, sem
það fullyrti að bæri vitni
greiðslum undir borðið til
hans og annarra félaga í flokki
hans, Lýðfylkingunni. Málið
hefur valdið uppnámi á Spáni,
þar sem atvinnuleysi hefur
ekki verið meira frá lýðveldis-
stofnun. Rajoy hafnaði áskor-
unum stjórnarandstöðunnar
um að hann segði af sér.
TÚNIS
TÚNIS Chokri Belaid, einn helsti
leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Túnis,
var skotinn til bana fyrir utan heimili
sitt. Ekki er vitað hverjir voru að verki.
Hann hafði gagnrýnt stjórn landsins,
sem er undir forustu íslamista. Morðið varð kveikja
harkalegra mótmæla og hét forsætisráðherra landsins
að mynda nýja stjórn sérfræðinga.
PAKISTAN
ABBOTTABAD Bærinn
Abbottabad í Pakistan komst á
heimskortið þegar bandarískir
sérsveitarmenn
gerðu þar árás á
hryðjuverkaleið-
togann Osama bin
Laden, sem hafði
hafst þar við um skeið, og felldu
hann. Nú hyggjast yfirvöld
bæta ímynd bæjarins og reisa
þar skemmtigarð. Ferðamála-
ráðherra héraðsins sagði að
skemmtigarðurinn kæmi bin
Laden ekkert við, tilgangurinn
væri að efla ferðamennsku á
svæðinu.
E
rlendir vígamenn
streyma til Sýrlands,
vopn flæða yfir norður-
hluta Afríku og hryðju-
verk eru framin í Malí.
Allt ber þetta því vitni að öfgasinn-
aðir íslamistar tengdir hryðjuverka-
samtökunum al-Qaeda hafa séð sér
leik á borði þar sem uppreisnirnar,
sem kallaðar hafa verið arabíska
vorið, voru gerðar fyrir tveimur ár-
um.
Þá var fjarvera al-Qaeda og full-
trúa hugmyndafræði hryðjuverka-
samtakanna reyndar sérlega áber-
andi. Afsprengi þeirra hafa hins
vegar nýtt sér það tómarúm valds
sem myndaðist vegna uppreisn-
anna.
Þegar Hillary Clinton, þáverandi
utanríkisráðherra, kom fyrir
Bandaríkjaþing í janúar til að ræða
árásina á bandarísku ræðismanns-
skrifstofuna í Benghazi í Líbíu í
fyrra þar sem sendiherra Banda-
ríkjanna í landinu féll varaði hún
við því að hið pólitíska landslag í
arabaheiminum og Norður-Afríku
hefði breyst.
Ekki efni á að hörfa
„Við höfum ekki efni á því að hörfa
núna,“ sagði hún. „Þegar Bandarík-
in eru fjarverandi, sérstaklega á
slóðum þar sem óstöðugleiki ríkir,
hefur það afleiðingar. Öfgar skjóta
rótum, það bitnar á hagsmunum
okkar og öryggi okkar heima fyrir
er ógnað.“
Clinton fjallaði sérstaklega um
óstöðugt ástandið í Malí. Í janúar
gerðu hryðjuverkamenn þar árás á
gasvinnslustöð í Alsír til að hefna
fyrir að alsírsk yfirvöld skyldu leyfa
Frökkum að fljúga í gegnum loft-
helgi landsins þegar þeir ákváðu að
skakka leikinn í Malí með hervaldi.
Sagði Clinton að í Malí hefði orðið
til „griðastaður fyrir hyrðjuverka-
menn, sem stefna að því að auka
áhrif sín og leggja á ráðin um fleiri
árásir á borð við hryðuverkið í Als-
ír.“
Rússar halda því fram að hern-
aðaríhlutun Vesturlanda í Líbíu hafi
grafið undan öryggi. „Hryðjuverk
eru orðin nánast daglegt brauð, út-
breiðsla vopna er komin úr bönd-
unum, [erlendir] vígamenn hreiðra
um sig,“ sagði Sergei Lavrov, utan-
ríkisráðherra Rússlands, fyrir
skemmstu. „Svo virðist sem
malí sé afleiðingin af Líbíu
og gíslatakan í Alsír er
mikið áhyggjuefni.“
Vestræn ríki hafa lýst
yfir stuðningi við regnhlíf-
arsamtök þeirra hópa, sem
vilja steypa Bashar al-
Assad, leiðtoga Sýrlands,
en þau hafa einnig
áhyggur af þeim er-
lendu vígamönnum, sem kenna sig
við heilagt stríð – jihad – og
streyma til Sýrlands svo hundr-
uðum skiptir ef ekki þúsundum.
Glæpir og bókstafstrú
Jean-Pierre Filiu, prófessor við
stjórnmálafræðistofnunina Science-
Po í París, sagði við fréttastofuna
AFP að al-Qaeda hefði verið til í
íslamska hluta Afríku fyrir arabíska
vorið, en hefði verið eins konar
blanda af glæpasamtökum og jihad-
istum, hefði blandað saman hinu
heilaga stríði múslíma og glæpa-
starfsemi. Einræðisherrarnir, sem
féllu í uppreisnunum fyrir tveimur
árum, hefðu haldið starfsemi þeirra
niðri með harðfylgi. Hinar nýju
stjórnir ættu í vandræðum með að
móta sér stefnu í þessum efnum.
„Til dæmis voru alvarleg mistök
að sleppa Abou Iyadh,“ sagði Filiu.
„Hann var ekki samviskufangi held-
ur hafði verið samverkamaður al-
Qaeda um langt skeið.“
Iyadh er grunaður um að hafa
skipulagt banvæna árás á banda-
ríska sendiráðið í Túnis og barðist á
sínum tíma í Afganistan. Hann var
náðaður og er nú áhrifamikill í vax-
andi hreyfingu harðlínumanna í
röðum salafista í landinu.
Forseti Túnis, Moncef Marzouki,
hefur viðurkennt að stjórn sín hafi
ekki gert sér „grein fyrir hversu
hættulegir og ofbeldisfullir þessir
salafistar“ gætu verið.
Í fréttaskýringu, sem birtist í
upphafi mánaðar í dagblaðinu
Washington Post, segir að samtökin
al-Qaeda hafi í raun verið knésett í
sínum hefðbundnu vígjum í Afgan-
istan og Pakistan og hafi enga
burði lengur til að fremja meirihátt-
ar árásir í Bandaríkjunum. Af-
sprengi samtakanna í Norður-
Afríku og Mið-Austurlöndum teng-
ist al-Qaeda, en bein samskipti séu
lítil og strjál. Þau fjármagni sig
með glæpum, til dæmis mann-
ránum, og búast megi við áfram-
haldandi hryðjuverkum haldi þeim
áfram að vaxa fiskur um hrygg.
Öfgamenn
nýta sér
tómarúm
HREYFINGAR SEM ERU LAUSTENGDAR AL-QAEDA HAFA
RUTT SÉR TIL RÚMS Í NORÐURHLUTA AFRÍKU OG
MIÐ-AUSTURLÖNDUM Í KJÖLFAR UPPREISNANNA
Í ARABAHEIMINUM.
Malíbúar ganga fram hjá skilti, sem Hreyfing einingar og heilags stríðs í Vestur-Afríku setti upp í borginni Gao. Á
skiltinu stendur: „Að framfylgja sjaríalögum er leiðin til hamingju, leiðin til paradísar.“ Hreyfingin tengist al-Qaeda.
AFP
* Staðan í Norður-Afríku og Sýrlandi er óheppileg af-leiðing arabíska vorsins.Seth Jones, sérfræðingur hjá Rand-stofnuninni og fyrrverandi ráðgjafi
bandarískra stjórnvalda um aðgerðir gegn hryðjuverkum.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
Stjórn Baracks Obama
Bandaríkjaforseta hefur
treyst á mannlaus loftför til
að gera árásir á forsprakka
hryðjuverkasamtakanna al-
Qaeda í Pakistan og einnig
notað sérsveitir hersins, til
dæmis þegar ráðist var á
Osama bin Laden í Abbotta-
bad og hann felldur.
Samkvæmt heimildum
The Washington Post er
svigrúm stjórnvalda til að-
gerða gegn hryðjuverka-
mönnum minna í
Norður-Afríku og
Mið-Austurlöndum.
Kjarna al-Qaeda
hefur verið eytt, en
nú þurfa Banda-
ríkjamenn að
ákveða hvernig tek-
ið verði á hinum nýju
hreyfingum.
Barack Obama
TEKIST Á VIÐ ÓGN